Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 39 MINNINGAR ég var að vinna að á síðustu stundu og hefðu aldrei séð dagsins ljós hefði hennar miklu elju og þraut- seigju ekki notið við. Lengi vel ræktaði fjölskylda Þóru grænmeti á fyrra býli sínu og meðfram fullu starfí, heimilishaldi og ýmissi að- stoð við börnin sín og barnabörn reytti Þóra arfa margar helgar sumarsins og vann síðan á haustin hörðum höndum við uppskeruna. Marga mánudaga á haustin kom hún svo á skrifstofuna með gulræt- ur í „tonnatali“ sem hún bæði gaf og seldi á vægu verði og ég minnist enn ætíð Þóru þegar ég smakka gulrætur. Auk vinnusemi og dugn- aðar var Þóra bæði áræðin og fram- sækin manneskja og óhrædd við að reyna eitthvað nýtt og ferðast á framandi slóðir. Hún var einnig fjölfróð og skemmtileg og hafði sér- stakt skopskyn. Þóra tók persónu- legum áföllum sem á henni dundu með miklu hugrekki og jafnaðar- geði. Þrátt fyrir áföll kunni hún líka að gleðjast með glöðum. Ég minnist með ánægju þess hversu geislandi glöð hún var fallega júlídaginn fyrir þremur árum þegar hún hélt okkur samstarfsfólki sínu á Orkustofnun, en þar starfa um 100 manns, veg- lega veislu í tilefni sjötugsafmælis síns. Hún skildi eftir sig stórt skarð á Orkustofnun þegar hún hætti þar störfum sökum aldurs og er einnig sárt saknað nú þótt fundum okkar hafí fækkað síðustu þrjú árin. Ég votta börnum Þóru og öðrum ætt- ingjum innilega samúð mína vegna fráfalls hennar. Hrefna Kristmannsdóttir. Enn hefur dauðinn höggvið stórt skarð í okkar systkinahóp, sem upphaflega vorum 6, en erum nú að- eins 3 eftir lifandi. Er ég fregnaði andlát þitt, systir góð, fyrir viku, setti mig hljóðan um stund og minningarnar hrönnuðust upp í huga mínum. Eg gæti skrifað mörg og fjálgleg orð um okkar, oftast skemmtilegu, samfundi á liðnum áratugum, en þær minningar eru einungis mér ætlaðar og verða ekki bornar á torg. Ég segi því aðeins: Ætíð varstu þinni þjóð þegn, sem kom að liði! Sæl og blessuð, systir góð, sofðu guðs í friði! Þinn „stóri“ bróðir: Sigurgeir. Frænka mín, Filippía Þóra Þor- valdsdóttir eða Dídó, eins og hún var ávallt kölluð meðal frændfólks og vina er látin, ekki eftir langa og stranga baráttu við einn illvígan sjúkdóm heldur eftir áralanga bar- áttu við marga erfiða sjúkdóma sem lögðust saman við þunga lífsbar- áttu, buguðu mótstöðuafl hennar, seiglu og þrek. Minningarnar um kynnin af þess- ari greindu og vel lesnu frænku minni eru orðin alllöng. Hún vistréð mig á mjög gott heimili í nágrenni við sig í Flóanum fyrir 50 árum. Ég dvaldi þar í hálft ár og öðlaðist ómetanlegt veganesti. Kringumstæður minningabrot- anna eru margvíslegar. Það kom í minn hlut að heimsækja hana á fæðingardeildina dagana sem hún beiðeftir fæðingu tvíburanna og vera hjá henni við fæðingu þeirra. Heimsóknin á Fljótshóla með tvö elstu börnin sín. Telpu jafnöldru Sibbu, grunur sem hafði angrað hana varð að sárri vissu, þrotlaus og erfið barátta stóð síðan. Nokkur barna minna dvöldu þar í sveit. Það er lengi hægt að lofa barni að vera þar sem mörg eru fyr- ir. Það ríkti þrá eftir að rækta fleira en matjurtir, þrá eftir að prýða um- hverfíð sem var óhagstætt, vinda- samt með tíðu saltroki frá sjó. Samt var reynt að finna tegundir og prófa árangur. Þekkingu beitt. Undir- tektirnar við heimsóknarbeiðni með danskt par sem hafði áhuga á íslenskri sveit, einkum kúm. Kaffi og pönnukökur við eldhúsborðið til þess að eyða ekki tímanum frá markverðu umhverfi. Ógleymanleg skoðunarferð niður að sjó og út í haga undir frábærri leiðsögn þeirra Jóns. Þekking og frásagnargleði þeirra var okkur ógleymanleg. Ég upplýsti frænku mína eftir heim- komuna um að gestirnir hefðu verið prinsessa Elísabet Knútsdóttir af Danmörku og sambýlismaður hennar. Prinsessan hafði óskað eft- ir samskonar viðmóti og fólk fengi almennt í íslenskri sveit. Betur gat það ekki tekist. Frænka mín hló og sagðist vera fegin að hafa ekkert um göfgina vitað fyrr en eftir á, það hefði bara eitthvað farið úrskeiðis í fáti. Eldhúsbekkurinn hét eftir þetta prinsessuhornið. Ljóminn yfir ferð með Fridu og fjölskyldu að Heklurótum með við- komu í Þjórsárdalslauginni. Við vorum í allt 14 á ferð á þrem bílum og bar margt skemmtilegt og eftir- minnilegt við. Dídó naut hvíldarinn- ar í vel volgu vatni laugarinnar og Jón var sjálfkjörinn margfróður fararstjóri. Nestistíminn var um margt eftirminnilegur, samræðan lífleg og fjölbreytt. Endalaust get ég rifjað upp. Um- hugsun hennar um börnin sín og aðra afkomendur ásamt baráttunni fyrir þroska og velferð Sibbu sem mestan stuðning þurfti var burðar- ás í tilveru hennar. Hún fylgdist vel með þeim öllum þótt hópurinn væri tvístraður hérlendis og erlendis. Óskin um að allir gætu komist til þroska og sjálfstæðis var ríkjandi. Hún bar þá ættarfylgju úr föðurætt að kunna hvorki að kvarta né krefj- ast fyrir sjálfa sig. Hún hafði mjög einörð viðhorf til lífs og dauða og minnir það mig óneitanlega á merk- iskonuna Filippíu, ömmu okkar, sem baðst undan prjáli í minningu sína en beindi styrk til þeirra sem létu gott af sér leiða til handa þeim er minnst máttu sín. Við ætluðum að fara saman vest- ur á bernskuslóðir feðra okkar. Helst vili hún styrkjast svolítið áð- ur. Af því verður ekki með þeim hætti sem hugsað var. Aska frænku minnar mun nú lögð til hvíldar við hlið móður henn- ar sem hún saknaði svo sárt alla tíð. Ég, börn mín og fjölskyldur þeirra sendum ástvinum hennar einlægar samúðarkveðjur. Jóna Valgerður (Didda Höskuldar). Elsku amma Dídó. Vonandi líður þér vel. Mér fannst gaman að vera hjá þér þegar við komum til Reykjavíkur. Skemmti- legast var að leika sér á grænu kist- unni þinni og horfa á okkur í spegl- inum og líka að horfa á Pappírs Pésa í sjónvarpinu þínu. Það var líka gaman að fá þig í heimsókn til okkar. Þá komstu með gömlu skrýtnu ferðatöskuna þína og fékkst að sofa í herberginu mínu. Svo fórum við í göngutúra saman og einu sinni í langan bíltúr í kring- um nesið. Við kveðjum þig með uppáhalds- bæninni okkar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. Langömmustelpurnar, Dagný Elísa og Bryndis Inga. Stykkishólmi. Kæra systir! Snöggt skipast veð- ur í lofti. Aðgerð sem þú hafðir beðið eftir að fara í síðan í vor, var loksins af- staðin. En of seint, veikur líkami og þreytt sálin höfðu ekki nægan þrótt til að þola álagið, svo endalokin urðu óumflýjanleg. Fyrir einu og hálfu ári lentir þú í bílslysi, sem þú hafðir ekki náð þér eftir, og síðan hefur smátt og smátt hallað undan fæti og sorglegt var að sjá hvað af þér var dregið er þú heimsóttir mig nokkrum dögum fyrir andlát þitt. En við vonuðum að bati og betra líf væri framundan. Ég minnist samverustunda okk- ar, sem gáfu okkur báðum mikið, þú eignaðist systur á sjötugsaldri, sem þú hafðir svo oft óskað að þú ættir, og saman fengum við nýja sýn á ýmislegt í tilverunni, og í vitund okkar opnaðist strengur sem tengdi okkur og sameinaði. Ég þakka þér fyrir þessi ár. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælt eraðvita afþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þinveröld erbjörtáný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi éghittiþigekkium hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Öllum ættingjum og vinum sendi ég samúðarkveðjur. Guð gefi þér góða heimferð. Ester. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR, Kambi 4, Patreksfirði, verður jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju miðvikudaginn 8. nóvember kl. 14.00. Fríða Valdimarsdóttir, Örn Sigfússon, Kristján Jóhannsson, Jenný Óladóttir, Sæmundur Jóhannsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum öllum þeim er auðsýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, ömmu og langömmu, ÞURÍÐAR FILIPPUSDÓTTUR, Lönguhlíð 3, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar Krabba- meinsfélagsins og starfsfólks að Lönguhlíð 3. Hafdís Á. Hildigunnarsson, Heba Árnadóttir Theriault, Herdís S. Eriksson, Belinda Þ. Theriault, Cody McBurnett, Jesse McBurnett. FANNEYDÍS SVAVARSDÓTTIR * + Fanney D/s Svav- arsdóttir, Suður- götu 10, Vogum, fæddist í Reykjavík 22. ágúst 1996. Hún iést á barnaspítala Hringsins 29. októ- ber. Utför Fanneyjar Dísar fór fram frá Kálfatjarnarkirkju 3. nóvember síðast- liðinn. lsku litla frænka. Nú ertu lögð af stað þá leið sem okkur öllum er ætlað að fara, og það tekur okkur sárt að sjá á eftir þér, þótt við vitum að þér h'ði mikið betur núna. En eftir situr ljúf minning um htla stúlku sem þurfti að hafa mikið íyrir lífinu en varð að yfirgefa okkur alltof fljótt. Litla hetjan okkar, þú barðist gegnum öll veikindin þín og komst okkur á óvart hvað eftir annað. Alltaf héldum við að nú væri stundin komin, en viljastyrkur þinn og hreysti bar þig gegnum hvert áfallið á fætur öðru. Pabbi þinn og mamma elskuðu þig meir en orðum verður á komið. „Elsku kelhnguna sína“ var pabbi þinn vanur að kalla þig og finnst mér það lýsa vel stoltinu og væntumþykj- unni sem hann bar til þín. Þú varst alltaf svo fín og puntuð þar sem þú sast í háa stólnum þínum, í svo fallegum fötum og með punt í rauða fallega hárinu þínu. Þegar við fluttum til Noregs þá sat það mest í okkur að fá ekki að fylgjast með þér og sjá þig, því við vissum að lífið þitt yrði ekki langt, en það var gott í hvert skipti sem við komum heim, að fá að sjá þig, og sjá hvað þú varst orðin dugleg. Þú varst ákveðin stelpa sem vissir hvað þú vildir, helst vildir þú sitja í fanginu á einhveijum sem dúllaði með þig og þú gafst það skýrt í Ijós að þú varst ekki ánægð ef þú varst lögð niður en hefðir frekar viljað sitja í fang- inu hjá mömmu eða pabba. Elsku Fanney Dís, við getum aldrei með orðum þakkað þér fyrir allt það sem þú kenndir okkur að meta í *■ þessu lífi, og gleði þín yfir litlu, mun lifa í hug- um okkur um ókomna tíð. Elsku Svavar og EUa, Jóhann Sæv- ar og Kristín Helga. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum almáttugan Guð að styrkja ykkur og blessa minninguna um Utlu stúlkuna ykkar. Elsku Fanney Dís, Far þú í friði. Margrét, Jóhann, Aron Ingi og Hafdís Rán. Þú lifðir sem blómið, er bliknar um haust, svo björt og svo saklaus og hrein. Við unnum þér vina og áttum þitt traust, nú öll eru læknuð þín mein. Jesú, hann blessaði böm á jörðu hér, og bauð þeim „Komið til mín“. Hans blessaði faðmur nú bíður eftir þér, mót bömunum guðsríki skín. Þá vinina kæm, er kveðja bamið sitt, Kristur Jesús veiti huggun sína Við leggjum blóm á litla leiðið þitt, í ljúfri þökk, og blessum minning þína. (IS) Kveðja frá bömum og starfsfólki í Ragnarsseli. Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrit- uð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskling- ur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölv- upósti (minning@mbl.is). Nauð- synlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. + Systir okkar og frænka, STEFANÍA K. BJARNADÓTTIR, Kópavogsbraut 1 a, áður til heimilis að Skólagerði 65, Kópavogi, andaðist á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 3. nóvember. Fyrir hönd systkina og annarra ættingja, Gréta Ingvarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.