Morgunblaðið - 05.11.2000, Page 48

Morgunblaðið - 05.11.2000, Page 48
48 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ PliotgwtMaíniíi BRÉF TIL BLAÐSINS Dýraglens Smáfólk 10/19/00 ''WE LL BE BACK WITM TME RE5T OF OUR CMEAP SM0T5 IN A MOMENT „Svo viljum við þakka gestinum fyrir að koma í til okkar..“ „Við komum aftur með ðmerkilegheitin eftir smástund.“ Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 A Er stjórn Islendingafé lagsins í Björgvin haf- in yfir lög félagsins? Frá Helga Haukssyni: í BLAÐAGREIN þessari vill undir- ritaður vekja athygli félagsmanna Islendingafélagsins í Björgvin á stjómarháttum í félaginu undanfarin ár. í 3. grein félagslaganna frá 26.4. 1994 segir: „I stjórn félagsins eru fimm manns og er kosið til hennar á aðalfundi félagsins." Og í 7. grein sömu laga: „Formaður skal kjörinn sérstaklega og síðan fjórir stjórnar- menn sem skipta sjálfir með sér verkum og tveir varamenn." Laga- ákvæðum þessum var gjörsamlega gefið langt nef á aðalfundi félagsins 1998, er kosin var átta manna stjóm. Sú ólöglega stjóm sýndi svo þann fá- dæma slóðaskap að vanrækja að inn- heimta félagsgjöldin fyrir starfsárið 1999-2000. I 7. grein félagslaganna stendur ennfremur: „Kosningar skulu vera leynilegar og eingöngu þeir félagar sem hafa greitt ársgjald og sem mæta á aðalfund geta tekið þátt í kjöri.“ I upphafi aðalfundar félagsins 28.4.1999 kom fram athugasemd frá einum fundaraanna um, að ekki væri hægt að halda löglegan aðal- fund, þar eð félagsmenn væm ekki búnir að borga félagsgjöldin. Stjórn- armennirnir á fundinum ákváðu hins vegar að virða athugasemdina einsk- is og að halda fram aðalfundinum eins og löglegur væri. Stjórnarmenn leyfðu svo utanfélagspersónu að taka þátt í allri atkvæðagreiðslu fundar- ins, þó í fundarbyijun hafi fram kom- ið réttindaleysi hennar. Eins og til að kóróna virðingarleysið fyrir félags- lögunum var persóna þessi svo í lok fundarins kjörin í stjóm félagsins á þann hátt, að foraaður félagsins lýsti einhliða yfir kjöri tveggja nýrra meðstjómenda án þess að bera það undir lögforalega atkvæðagreiðslu fundaraanna. I fundargerð aðalfundarins er því ranglega skráð, að allir aðilar hafi verið kosnir einróma. Þar er einnig sú rangfærsla, að gjaldkeri íslend- ingafélagsins hafi lagt fram reikn- inga félagsins. Hið rétta er, að gjald- kerinn snaraðist inn á aðalfundinn og náði rétt að kasta bunka af ársreikn- ingum á borð fundaraanna áður en hann hljóp aftur á dyr. Gjaldkerinn var því aðeins í flugulíki á fundi þess- um og tók engan þátt í störfum hans. Fréttabréf í sept. 1999 færði fé- lagsmönnum fagnaðarboðskap frá stjórninni: „Héðan af munu félags- gjöld verða innheimt í janúar, og gilda fyrir það almanaksár. Öllum fé- lagsmönnum verður því veitt ókeypis þjónusta fram að næstu áramótum - geri aðrir betur. Það verður að viðurkennast, að hér er vart hægt að gera betur. Þetta er meistaraleg tilraun stjórnarinnar til að slá sjálfa sig til riddara út á eig- in slóðaskap. Hér fellir ólöglega kjörin stjórn Islendingafélagsins niður félagsgjöldin fyrir það tímabil sem hún vanrækti að innheimta. I 4. grein félagslaganna stendur hins vegar að þriðji dagskrárliður aðal- fundar sé ákvörðun árgjalds. Þetta sannar að ekki einu sinni löglega kjörin stjórn íslendingafélagsins hefur vald til að fella niður félags- gjöldin. Ljóst er að rekstur íslendingafé- lagsins í Björgvin var ólögmætur á starfsárinu 1999-2000. Ólögleg nið- urfelling félagsgjaldanna olli umtals- verðu tapi af félagsstarfseminni á tímabilinu sem fjáraagnað var með því að ganga á sjóði félagsins. í bréfi til undirritaðs segir félags- stjórnin um aðalfundarkjör 28.4. 1999: „A aðalfundinum voru gerð þau mistök að kjósa átta einstaklinga í stað sjö inn í stjómina auk þess sem kosinn var einstaklingur sem ekki var gildur meðlimur félagsins." Stjómin lýsti þó skýrt yfir í frétta- bréfi félagsins fyrir aðalfundinn að kosin yrði átta manna stjórn eins og árið þar á undan. Stjómaraenn Islendingafélagsins hafa ennþá látið hjá líða að fylgja þeirri almennu venju að biðjast af- sökunar á mistökum sínum. Ef fé- lagsstjórnin vill íyrir sitt leyti halda því fram, að hér hafi bara verið um eintóm mistök að ræða, þá ætti hún að minnsta kosti að sjá sóma sinn í að biðja félagsmenn sína afsökunar á öllum þessum mistökum. HELGIHAUKSSON, háskólanemandi og félagsmaður í íslendingafélaginu í Björgvin. Um Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins Frá Ingibjörgu Björnsdóttur: MIKIÐ ER skrifað og rætt um heil- brigðiskerfið og hin ýmsu félög sem stofnuð era til styrktar sjúkum. Eg er í hópi þeirra sem þakka vilja frábæra þjónustu kerfisins þegar maðurinn minn, sem nú er látinn, veiktist hastarlega um síðustu jól. Eftir þá bestu meðferð og umönnun sem völ er á á Landspitala-Háskóla- sjúkrahúsi Fossvogi kom hann heim og þá er ég komin að efninu. Heima- hlynningu Krabbameinsfélagsins. Sá stuðningur, styrkur og sú um- hyggja sem þessi frábæri hópur sýn- ir skjólstæðingum sínum, þeim sjúka og fjölskyldu hans, er þess eðlis að engin orð fá nokkra sinni fullþakkað þeim sem þar koma að verki. Þau era allt í senn, hjúkranarfræðingar, sálusorgarar, ráðgjafar og félagar þeirra sem þau annast. Styrkja þig og styðja, hugga og hvetja. Og þau láta ekki staðar numið eftir að striði sjúklingsins er lokið. Á hverju hausti boðar heimahlynningin til funda síð- asta þriðjudag í hverjum mánuði allt fram til vors í húsakynnum Krabba- meinsfélagsins í Skógarhlíð. Þar gefst aðstandendum fyrram skjól- stæðinga þeirra tækifæri til að hitta þau og lækna heimahlynningarinn- ar, hlusta á fyrirlestra og ræða málin yfir kaffi og meðlæti. Eg hvet alla sem notið hafa að- stoðar heimahlynningarinnar að sýna þeim í verki, með því að mæta á þessa fundi og miðla af reynslu sinni eftir því sem tök eru á, hversu mikið störf þeirra era metin. Fólk sem velst í þetta starf er vandfundið og það þarf líka að hlúa að því. Hafi þau hjartans þökk mína og minna. INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Álfheimum 28, Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.