Morgunblaðið - 05.11.2000, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF31M0,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Fram-
kvæmdir
við Smára-
lind ganga
mjög vel
FRAMKVÆMDIR við byggingu
nýrrar verslunarmiðstöðvar í
Kópavogi, Smáralind, ganga vel
að sögn Kolbeins Kolbeinssonar,
verkfræðings og staðarstjóra hjá
Istaki. „Við erum meira en hálfn-
aðir með uppsteypu hússins og í
lok mánaðarins munum við byrja
á því að reisa stálvirki fyrir þak-
ið,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið. Rúmlega 200 iðn-
aðarmenn vinna nú við fram-
kvæmdirnar að sögn Kolbeins en
þar af eru um 55 erlendir iðnað-
armenn. Stefnt er að því að fram-
kvæmdum ljúki í scptember á
næsta ári.
Heildargólfflötur verslunar-
miðstöðvarinnar verður um 63
þúsund fermetrar þegar upp er
staðið og er miðað við að í henni
rúmist um 80 til 100 verslanir.
Þar á meðal stórmarkaður Hag-
kaups, matvöruversiun Nóatúns
og sérvöruverslun Debenhams;
einnig veitingastaðir, þjónustu-
fyrirtæki og kvikmyndahús fyrir
1250 manns.
Yfirlitsmynd yfir framkvæmdimar í Kópavogi.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Bóndi leg'gur vatns-
lagnir í bithagann
Bilféð drekkur sama vatn og Eyjamenn
KRISTJÁN Agústsson, bóndi á
Hólmum í Austur-Landeyjum, vinnur
að því þessa dagana að leggja vatns-
lagnir og setja drykkjarker í beitar-
hagana í þeim tilgangi að geta veitt
hrossum og fénaði hreint drykkjar-
vatn. Skepnumar fá þannig sama
neysluvatn og íbúar Vestmannaeyja
og Austur-Landeyjahrepps því vatns-
lagnimar em tengdar vatnsæð sveit-
arfélaganna sem fær vatnið úr lindum
undir Eyjaíjöllum.
„Eg er að þessu tii að skepnumar
fái hreint og gott vatn,“ segir Kristján
i samtali við Morgunblaðið. „Við bú-
um hér á flötu landi og af þeim sökum
verður endumýjun vatnsins hæg. í
rigningartíð geta myndast pollar með
menguðu vatni,“ útskýrir Kristján.
„Með vatnskerjunum þarf ég hins
vegar ekki að hræðast það að skepn-
umar drekki mengað vatn.“
Að sögn Kristjáns er um að ræða
ellefu drykkjarker, til að byrja með,
sem verða sett niður víða um beitar-
hagana og samtals um fímm kfló-
metra langar vatnsleiðslur sem liggja
að þeim. „Við eram að vinna að því
núna að plægja leiðslumar niður,“
segir hann en von er á kerjum frá út-
löndum á næstu dögum. Gerir hann
ráð fyrir því að allt verði tilbúið í lok
mánaðarins og að þá eigi allar hans
skepnur að hafa aðgang að hreinu
drykkjarvatni í kerjunum. Kostnaður
við þessar framkvæmdir er áætlaður
um tvær milljónir króna að sögn
Kristjáns en hann hefur sótt um styrk
vegna þeirra til framleiðnisjóðs.
Fylgst með af áhuga
Spurður kveðst Kristján ekki hafa
orðið fyrir því að fénaður hans og
hross hafi drukkið mengað vatn en
sveitungar hans hafi orðið fyrir þeirri
reynslu iyrir um það bil tíu árum. „Þá
kom salmonella upp i hrossum og
töldu þeir ástæðuna vera mengað
drykkjarvatn." Þegar Kristján er
spurður að því hvort þessar vatnstil-
raunir séu gerðar að einhverri fyrir-
mynd segir hann svo ekki vera. Hann
kveður ennfremur aðspurður að hug-
myndin sé að mestu leyti hans.
Reyndar hafi bændur haft vísi að
þessu kerfi hjá sér, þar sem hreinu
vatni hafi verið komið fyrir í drykkj-
arfláti fyrir skepnur, en hann viti ekki
til að aðrir hafi farið út í svo stórar
framkvæmdir sem þessar. Segir hann
að leiðslumar fari það langt niður í
jörðu, um sjötíu cm., að ekki eigi að
vera hætta á að þær frjósi.
En hafa sveitungar einnig hug á því
að koma upp kerfi sem þessu? „Nei,
ekki í þessum mæli enn þá en mér
heyrist á mörgum að þeir hafi áhuga á
að fylgjast með hvemig þetta kemur
út.“ Kristján segir aukinheldur að yf-
irdýralæknir, héraðsdýralæknir og
fleiri aðilar fylgist með tilrauninni af
áhuga. Nálægt áttatíu fullorðin hross
ganga í högum hjá Kristjáni og á
þriðja hundrað sauðfjár.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Harry Potter í bókabúðir
STUNDVISLEGA klukkan 13 í
gær hófst sala í bókabúðum á
þriðju Harry Potter bókinni,
Harry Potter og fanginn frá
Azkaban.
Bókabúðir hafa búið sig undir
miklar annir og var bókinni
dreift í þúsundum eintaka. Dreif-
ing bókarinnar er u.þ.b. tíföld
miðað við fyrstu dreifíngu á ís-
lenskri skáldsögu.
í bókabúð Máls og menningar á
Laugavegi biðu nokkrir piltar
spenntir eftir því að geta hafíð
iesturinn þegar sala hófst í gær.
Inflúensu-
bóluefni
upp urið
SÍÐUSTU ár hefur færst í
vöxt að fólk láti bólusetja sig
við inflúensu og nú er svo kom-
ið að bóluefnið er upp urið.
Haraldur Briem, sóttvarna-
læknir, segir að von sé á nýrri
sendingu bóluefnis á næstu
dögum.
Haraldur segir að síðustu ár
hafi flensa stungið sér niður í
byrjun desember og fram í
janúar, en þó gæti hún orðið
fyrr á ferðinni.
„Það er lögð áhersla á að
menn séu búnir að láta bólu-
setja sig í nóvember ætli þeir
að láta bólusetja sig á annað
borð,“ segir Haraldur og nefn-
ir að þar sem meira bóluefni sé
væntanlegt sé ekki öll nótt úti
enn fyrir þá sem vilja láta
bólusetja sig.
Þá segir Haraldur að Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin hafi
miklar áhyggjur af því að nýr
heimsfaraldur gæti farið að
stinga sér niður því nýr in-
flúensustofn hafi ekki komið
fram síðan 1968. „Það sem þá
gerist er að inflúensustofninn
*tekur ákveðinni stökkbreyt-
ingu og hafa slíkir faraldrar
komið upp nokkram sinnum á
þessari öld. Frægastan mætti
þar telja Spánarveikina 1918.“
Auknar og greiðari samgöngur
á milli landa segir Haraldur að
auki nokkuð á áhyggjur manna
af vandanum sem slíkur far-
aldur gæti haft í för með sér.
Séu dánartölur á íslandi í
spænsku veikinni 1918 heim-
færðar upp á ísland í dag segir
Haraldur niðurstöðumar slá-
andi. „Kæmi veikin upp í dag
mætti gera ráð fyrir að í
Reykjavík einni myndu tæp-
lega 2000 manns deyja og af
þeim væru 960 manns á aldr-
inum 20-40 ára,“ segir hann.
Erilsöm að-
faranótt
laugardags
TÖLUVERÐUR erill var hjá lög-
reglunni í Reykjavík aðfaranótt laug-
ardags.
Atta voru teknir granaðir um ölvun
við akstur og tilkynnt var um eina
líkamsárás. Gestur á veitingastað
_hlaut skurð á augabrún og fór á slysa-
'’deild eftir átök við dyraverði staðar-
ins. Dyraverðimir voru að færa pilt út
af staðnum sökum þess að hann hafði
ekki aldur til að vera á vínveitingastað
en pilturinn streittist á móti.