Morgunblaðið - 08.11.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.11.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 257. TBL. 88. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Útgönguspár í bandarísku forsetakosningunum klukkan 1;50 í nótt Fyrstu úrslit bentu til að mjótt yrði á mununum Washington. AP, Reuters. AP Kjörsókn var betri víða en búizt var við. Hér bíður fdlk eftir að fá að kjósa í höfuðborginni Washington. FRAMBJOÐENDURNIR í banda- rísku forsetakosningunum, demó- kratinn A1 Gore og repúblikaninn George W. Bush, frambjóðandi repúblikana, höfðu fengið næstum jafn marga kjörmenn samkvæmt út- gönguspám kl. 1:50 í nótt, þegar Morgunblaðið fór í prentun.: Gore hafði unnið mikilvægan sigur í Florída og Michigan og Pennsylv- aníu, en það var talið nauðsynlegt til að hann gæti gert sér vonir um sigur í kosningunum, þar sem úrslitin þar þóttu tvísýn. Samkvæmt útgönguspám CNN- sjónvarpsstöðvarinnar og annarra bandarískra fjölmiðla vann Gore einnig í Illinois, New Jersey, Mass- achusetts, Maryland, Connecticut, Maine og District of Columbia. George W. Bush var spáð sigri í Norður-Karolínu, heimaríki hans Texas, Oklahoma, Mississippi og Kansas. Áður en ijóst þótti að Gore sigraði í Flórída hafði Bush unnið sigur í Georgíu, Virginíu og Suður-Karol- ínu, en Gore í Vermont. Urslitin í öll- um þessum ríkjum voru í samræmi við það sem spáð hafði verið. Auk forsetakosninganna fóru einnig fram kosningar í öll 435 sæti fulltrúadeildarinnar og 34 af 100 sætum í öldungadeildinni. Repúblikanar hafa haft meirihluta í báðum deildum þingsins síðustu ár- in en demókratar gerðu sér vonir um að endurheimta hann. I fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna var eiginkona forseta, Hillai'y Rodh- am Clinton, í framboði til svo mikil- vægs pólitísks embættis. Hún atti kappi við repúblikanann Rick Lazio um öldungadeildarsæti New York- ríkis. Par voru kjörstaðii' enn opnir er Morgunblaðið fór í prentun. I Missouri gerðu demókratar sér vonir um að frambjóðandi þeirra tii öldungadeildarinnar, Mel Carnahan ríkisstjóri sem lézt í flugslysi fyrir skemmstu, yrði samt kosinn og að ekkja hans yrði skipuð í þingsætið í stað Johns Áshcroft, sem áfram var í framboði fyrir repúblikana. Talið er að kosningabaráttan fyrir þessai' forsetakosningar hafi verið sú dýrasta sem um getur. Þykir láta nærri að um þremur milljörðum Bandaríkjadala, andvirði yfir 250 milljarða króna, hafi verið eytt í hana. Fyrir utan kosningaherferðir frambjóðendanna sjálfra eyddu þrýstihópar af ýmsu tagi um 400 milljónum dala, um 34 milljörðum króna, í sjónvarpsauglýsingar ein- göngu. Hafa þessar tölur stutt kröf- ur um að strangari reglur verði sett- ar um fjáröflun í kring um kosningar. Venesúela Chavez fengið tilskip- anavald Caracas. Reuters, AP. ÞING Venesúela, þar sem stuðningsmenn Hugos Chavez forseta eru í meirihluta, sam- þykkti í gær lög sem veita for- setanum víðtækt vald til að stjórna með tilskipunum, þ.e. að setja lög án þess að þau séu fyi'st lögð fyrir þingið. í sérlögum þessum, kölluð- um „heimildarlögin", er Chavez veitt heimild þingsins til að setja með tilskipunarvaldi 37 lagabálka sem ná yfir ýmis mál- efni, allt frá endurskipulagn- ingu ríkisfjármála til umdeildra laga um enduruppskiptingu lands. Er tilgangurinn sá að Chavez geti hrint í framkvæmd þeirri uppstokkun kerfisins sem hann sjálfur hefur kosið að kalla „byltingu fólksins". Stjórnarandstaðan gegn lögunum Bandalag vinstriflokka, sem að baki Chavez stendur, ræður yfir um 60% þingsæta. Ailir þingmenn stjómarandstöðunn- ar greiddu atkvæði gegn „heim- ildarlögunum" og sögðu þau fela í sér allt of víðtækt valda- framsal í hendur forsetanum. Reuters Ingiríður ekkjudrottning ásamt dætrum sínum þremur á níræðis- afmælisdaginn 28. marz sl. Ingiríður látin Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. FJÖLDI Dana lagði í gærkvöld leið sína að Fredensborgarhöil með blóm og kerti eftir að til- kynnt var um andlát Ingiríðar drottningarmóður, níræðrai' að aldri. Heilsu hennar hrakaði mjög um helgina og lést hún sí- ðdegis í gær, umkringd börnum, tengdabörnum og bamabörnum. Ekkjudrottningin, sem lifði eiginmann sinn, Friðrik IX, um 28 ár, hafði óskað þess að deyja á heimili sínu í Fredensborgarhöll og varð henni að ósk sinni. Ekki var gefið upp hvert banabein hennar var en í tilkynningu hirð- arinnar í fyrradag sagði að hjart- að væri veikt. Talsmaður kon- ungsfjölskyldunnar tilkynnti, að jarðarförin færi fram hinn 14. nóvember. Hin sænskættaða Ingiríður naut vinsælda og virðingar í Danmörku og er hennar minnst sem sameiningartákns þjóðar og konungsfjölskyldu. Fjöldi samúðaróska barst í gær til konungsfjölskyldunnar. ■ Elskuð og virt/24 Israelar segja átök- in vera að minnka Jerúsalem. Reuters, AP. EHUD Barak, forsætisráðherra ísraels, hafði í gær um það skýrari orð en nokkru sinni áður að út úr frið- arsamningum við botn Miðjarðarhafs myndi koma „lífvænlegt palestínskt ríki“. í átökum á sjálfstjórnarsvæð- um Palestínumanna lét enn einn Pa- lestínumaður lífið og yfir fimmtíu slösuðust. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, endurtók í gær kall sitt eftir 2.000 manna friðargæzluliði Samein- uðu þjóðanna sem fengið skyldi það hlutverk að vemda palestínska borg- ara fyrir vopnuðum öryggissveitum ísraela. Sagðist Arafat myndu setja þessa kröfu fram er hann á fund með Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu á morgun, fimmtudag. Var ráðgert að öryggisráð SÞ tæki þessa beiðni Palestínumanna til um- fjöllunar í dag. ísraelar og Bandaríkjamenn eru mótfallnir því að alþjóðlegt gæzlulið verði sent á vettvang. Bandarískir stjómai'erindrekar viidu þó ekki full- yrða um það í gær, hvort Bandaríkin myndu beita neitunarvaldi gegn tii- lögunni í öryggisráðinu. Bentu sumir á, að það hefði gerzt áður, að slíkt al- þjóðlegt gæzlulið hefði verið sent til borgarinnar Hebron á Vesturbakk- anum. Hryðjuverkamaður sprengdi sjálf- an sig í loft upp við höfnina á Gaza- ströndinni í misheppnaðri tilraun til þess að granda ísraelskum lögreglu- báti. Þrátt fyrir þetta greindu ísraelsk stjómvöld frá því að mjög hefði dreg- ið úr óeirðum á sjálfstjórnarsvæðun- um frá því að samið var um vopnahlé í síðustu viku. „Ofbeldið hefur dregizt saman um 30-40%, en það hefur því miðurJ^ekki orðið kyrrt,“ sagði Nachman Shai, talsmaður ísraeis- stjórnar. Demirel, Solana og Jagland í rannsóknarnefndinni ísraelar og Palestínumenn kenna hvorir öðmm um upptökin að ofbeid- isöldu síðustu vikna sem samtals 178 manns, langflestir Palestínumenn, hafa beðið bana í. Á leiðtogafundi í Sharm-el-Sheikh í Egyptalandi um miðjan október var gert óformlegt samkomulag um að binda enda á átökin, en það hefur ekki enn haft áhrif. Að koma skyldi á fót óháðri nefnd, sem að mati bandarískra stjórnvalda myndi gera hlutlæga úttekt á þessari síðustu átakabylgju Israela og Pal- estínumanna í því skyni að hindra að hún gæti endurtekið sig var hluti af Sharm-el-Sheikh-samkomulaginu. Taismaður Hvíta hússins tilkynnti í gær, að George Mitchell, fyirver- andi þingmaður í öidungadeild Bandaríkjaþings og sáttasemjari á Norður-írlandi, hefði verið fenginn til þess að fara fyrir slíkri rannsókn- arnefnd. Auk Mitchells munu Wan-en Rudman, annar fyrrverandi öldunga- deildarþingmaður, Siileyman Demir- el, forseti Tyrklands, Javier Solana, talsmaður Evrópusambandsins í ut- anríkis- og öryggismálum, og Thor- björn Jagland, utanríkisráðherra Noregs, sitja í rannsóknarnefndinni. MORGUNBLAÐK) 8. NÓVEMBER 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.