Morgunblaðið - 08.11.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 21
VIÐSKIPTI
British
Airways
hyggst
selja Go
London. Morgunblaðið.
BRITISH AIRWAYS hefur tilkynnt
fyrirætlanir sínar um að selja dótt-
urfyrirtæki sitt, lágfargjaldaflugfé-
lagið Go, sem meðal annars hélt ugpi
áætlunarflugi milli London og Is-
lands í sumar, og sagðist þess í stað
ætla að einbeita sér að þvi sem það
gerði best, að reka flugfélag sem
byði upp á fulla þjónustu við farþega.
Hefur félagið verið boðið til sölu fyr-
ir um 300 milljónir sterlingspunda,
eða um 37 milljarða króna.
British Aii-ways skýrði um leið frá
því að félagið hefði skilað 12,5%
meiri hagnaði nú en á sama tíma í
fyrra, sem er töluvert meira en ráð
var gert fyrir og er til marks um það
að félagið er nú loks að rétta úr kútn-
um eftir umhleypingasama mánuði.
Félagið hefur þurft að glíma við
aukna samkeppni lágfargjaldaflug-
félaga og hefúr jafnvel keppt við
dótturfyrirtæki sitt, Go, á nokkrum
flugleiðum. Vandræðin jukust einnig
eftir að slitnaði upp úr sameiningar-
viðræðum BA við hollenska flugfé-
lagið KLM á haustdögum.
Hagnaður þrátt fyrir
hækkun olíuverðs
I kjölfar slæmrar skuldastöðu síð-
astliðið vor var framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Bob Ayling, látinn
hætta. Við starfínu tók Astralinn
Rod Eddington og hefur félagið nú
skilað hagnaði að nýju þrátt fyrir
hækkun olíuverðs og sýndu útreikn-
ingar annars ársfjórðungs 264 millj-
óna sterlingspunda hagnað, eða
rúma 32 milljarða íslenskra króna
sem var 117 milljóna sterlingspund-
um meira en á sama tíma í fyrra.
I tilkynningu frá fyrirtækinu
skýrði Rod Eddington frá því að fyr-
irtækið myndi ekki sýna nokkra
vægð gagnvart þeim flugleiðum og
eignum fyrirtækisins sem ekki skil-
uðu hagnaði og yrðu flugleiðir ein-
faldlega lagðar niður ef þær reynd-
ust ekki arðsamar.
Fjármálasérfræðingar í Bretlandi
telja að hin nýja stefna BA að fljúga
smærri vélum og flytja hlutfallslega
fleiri farþega sem borga hærra verð
sé nú að skila árangri enda var skýrt
frá því að á öðrum ársfjórðungi
þessa árs hafi félagið hagnast 8,7%
meira á hvern farþega en á sama
tíma í fyrra sem er mesta aukning á
milli ára til þessa.
Hlutabréf í félaginu juku verðgildi
sitt um 3,9% einungis skömmu eftir
að tilkynnt var um sölu Go. í gær var
haft eftir einum framkvæmdastjóra
írska flugfélagsins Ryanair að það
teldi engan ávinning í því að kaupa
Go og Ryanair myndi aðains hafa
áhuga á Go ef British Airways borg-
aði með félaginu til þess að losna við
það.
Þrekhjól
verð frá
14.300,
^9% afcUj
Heilsuræktardagar
Frábært
verð!
10% afsláttur
af þrek og aefingatækjum
pyrir íþróttadótið
íþróttatöskur frá kr.:
990
Bakpokar frá kr.:
500
Stuttermabolir frá kr.
690 - w
Stuttbuxur frá kr.
990
Þolfimifatnaður
20%
afsláttur
þróttaskór, Adidas, Nike, Puma, Reebok,
20 % afisláttur
Ármúla 40
Sími: 553 5320
Iferslunin
’AMUKVD
Hönnun: Gurmar St