Morgunblaðið - 08.11.2000, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Að segja allan
sannleikann
í MBL. laugardaginn
4. nóv. sl. ritaði forstjóri
Happdrættis Háskóla
íslands (HHÍ) grein lun
einkaleyfi happdrættis-
ins til að greiða vinn-
inga út í peningum.
Hvergi kemur fram í
greininni hvert einka-
kn'íisgjaldið rennur.
iftaðrevndin er sú að
sama upphæð og einka-
leyfisgjald HHI hljóðar
upp á á ári hverju, og
kemur fram í tekjulið
B-hluta ríkissjóðs, fer í
RANNÍS (Rannsókn-
arráð íslands) og birtist
í gjaldalið B-hluta ríkis-
sjóðs. Upphæð þessi hefur verið ná-
lægt 10% af heildartekjum RANNÍS.
Af þeim heildartekjum renna um 2(3
Happdrætti
Einkaleyfisgjaldið, seg-
^ ir Sigurður Agust
Sigurðsson, rennur til
baka til Háskóla Islands
í formi rannsóknar-
verkefna.
hluta í rannsóknarverkefni á vegum
Háskóla íslands. í stjórn RANNÍS
skipar Háskóli Islands 2(3 í stjórnina.
RANNÍS leggur Háskóla íslands til
^l'jn meiri fjármuni í formi styrkja en
' þeir leggja fram. Með öðrum orðum;
Einkaleyfisgjaldið rennur til baka til
Háskóla Islands í formi rannsóknar-
verkefna en það sem eftir stendur af
hagnaði HHÍ rennur til bygginga-
framkvæmda á vegum Háskóla Is-
lands, lóðaframkvæmda og tækja-
kaupa skv. lögum sem happdrættið
starfar eftir.
Það er nauðsynlegt að fólk átti sig
á þessu þegar fjallað er um einka-
leyfisgjald HHÍ og talað um eins og
það sé einhver skattur sem HHI
greiðir. Svo er ekki.
I fyrmefndri grein kom fram að
einkaleyfið hefur takmarkað gildi
fyrir HHÍ enda hafa yfirvöld heimil-
að nýjum happdrættum að greiða
^túhninga út í peningum. Jafnframt er
sumum úthlutað einkaleyfum fyrir
það happdrættisform sem þau reka.
Hér er átt við íslenska getspá (einka-
ieyfi um talnagetraunir), ísl. get-
raunir (einkaleyfi um íþróttagetraun-
ir) og Isl. söfnunarkassar (rekstur
um söfnunarkassa). Rétt er að þau
greiða engin gjöld fyrir slík einka-
leyfi.
Vilja vinna í vemduðu
umhverfí
Forstjóri HHÍ birtir lög um rekst-
ur happdrætta sem starfa eftir sér-
stökum lögum og tíundar hvert happ-
drætti fyrir sig en rekstrarform
þeirra eru ólík og lögin því ekki sam-
'•‘ifcrileg í stórum dráttum.
Hann tekur sérstaklega fram við
umijöllun um lög DAS og SÍBS, sem
er athyglisvert, að þau greiði vinn-
inga út í peningum eða ávísunum
gegn framvísun reikninga. Fullyrðir
hann jafnframt að hér sé ekki um
neitt annað en peningavinninga að
ræða. Það mátti skilja það svo að
þessar persónulegu skoðanir hans
væru í lögunum sem ég vil leiðrétta
hér með. Auk þess er
vara ígildi verðmætis
og þar með verðmæti í
peningum. í ofanálag
fullyrðir hann að aug-
lýsingar DAS og SÍBS
gefi það til kynna að um
peningavinninga sé að
ræða. Já, svo mikið hef-
ur forstjóra HHÍ verið
niðri fyrir að árlega hef-
ur hann eða fulltrúar á
hans vegum sent inn
kærur og kvartanir ým-
ist til yfirvalda og/eða
Samkeppnisstofnunnar
þai’ sem gerðar eru ít-
rekaðar athugasemdir
við texta í auglýsingum
þessara happdrætta. Og jafnvel hafa
textar stjómenda í sjónvarpsþáttum
á vegum DAS verið kærðir og fleira
væri hægt að tíunda hér en læt þetta
nægja að sinni.
Þrátt fyrir einkaleyfi HHÍ hefur
það verið virt að vettugi þegar ný
happdrætti hafa verið stofnuð á síð-
ustu 20 árum eða svo. Samt sem áður
hafa flokkahappdrættin DAS & SÍBS
mátt búa við þá röksemdarfærslu ein
happdrætta að ekki sé lagaleg heim-
ild til að heimila þeim að greiða vinn:
inga út í peningum enda greiði HHÍ
einkaleyfisgjald til að fá að greiða
vinninga út í peningum.
2/3 einkaleyfísgjaldsins kemur
frá spilakössunum
Þegar Háskóli íslands þarf á
auknu fé að halda við byggingu fyrir
Náttúrfræðistofnun Háskólans er
óskað eftir því að einkaleyfisgjaldið
renni óskert til þeirrar byggingar. Af
þeim 70 milljónum sem HHI greiddi í
einkaleyfisgjaldið koma aðeins ná-
lægt 20 milljónum króna v/flokka-
happdrættisins. Spilakassamir em
að skila nálægt 50 milljónum króna
eða með öðrum orðum ca. 2/3 af hagn-
aði HHI kemur úr spilakössunum.
Hvers vegna eiga ílokkahappdrættin
DAS og SIBS að búa ein við slík höft?
Það er skoðun margi’a að það sé
kominn tími til að fella niður þetta
einkaleyfisgjald sem í raun hefur
enga þýðingu lengur nema þá gegn
DAS og SIBS. Ef einkaleyfisgjaldið
verður fellt niður era ekki lengur rök
fyrir einkaleyfi HHI til að greiða
vinninga út í peningum. Einkaleyfið
stendur í vegi fyrir því að happdrætt-
in DAS og SÍBS geti þróast eins og
eðlilegt má teljast en þau hafa sýnt og
sannað að fjármagn það sem þau hafa
aflað með stuðningi fólksins í landinu
í um og yfir 50 ár hefur komið lands-
mönnum öllum til góða.
Ef halda á uppi þeim rökum að
einkaleyfið skuli standa samt sem áð-
ur era menn komnir út á hálan ís. Þá
má öllum vera það ljóst að markmiðið
er að veikja stöðu Happdrættis DAS
og SÍBS svo þau geti ekki starfað á
samkeppnisgranni.
Að lokum þetta. í mörg ár hefur
verið lögð mikil áhersla í viðskipta-
fræðideild Háskóla íslands á að efla
fijáls viðskipti sem mest og bent á að
höft og viðskiptaþvinganir séu af hinu
illa. Þegar svo þeir hinir sömu læri-
feður þurfa að vinna við viðskipti er
kallað eftir vemduðum lögum og þeir
hinir sömu leggja áherslur á að höft
skuli standa þeim í hag. Er hér átt við
stjóm HHI.
Höfundur er forstj. Happdrættis
D.A.S.
Sigurður Ágúst
Sigurðsson
www.mbl.is
Svar til Brynju Tomer
í GREIN í Morgun-
blaðinu 24. október sl.
ber Brynja Tomer
blaðamaður fram
nokkrar spurningar
varðandi starfsemi ein-
angrunarstöðvar
gæludýra í Hrísey. Til-
efnið er athugasemd
undirritaðra við viðtöl
sem hún átti við tvo er-
lenda hundadómara á
hundasýningu Hunda-
ræktarfélags ísland og
birtust í Morgunblað-
inu 10. október.
Spurning 1. Spurt er
hvaðan komi upplýs-
ingar um þyngd tiltek-
ins hunds sem fjallað er um í viðtal-
inu.
Svar. Allir hundar sem koma til
vistunar í einangrunarstöðinni eru
vegnir við komu þeirra í stöðina og
við brottför. Verk þetta annast
sóttvarnadýralæknir og umsjónar-
maður stöðvarinnar sem heldur
spjaldskrá um komudag, útflutn-
ingsland, þyngd dýrs við komu og
síðan eftir þörfum, tegund fóðurs og
magn, umönnun, s.s. böðun og
ormalyfsgjöf, og dagsetningar á
sýnatökum. Einnig skráir sótt-
varnadýralæknir upplýsingar í
spjaldskrána, s.s. um niðurstöður úr
sýnatökum og meðferð á sjúkdóm-
um ef upp koma.
Spurning 2. Hver metur hvenær
hundur étur nóg og hvaða forsendur
eru tii grundvallar því mati? Ef
tveir hundar eru saman í búri og
misfóðran er augljós, er þá ekki
eðlilegt að aðskilja hundana á mat-
artíma?
Svar: Sóttvarnardýralæknir met-
ur ástand hundanna þegar þeir
koma og fylgist með ástandi þeirra
þrisvar í viku og dýrahirðirinn dag-
lega. Ef tveir hundar eru hafðir
saman í búri era þeir aðskildir á
matartíma, annar fóðraður í inni-
búri en hinn í útibúri.
Spurning3. Vegna þess sem fram
kemur í athugasemdum um að til-
tekinn hundur hafi verið horaður,
taugaveiklaður og hræddur við
komuna í Hrísey er spurt: Hver mat
ástand hundsins á þennan hátt, hve-
nær fór það mat fram og hvað er
gert í Hrísey til að hjálpa hundi í
slíku ástandi til að bæta við sig holdi
Gæludýr
Sl. 6 ár hafa boríst 3
skriflegar kvartanir til
stöðvarinnar frá
viðskiptavinum, segja
Hákon Sigurgrímsson
og Halldór Runólfsson,
en engin kæra.
og vinna á hræðslu og taugaveiklun?
Svar: Hér er um að ræða mat
sóttvarnadýralæknis og umsjónar-
manns stöðvarinnar við komu dýrs-
ins í sóttvarnarstöðina. Reynt er að
hjálpa dýrum sem þannig er ástatt
um með aðhlynningu og góðu atlæti.
Af greinargerð sóttvarnardýra-
læknis og umsjónarmanns varðandi
umræddan hund má ráða að vel hafi
til tekist, hundurinn hafði við brott-
för þyngst um 4,5 kg, var meðfæri-
legur og glaðlegur við skoðun og á
greinilegum batavegi.
Spurning 4. Er einkaleyfi veitt
fyrir rekstri einangrunai’stöðvar?
Ef ekki, hvers vegna hefur öðrum
einkaaðilum verið neitað um leyfi til
reksturs einangi’unarstöðvar?
Svar: Einangranarstöð gæludýra
í Hrísey er í eigu landbúnaðarráðu-
neytisins. Gerður hefur verið samn-
ingur við aðila í Hrísey sem hefur
umsjón með rekstri stöðvarinnar.
Samkvæmt lögum um innflutning
dýra, nr. 54/1990, er ekki heimilt að
veita einkaaðila heimild til reksturs
einangrunarstöðvar.
Spurning 5. Hvert fara flestir
hundar eftir Hríseyjardvölina?
Svar: Síðastliðin 5 ár hafa 55,4%
þeirra dýra sem vistuð hafa verið í
einangrunarstöðinni í Hrísey verið í
eigu fólks sem búsett er á Reykja-
víkursvæðinu og Suðurnesjum.
Spurning 6. Hversu oft skoðar
dýralæknir hunda í einangrunar-
stöðinni með tilliti til andjegs og
líkamlegs ástands og er eiganda til-
kynnt ef hundur þrífst illa?
Svar: Sóttvarnadýralæknir kem-
ur í stöðina þrjá daga í viku, mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga, og
fylgist með ástandi dýranna. Ef dýr
þrífst illa eða aðrir erfiðleikar koma
í ljós er haft samband við eiganda.
Spurning 7. Hversu margar
kvartanir og/eða kærur hafa borist
vegna sóttvarnarstöðvarinnar í
Hrísey? Hvers eðlis eru þær og
hvernig hefur landbúnaðan’áðu-
neytið brugðist við þeim.
Svar: Sóttvarnarstöðin var tekin í
notkun árið 1990. Ekki er til yfirlit
um kærar og kvartanir fyrstu árin
en sl. 6 ár hafa borist þrjár skrifleg-
ar kvartanir til stöðvarinnar frá við-
skiptavinum en engin kæra. Nokkur
fjöldi kvartana í síma eða tölvupósti
berast árlega til stöðvarinnar og
landbúnaðarráðuneytisins. Flestar
era varðandi langan biðtíma eftir
einangran, vegna óánægju með
dagsetningar á komu dýrs o.fl.
framkvæmdaratriða.
Hér með er þessum skrifum lokið
af okkar hálfu.
Hákon er deildarstjóri í land-
búnaða rráðuneyti og Halldór
yfirdýralæknir.
Er Heimdallur
heppilegur?
UM ALDIR lifði hér
í landinu þjóð sem gerði
sér fulla grein fyrir því
á hverju afkoma henn-
ar byggðist. Fólk vissi
að ef hey næðist ekki í
hús og fiskurinn væri
ekki verkaður lifði það
tæpast harðan veturinn
af. Þó að vísu hafi dreg-
ið úr mikilvægi land-
búnaðar er þó enn fólk
sem hefur viðurværi
sitt af honum. Mikið
vatn hefur til sjávar
runnið frá tíma sjálfs-
þurftabúskapsins svo
að við byltingu má líkja
en það er ennþá ver-
stöðin ísland sem stendur undir
þjóðfélaginu eins og við þekkjum það
í dag. Þróttmiklir útgerðabæir
hringinn um landið stóðu undir vel-
ferðinni og komu okkur þangað sem
við eram í dag, en þjóðfélagið breyt-
ist. Hetjur hafsins heyra nú sögunni
til og fyrirmyndimar era vefararnir
miklu og verðbréfamiðlaramir. Slor-
ið er Pólverjanna en peningamir era
okkar.
Uppbygging þjóðfélagsins er
flestum Ijós nema þeim vinum mín-
um í Heimdalli, félagi ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. Þar er ein-
ungis kallað eftir frelsi. Frelsið er
allt sem þarf. Þá þurfum við ekki
lengur að hugsa um Asu á Fáskrúðs-
firði, Signýju í Hólminum eða Helgu
Húnvetning. Frelsið segir allt sem
segja þarf og leysir vanda alheims-
ins.
Hran byggðanna er
bara eðlileg þróun
segja þeir Heimdell-
ingar og lýsa frati á
frekari uppbyggingu á
landsbyggðinni. Þeir
vilja alla peninga á
Reykjavíkursvæðið. Ef
þetta er þróun þá er
2000 vandinn fundinn,
hann er byggðavandi.
Byggðavandi sem er að
leggja heilu byggðalög-
in að velli með tilheyr-
andi kostnaði og þreng-
ingum fyrir þá sem þar
búa. Þessu hefur verið
líkt við mannleg móðu-
harðindi. I þessu blaðri
sínu era þeir farnir að minna nokkuð
á annálaðan kjaftaask upp í Háskóla
sem fáir hlusta lengur á.
SUS hélt á haustdögum þing sitt á
Akureyri, því miður átti ég ekki
heimangengt en ljóst má vera að
Heimdallur hefur neytt liðsmunar
enda bera ályktanir þingsins þess
vott.
„Samband ungra Sjálfstæðis-
manna hafnar tillögum auðlinda-
nefndar sem miða að þjóðnýtingu
auðlinda og aukinni skattheimtu. Það
verður aldrei sátt um sósíalisma á
íslandi. Samband ungra Sjálfstæðis-
manna leggur til að ríkisstjórn Dav-
íðs Oddssonar og Alþingi Islendinga
virði tillögur auðlindanefndar að
vettugi".
Frelsi er afar vandmeðfarið þar
sem fólk verður að búa í sátt og sam-
lyndi.
Páll
Sverrisson
Stjórnmál
Sem betur fer er það
ekki Heimdallur sem
stjórnar landinu, segir
Páll Sverrisson, heldur
Alþingi og ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar.
Til þess að samfélag geti dafnað
verða að vera leikreglur. Eg get ekki
ákveðið minn hámarkshraða sjálfur
eða að á mínum bíl verði vinstri um-
ferð, það er augljóst að slíkt gengur
ekki. Að krefjast frelsis í öllum mál-
um er að kalla yfir sig stjórnleysi. En
það er kannski í lagi. Markaðurinn
bregst við? Það verður kannski á
endanum að sá á réttinn í umferðinni
sem er á stærri bfl.
Framganga Heimdellinga er
mesti voði sem steðjar að okkur ung-
um sjálfstæðismönnum og langt því
frá að þetta félag sé heppilegt
flokknum.
Þjóðinni svelgist eðlilega á við
málflutning þeirra félaga minna. Það
era ekki stórir hugsuðir sem marka
hina skammsýnu stefnu félagsins um
sölu íslenskra auðlinda til handa út-
lendingum. Þama er skautað á afar
þunnum ís og einungis hugsað um
stundargróða í stað þess að hugsa
með reisn til framtíðar. En sem bet-
ur fer er það ekki Heimdallur sem
stjórnar landinu heldur Alþingi og
ríldsstjórn Davíðs Oddssonar og ég
treysti því að sá mikli stjómmálafor-
ingi láti ekki klúbba eins Heimdall
hafa áhrif á gjörðir sínar.
Höfundur er formaður Fylkis, fólags
ungra sjálfstœðismanna á ísatirði.