Morgunblaðið - 08.11.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 61
Samtök ferðaþjónustu
um hækkun olíuverðs
Ríkið verð-
ur að slaka
á klónni
SAMTÖK ferðaþjónustunnar sendu
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
fyrir helgina bréf þar sem segir að
verði ekki gripið til einhverra ráðstaf-
ana vegna hækkunar oh'uverðs muni
staða hópbifreiðagreina „verða nær
óbærileg með fyrirsjáanlegum afleið-
ingum“.
I bréfinu er vitnað til þess að Geir
hafi viðurkennt að hlutur ríkisins sem
næmi virðisaukaskatti af olíuverðinu
hækkaði, en fyrirtækin gætu talið
hann til innskatts.
„Þá er því til að svara að til þess að
svo megi verða þurfa fyrirtækin að
vera í virðisaukaskattskerfinu," segir
í bréfinu. „Fólksflutningar hér á
landi, sem ekld gi’eiða virðisaukaskatt
frekar en aðrir fólksflutningar, sitja
uppi með virðisaukaskattinn og mega
fyrirtækin í þessari atvinnugi-ein nú
greiða ííkinu allt að 6 krónum meira í
virðisaukaskatt af hverjum olíulítra
enþau gerðu í ársbyrjun 1999.“
I bréfinu er þess krafist að ríkið láti
þessa hækkun ganga aftur til hóp-
ferða- og sérleyfisfyrirtækja og um
leið farið fram á að slakað verði á
skattheimtu þannig að fyrirtækin fái
svigrúm til að mæta olíuverðshækk-
unum. Bent er á að tekjur ríkisins af
þungaskatti hafi stóraukist og láti
nærri að þær séu allt að einum millj-
arði hærri árið 2000 en gert hafi verið
ráð fyrir: „Þarna verður að slaka á
klónni".
Samfylkingin
í Suðvesturkjördæmi
Ný stjórn
kjörin
AÐALFUNDUR Samfylkingarinn-
ar í Suðvesturkjördæmi var haldinn í
Hafnarfirði miðvikudaginn 1. nóv-
ember. Á fundinum var kjörin stjórn
kjördæmisráðsins og er hún þannig
skipuð:
Halldór S. Magnússon, Garðabæ,
formaður, Geir Þórólfsson, Hafnar-
firði, gjaldkeri, Dóra Hlín Ingólfs-
dóttir, Mosfellsbæ, Kristján Svein-
bjömsson, Álftanesi, Logi
Kristjánsson, Kópavogi, Páll Vil-
hjálmsson, Seltjarnarnesi, og Val-
gerður Guðmundsdóttir, Hafnar-
firði. I varastjórn: Anna Magnea
Hreinsdóttir, Garðabæ, Gerður
Magnúsdóttir, Kópavogi, og Sandra
Franks, Álftanesi.
Á fundinum fóra fram almennar
stjórnmálaumræður þar sem þing-
menn kjördæmisins fluttu framsögu
og samþykkt var ályktun þar sem
fjallað er um fyrirhugaðar skatta-
hækkanir, kjör aldraðra og öryrkja,
samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu
og menntamál.
Nýtt námskeið
um álitamál í
erfðavísindum
KÁRI Stefánsson, forstjóri íslenskr-
ar erfðagreiningar, Gísli Pálsson, for-
stöðumaður Mannfræðistoíhunar HI,
og Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, era meðal fyrirles-
ara á námskeiðinu Líívísindi og sam-
félag hjá Endurmenntunarstofnun
HÍ dagana 24.-25. nóvember. Á því
verður leitast við að svara áleitnum
spumingum sem vaknað hafa í kjölfar
örrai- þróunar í líftækni og erfðavís-
indum undanfarin ár.
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað
um eignarhald á erfðaupplýsingum,
siðferðisleg álitamál í erfðavísindum,
hlutverk löggjafans og genalækning-
ar. Námskeiðið er haldið í samstarfi
við íslenska erfðagreiningu og Mann-
fræðistofnun HÍ og er öllum opið.
Frekari upplýsingai- um námskeið-
ið fást á vefsetrinu www.endurmennt-
un.is.
Vegprestar settir
upp á hálendi
LIONSKLÚBBURINN Freyr í
Reykjavík fór í sína árlegu merk-
ingaferð í byrjun september.
Merkt var á afrétti Skaftár-
hrepps, frá Langasjó að Rjúpna-
felli, og voru alls sett upp 26
skilti.
Lionsklúbburinn Freyr hefur
frá árinu 1969 sett upp um 800
skilti á hálendi og á þjóðvegum.
Fræðslufundur á
vegum Minja og sögu
GUÐJÓN Friðriksson
sagnfræðingur kynnir bók
sína, þriðja bindi ævisögu
Einars Benediktssonar, á
fundi Minja og sögu í Nor-
ræna húsinu fimmtudag-
inn 9. nóvember kl. 17.30.
„Með þriðja bindinu lýk-
ur hinni miklu ævisögu
þjóðskáldsins, hugsjóna- Einar Bene- frá Miiyum og sögu.
mannsins og snillingsins diktsson skáld. Guðjón mun svara fyr-
dáða og umdeilda Einars Bene- irspurnum fundarmanna. Fundur-
diktssonar. Slíkir menn hverfa inn er öllum opinn.
ekki þegjandi og hljóða-
laust af sjónarsviðinu og
kannski var Einar aldrei
stærri í sniðum en eftir
að halla fór undan fæti í
lífi hans, skuldum vafinn
heimsborgari sem lauk
ævinni á afskekktum
sveitabæ," seeir í frétt
Jólakort
Hringsins
komið út
JÓLAKORT Hringsins er komið út.
í ár prýðir jólakortið mynd eftir
listakonuna Guðrúnu Geirsdóttur.
Jólakortaútgáfa Hringsins hefur
í rúma tvo áratugi verið ein aðal-
uppistaðan í fjáröflun félagsins til
styrktar Barnaspítalasjóði Hrings-
ins. Á síðasta ári var hafist handa
við byggingu sérhannaðs barna-
spítala á Landspítalalóð.
Jólakoi-tið er að öllu leyti unnið í
Odda hf. Útgefandi og dreifinga-
raðili er Hringurinn kvenfélag, Ás-
vallagötu 1,101 Reykjavfk og er
hægt að leggja inn pantanir þar.
Fræðslufundur um geðræn
vandamál aldraðra
LÆKNAFÉLAG Reykjavíkur
stendur fyrir fræðslufundi fyrir al-
menning fimmtudaginn 9. nóvember
kl. 20.30 í húsnæði læknasamtak-
anna á 4. hæð, Hlíðarmára 8, Kópa-
vogi. Yfirskrift fundarins er:
Þunglyndi, heilabilun og önnur
geðræn vandamál hjá öldruðum. Að-
gangur er ókeypis og allir eru vel-
komnir.
Fundurinn er skipulagður þannig
að sérfræðingur heldur erindi um
ákveðið heilsufarsvandamál og síðan
er góður tími til fyrirspurna og um-
ræðna. Þannig gefst almenningi
tækifæri til að spyija sérfræðinginn
beint og taka þátt í umræðunni.
Þunglyndi og geðræn einkenni era
algeng vandamál meðal aldraðra.
Þar sem hópur aldraðra fer ört
stækkandi í þjóðfélaginu er hér um
umfangsmikið heilsufarsvandamál
að ræða. Fyrir utan vanlíðan sjúkl-
inga valda þessi einkenni miklu álagi
og áhyggjum hjá aðstandendum,
segir í fréttatilkynningu.
A fundinum tala læknarnir María
Ólafsdóttir, sérfræðingur í heimilis-
lækningum, Sigurður Páll Pálsson,
sérfræðingur í geðlækningum, og
Ólafur Þór Ævarsson, sérfræðingur
í geðlækningum.
Næsti fundur verður fimmtudag-
inn 23. nóvember og þá talar Har-
aldur Briem sóttvarnarlæknir um
matarsýkingar.
Fyrirlestur um
heimili og skóla
DR. SUNITA Gandhi, stofnandi
„The Council of Global Education"
og ráðgjafi CMS-skólans á Indlandi,
sem í eru 24.000 nemendur og er
þekktur að einstökum kennsluað-
ferðum, afburða námsárangri og
sérstæðu samstarfi heimilis og skóla,
fjallar um viðfangsefnið: Manngildi
og menntun, heimili og skóli hvernig
á þetta allt saman? á Mannhæðinni,
Laugavegi 7, Reykjavík, 3. hæð,
fimmtudaginn 9. nóvemver kl. 20.30.
Fyrirlesturinn er haldinn í sam-
vinnu landssamtakanna Heimfii og
skóli og áhugamannafélagsins
Mannræktai’ á Akureyri. Allii- vel-
komnir meðan húsrúm leyfír.
Rætt um
hreintungu-
stefnu í mál-
stofu nýbúa
MÁLSTOFA um hreintungustefnu
verður haldin í Miðstöð nýbúa við
Skeljanes fimmtudaginn 9. nóvem-
ber kl. 20. Stjórnandi málstofunnar
er dr. Hallfríður Þórarinsdóttir
mannfræðingur. Að loknu erindi
verða almennar umræður og fyrir-
spumum svarað. Allir sem áhuga
hafa era velkomnnir.
I fréttatilkynningu segir: „Islensk
málstefna hefur einkennst af því að
uppræta s.k. „málvillur“ sem og orð
og önnur málfarsatriði af ei’lendum
uppruna, sem gjarnan hafa talist eins
konai’ „illgresi í tungunnni,“ „slett-
ur“ eða „flekkun við hreinleika máls-
ins.“ Á sama tíma hefur mikil áhersla
verið lögð á að „hlúa að“ og „leggja
rækt við“ s.k „hreinleika" íslenskrar
tungu, þ.e. orð og önnur málfarsat-
riði sem era óyggjandi talin vera af
„hreinum“ íslenskum málstofni.
í erindinu verður rýnt í þessar
hugmyndir og m.a. velt upp spurn-
ingum um hvernig þær hafa mótað
sjálfsmynd íslendinga, sem og af-
stöðu þeirra tfi útlendinga. Ennfrem-
ur verður rætt hvernig hrein-
tunguhugmyndii’ hafa mótað bæði
opinbera og almenna afstöðu til tján-
ingar á opinberum vettvangi og
hvernig sú afstaða fer saman við hug-
myndir um fjölmenningarlegt lýð-
ræði.“
Lýst eftir
vitnum
HARÐUR árekstur varð 3. nóvember
sl. kl. 19.10 á Grensásvegi á móts við
Dominos. Þama varð árekstur
tveggja bifreiða, BMW 316, hvítrar að
lit, og Nissan Micra, hvítrar að lit.
Vitni að nefndum árekstri era
vinsamlega beðin að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík.
■ MENNINGAR- og friðarsamtök
íslenskra kvenna halda almennan
félagsfund fimmtudaginn 9. nóvem-
ber kl. 20 í MÍR-salnum, Vatnsstíg
10. Á fundinum mun Sesselja Gunn-
arsdóttir, varaformaður MFÍK,
segja frá ferð sinni til Sýrlands og
Jórdaníu í september síðastliðnum.
Að því loknu verða almennar um-
ræður. Fundurinn er öllum opinn.
ÁRVfK
ÁRMÚLA 1 • SfMI 568 7222 • FAX 568 7295
letra
TRILLUR
HJÓLAB0RÐ 00 VAGNAR
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SfMI 568 7222 • FAX 568 7295
Les allar tegundir greiðslukorta
sem notuð eru á íslandi.
Er með lesara fyrir
snjallkort og segulrandarkort.
Hraðvirkur hljóðlátur prentari.
Léttur og meðfærilegur
GSM posi
með iniibyggðuiii prentara