Morgunblaðið - 08.11.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 08.11.2000, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Áætlun um aðgerðir á vinnumarkaði og í vinnuumhverfí samþykktar á þingi Norðurlandaráðs Vinnuafl verði hreyfanlegra milli landa SAMÞYKKT var á þingi Norður- landaráðs í gær áætlun um sam- starf á sviði vinnumarkaðar og vinnuumhverfis árin 2001 til 2004. Er stefnt að jafnvægi á vinnu- markaði, sveigjanleika og afnámi landamærahindrana þannig að fólk geti flutt sig milli svæða. Þá var samþykkt að kanna hvernig mætti nýta upplýsingatæknina meira í þýðingarstarfi milli tungumála N orðurlandanna. Samkeppnishæf Norðurlönd var yfirskrift umræðunnar um at- vinnu- og upplýsingamál og var þar fylgt eftir niðurstöðum þema- ráðstefnu um vitund og vöxt á Norðurlöndum. Ove Hygum, at- vinnumálaráðherra Danmerkur, fylgdi atvinnumálaáætluninni úr hlaði og sagði brýnt að Norður- löndin stuðluðu að sameiginlegum aðgerðum í símenntun, hreyfan- leika á vinnuafli milli landa og því að halda fullorðnum lengur á vinnumarkaði. Hann sagði nauðsynlegt að draga úr því að fólk færi snemma á eftirlaun eins og verið hefði til- hneiging til víða á síðustu árum. Nú væri skortur á vinnuafli og því mætti gera fóiki kleift að seinka því að fara á eftirlaun ef það hefði áhuga og getu til að starfa áfram. Hann sagði mikla eftirspurn eftir vinnuafli á flestum Norðurlöndun- um og reyna yrði að halda jafn- vægi á vinnumarkaði með því að hafa stjórn á framboði og eftir- spurn. Öryggis verði gætt Þá sagði atvinnumálaráðherrann danski áætlunina miðast að því að bæta vinnuumhverfi og auka sveigjanleika með því að fyrirtæki og stofnanir tengdu betur saman atvinnulíf og einkalíf. Ráðherrann tók fram að hér væri margt sett fram sem þyrfti að þróa betur og vinna úr og nefndi meðal annars varðandi sveigjanleika og hreyfan- leika vinnuafls að gætt yrði fyllsta öryggis. Kent Olsson frá Svíþjóð gagn- rýndi nokkuð áætlunina og sagði þar lítið tilgreint hvernig menn hugsuðu sér að koma henni í fram- kvæmd. Lýsti hann eftir nánari til- lögum um hvernig unnið yrði að því að draga úr landamærahindr- unum, hvernig upplýsingatæknin yrði notuð og spurði sérstaklega um hvernig heilbrigðisstéttir kæmu inn í þessa áætlun. Reinholdh Fururstrand frá Sví- þjóð sagði mikið hafa verið unnið að því að draga úr atvinnuleysi hjá löndum Evrópusambandsins. Hann kvað Norðurlönd þurfa að líta til fleiri sjónarmiða í atvinnu- málum en heima fyrir og skoða Margt þarf að skoða og kanna milli umræðna á þingfundum. 80% efnis á Netinu á ensku hvernig vinnumarkaðurinn í heild væri að þróast. Taldi hann löndin geta unnið nánar saman og hreyft vinnuafl meira milli sín. Sagði hann vanda Svía hversu fækkað hefði um mörg störf í iðnaði og flutningum en fjölgað í þjónustu, kennslu og opinberum störfum. Morgunblaðið/Golli Ýmiss konar upplýsingaefni er að finna á þingi Norðurlandaráðs um starfsemi ráðsins og löndin sjálf. í áætluninni um upplýsinga- tækni kemur fram að um 80% efn- is á Netinu séu á ensku og jafnvel þótt íbúar Norðurlandanna séu vel settir hvað málakunnáttu varði sé stór hluti þeirra í raun útilokaður frá þessum upplýsingum. Þessi hindrun sé ekki rétt frá lýðræðis- legum eða menningarlegum sjón- arhóli og því sé brýnt að hvetja til þróunar á þýðingarhugbúnaði. Skýrsla „vitringa- hópsins“ fær já- kvæðar undirtektir SKÝRSLU aldamótanefndar, eða vitringahóps- ins svokallaða, um framtíðs norræns samstarfs var almennt vel tekið í umræðum á þingi Norð- urlandaráðs í Háskólabíói í gær. Umræður um skýrsluna stóðu yfir í níma tvo tíma og var hún að mörgum talin gott innlegg í þá umræðu sem nú fer í hönd um þróun samstarfsins innan Norðurlandaráðs. Margir höfðu þó efasemdir um ýmislegt sem í skýrslunni mætti finna. Eink- um virtust margir hafa áhyggjur af því að hug- myndimar myndu veikja samstarf landanna. Jón Sigurðsson, bankastjóri Norræna fjár- festingarbankans, er formaður nefndarinnar sem lagði fram umrædda skýrslu. I henni er m.a. lagt til að samstarf Norðurlandanna verði skipt upp í sveigjanlega samstarfshringi um mikilvægustu málaflokka hverju sinni. Núver- andi samstarf á vegum Norðurlandaráðs er hins vegar þrískipt. Þar er um að ræða Evrópu- málefni, málefni grannsvæðanna í austri og Norðurlandamálefni. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður vinstri- grænna, sem talaði fyrir hönd vinstrisósíalista á þinginu, sagði m.a. að skýrsluhöfundar hefðu of jákvæða sýn á alþjóðavæðingu og áhrif hennar á lýðræðið. Sagði hann að þótt alþjóðavæðingin hefði vissulega haft í för mér sér jákvæða þætti til dæmis á sviði tækni og upplýsinga mætti ekki horfa framhjá neikvæðu áhrifunum. Til dæmis hefði alþjóðavæðingin fyrir löngu veikt áhrifa- mátt lýðræðisins til muna og margt, svo sem al- þjóðahagkerfið, væri nú af þeim sökum fyrir ut- an áhrifamátt þjóðkjörinna fulltrúa. Lagði Steingrímur jafnframt áherslu á að engar ákvarðanir um breytingar á starfsemi ráðsins yrðu teknar í fljótræði. Koma þyrfti í veg fyrir að „mistökin frá árinu 1995 yrðu endurtekin" en þá var síðast gerð breyting á starfsemi ráðsins. Jákvæð sýn á Norðurlandaráð Það voru þó ekki allir á því að Norðurlanda- ráð ætti að fara sér hægt í sakimar þegar breyt- ingar á starfsemi ráðsins væru annars vegar. Sænski þingmaðurinn Chris Heister, lagði til að mynda áherslu á að ráðið brygðist fljótt við hug- Morgunblaðið/Golli Jón Sigurðsson, formaður hinnar svoköll- uðu vitringanefndar, fylgdist með umræð- unum á þingi Norðurlandaráðs í gær. myndum vitringahópsins. Sú leið að bregðast fijótt við hugmyndum nefndarinnar myndi tryggja að eitthvað yrði gert. Reynslan sýndi það. Hún hafði þó áhyggjur af því eins og aðrir að hugmyndir nefndarinnar sem fram kæmu í skýrslunni myndu veikja samstarf Norðurland- anna. í umræðunum vakti m.a. athygli að allir höfðu afar jákvæða sýn á samstarf Norðurlandanna. Vildu flestir jafnvel sterkara og betra samstarf en nú þegar væri fyrir hendi. Var ítrekað að um- rædd skýrsla væri gott innlegg í þá umræðu. Bellona fær umhverfís- ver ðlaun N orðurlandaráðs Morgunblaðið/Golli Siv Friðleifsdóttir, Thomas Nielsen og Frederic Hauge á fundi þar sem tilkynnt var um að umhverfissamtökin Bellona fengju náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs. NÁTTÚRU- og umhverfis- verðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í dag en þau fær umhverfisstofnunin Bellona fyrir starf sitt að umhverfisvandamálum norðuríshafsins og við norðvesturhluta Rússlands. Verðlaunin nema 350 þús- und dönskum krónum sem eru tæplega 3,5 milljónir ís- lenskra króna. „Aðgerðir Bellona hafa verið umhverfishópum í Rússlandi hvati, hafa beint sjónum manna að mesta umverfisvanda svæðisins og orðið til að koma á sam- starfi milli Norðurlanda og nærliggjandi svæða um um- hverfisvernd," segir meðal annars í umsögn dómnefndarinnar en í henni sitja fyrir hönd Islands þau Ólöf Guðný Valdimarsdóttir og Páll Kr. Pálsson. Bellona hefur einkum kortlagt geislavirk svæði í Barentshafi og greindu Norðmennirn- ir Thomas Nielsen og Frederic Hauge frá margs konar starfi Bcllona-samtakanna á fundi er tilkynnt var um verðlaunin í gær. Meðal annars greindu þcir frá hættu af geislavirkum efnum á norðurslóðum. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra lýsti fyrir hönd íslendinga ánægju sinni með að umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs skyldu falla Bellona í skaut á fundinum. Hún sagði Islendinga deila áhuga Bellona á því að vekja athygli alþjóðasamfélagsins á þeirri hættu sem stafar af mengun í norðvestur hluta Rússlands enda ætti megin undirstaða efna- hags Islendinga, sjávarútvegurinn, allt undir því að höf á norðurslóðum héldust hrein. Skrifstofur í fjórum borgum Bellona-samtökin voru stofnuð árið 1986 og rekaþau nú skrifstofur í Osló, Skt. Péturs- borg, Brussel og Washington. Á fyrstu ár- unum snerust aðgerðir stofnendanna, Frederic Hauge og Rune Haaland, einkum um mótmæliyegna mengunar bæði í Noregi og erlendis. I dag snýst starfið mikið til um upplýsingasöfnun og upplýsingagjöf og gefur það úttímarit íþví skyni. Hafa samtökin eink- um tekjur af áskrift þess og auglýsingum en veltan er yfir 200 milljónir íslenskra króna. Þá hafa þau á snærum sínum sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum náttúrufræði, líffræði, landafræði, lögfræði og kjarneðlisfræði. Á fundinum fór Siv Friðleifsdóttir yfir helstu þætti í baráttu Islendinga á alþjóða- vettvangi fyrir því að koma í veg fyrir meng- un sjávar vegna geislavirks úrgangs. Hún beindi sjónum sínum einnig að því starfi sem unnið er á vegum Norðurskautsráðsins en hún sagði málefni hafsins ofarlega á dagskrá þar. Hefur Siv á þeim vettvangi lagt áherslu á að lokið verði við gerð alþjóðlegs samnings um bann við og takmörkun á notkun tiltek- inna þrávirkra lífrænna efna en ákveðið var að efna til hans á Ríó-ráðstefnunni 1992 að frumkvæði íslendinga. Undirbúningur samn- ingsins er nú á lokastigi og verður hann und- irritaður í Suður-Afríku í byrjun desember. Kom síðan fram í máli Davíðs Egilssonar og Helga Jenssonar hjá Hollustuvernd ríkisins, sem fluttu stutta tölu á eftir ráðherranum, að mengun vegna geislavirkra efna á hafsvæð- inu umhverfis Island væri með því minnsta sem mældist og nýleg rannsókn hefði leitt í ljós að tnagn ýmissa efna hefði minnkað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.