Morgunblaðið - 08.11.2000, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 23
ERLENT
ETA-liðar
hand-
teknir
SPÆNSKA lögreglan handtók
í gær í Madrid og Barcelona
átta manns, sem grunaðir eru
um að vera félagar í ETA,
basknesku hryðjuverkasam-
tökunum. Fimm mannanna,
þrir karlmenn og tvær konur,
komu til höfuðborgarinnar í
síðustu viku og hafði þrjár
íbúðir til umráða. Var þeir
vopnaðir og með fölsuð pers-
ónuskilríki en eru þó ekki grun-
aðir um að hafa staðið að síð-
ustu hryðjuverkum hreyfingar-
innar.
Fangauppþot
HÁLFGERT uppreisnar-
ástand er í þremur fangelsum í
Serbíu eri fangarnir krefjast
betri aðbúnaðar og raunar
einnig sakaruppgjafar eins og
sumir albanskir fangar frá
Kosovo hafa fengið. Vonast
fangarnir til þess, að valdataka
Vojislavs Kostunica og lýðræð-
isaflanna í Serbíu verði til þess,
að á þá verði hlustað en ástand-
ið í serbneskum fangelsum er
sagt hörmulegt.
Hörmungar
í Mongólíu
TALSMAÐUR Alþjóða Rauða
krossins sagði í gær, að búast
mætti við miklum hörmungum í
Mongólíu í vetur, annað árið í
röð. Eftir harðindin í fyrravet-
ur kom ákaflega þurrt gras-
leysusumar og heyforðinn hef-
ur aldrei verið minni en nú. Að
þessu sinni hefur svo veturinn
lagst að óvenjusnemma með
miklum áfrerum.
Talið er, að þrjár milljónir
skepna hafi fallið síðasta vetur
en hann var sá kaldasti í 30 ár.
Um þriðjungur þjóðarinnar,
800.000 manns, á allt sitt undir
skepnuhaldinu og meira en
helmingur þess fjölda er á
hungurmörkunum nú í vetrar-
byrjun.
Innflytjendur
í nauðum
SKIP með næstum 900 ólög-
lega innflytjendur, aðallega
tyrkneska Kúrda og Asíufólk,
var dregið til hafnar í borginni
Otranto á Ítalíu í gær. Er skip-
ið, „Professor Kolesníkov",
skráð í Úkraínu en lenti í erfið-
leikum í vondu veðri undan
Ítalíuströndum. Sumir innflytj-
endanna væntanlegu sögðu, að
þeir hefðu komið um borð í Ist-
anbul og greitt hátt í 350.000
ísl. kr. hver fyrir flutninginn.
Venjan er sú, að flestir ólögleg-
ir innflytjendur eru sendir aft-
ur til þess lands, sem þeir komu
frá.
Tvö suður-kóresk risafyrirtæki reyna að forðast g;jaldþrot
Hyundai og Daewoo illa stödd
Scoul.AP, AFP.
DAEWOO-bílaverksmiðjan í Suður-
Kóreu virtist í gær eiga á hættu að
verða gjaldþrota og áform um að
General Motors í Bandaríkjunum
kaupi suður-kóreska fyrirtækið
munu frestast. Daewoo hefur lengi
barist í bökkum og lánardrottnar
krefjast þess að fyrirtækið segi upp
18% af starfsmönnum sem eru um
18.000. Annað suður-kóreskt stór-
fyrirtæki, Hyundai, sem stundar
margvíslegan rekstur, er einnig í
miklum vanda og komst naumlega
hjá gjaldþroti í liðinni viku. Aðaleig-
andi þess, Chung Mong-Hun, hefur
vísað á bug tillögum um að greiða
hluta af gríðarlegum skuldum fyrir-
tækisins með því að gefa út ný hluta-
bréf er lánardrottnar myndu fá í stað
afborgana.
Framleiðslugeta Daewoo er um
tvær milljónir bíla á ári. Gert er ráð
fyrir að General Motors muni bjóða
lægri fjárhæð í fyrirtækið en búist
hafði verið við en Daewoo reynir nú
að hjara með því að nota eins konar
neyðarlán í bönkum. Á mánudag gat
það ekki greitt 40 milljónir dollara,
um 3,5 milljarða króna, í afborgun af
láni.
Stjórnendur Daewoo og fulltrúar
verkamanna sátu í gær á þriggja
stunda löngum fundi og reyndu að
finna lausn á vandanum sem krafan
um fækkun starfsmanna veldur. En
stéttarfélögin neituðu sem fyrr að
sætta sig við þá ráðstöfun. Helsti
viðskiptabanki fyrirtækisins veitti
Daewoo frest þar til í dag, miðviku-
dag, ella yrði það úrskurðað gjald-
þrota. Einn af frammámönnum
Daewoo sagði að skuldir er næmu
um 155 milljónum dollara myndu
gjaldfalla í vikunni og fyrirtækið
hefði ekkert fé til að greiða skuldirn-
ar. Verði fyrirtækið gjaldþrota
munu um 250 undirverktakar þess
verða illa úti og gætu einnig orðið
gjaldþrota.
Fyrir þrem árum fengu Suður-
Kóreumenn um 58 milljarða dollara
lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,
IMF, til að komast hjá kreppu og
jafnvel efnahagslegu hruni. En sér-
fræðingar segja að tíminn hafi ekki
verið notaður til að endurskipu-
leggja rekstur stórfyrirtækja lands-
ins sem hafa notið velvildar stjórn-
málamanna og fyrirgreiðslu. Kim
Dae-Jung, forseti landsins, sagði í
gær að ekki yrði hlaupið undir bagga
með fyrirtækjum sem rekin væru
með tapi. Hann segir að verði gripið
til hagræðingar í rekstri fyrirtækj-
anna missi allt að 50.000 manns vinn-
una en ýmsir sérfræðingar og tals-
menn stéttarfélaga segja að hálf
milljón sé raunhæfari tala.
i f< s << ' > : í"
j§ W fp» fm. iff m j
mAMÆæS M jtj
SKJÁR EINN
til hamingju Bergljót