Morgunblaðið - 08.11.2000, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.11.2000, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ S Islensk myndlist í London London. Morgunblaðið. BANKSIDE Gallery er við ána Thames í miðbæ London, þar sýnir nú Karólína Lárusdóttir listmálari olíuverk, vatnslitamyndir og graf- íkmyndir. Mikill fjöldi fólks var viðstaddur opnun sýningarinnar. Mjög fljót- lega myndaðist löng biðröð í öðrum enda salarins og það var ekki þar sem veitingarnar voru á boðstólum, heldur var það söluborðið og núna eru rauðir deplar við flestar mynd- irnar. Forseti hins konunglega breska vatnslitafélags, Francis Bowyer P.R.W.S., kynnti listakonuna og bauð siðan Þorsteini Pálssyni sendi- herra íslands að opna sýninguna. I ræðu sinni sagði Þorsteinn frá því að hann væri mikill aðdáandi Karó- línu og mynda hennar og dáðist sér- staklega að því hvað ísland og ís- lensk menning væri rík í myndunum þrátt fyrir að hún hefði búið erlendis alla sína starfsævi. Karólína lærði við Ruskin School LEIKLIST Leikdeild Ungmenna- félagsins íslendings SAUMASTOFAN Höfundur: Kjartan Ragnarsson. Lög og textar: Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri: Valgeir Skagfjörð. Að- stoðarleikstjórn: Gerður K. Guðna- dóttir og Hilda Pálmadóttir. Pfanó- leikur: Valgeir Skagíjörð. Leikmynd: Valgeir Skagfjörð og fleiri. Leikmunir og búningar: Rósa Marinósdóttir og fleiri. Lýsingar- vinna: Eyjólfur Hjálmsson og Gísli Sverrisson. Ljósamaður: Kristján Ingi Péturs- son. Sviðsstjóri og eltiljós: Kristín Svanhildur Helgadóttir. Leikendur: Anna Karlsdóttir, Ástvaldur Bjarki Þráinsson, Bernharð Arnarson, Elísabet Axelsdóttir, Hildur Traustadóttir, Jón Eiríkur Einarsson, Laufey Bjarnadóttir, Vildís Bjarnadóttir og Þórunn Harðardóttir. LEIKDEILD Ungmennafélags- ins Islendings frumsýndi Sauma- stofuna eftir Kjartan Ragnarsson í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit fóstudagskvöldið 3. nóvember. Saumastofan er 13. verk leikdeild- ar Umf. Islendings en leikdeildin hefur starfað frá árinu 1976 og sett upp leikrit annað hvert ár. Frumsýningunni var mjög vel tekið af fullu húsi áhorfenda. Heiðurs- of Art og Barking College of Art og hefur haldið sýningar mjög víða í Reykjavík, London og Kaupmanna- höfn. Hún hefur einnig hlotið verð- gestur sýningarinnar var Karl Guð- mundsson leikari sem lék klæðsker- ann Kalla með svo eftirminnilegum hætti í Iðnó fyrir um 25 árum. Að- spurður sagði Karl að honum hefði þótt sýningin mjög góð hjá Umf. Is- lendingi. Valgeir leikstjóri hefði skorið nokkuð í burtu úr verkinu en líka bætt ýmsu inn í staðinn sem hefði komið vel út og komið sér skemmtilega á óvart. Karl tók lagið aðeins baksviðs eftir sýninguna og heyra mátti að hann hafði í engu gleymt lögum né textum úr Sauma- stofunni. Saumastofan er fyrsta leikrit Kjartans Ragnarssonar og var það frumflutt hjá Leikfélagi Reykjavík- ur í Iðnó á kvennaárinu árið 1975. Auk þess að semja leikritið, samdi Kjartan einnig öll lögin og söngtext- ana í verkinu. Lögin urðu mörg mjög vinsæl og hafa lifað með þjóðinni æ síðan. Leikritið gerist á einum degi á saumastofu þar sem starfsfólkið ákveður að halda upp á afmæli eins úr starfshópnum. Partíið er haldið í vinnutímanum og vinnufélagarnir syngja og tralla og fara síðan að trúa kollegum sínum fyrir leyndarmálum lífs síns. Jón Eiríkur Einarsson bóndi og rúningsmaður í Mófellsstaðakoti í Skorradal leikur Sigga, nýríkan for- stjóra og eiganda saumastofunnar. Jón hefur leikið nokkrum sinnum áður með leikdeild Umf. Islendings og er því sviðsvanur í Brún í Bæjar- sveit. Jón hefur skemmtilega kímni- gáfu og góða söngrödd og nær hann Iaun fyrir myndlist sína, til að mynda vann hún árið 1989 Dicks and Greenbury verðlaunin. Sýningin stendur til 19. nóvem- að draga upp trúverðuga mynd af forstjóranum og vekja kátínu hjá áhorfendum á hárréttum stöðum. Ekki er hann síðri er hann bregður sér í hlutverk útgerðarmannsins í kaupstaðarferðinni. Sama má segja um Hildi Traustadóttur, hún fer vel með hlutverk Siggu gömlu, sem er afmælisbarnið sem allt snýst um lengst af. Hildur fær áhorfendur virkilega til að trúa því að Sigga gamla sé orðin sjötug og lasburða. Laufey Bjarnadóttir ráðunautur, skilar daðurdrósinni Ásu einstak- lega vel. Sérstaklega er hún trúverð- ug þegar hún er „dottin í það“ og vill bara „syngja skátasöngva", milli þess sem að hún sofnar fram á borð- ið. Landfræðingurinn og kennarinn Anna Karlsdóttir leikur „kleppar- ann“ Gunnu af mikilli innlifun. Hún túlkar geðsveiflurnar hjá Gunnu vel og nýtur sín sérstaklega er hún dansar og syngur af innlifun. Þá á Þórunn Harðardóttir leikskólakenn- ari í Andabæ á Hvanneyri mjög góða spretti sem einstæð móðir með tvö böm, sérstaklega í samleik við Jón Eirík Einarsson. Bernharð Am- arson fer mjög vel með hið vanda- sama hlutverk Kalla klæðskera. Bernharð fer rólega af stað en stelur senunni er hann birtist sem „drag- drottning" í afmælisveislunni hjá Siggu gömlu. Aðrir leikarar skiluðu sínum hlutverkum einnig vel. Söngurinn var áberandi góður og jafn hjá leikurunum í þessari upp- færslu, sérstaklega náði Anna Karlsdóttir að hræra við áhorfend- um með angurværum tregasöng í ber í Bankside Gallery við 48 Hopt- on Street sem er næsta hús við hið nýja nýlistasafn Breta, Tate Modern. hlutverki Gunnu er hún söng um litla drenginn sinn. Þó mátti aðeins greina vott af frumsýningarhnökr- um í söngnum hjá sumum en slíkt slípast af fyrir næstu sýningu. Eftir- tektarvert var hversu vel söngtext- arnir komust til skila og var þama enginn „Megasarbragur" á fram- sögninni. Leikstjórinn leikur sjálfur undir sönginn á píanó og gerir það glæsilega leikandi létt. í forleiknum og öðru hverju inn á milli brá fyrir létt djassaðri útgáfu af lögunum sem var mjög viðeigandi og vel gert. Þá notaði Valgeir píanóið einnig til að skapa stemmningu og byggja upp spennu og jafnvel til að mynda viðeigandi leikhljóð. í lokasöngnum gat leikstjórinn ekki á sér setið er hann fékk á sig eltiljósið heldur stóð upp við píanóið, án þess að hætta að spila og tók hressilega undir og söng af krafti oginnlifun. Sviðsmyndin er einföld og látlaus en þjónar tilgangi sínum vel. Bún- ingar em vel gerðir og styðja vel við persónumar eins og hjá gömlu kon- unni henni Siggu og dömunni henni Ásu. Lýsing verksins er markviss og mjög vel útfærð og með henni næst oft að auka á réttu stemmninguna. Næstu sýningar á Saumastofunni hjá leikdeild Umf. íslendings verða 8., 10., 11. og 12. nóvember. Sauma- stofan er auðvitað komin á Netið og þar er hægt að sjá myndir af leikur- unum og af æfingum á verkinu og einnig er hægt að panta þar miða á næstu sýningu. Theodór Kr. Þórðarson Innra barnið fundið? KVIKMYNDIR S a m b f ó i n oo Regnboginn THE KID ★ ★ Leiksljórn: Jon Turteltaub. Hand- rit: Audrey Wells. Aðalhlutverk: Bruce Willis, Spencer Breslin, Emily Mortimer, Jean Smart og Lily Tomlin. The Walt Disney Company 2000. FLESTIR sem einhvern áhuga hafa á sálfræði era sammála Freud í um það að æskan hafi áhrif á sálarlíf- I ið og að í sumum tilfellum geti ein- hver atburður þess tímabils haft af- gerandi áhrif á persónuleika viðkomandi. Audrey Wells, höfundur þessarar ljúfu Disney-grínmyndar, leikur sér með þessa hugmynd og lætur hinn fertuga ímyndarráðgjafa Russ Duritz (Bruce Willis) hitta sig sjálfan, Rusty, átta ára. Russ, sem hingað til hefur neitað að horfast í j augu við sárar æskuminningarnar, t verður auðvitað að betri manni þeg- f ar honum loksins tekst það. Þetta er skemmtileg hugmynd og margt er vel gert í þessari mynd en ekki nógu margt samt. Spencer nokkur Breslin leikur Rusty og stendur sig mjög vel; þybbinn, sætur og smámæltur er hann algjör sjarm- ur og þeir Bruce eiga fínan samleik. Emily Mortimer virðist vera ein af , rísandi stjörnunum með breskan hreim í Hollywood. Hún leikur hér | indæla samstarfs- og heitkonu hans | Russ og skilar því ágætlega. Og sú skemmtilega leikkona Lily Tomlin leikur útþvældan ritara með prýði. Myndin er ágætis skemmtun en mætti vera bæði meira spennandi og fyndnari. Russ skilur ekki fyrr en undir lok myndarinnar að það gæti verið tilgangur með komu Rustys inn í líf hans og þangað til eru þeir að kynnast og ýmislegt misfyndið kem- ur upp á. Þeir hefðu átt að fatta strax hver tilgangurinn var og leggja sam- an af stað í spennandi ævintýri að redda málunum og taka þannig á áþreifanlegan hátt á fortíð og fram- tíð. Á meðan hefðu þeir getað kynnst með meðfylgjandi skondnum upp- ákomum (og auðvitað hjartnæm- um!). í stað þess verður sagan frekar sundurlaus og hæggeng (og ekki nógu hjartnæm!). Það era einnig nokkrir lausir endar í frásögninni og boðskapurinn eitthvað á reiki. Ef þetta á að vera dæmisaga um að finna barnið í sjálfum sér, þá er ekki nógu vel úr því unnið og spurning hvort myndin eigi að höfða til barna eða fullorðinna. Hildur Loftsdóttir „Pejsazi" á Hótel Vík NÚ STENDUR yfir mynd- listarsýning Irenu Zvirblis, „Pejsazi", á Hótel Vík, Síðu- múla 19. Irena Zvirblis er fædd og uppalin í fyrram Júgóslavíu. Hún kom til Islands sem flótta- maður í boði íslensku ríkis- stjómarinnar árið 1997 og bjó fyrst um sinn á Höfn í Horna- firði. Hún býr nú og starfar í Reykjavík. Irena var um árabil meðlimur í félagi áhugalistmál- ara í Júgóslavíu. Hún hafði tek- ið þátt í fimmtán samsýningum og haldið sjö einkasýningar áð- ur en hún kom til íslands. Hér á landi hefur hún haldið sex einkasýningar á Höfn í Horna- firði og í Reykjavík. Sýningin stendur til 5. des- ember. og er opin alla daga kl. 10-22. Morgunblaðið/Theódór Leikstjórinn Valgeir Skagfjörð fagnar baksviðs í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit ásamt leikurum og aðstoðarfólki eftir frumsýninguna á Saumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson. Saumastofan í Brún
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.