Morgunblaðið - 08.11.2000, Qupperneq 30
.30 MIÐFÍKUÐAGUR& NÓVEMBEH 2000
,MtíRGUNBI.AJRÐ
LISTIR
Tdnleikaröð Tónskáldafálags fslands og M-2000
Peter Máte leikur verk
frá lokum þessarar aldar
ÍSLENSK píanótónlist frá lokum
þessarar aldar er á efnisskrá tón-
leika Peters Máté píanóleikara í
Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20.00.
Tónleikarnir eru í þriðja hluta tón-
leikaraðar Tónskáldafélags Islands
í samvinnu við Reykjavík - menn-
ingarborg Evrópu árið 2000; ís-
lensk tónlist á 20. öld.
Tónleikarnir hefjast með verki
Jóns Þórarinssonar, Sonatina in C,
frá árinu 1945, þá leikur Peter verk
Leifs Þórarinssonar, Sonata, frá
árinu 1957, og verk Jórunnar Viðar
frá 1965, Hugleiðing um fimm
gamlar stemmur. Eftir hlé er kom-
ið að verki Jónasar Tómassonar,
Sonata VIII, sem hann samdi árið
1973, þá Gloria eftir Atla Heimi
Sveinsson, frá 1981, og tónleikun-
um lýkur með verki Þorkels Sigur-
björnssonar, Der Wohltemperierte
Pianist, frá árinu 1971.
Á tónmáli sem þá
var talið svolítið
nýstárlegt
Um verk sitt segir Jón Þórarins-
son að hann hafi samið það þegar
hann var við nám í Bandaríkjunum.
„Gott ef það var ekki prófverk,"
segir hann. Verkið var frumflutt á
skólatónleikum þar vestra af skóla-
bróður Jóns en hér á landi var það
Rögnvaldur Sigurjónsson sem
frumflutti það á tónleikum og lék
það seinna á tónleikaferðum í
Bandaríkjunum og víðar. „Þetta er
stutt verk í knöppu sónötuformi,
þrír þættir, á tónmáli sem þá var
talið svolítið nýstárlegt, ómstrítt og
svona. En nú eru menn orðnir svo
miklu vanir í því efni að það er ekk-
Morgunblaðið/Þorkell
Peter Máté píanóleikari flytur verk eftir Jón Þórarinsson, Leif Þór-
arinsson, Jórunni Viðar, Jónas Tómasson, Atla Heimi Sveinsson og
Þorkel Sigurbjörnsson á tónleikum í Salnum í kvöld.
ert sem meiðir neinn lengur,“ segir
Jón. Hann segir verkið hvorki í dúr
né moll, heldur blending af hvoru
tveggja, mjög krómatískt. „Tónn-
inn C er einhvers konar miðpunkt-
ur fyrsta og síðasta þáttarins, svo
held ég að miðþátturinn sé nú ein-
hvers staðar annars staðar," heldur
hann áfram.
Verk Jónasar Tómassonar er í
fjórum samtengdum hlutum og er
nótan H tónmiðja þeirra allra.
„Bara svona til að hafa einn
miðpunkt í tilverunni," segir tón-
skáldið. Sónatan var samin fyrir
Önnu Áslaugu Ragnarsdóttur í árs-
lok 1973 og frumflutti hún verkið
árið eftir. „Hún spilaði það fyrstu
tvö eða þrjú skiptin sem það var
fiutt og síðan hafa margir aðrir
spilað það,“ segir Jónas.
Píanóleikarinn Peter Máté er
fæddur 1962 í Tékkóslóvakíu. Hann
lærði hjá Ludmilu Kojanová í Kos-
ice og Valentinu Kameníková við
Tónlistarakademíuna í Prag. Hann
hefur unnið til verðlauna fyrir
píanóleik sinn; 1980 í Hradec Král-
ovék, 1986 í Vercelli, 1989 í Enna.
Peter hefur starfað á íslandi frá ár-
inu 1990 og er nú kennari við Tón-
listarskólann í Reykjavík. Hann
hefur haldið einleikstónleika, leikið
einleik með ýmsum sinfóníuhljóm-
sveitum og tekið þátt í kammertón-
leikum með Tríó Reykjavlkur, Tríó
Romance og fleirum víða í Evrópu
og Bandaríkjunum.
Leikfélag Selfoss
frumsýnir Ovitana
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Rúm Appolos, tileinkað M.D. 1998.
Tímarými
LEIKFÉLAG Selfoss frumsýnir
Óvitana eftir Guðrúnu Helgadótt-
ur rithöfund í leikhúsinu við Sig-
tún á Selfossi annað kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20.
Leikstjóri verksins er Ólafur
Jens Sigurðsson, 27 ára Selfyss-
ingur, en hann hefur mikið unnið
með Leikfélagi Seifoss.
Þrjátíu leikarar taka þátt í sýn-
ingunni og eru þeir flestir ellefu
ára, enda leika börn fullorðna og
fullorðnir leika börn. Alls koma
SÍÐASTA sýning Dansleikhúss með
Ekka á dansleikhúsverkinu Tilvist í
Iðnó verður í kvöld kl. 21.
Verkið fjallar um líf mannsins og
samskipti hans við annað fólk.
Dansleikhús er leikhúsform sem
tvinnar saman dans, leik og tónlist.
Sýningin er sérstaklega samin
sextíu manns að sýningunni.
Þetta er sýning fyrir alla aldurs-
hópa, enda er Guðrún Helgadótt-
ir Iagin við að höfða til allra ald-
urshópa.
Önnur sýning verður nk. laug-
ardag og svo verður sérstök há-
tíðarsýning sunnudaginn 12. nóv-
ember.
Guðrún Helgadóttir samdi
Óvitana fyrir Þjóðleikhúsið og
var tilefnið Barnaár Sameinuðu
þjóðanna árið 1979.
fyrir rýmið í Iðnó og eru gluggar,
hurðir, veggir og salurinn sjálfur
hluti af leikmyndinni.
Dansleikhús með Ekka setur sýn-
inguna upp í samvinnu við Leikfélag
íslands og er sýningin á dagskrá
leiklistarhátíðar Sjálfstæðu leikhús-
annaÁmörkunum.
Þjóðlagafé-
lagið fundar
ÞJÓÐLAGAFÉ LAGIÐ boðar til
fundar sem haldinn verður í Kaffi-
leikhúsinu í Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3b, í kvöld, miðvikudagskvöld,
kl. 21.
Fundurinn er haldinn til að ræða
starfsemi og ýmis félagsmál Þjóð-
lagafélagsins og verður þar m.a.
rætt um Þjóðlagahátíð í Siglufirði
sumarið 2000 og framtíð þjóðlaga-
hátíðar og annarrar starfsemi í
Siglufirði á vegum Félags um Þjóð-
lagasetur sr. Bjarna Þorsteinsson-
ar.
Fleiri dagskráratriði eru fyrir-
huguð, m.a. umræður um rannsókn-
arstörf og rannsóknarstofnun á
sviði þjóðlaga. Á milli atriða verður
einhver tónlistarflutningur, kveð-
skapur, söngur eða hljóðfæraleikur.
Því mega fundargestir gjarnan hafa
meðferðis handhægt hljóðfæri svo
sem fiðlu, gítar eða harmoniku, ef
til þess þyrfti að grípa.
SALURINN, KÓPAVOGI, KL. 20
fslensk tónlist í lok 20. aldar: Fram-
tíðarsýn
Píanótónleikar Peter Máté
Á efnisskrá tónteikanna eru verk eftir
Jón Þórarinsson, Leif Þórarinsson,
Jórunni Viöar, Jónas Tómasson, Atla
Heimi Sveinsson og Þorkel Sigur-
björnsson.
www.listir.is
www.teymi.is/tonis
Unglist i Reykjavík:
TJARNARBÍÓ KL. 20.30
Dans á rósum. Nemendur frá List-
MYNDLIST
H a 11 g r í m s k i r k j a
MÁLVERK
ERLA ÞÓRARINSDÓTTIR
Opið á tíma kirkjunnar.
Til 27. nóvember.
Aðgangur ókeypis.
MÁLARINN Erla Þórarinsdóttir
hefur heldur betur tekið við sér á und-
anfömum árum og misserum sé tekið
mið af síðustu framningum hennar.
Ekld síst sýningar á nokkrum mynd-
um sem nú eru uppi í Hallgríms-
kirkju, og þótt hún í þessum klára
verkum sínum fáist einungis við stór
og heil form eru lausnir hennar á
myndfletinum mun fjölþættari, ef
ekki fjölkynngnari en á árum áður.
Fyrri myndverk listakonunnar, sem
einkenndust af reglufestu og endur-
tekningu hringlaga smáforma og
skyldum samhljómi lita, voru nokkuð
eintóna í útfærslu og leiddu hugann
sterklega að einu og öðru í mód-
emismanum, sem þó er naumast
frágangssök.
En jafnvel þótt þessi fáu en hrif-
miklu verk listakonunnar í kirkjunni
minni ósjálfrátt á sitthvað í trúarlegii
list búa þær yfir mögnum sem virka
til muna upplifaðri. Ur þeim streymir
andlegur kraftbirtingur sem grípur
skoðandann sterkum tökum um leið
og augu hans nema þau, og era hon-
um jafnframt nokkur ögrun í sláandi
einfaldleika sínum. Jafnvel hin stóra
og einfalda beinagrind rúms, sem er
aðalform eins verksins, býr yfir ein-
hverri óskilgreindri yfirhaftnni skír-
dansskóla íslands, Dansverkstæð-
inu, Klassíska listdansskólanum,
Jazzballettskóla Báru, Dans-
smiöjunni og Dansskóla Birnu
Björnsdóttur dansa afhjartans iyst.
Unglist, Vestfjörðum:
GAMLA APÓTEKIÐ KL. 20-23.30
Bolvískir fjöllistamenn troða upp.
Unglist, Akureyri:
DEIGLAN KL. 20-23.30
Láttu Ijós þitt skína - karaoke o.fl.
www.hitthusid.is
skotun (Rúm Apollos, tileinkað M.D.,
1998). Hér kemur það sláandi fram,
að myndverk þurfa ekki endilega að
segja sögu, vera hlaðin frásagnarferli
og táknum, til að innibera guðdóminn,
því kjarni hans er í öllu sem lifir og
hrærist. Það er einmitt þessi sköpun-
arkraftur í bland við eilífðina sem allir
listamenn leitast við að höndla í verk-
um sínum. Sjálfur skilgreinir mála-
rinn myndferlið í nokkram línum á
vegg: „... í rýmum þessara málverka
er ljós og tími, sá tími sem það tók að
mála þau og ljósið að umbreyta silfr-
inu. Þau era ekki sérstaklega máluð í
trúarlegum tilgangi, en í þeim má
finna skírskotanir til fyrirbrigða sem
tengjast trú; endurtekningu tímans
og helgiathafna, guð hinna fögru lista,
drauminn um Marísusetur og til
Pantheon - hof allra guða...“
Það eru einkum myndir eins og
Tímarými, haustjafndægur 1999-
vorjafndægur 2000 og Staður, mars
1998-nóvember 1999, sem innibera
sterka trúarlega skírskotun, einkum
er það áberandi í síðasttöldu mynd-
inni sem nýtur sín mun betur. Líkast
er sem einhver dulinn kraftur langt
inni í myndrýminu vilji brjóta sér leið
í gegnum ljósið, sjálf birtingarmynd
guðdómsins í líki krossins, sem vart
er sýnilegur en þó svo áþreifanlegur í
skynrænni útgeislan sinni.
Fyrmefnda myndin virðist svo búa
yfir meiri mögnum en sýnileg eru í
staðsetningunni, einkum vegna end-
urskins ljóssins sem fellur á hana og
hve formsterk hún er, má vera Ijóst
að hún þarf meira rými og jafnari
birtu til þess að njóta sín til fulls.
Bragi Ásgeirsson
Freskufundur
í Pompei
BROT af fresku er sýnir rómverska
sólguðinn Apollo er einnig var
verndari tónlistar og myndlistar,
sést hér á myndinni, en freskan
fannst nú á dögunum í rústum gisti-
húss í fornu borginni Pompei í suð-
urhluta Ítalíu er verið var að grafa
fyrir hraðbraut milli borganna
Napólí og Salernó.
Áð mati fornleifafræðinga er
fundur freskunnar, sem upp-
götvaðist í þeim hluta Pompei er lítt
hefur verið skoðaður, sérlega mikil-
vægur bæði út frá fagurfræðilegu
sjónarmiði og eins vegna þeirrar
tækni er listamaðurinn nýtir sér.
Þetta þykir benda til að Pompei hafi
enn notið velgengni er gos Vesúv-
íusar huldi borgina árið 79 e.Kr.
Tilvist - síðasta sýning