Morgunblaðið - 08.11.2000, Side 36

Morgunblaðið - 08.11.2000, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 37 + pltrgunMnliÍli STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. EYSTRASALTSRÍKIN OG NORÐ- URLÖNDIN AFSTAÐA Norðurlandanna til Eystrasaltsríkjanna er komin á dagski-á vegna tillögu sem fulltrúar hægri flokka á þingi Norður- landaráðs fluttu um að þessum þrem- ur þjóðum yrði boðin aðild að því. Til- lagan var að vísu felld að loknum umræðum í gær en þetta verður áreiðanlega ekki í síðasta sinn, sem hún verður flutt. Þótt Eystrasaltsríkin þrjú hafi ekki átt mikla samleið með Norðurlöndun- um að því undanteknu, að Eistlend- ingar eru í mjög nánu sambandi við Finna, hafa örlög þessara þjóða dreg- ið að sér meiri athygli Norðurlanda- þjóðanna og þ. á m. okkar Islendinga en annarraþjóða. Hér á Islandi var mjög rætt um hlutskipti Eystrasaltsríkjanna fyrir rúmri hálfri öld, þegar þau féllu undir hramm kommúnismans og Sovétríkj- anna. A þeim mörgu áratugum, sem kalda stríðið stóð, gleymdust Eystra- saltsríkin ekki í umræðum hér og fáar þjóðir fögnuðu meir en við Islending- ar, þegar þær endurheimtu frelsi sitt. En jafnframt er það auðvitað stað- reynd, að fyrir utan samskipti Finna og Eistlendinga hafa ekki verið mikil tengsl á milli þjóðanna við Eystrasalt- ið. Litháar líta raunar svo á, að megin- tengsl þeirra séu og eigi að vera við Pólverja og Þjóðverja. Og þótt okkur henti að tala um Eystrasaltsþjóðirnar í sömu andrá er ekki endilega víst, að innbyrðis tengsl þeirra séu mikil, þótt þær hafi deilt sömu örlögum eftir stríð. Eftir að Eystrasaltsríkin hlutu sjálfstæði á ný hefur hins vegar verið lögð rík áherzla á að auka samskipti á milli Norðurlandanna fimm og þeirra. Þessi samskipti eru pólitísk, við- skiptaleg og menningarleg. Það fer t.d. ekki á milli mála, að við Islending- ar höfum aldrei átt jafnmikil sam- skipti við þessar þjóðir og nú. Að sumu leyti er það vegna þess, að hlut- ur Islendinga var óvenjulegur á loka- stigum sjálfstæðisbaráttu þjóðanna þriggja en að öðru leyti er ljóst að smáþjóðir leita styrks hver hjá ann- arri í alþjóðlegu samstarfi. Eftir því, sem þátttaka Eystrasaltsríkjanna verður meiri í samvinnu á alþjóða- vettvangi, má búast við að samvinna þeirra og Norðurlandanna eigi eftir að aukast báðum til hagsbóta. Viðleitni Eystrasaltsríkjanna til þess að fá inngöngu í Atlantshafs- bandalagið og Evrópusambandið snýst fyrst og fremst um það að tryggja öryggi sitt sem bezt. Sama viðhorf hefur ráðið mestu um afstöðu Finna til Evrópusambandsins. Finnar gerðust hiklaust aðilar að ESB til þess að tryggja pólitíska hagsmuni og öryggishagsmuni sína. Af sömu ástæðum leggja Eystra- saltsríkin ofuráherzlu á að hljóta við- urkenningu, sem fullgildir aðilar að samstarfi þjóða í Vestur- og Mið- Evrópu. Við íslendingar höfum lagt okkar lóð á vogarskálarnar til þess að stuðla að því að svo megi verða. Vafalaust eru margir þeirrar skoð- unar, að Eystrasaltsríkin eigi ekki heima sem fullgildir aðilar að Norður- landaráði. Það sé vettvangur þjóða, sem eiga sameiginlegar rætur og sameiginlega sögu. Raunar má benda á, að Finnar koma úr annarri átt en vissulega eru þeir líka hluti af sameig- inlegri sögu Norðurlandanna. Mörgum mundi þykja samstarfið á vettvangi Norðurlandaráðs breyta mjög um svip ef Eystrasaltsríkin kæmu þar inn sem fullgildir aðilar og spurning, hvort það mundi verða til þess að draga úr þeirri áherzlu, sem er á samstarf Norðurlandaþjóðanna fimm, en áherzlan færast yfir á vanda- mál Eystrasaltsríkjanna þriggja, sem eru mikil og djúpstæð. Þá má gera ráð fyrir, að aðild Eystrasaltsríkjanna mundi hafa margvísleg önnur áhrif á samstarfið á vettvangi Norðurlandaráðs. Hvaða tungumál yrðu t.d. töluð á fundum stærra Norðurlandaráðs? Nú er áherzla lögð á að tala Norðurlanda- málin. Islendingar og raunar fleiri hafa hreyft þeirri skoðun, að fulltrúar allra þjóðanna ættu að geta notað móðurmál sitt á þessum fundum og túlkað yrði af öllum tungumálum og á öll tungumál. Hvert yrði aðaltungu- mál aðildarríkja Norðurlandaráðs ef Eystrasaltsríkin yrðu aðilar? Enska? Fáum mundi hugnast slík þróun. Á hinn bóginn er það svo, að þeim sem fylgjast með fundum Norður- landaráðs þykir lítið til umræðna koma á þeim vettvangi. Kannski er ástæðan sú, að það er einfaldlega lítið um að tala. Norðurlandaþjóðirnar eiga ekki við vandamál að stríða í sín- um þjóðfélagsmálum í sama skilningi og fjölmargar aðrar þjóðir, þ. á m. Eystrasaltsþjóðirnar. Aðild þeirra mundi hugsanlega skapa Norður- landaráði það jarðsamband, að full- trúar á þingum þess færu aftur að tala um alvarleg og jarðbundin vandamál og þá ekki sízt hvað hinar ríku þjóðir norðursins geti gert til að hjálpa með- bræðrum sínum annars staðar, bæði í nálægum ríkjum og fjarlægum. Að þessu leyti gæti aðild Eystrasaltsríkj- anna haft jákvæð áhrif á störf Norð- urlandaráðs. Þessar umræður eru ekki orðnar nægilega þroskaðar til þess að tíma- bært sé að taka ákvörðun um aðild Eystrasaltsríkjanna að Norðurlanda- ráði. Hins vegar er sjálfsagt að ræða þessa hugmynd frekar frá öllum hlið- um. En hvað sem því líður hljóta Norð- urlandaþjóðirnar að leggja sig fram um að veita Eystrasaltsríkjunum stuðning í viðleitni þeirra til þess að fá aðild að helztu stofnunum evrópskrar samvinnu. I þeim efnum er aðild að Atlantshafsbandalaginu kannski mik- ilvægust. Hún hefur að vísu ekki verið mikið á dagskrá frá því að Pútín komst til valda í Rússlandi en engu að síður veita menn því eftirtekt að það berast ekki jafnherskáir tónar frá Moskvu og í tíð Jeltsíns. Kannski seg- ir það enga sögu. Hitt fer ekki á milli mála, að aðild að Atlantshafsbanda- laginu er úrslitamál fyrir Eystra- saltsríkin. Við eigum að styðja þau dyggilega í þeirri baráttu og ekki láta það á okkur fá, þótt heimsveldabar- áttan verði til þess að stærri þjóðir láti ýmsa aðra hagsmuni ráða ferðinni eins og gerðist, þegar Eystrasaltsrík- in knúðu á um viðurkenningu á sjálf- stæði sínu í byrjun þessa áratugar. MÁLEFNI NORÐURSLÓÐA Hreyfílhitari drefflir úr mengun og veitir ýmis þæffindi Móta þarf stefnu sem leiðir til stöðugleika Morgunblaðið/Kristján Níels Einarsson, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonai', Mark Nuttall, prófessor við Háskólann í Aberdeen, og Evelyn Stefansson Nef, ekkja Vilhjálms Stefánssonar, ræða saman. Vandamálin sem steðja að íbúum norður- skautssvæða eru marg- visleg og stöðugleika samfélaganna er ógnað. Margrét Þóra Þórs- dóttir ræddi við og hlustaði á fyrirlestur Marks Nuttalls sem var rneðal þátttakenda á fyrsta Rannsókna- þingi norðursins. AUGU manna beinast í auknum mæli að því hversu mjög hin litlu samfélög sem liggja að heimskautssvæðinu tengjast hinu alþjóðlega efnahagskerfi, þau kom- ast ekki lengur hjá því að taka að fullu þátt í hnattvæðingu nútíma- samfélaga. Þetta segir dr. Mark Nuttall, prófessor við háskólann í Aberdeen í Skotlandi, en hann hef- ur á síðustu árum verið virkur í rannsóknum um málefni er varða norðlægar slóðir. Dr. Mark Nuttall tók þátt í fyrsta Rannsóknaþingi norðursins sem fram fór á Akureyri um liðna helgi og var hann fenginn til að flytja fyr- irlestur um alþjóðavæðingu um- hverfismála og áhrif þeirra á sam- félög norðurslóða. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar stóð að fyr- irlestrinum en um var að ræða minningarfyrirlestur um Vilhjálm og var hann fluttur á fæðingardegi hans. Mark Nuttall segir að almennt sé litið svo á að aukin þátttaka hinna smáu samfélaga norðurskautssvæð- anna í alþjóðavæðingunni hafi í för með sér árekstur milli þeii'ra gilda sem áður voru í heiðri höfð og hins nýja samfélags. Afleiðingarnar séu neikvæðar fyrir norðrið og þann margbreytileika sem einkennt hafi íbúa heimskautssvæðanna fram til þessa. Þeir sem utan þessara samfélaga standa líti gjarnan svo á að heim- skautssvæðin séu ein risastór vöru- skemma, uppfull af náttúrulegum auðlindum. Nýting þehra sem og þróun efnahagsmála hefur verið gagnrýnd, því hagnaðurinn hefur að stórum hluta lent á svæðum utan norðurslóðanna en ekki nýst sam- félögunum við norðurskautið sem skyldi. Samfélögin séu vissulega ekki einsleit og segir Mark Nuttall þau byggja afkomu sína á ýmsum greinum, fiskveiðum, hjarð- mennsku eða veiðum af öðru tagi og þá verði sum þeirra æ háðari utan- aðkomandi efnahagslegri aðstoð. Vandamálin sem íbúar þessara norðurskautssvæða standa frammi fyrir eru margvísleg. Þar má nefna að breytingar á loftslagi hafa mikil áhrif á þessum svæðum og þá verði að horfast í augu við þá staðreynd að félagslegar breytingar eru um- talsverðar. Fólk flytur í auknum mæli burt, einkum ungt fólk sem snýr baki við þeim lifnaðarháttum sem norðurskautssvæðin bjóða upp á og byggjast á fiskveiðum og veiði- skap og sest að í þéttbýlinu. Stöðugleika þessara samfélaga er að sögn Marks Nuttalls ógnað á margan hátt þegar litið er til fram- tíðar sem og möguleika þeh'ra á að verða sjálfbær til lengri tíma litið. Hin smáu samfélög norður- skautssvæðanna eiga það sameigin- legt að sjálfstæði þeiira byggist á nýtingu auðlinda, bæði sjávarfangs og þess sem jörðin gefur af sér. Efnahagskerfi þeirra er byggt á veiðum ýmisskonar, nýtingu sjávar- fangs og hjarðmennsku og á þessu byggist einnig félagslegur og menningarlegur veruleiki þessara samfélaga. Aukin tæknivæðing, önnur áhersla í markaðsmálum, stefnumótun í stjórnmálum, aukin mengun og loftslagsbreytingar hafa í för með sér miklar breytingar fyr- ir íbúa svæðanna, til að mynda auk- ið atvinnuleysi þar sem færri hend- ur þarf til að vinna verkin. Én ekki er nóg með að þessir þættir hafi áhrif á líf íbúanna heldur þurfa þeir einnig að fást við hópa fólks sem berst fyrir réttindum dýra og umhverfisverndarsamtök, en samtök þessi hafa æ meiri áhrif á viðhorf almennings. Aðgerðir hópa af þessu tagi sem beinast gegn þeim sem nýta sér auðlindh' þær sem fel- ast í villtum dýrastofnum hafa haft þær afleiðingar í för með sér að markaðir hafa lokast. Reglugerðir af ýmsu tagi og stjórnskipulags- breytingar sem utanaðkomandi að- ilar hafa komið í gegn hafa einnig sín áhrif á það hvernig fólk á norð- urhjara getur nýtt sér auðlindir sín- ar. Bæði er um að ræða þá sem vilja vernda stofnana og eins þá sem gera kröfu um aðgang að auðlind- um norðurslóða. Sjálfbærri nýtingu auðlinda á heimskautssvæðunum og stöðug- leika samfélaganna er einnig ógnað með því að sjávarfang, fiskur, selir og hvalir hafa í tímans rás breyst úr því að vera auðlind sem öllum var gert kleift að sækja í að vild í nokk- urs konar einkaeign, t.d. öflugra fyrirtækja, lögum samkvæmt þurfa menn nú að deila auðlindinni með öðrum utanaðkomandi aðilum. Kvótakerfi sem sett var á í Norð- ur-Atlantshafi er svar stjórnvalda við ofveiði og hnignun einstakra stofna. Það á að leiða til stöðugleika þeitra og gera veiðarnar á ný sjálf- bærar, auk þess að auka hag- kvæmni og ágóða af veiðunum. Margir íbúar afskekktra svæði upp- lifa þessa breytingu á þann hátt að af þeim hafi verið tekinn hefðbund- inn réttur til að nýta auðlindir sínar þar sem öflug alþjóðleg fyrirtæki hafi haslað sér þar völl. Nuttall segir að nú sé svo komið að líf fólks sem til að mynda búi á afskekktum stöðum í Síberíu eða á norðanverðu Grænlandi sé ekki ósnortið af því sem gerist í órafjar- lægð frá heimabyggð þess. Þannig hafi dýraverndarsamtökum tekist að snúa áliti almennings gegn notk- un fatnaðar úr selskinnum og loð- feldum og með því haft áhrif á lifn- aðarhætti og möguleika fólks á heimskautssvæðunum, á menningu þess og efnahagslíf. Hann bendir á að það fólk sem búi fjarri heimskautssvæðunum hefur margt ekki skilning á lifnað- arháttum fólks á norðurhjaranum og hvaða afleiðingar það hefur fyrir efnahag þess og menningu að ákveðnar vörur sem það framleiðir séu sniðgengnai'. Fólk gerir sér ekki grein fyrir að með hegðun sinni geti það kippt grundvellinum undan lífsafkomu þessa fólks. Á þennan hátt getur ákvörðun ungs fólks á heimskautssvæðunum um að flytja burt verið háð ákvörð- unum fólks í Lundúnum eða New York um hvernig það hagar sínu lífi. Mark Nuttall segir að ein mesta ögrun sem þeir sem vinna að stefnumótun varðandi málefni norðurslóða standi nú frammi fyrir sé að móta stefnu sem skapi tæki- færi fyrir íbúa svæðanna og stuðli að stöðugleika þeirra. Það sé mikil ögrun að finna viðunandi lausn á sí- aukinni áhættu sem hnattvæðingin hafi í fór með sér fyrir norðurslóðir. Hann bendir á að framtíð íbúa heimskautasvæðanna geti að ein- hverju leyti falist í auknum við- skiptum þeirra á milli. Takist það getur það haft í för með sér meiri stöðugleika, en eftirspurn sé á milli svæðanna varðandi ýmsar afurðir, m.a. sjávarspendýra, ogfatnað. Margt standi þó í veginum eins og alþjóðleg andstaða við veiðar sjávarspendýra og nýtingu þeirra og reglur alþjóðlegra samtaka varðandi nýtingu endurnýjanlegra auðlinda sem hafi líka áhrif. Þannig hafi takmarkanir á alþjóðlegum við- skiptum með afurðir sjávar- spendýra margvísleg áhrif, m.a. dragi þau úr skapandi umræðum um málefni er varða umhverfismál, tekjur heimamanna dragist saman og komi í veg fyrir að samfélög norðurslóðanna búi við sjálfbæra þróun efnahagskerfisins. Nuttall segir ólíklegt að heim- skautaráðið finni lausn á þessum málum í nánustu framtíð og að hin afskekktu svæði í norðrinu ráði heldur ekki sjálf við öll þau vanda- mál sem þau standa frammi fyrir. Hann hvetur til þess að rannsóknir á þessum svæðum verði auknar og nýttar sem gi’unnur að stefnumót- un til framtíðar. íslendingar taka í fyrsta skipti þátt í Evrópusamstarfí um geðverndarmál ISLAND tekur nú í fyrsta sinn þátt í Evrópusamstarfi um geðvemdarmál en um liðna helgi var haldinn samstarfs- fundur fulltrúa Evrópusambandsins, Noregs og Islands um þessi efni í London. I framhaldinu er gert ráð fyrir að útbúin verði stefnumótandi skýrsla vegna geðræktar ungs fólks á aldrinum 12-20 ára og munu ís- lendingar taka þátt í gerð hennar. Héðinn Unnsteinsson var fulltrúi íslands á ráðstefnunni í London en hann er verkefnisstjóri hins svo- nefnda Geðræktarverkefnis, sam- starfsverkefnis Geðhjálpar, geðsviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss og Landlæknisembættisins sem ýtt var úr vör í október. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið að fyrir tveim- ur árum hefði ESB fengið aðildarríki sambandsins auk Noregs til að setja saman stefnumótandi skýrslu um geðrækt fyrir böm á aldrinum 0-6 ára og nú væri í bígerð að gera slíkt hið sama fyrir ungt fólk á aldrinum 12-20 ára. Af þeim sökum hefði hann setið fundinn í London. Héðinn sagði að í kjölfar ráðstefn- unnar biði það nú þein’a hér heima að móta hugmyndir um 3-5 geð- Skýrsla vegna geðrækt- ar ungs fólks undirbúin ræktarverkefni fyrir ungt fólk og skila tillögum fyrir 1. mars 2001 um það hvemig íslendingar telji að helst megi bæta geðheilsu fólks á þessum aldri. Síðan fari framkvæmdastjórn ESB yfir skýrsluna í heild sinni, gefi henni einkunn og sendi frá sér sem stefnumótandi plagg Evrópusam- bandsins. 43.000 sjálfsmorð framin árlega í löndum ESB Héðinn sagðist gera ráð fyrir því að setja nú saman sex manna vinnu- hóp til að móta íslensku tillögurnar. Þar myndu m.a. sitja fulltrúi Land- læknisembættisins, bama- og ungl- ingageðdeildar (BUGL), mennta- málaráðuneytisins og Geðræktar en Héðinn hefur einnig hugsað sér að taka einn ungling inn í hópinn. Hefur hópurinn frjálsar hendm’ í verkefna- vali sínu. Evrópusambandið leggur nú æ meiri fjár- muni í verkefni til að bæta geðheilsu fólks, að því er fram kemur í máli Héðins. Finnar höfðu á sínum tíma frumkvæði að því að koma þessum málum á dagskrá enda þung- lyndi og sjálfsmorð tíð þar í landi en nú em mál hins vegar komin á góðan rekspöl. Bend- ir Héðinn á í þessu sambandi að fjömtíu og þrjú þúsund sjálfs- morð séu framin í löndum ESB á ári hverju og sjö hundmð þúsund sjálfs- morðstilraunir séu skráðar. „Það þarf því ekki að koma á óvart að sambandið vilji leggja fjármuni til að tryggja bætta líðan,“ segir hann. Segir Héðinn að á vettvangi ESB telji menn að mikilvægt forvamastarf felist í geðrækt, m.a. vegna tengsla tóbaksreyk- inga og áfengis- og fíkniefnaneyslu við geðheilsu fólks. Á fundinum í London hafi t.a.m. komið ber- lega í Ijós hvei’su mikla áherslu Bretar leggi á þessi mál einmitt nú. „í Bretlandi fremja nú að jafnaði 12-14 ungir menn sjálfsmorð í viku hverri og þar hafa menn horft upp á 170% aukningu frá 1985. Bret- um er því mjög umhugað um bætta geðheilsu landa sinna,“ sagði hann. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Is- lendingar taka þátt í samstarfsverk- Héðinn Unnsteinsson + efni um geðrækt á vegum Evrópu- sambandsins. Segir Héðinn að nokkuð hafi skort á að íslensk stjói-nvöld sýndu tillögum ESB og þeim áherslum sem sambandið hefði sett tilhlýðilegan áhuga. Fyrri skýrslan endaði ofan í skúffu embættismanna Fullyrðir hann að fyrri skýrsla sambandsins, um geðrækt 0-6 ára barna, hafi einfaldlega endað ofan í skúffu embættismanna. Hann gagn- rýnir þá stefnu íslenskra stjórnvalda að setja sér tiltekin markmið um fækkun sjálfsvíga og geðröskunar án þess að vinna í raun nokkuð í mál- unum eða vera tilbúin að leggja til þess fjármuni. „En eins og við vitum gerast góðir hlutir hægt og ég vona því að nú horfi til úrbóta í þessum efnum,“ segir hann. Vonast hann til þess að í þetta sinn berist hingað góð og gild skýrsla sem fylgt verði eftir hér á landi eins og annars staðar. „Evrópusambandið leggur nefnilega mikla áherslu á að heilbrigðisyfir- völd hvers lands vinni eftir þessum skýrslum," sagði Héðinn Unnsteins- son. Spara má 100 til 200 lítra af bensíni árlega Með því að nota hreyfilhitara sem notar raforku til að hita bílvél áður en hún er ræst nær vélin fyrr vinnsluhita og mengar minna. Jóhannes Tómasson kynnti sér þessa tækni hjá Olafí Arnari Gunnarssyni sem vann lokaverkefni í Tækniskóla Islands um hreyfílhitara. HREYFILHITARI fyrir bílvélar getur sparað umtalsvert eldsneyti, dregið úr mengun og veitt þau þægindi að bíleigandinn kemur alltaf að heitum bílnum á köldum dögum og losnar við að skafa rúður. Ólafur Amar Gunnars- son, sem er að ljúka námi frá Tækni- skóla íslands í vél- og orkutækni- fræði, tók hreyfilhitara sem loka- verkefni og segir hann þá henta vel fyrir íslenskar aðstæður og hvetur bíleigendur til að setja slíkan búnað í bíla sína. Lokaverkefnið vann Ólafur Arnar fyrir Landsvii’kjun en forsagan er sú að á síðasta ári ákvað Lands- virkjun að athuga hvort hagkvæmt væri að setja hreyfilhitara í bílaflota sinn. Var Jón Baldur Þorbjörnsson bíltækniráðgjafi fenginn til að gera á því hagkvæmniathugun sem reyndist jákvæð og voru þá settir hreyfilhitarar í nokkra bíla fyiir- tældsins og starfsfólks. Verkefni Ól- afs Arnar fólst í því að lýsa hreyfil- hitara, gera úttekt á kostum og göllum og skoða fjárhagshliðina. Þá er fjallað um tilraun Landsvirkjunar sem stóð frá febrúar og út maí á þessu ári og árangur hennar met- inn. „Tilgangur hreyfilhitara er að stuðla að því að vélin nái álqósan- legu hitastigi sem fyrst eftii’ að akst- ur hefst,“ segir Ólafur Arnar í sam- tali við Morgunblaðið. „Búnaðurinn fær orku sína frá 230 volta raf- magnsinnstungu. Hreyfilhitari hitar kælivatn bílsins og fylgir því tíma- stillfr og hitamælir sem ræsir bún- aðinn og hitablásari sem hitar upp farþegarýmið og eyðir móðu og hrími áður en akstur hefst. Tíma- stillirinn stýrir því hvenær upphitun á að hefjast miðað við útihitastig og er þá miðað við fyrirfram ákveðinn brottfarartíma.“ Borgar sig upp á þremur árum Einfaldur hreyfilhitari kostar með tilheyrandi búnaði kringum 45 þúsund ki’ónur en misjafnt er eftir bílgerðum hversu mikinn búnað þarf. Ólafur Amar segir að hann borgi sig upp á þremur árum. Milli 100 og 200 lítrai’ af bensíni sparast ái’lega með því að nota hreyfilhitara reglulega allt árið og þýðir það 9.800 til 19.600 krónur á ári. í ritgerð sinni vitnar Ólafur Am- ar í danskar niðurstöður um bensín- spamað og kemur þar fram að sé hiti við frostmark eyðir bíll 1,6 lítr- um á fyrstu fimm kílómetrunum sé hann ekki hitaður. Hafi verið notað- ur hreyfilhitari dettur eyðslan niður í einn lítra. Sé 20 stiga frost fer Morgunblaðið/ Kristinn Ólafur Arnar Gunnarsson segir hreyfilhitara hafa sparnað á eldsneyti í för með sér, draga úr mengun og veita þau þægindi að menn setjast alltaf inní volgan bíl á köldum dögum. Morgunblaðið/Sverrir Við húsnæði Landsvirkjunar eru hreyfilhitarar sem notaðir hafa verið í tilraunaskyni vegna bfla fyrirtækisins og starfsmanna. eyðslan úr tveimur lítrum í einn og við 20 stiga hita úr 1,2 lítrum í 1. Ólafur Arnar leggur áherslu á að hérlendis séu skilyrði fyifr notkun hreyfilhitara allt árið. „Hér verður aldi’ei svo heitt að ekki sé hagkvæmt að nota hreyfilhitara. Vinnsluhiti bíl- vélar er kringum 80 gráður og þótt hér sé kannski 15 til 20 stiga hiti á sumrin myndi það draga mjög úr mengun ef vélin væri hituðþótt loft- hiti sé það mikill," segir Ólafur og telur notkun hreyfilhitara því æski- lega allan ársins hring. „Hver vill ekki spara eldsneyti, minnka rekstr- arkostnað, auka þægindi og öryggi í umferðinni og draga í leiðinni úr los- un mengandi efna og gróðurhúsa- lofttegunda." Orkuveitan býður styrk Hæfilegur notkunartími hreyfil- hitara er frá 30 mínútum og upp í þrjá tíma og fer hann eftir útihita- stigi, hitastigi vélar og hversu öflug- ur hreyfilhitarabúnaðurinn er. Ólaf- ur segir kostnað við orkunotkun hreyfilhitara vera um 2.700 krónur hérlendis og hefur Orkuveita Reykjavíkur boðið þeim sem fjár- festa í hreyfilhitara styrk sem nem- ur þeirri upphæð. Stendur tilboðið útárið. Auk eldsneytissparnaðar er talið að notkun hreyfilhitara auki end- ingu smurolíu og að lengja megi tím- ann milli olíuskipta úr 5 í 10 þúsund km. Þá er hægt að auka endingu raf- geymis en fá má hleðslutæki sem hluta af hreyfilhitarabúnaðinum og sér hann um að halda rafgeyminum ávallt fullhlöðnum. Er talið að end- ingin aukist úr 3 til 5 árum í 6 til 10. „Það sem flestfr starfsmenn Landsvirkjunar nefndu sem helsta kost hreyfilhitara eru þægindin," segir Ólafur Amar. ,Að geta sest út í hlýjan bíl á köldum morgni og þurfa ekki að skafa rúðumar. Hitt fylgir síðan með sem bónus, að geta lækkað rekstrarkostnaðinn og dreg- ið úr mengun," og segir hann síðast- nefnda atriðið ekki það þýðingar- , minnsta. Segir Ólafur Amar að - hreyfilhitari dragi úr mengandi efn- um í útblæstrinum sem eru mest þegar bílvél er ræst köld. Dregur úr útblæstri mengandi efna „Hreyfilhitarinn dregur úr út- blæstri megnandi efna, til dæmis kolmónoxíðs, koldíoxíðs, köfnunar- efnisoxíða og kolvetna. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að regluleg notkun hreyfilhitai’a getur minnkað óæskilegar lofttegundir í útblæstri eins og kolmónoxíð og kolvetni um allt að 80% og minnkað koldíoxíð á bilinu 10 til 60%. Við skulum líka athuga að í stað þess að nota innflutta mengandi orku til að hita upp vélina og bílinn getum við notað íslenska raforku sem framleidd er á umhverfisvænan hátt hérlendis. Fyrir utan að stuðla að minni mengun er það þjóðhags- lega hagkvæmt," segir Ólafur. Islendingai’ era að sögn Ólafs ára- tugum á eftir nágrannaþjóðum í hreyfilhitaravæðingunni. Erfiðast sé að finna innstungu fyrir rafmagn og þurfi flestir að grípa til einhverra aðgerða heima fyrir til að komast í rafmagn á þægilegan hátt. Hann segir að best væri ef borgin hefði framkvæði að því að gera ráð fyrir rafmagnsinnstungum á bílastæðum þegar ný hverfi era skipulögð, rétt eins og gert hefði verið í Árbæjar- hverfinu fyrir 30 áram. Þá var stauranum komið upp á bílastæðum við nokkur fjölbýlishús en rafmagn- ið ekki tengt. Þá kveðst Ólafur vita til þess að Landsvirkjun muni hvetja bíleigendur í sérstakri her- ferð til að setja slíkan búnað í bíla sína og kveðst hann vona að raf- magnsinnstungum verði komið fyrfr við sem flest heimili sem og vinnu- staði. „Því þegar málið er skoðað frá öll- um hliðum kemui’ í ljós að allir munu græða á hreyfilhitaravæðingu. Það er því löngu orðið tímabært að Is- r lendingar opni augu sín fyrii’ þess- um búnaði og hreyfilhitaravæði ís- lenska bílaflotann til að stuðla að hagstæðari viðskiptajöfnuði við út- lönd, minni hnattrænni mengun og leggi sitt af mörkum við að gera jörðina að byggilegri stað,“ era loka- orðin í skýi-slu Ólafs Ai’nars Gunn- arssonar. c

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.