Morgunblaðið - 08.11.2000, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 08.11.2000, Blaðsíða 72
pttrgmmlMiiÍi + Borðtölvur + Fartölvur + Netþjónar 563 3000 + www.ejs.ls MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK SÍMI5691100, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJdiMBLJS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Launaútgjöld heilbrigðisstofnana aukast um 8% á þessu ári Utgjöld stefna í 1,5 milljarða umfram fjárlög AÐ MATI Ríkisendurskoðunar gætu launaútgjöld heilbrigðisstofnana hækkað um 8% á þessu ári. Þetta þýð- ir 1,1 milljarði meiri launaútgjöld en reiknað var með í fjárlögum. Auk þess eru horfur á að önnur útgjöld heilbrigðisstofnana fari 400 milljónir fram úr fjárlögum. Það er því mat Ríkisendurskoðunar að fjárþörf heil- ili ^JTÍgðisstofnana stefni í að vera 1,5 milljarðar umfram fjárlög. Ríkisendurskoðun óskaði eftir upp- lýsingum frá 87 heilbrigðisstofnunum um afkomu þeirra á fyrri hluta ársins. Þær gera ráð íyrir að fjárþörf um- fram fjárheimildir á þessu ári verði um 880 m.kr. Ríkisendurskoðun met- ur það hins vegar svo að það vanti 1,5 milljarða inn í rekstur þeirra. I fjáraukalagafrumvarpi, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir 800 m.kr. framlagi til heilbrigðis- stofnana. Ríkisendurskoðun telur að eftir sem áður vanti um 600 milljónir til að mæta fjárþörf stofnananna. 250 m.kr. eru vegna launa og 350 m.kr. vegna annarra gjalda. Meginhlutinn tengist sjö heilbrigðisstofnunum. Heilbrigðisstofnanirnar gerðu ráð fyrir í áætlunum sínum að heildar- fjárþörf að frádregnum sértekjum á fyrri helmingi ársins yrði 17,7 miHj- arðar. Niðurstaðan er hins vegar 18,4 milljarðar, um 700 m.kr. meira en áætlað var. Að mati Ríkisendurskoðunar hafa ráðuneyti heilbrigðismála og fjármála gripið til þeirra ráðstafana sem mælt var fyrir um við afgreiðslu fjárlaga. Hins vegar eru sum verkefnin það skammt á veg komin að ekki er að svo stöddu hægt að mæla árangur þeirra. ^andspítalinn ræðir við Rauða kross- inn um samstarf vegna sjúkrahótels Gæti aukið rými um helming LANDSPITALI - háskólasjúkrahús á í viðræðum við Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands um samstarf á rekstri sjúkrahótels Rauða krossins sem starfrækt hefur verið á fjórðu og efstu hæð Fosshótels Lindar við J>iuðarárstíg í Reykjavík. Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Landspítalanum, stað- festi þetta í samtali við Morgunblaðið. Fyrirhugað samstarf er fólgið í því að spítalinn útvegar hjúkrunarfræð- inga á sjúkrahótelið ásamt læknis- þjónustu ef á þarf að halda. A móti láta RKÍ og Fosshótel í té fleiri gisti- rými á hótelinu, en hótelið leigir hús- næðið af Rauða krossinum, og gæti gistirýmum fjölgað um nær helming með samstarfinu. Reiknað er með að skrifað verði undir samstarfssamning á næstunni. Rauði krossinn hefur til þessa rek- ið sjúkrahótelið við Rauðarárstíg, með samningi um húsnæði og ■ápjveðna hótelþjónustu frá Fosshótel- um. Verði af samstarfinu við Land- spítalann mun Fosshótel fækka gisti- rýmum sínum, einkum yfir vetrar- mánuðina. Sjúkrahótelið hefur notið þjónustu hjúkrunarfræðings frá Heimahjúkrun Reykjavíkur, sem leggst þá af með samstarfinu við spítalann. Að sögn Önnu gæti verið um tvö stöðugildi hjúkrunarfræðinga að ræða. Tilraunaverkefni Frá því að Anna tók við starfi fram- kvæmdastjóra hjúkrunar hjá Land- spítalanum í vor hefur efling sjúkra- hótels verið eitt af hennar helstu hugðarefnum. Hún lagði á það áherslu í samtali við Morgunblaðið að um tilraunaverkefni væri að ræða, samið yrði við Rauða krossinn til skamms tíma fyrst um sinn. „Við þurfum að skoða mjög vel hvemig þetta tilraunaverkefni tekst, með tilliti til framtíðarinnar. Sjúkra- hótel eru núna rekin í tengslum við flestöll stæi-ri sjúkrahús á Norður- löndum. Þannig hefur ríkisspítalinn í Ósló nýlega opnað stórt sjúkrahótel, sem er innangengt í úr spítalanum. Það er rekið sem hótel og þar er talað um gesti en ekki sjúklinga. Við finn- um fyrir þörfinni fyrir frekari rekstur sjúkrahótels hér á landi og hún hefur aukist á síðari árum,“ sagði Anna. Bónus fyrír korthafa Nú getur þú greltt meíl EUR0CARD og MasterCard greiúslukortum í Bónus! Mastertaid Morgunblaðið/Golli Viðgerðir á Sjó- mannaskólanum ÞAÐ glampar á nýjar þakplötur Sjómannaskólans á Rauðarárholti í haustsólinni. Unnið er að frágangi á þaki Sjómannaskólans, en viðgerðir á þaki og þakrennum hússins hóf- ust í sumar. Frekari framkvæmd- ir við húsið standa til því að á næsta ári er ráðgert að klæða alla bygginguna að utan. Hafna tilboðum í knatt- spyrnuhús STARFSHÓPUR um knattspymu- hús í Grafarvogi leggur til að borgar- yfirvöld hafni öllum þeim fjóram til- boðum sem bárust í byggingu og rekstur knattspyrnuhúss í Grafar- vogi, en framkvæmdin var boðin út sem einkaframkvæmd, í lokuðu út- boði. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að þessi niðurstaða kæmi ekki á óvart því hún sæi ekki hvernig einkaframkvæmdir gætu borgað sigþai' sem Reykjavíkurborg hefði aðgang að mun hagstæðari lánskjöram en verktakar. ■ Borgarstjóri/16 ---------------- Uggandi um námslán IÐNNEMAR eru uggandi um sinn hag ef verkfall kennara verður langt þar sem úthlutun námslána þeirra frá Lánasjóði íslenskra námsmanna byggist á niðurstöðum prófa í lok annarinnar. Steingrímur Ari Arason, fram- kvæmdastjóri LIN, sagði í samtali við Morgunblaðið að stjórnin myndi ræða þessi mál lánþega á fundi síðar í vikunni. Regla sjóðsins væri að framfærslulán vegna haustmisseris væru greidd út í framhaldi af upp- lýsingum um námsárangur. „Éf námsmenn geta ekki skilað námsár- angri vegna verkfallsins er það alveg ljóst að bregðast þarf við með ein- hverjum hætti,“ sagði Steingrímur en taldi ekki tímabært að ræða málið frekar að svo stöddu. Lánasjóðurinn lánar einkum nem- endum í háskólanámi en einnig eiga nemendur í sérnámi, þar á meðal iðnnemar, rétt á úthlutun. ■ Rólegur/6 14% lægri fjárhæð samþykktra húsbréfalána í október Dregur úr lánum fímm mánuði í röð UPPHÆÐ samþykktra húsbréfa- lána var lægri í októbermánuði en í sama mánuði í fyrra svo munar 14% samkvæmt nýjum upplýsingum íbúðalánasjóðs. Er það fimmti mán- uðurinn í röð sem heildarfjárhæð samþykktra lána er minni en í sama mánuði í fyrra, en framan af árinu var um veralega aukningu húsbréfa- lána að ræða frá sama tímabili síð- astaárs. Heildarfjárhæð samþykktra hús- bréfalána fyrstu tíu mánuði ársins eða fram til loka október nemur rúm- um 24,5 milljörðum króna, sem er 6,6% minna en í fyrra á sama tíma þegar heildarfjárhæð samþykktra lána var tæpir 26,3 milljarðar kr. Munurinn er enn meiri ef miðað er við áætlað markaðsvirði húsbréfanna vegna breytinga á ávöxtunarkröf- unni eða 16,3%. Þannig var áætlað markaðsvirði 26,8 milljarðar króna í fyrra, en er 22,4 milljarðar kr. í ár eða tæpum 4,4 milljörðum kr. minna. Breytingar á heildar- fjárhæð samþykktra iána í húsbréfakerfinu 1999 til 2000 Milljónir króna Mánuður 1999 2000 Breyting Janúar 1.176 1.976 +68,0% Febrúar 1.821 2.207 +21,2% Mars 3.282 3.483 +6,1% Apríl 2.849 2.705 -5,1% Maí 2.580 2.979 +15,5% Júní 3.377 2.167 -35,8% Júlí 3.011 2.065 -31,4% Ágúst 2.652 2.057 -22,4% Sept. 2.504 2.306 -7,9% Okt. 3.017 2.596 -14,0% ALLS: 26.269 24.541 -6,6% Fjárstýringarsvið íbúðalánasjóðs áætlar að sami samdráttur og verið hefur undanfama mánuði haldi áfram og miðað við það verður heild- arfjárhæð samþykktra lána á árinu rúmir 29 milljarðar króna. Innkomnar umsóknir það sem af er árinu era einnig nokkra færri en á sama tímabili í fyrra, eða tæpar átta þúsundir, en vora 8.420 fyrstu tíu mánuðina árið 1999. Mikil fjölgun umsókna var fyrstu tvo mánuði árs- ins eða yfir 60% hvorn mánuð, en síð- an hafa umsóknir verið færri heldur en sömu mánuði ársins 1999, ef und- anskildir era tveir síðustu mánuðir. Umsóknir í septembermánuði vora 5,3% fleiri en í september í fyrra og umsóknir í október 0,6% fleiri en í sama mánuði í fyrra. Kemur fram í samantekt Ibúða- lánajóðs að það á rætur að rekja til þess að fleiri umsóknir hafa borist vegna nýbygginga í ár en í fyrra en umsóknir vegna notaðra íbúða í októ- ber era 32 færri en í október í fyrra, en innkomnar umsóknir í október í ár vora 873 talsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.