Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 1
4 11 STOFNAÐ 1913 263. TBL. 88. ARG. FIMMTUDAGUR 16. NOVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Hæstiréttur Flórída hafnar kröfu um stöðvun handtalningar Gore býð- ur Bush til fundar Atlanta, Tallahassee, Washington. AFP, AP. AP A1 Gore flytur yfirlýsinguna á fréttamannafundi í Washington í gærkvöld. Joseph Lieberman, varaforsetaefni demókrata, stendur á bak við hann. AL Gore, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi demókrata, sagði á fréttamannafundi í gærkvöld að ef George W. Bush, forsetaefni repúblikana, féllist á handtalningu at- kvæða í þremur sýslum Flórída, myndu demókratar skilyrðislaust hlíta niðurstöðunni og falla frá öllum málaferlum. Bush hafði ekki gefið svar þegar Morgunblaðið fór í prent- un en Gore gaf til kynna á frétta- mannafundinum að ef hann féllist ekki á þetta tilboð myndu demókratar hugsanlega fara fram á handtalningu atkvæða í öllum 67 sýslum Flórída. Gore bauð Bush jafnframt til fundar, „ekki til að semja heldur til að bæta andrúmsloftið". Hæstiréttur Flórídaríkis hafði skömmu áður hafnað kröfu Katherine Harris, innanríkisráðherra Flórída, um að handtalning atkvæða yrði stöðvuð í sýslunum Palm Beach, Broward og Miami-Dade. Talning- unni var því haldið áfram en niður- staða hennar getur ráðið úrslitum í bandan'sku forsetakosningunum. Harris hafði farið fram á að hand- talningin yrði stöðvuð þar til úrskurð- ur hefði verið kveðinn upp um hvort lagalegur grundvöllur væri fyrir henni. „Við höfum teldð kröfuna til umfjöllunar og ákveðið að hafna henni,“ segir í yfirlýsingu hæstarétt- ar Flórída en úrskurðurinn var kveð- inn upp án réttarhalda. Dómaramir sjö voru sammála um niðurstöðuna en þeir eru allir skipaðir af ríkisstjórum úr flokki demókrata. Harris, sem er repúblikani, hafði jafnframt farið þess á leit að málsókn- ir vegna endurtalningar atkvæða yrðu sameinaðar og að öll málin yrðu tekin fyrir af dómstóli Leon-sýslu, þar sem ríkishöfuðborgm Tallahassee er staðsett en hæstiréttur Flórída hafnaði þeirri kröfu einnig. AlríkisdómstóII tekur mál repúblikana fyrir Dómari í Flórída hafði á þriðjudag úrskurðað að sýslur í ríkinu hefðu frest til klukkan 19 í gær að íslensk- um tíma til að skila inn rökstuðningi fyrir kröfu um endurtalningu. Rök- stuðningur barst frá fjórum sýslum, Palm Beach, Broward, Miami-Dade og Collier. Síðdegis í gær hafði alríkisdómstóll í Atlanta í Georgíuríki samþykkt að taka fyrir mál sem samtök repúblik- ana höfðuðu til að stöðva handtalning- una í Flórída en þar höfðu dómarar vísað máli þeirra frá. Alríkisdómstóll- inn mun einnig taka fyrir mál þriggja íbúa í Broward-sýslu í Flórída en í báðum tilvikum er málið höfðað á þeim grundvelli að handtalning í nokkrum sýslum sé brot á 14. breyt- ingarákvæði bandarísku stjómar- skrárinnar. Miða málsóknimar að því að stöðva handtalningu í sýslunum Palm Beach, Miami-Dade, Broward og Volusia en demókratar em sterkir í þessum sýslum. Ekki hefur verið greint frá því hvenær málin verði tek- in fyrir en hugsanlegt er að alríkis- dómstóllinn kveði upp úrskurð án réttarhalda. Stuðningsmenn George W. Bush hafa barist harðlega gegn frekari endurtalningu atkvæða í Flórída en eftir fyrstu endurtalningu hefur Bush 300 atkvæði umfram Gore. James Baker, fyrrverandi utanríkisráðherra sem fer fyrir lögfræðingaliði Bush í Flórída, sagði í gær að endurtalning- amar væm „ósanngjamar og byðu upp á hættuna á mannlegum mistök- um og gríðarlegu misferli." Ótímabærum jóla- skreytíngum mótmælt Skeinmd- ir uimar á versl- unum Montreal. AP. SAMTÖK sem berjast gegn því, sem þau kalla ótímabærar jólaskrej'ting- ar, hafa að undanfömu unnið vemleg skemmdarverk á verslunum í Mont- real í Kanada. Hafa verslanirnar ver- ið sóðaðar út með málningu og olíu og eggjum kastað í þær. Samtökin, sem kallast „Baráttan gegn ótímabærum jólaskreytingum“, hóta að beita sér gegn öllum verslun- areigendum, sem setja upp jóla- skreytingar áður en desember geng- ur í garð, og hafa sent sumum bréf þar sem segir, að þeir verði ekká látn- ir komast upp með „að eyðileggja haustið". Fram að þessu hefur verið ráðist á níu verslanir og eigendur meira en 100 verslana hafa verið varaðir við. „Þetta er fáránlegt,“ sagði verslun- arstjórinn Jean Demoors. „Ég hef aldrei heyrt um annað eins.“ Gerardo Marasco, starfsbróðir hans í annarri verslun, sagði, að hópurinn hefði hót- að að rífa niður jólaskreytingamar hve oft sem þær yrðu settar upp. Lögreglan í Montreal hefur aukið gæslu í hverfinu þar sem mest hefur kveðið að skemmdarverkunum. Seg- ist hún líta þau mjög alvarlegum aug- um enda aldrei að vita hvenær fólki af þessu tagi þyki ekki nóg að gert með málningunni einni. Palestínumeim minnast sjálfstæðisyfirlýsingar Israelar gera þyrlu- árásir á búðir Fatah Reuters Hundruð ísraela vottuðu Leuh Rabin virðingu sína í gær, en fyrir út- förina var haldin minningarathöfn á Rabin-torgi í Jerúsalem, þar sem eiginmaður hennar, Yitzhak Rabin, var skotinn til bana árið 1995. Gaza-borg, Jerúsalcni, Nablus. AFP, AP. ÍSRAELAR gerðu seint í gærkvöld eldflaugaárásir úr þyrlum á fjórar búðir Fatah-hreyfingar Palestínu- manna á Vesturbakkanum. Ráðist var á höfuðstöðvar hreyfmgarinnar í Hebron, Salfit og Tulkarm, og á vopnabúr í borginni Jeríkó. í gær- kvöld var ekki vitað til þess að neinn hefði fallið í árásunum en talið var að þær hefðu verið gerðar í hefndar- skyni fyrir morð á fjómm ísraelskum hermönnum á mánudag. Að minnsta kosti átta Palestínu- menn biðu bana í átökum við ísr- aelska hermenn á sjálfstjómarsvæð- unum í gær, þegar 12 ár voru liðin síðan Yasser Arafat lýsti á táknræn- an hátt yfir sjálfstæði Palestínu. Er þetta mesta mannfall sem orðið hefur á einum degi í tæpan mánuð. Israelar héldu palestínskum bæjum og þoi-p- um enn í herkví í gær en það kom ekki í veg fyrir að Palestínumenn minntust sjálfstæðisyfirlýsingarinnar sem Ara- fat gaf út þegar hann var í útlegð í Alsír árið 1988. Nokkur hundruð manns tóku þátt i mótmælagöngu í Gaza-borg og kröfðust þess að palest- ínska heimastjómin, undir forystu Arafats, lýsti tafarlaust yfir stofnun sjálfstæðs ríkis. Leah Rabin borin til grafar Leah Rabin, ekkja Yitzhaks Rabin, fyrrverandi forsætisráðherra ísraels, var borin til grafar í gær en hún lést af völdum krabbameins á sunnudag. Meðal gesta við útförina vom Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, Johannes Rau, forseti Þýskalands, og Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rúss- lands. Leah tók virkan þátt í friðar- umleitunum milli ísraela og Palest- ínumanna eftir að eiginmaður hennar var myrtur árið 1995. Þungar horfur á loftslagsráð- stefnu SÞ í Haag Haag. Morgunblaðið. EFTIR nokkra bjartsýni undanfama daga um að farið væri að draga saman með Bandaríkjunum og Evrópusam- bandinu horfði í gærkvöldi þunglega með viðræðumar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Haag. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins gengu viðræðumar stirt og enn ber mikið á milli. Bjartsýnin frá í fyrradag hafði dvínað en þá virtist sem ESB tæki vel í bandarískar hug- myndir um möguleika á að þróunar- löndum yrði borgað fyrir nýrækt skóga en skógar þurrka upp kol- tvísýring. Mörg náttúruverndarsam- tök segja þetta aðeins millifærslu sem ekki dragi í raun úr loftmengun. Sam- tök bandarískra náttúmvemdar- hreyfinga segja að tillögur Banda- ííkjamanna muni í raun auka áhrif efna er valda gróðurhúsaáhrifum um 18%. Þessa vikuna funda embættismenn og sérfræðingar 180 landa í Haag til undirbúnings ráðherrafundar í næstu viku. Vonir hafa staðið til að á þeim fundi verði hægt að ganga frá Kyoto- bókuninni frá 1997 svo að einstök lönd geti síðan staðfest hana með lagaleg- um gjömingum, sem á Islandi þýddi að Alþingi staðfesti hana. Auk ráð- herranna er von á fjölda umhverfís- vemdarsinna til Haag. Þegar em áætlaðar aðgerðir til að vekja athygli á málstað þeirra og lögreglan hér hef- ur mikinn viðbúnað. Fulltrúar ýmissa stórfyrirtælga, til dæmis olíufyrir- tækja, em einnig mættir til borgar- innar, en meðal þeirra ríkir uggur um að niðurstöður ráðstefnunnar leggi fyiirtækjum á herðar kostnaðarsam- ar en gagnlitlar kvaðir. Skipuleggjendur ráðstefnunnar hafa einnig reynt að taka tillit til um- hverfisins. Plastmatarílátum í ráð- stefnuhöllinni er safnað í sérstaka kassa og þau þvegin og endumotuð. Matarleifum verður safnað saman og þær notaðar í áburð. ■ Líkur á/29 MORGUNBLAÐIÐ 16. NÓVEMBER 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.