Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 39
Nýjar bækur
• UT er komin bamabókin Brúin
yfír Dimmu eftir Aðalstein Ásberg
Sigurðsson.
I fréttatilkynn-
ingu segir: „í
Mángalíu búa
vöðlungamir í
sátt og samlyndi
og á Stöpli undir
Brúarsporði, þar
sem þessi saga
gerist, hefur allt
ævinlega verið
með kyrrum kjör-
um. En Kraka og
Míríu þyrstir í ævintýri og dularfulli
lykillinn sem þau veiða upp úr gmgg-
ugum hylnum undir Dunufossi setur
svo sannarlega viðburðarika atburða-
rás af stað. Spennandi ævintýrasaga
úr smiðju Aðalsteins Ásbergs Sig-
urðssonar sem þekktur er fyrir vand-
aðar og skemmtilegar bamabækur.
Halldór Baldursson skreytir bókina
líflegum teikningum."
Utgefandi erMál ogmenning.
Bókin erl61 bls., prentuð íPrent-
smiðjunni Steinholti. Mál ogmenning
gefw út. Leiðbeinandi verð er 1.990
krónur.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Framhaldsskólanemar taka þátt í starfsemi Borgarleikhtíssins.
Borgarleikhúsið opið
framhaldsskólanemum
Lesið úr
ljóðabókum
SIGURBJÖRG Þrastar-
dóttir les úr nýútkominni
ljóðabók sinni, Hnatt-
flugi, í verslun Pennans
Eymundssonar í Austur-
stræti kl. 12.30 í dag,
fimmtudag.
Bókin hlaut viðurkenn-
ingu dómnefndar í sam-
keppni um Bókmennta-
verðlaun Tómasar Guð-
mundssonar.
Síðar í dag, klukkan 18,
verður ljóða-og lista-
verkabókin Tímaland/
Zeitland kynnt á bók-
menntakjmningu í Penn-
anum-Eymundsson,
Austurstræti.
í bókinni eru 30 ljóð á
íslensku og þýsku eftir
Baldur Óskarsson skáld.
Ljóðin þýddu kunn þýsk
ljóðskáld Barbara Köhler,
Sigurbjörg
Þrastardóttir
Baldur
Óskarsson
Uwe Kolbe, Gregor
Laschen, Wolfgang
Schiffer og Johann P.
Tammen. Bókina prýða
vatnslitamyndir þýska
málarans Bernd Koberl-
ing, sem dvalið hefur
langdvölum hérlendis.
Baldur Óskarsson mun
lesa upp úr bókinni fyrir
gesti bókmenntakynn-
ingarinnar. Ennfremur
verður til sýnis bókin
Wortlaut Island, sýnis-
bók íslenskra samtíma-
bókmennta á þýsku er út
kom í sumar.
Ljóðaunnendum er
einnig bent á að 30% af-
sláttur verður veittur af
öllum ljóðabókum í
Pennanum Eymundsson
vikuna 16. til 22. nóvem-
ber
• ÚT er komin bókin Einar Bene-
diktsson - Ævisaga III eftir Guðjón
Friðriksson sagnfræðing. Þetta er
þriðja og síðasta
bindi þessa mikla
verks.
I kynningu frá
forlaginu segir:
„Enginn ís-
lenskur athafna-
maður átti sér
stærri drauma í
upphafi aldar en
Einar Benedikts-
son, ekkert skáld
hugsaði hærra, enginn persónuleiki
var stórbrotnari og margslungnari.
Slíkir menn hverfa ekki þegjandi og
hljóðalaust af sjónarsviðinu og
kannski var Einar aldrei stærri í
sniðum en eftir að halla tók undan
fæti í lífi hans - skuldum vafinn
heimsborgari sem lauk að lokum æv-
inni á afskekktum sveitabæ.
Guðjón Friðriksson sagnfræðing-
ur lýkur hér hinni miklu ævisögu
þjóðskáldsins, hugsjónamannsins og
snillingsins dáða og umdeilda, Ein-
ars Benediktssonar, sem um leið er
saga íslensks þjóðfélags á um-
brotatímum í árdaga nýrrar aldar.
Með umfangsmikilli heimildarvinnu
og heilsteyptri úrvinnslu dregur
hann hér upp áhrifamikla mynd af
ógleymanlegum einstaklingi sem
átti sér stærri og viðburðaríkari
sögu en nokkur samtíðarmaður
hans.“
Fjöldi gamalla ljósmynda er í bók-
inni af Einari Benediktssyni og fjöl-
skyldu hans og af ýmsum samstarfs-
og samferðamönnum hans.
Utgefandi erlðunn. Bókin er448
bls. Leiðbeinandi verð: 4.980 krónur.
• ÚT er komin barnabókin Mói
hrekkjusvín eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur.
I fréttatilkynn-
ingu segir:
„Marteinn Jör-
undur Marteins-
son yngsti, öðru
nafni Mói, er
stórhættulegur
kúreki, raf-
magnssnillingur
Kristín Hclga og forsetavinur
Gunnarsdóttir nieð meÍTU. Hon-
um dettur margt í hug og fram-
kvæmir flest af því ásamt vini sínum
OiTa prestsins og Byssu-Jóa, löngu
dauðum kúreka úr villta vestrinu.
Gallinn er sá að sumar hugmyndirn-
ar eru alveg glataðar og þess vegna
kalla sumir hann hrekkjusvín. Þessi
bráðskemmtilega saga minnir um
margt á metsölubækur Kristínar
Helgu um Binnu, enda engin furða
- Binna er nágranni Móa við Silfur-
götu og kemur lítillega við sögu í
prakkarastrikum hans. Margrét E.
Laxness skreytir bókina bráð-
skemmtilegum myndum.“
Utgefandi er Mál og menning.
Bókin er 197 blaðsíður, prentuð í
Prentsmiðjunni Odda. Leiðbeinandi
verð er 1.990 krónur.
Guðjón
Friðriksson
RÚMLEGA 100 framhaldsskóla-
nemendur mættu í Borgarleikhúsið
klukkan tíu fímmtudagsmorguninn
9. ndvember til að kynna sér verk-
efnið Opið Borgarleikhús.
Að sögn Jóhönnu Vigdísar Guð-
mundsdóttur kynningarstjóra Leik-
félags Reykjavíkur kviknaði sú hug-
mynd í síðustu viku, þegar ljóst var
að kennaraverkfall væri yfir-
vofandi, að opna Borgarleikhúsið
fyrir framhaldsskólanemendum, ef
af verkfalli yrði. „Hugmyndin var
kynnt lauslega fyrir framhalds-
skólanemum í Reykjavík - að höfðu
samráði við skölastjórnendur - og
orðið látið ganga, en undirbúningur
fór ekki í fullan gang fyrr en á
þriðjudag, þegar verkfallið var
skollið á. Um hundrað manns
skráðu sig, hjá leikfélögum skól-
anna og á borgarleikhus@borgar-
leikhus.is, og iiímlega hundrað
manns mættu í anddyri Borgar-
leikhússins í morgun.
Jóhanna Vigdís segir að hug-
myndin sé sú að kynna krökkunum
leikhús og vinnu í leikhúsi. „Nám-
skeið og fyrirlestrar eru skipulagðir
dag frá degi, fyrstu tveir dagarnir
fara í almenna kynningu á starfi í
leikhúsi og í næstu viku verður boð-
ið upp á leiklistarnámskeið, skoðun-
arferðir um húsið, starf að ákveðn-
um verkefnum og með ólíkum
deildum hússins eins og tækifæri
gefast til. Á miðvikudaginn ætlar
Nemendaleikhús leiklistardeildar
Listaháskólans að taka á móti hópn-
um og kynna sitt starf og skólann.
Tilraunaverkefnið mun standa í
viku, ef verkfall varir svo lengi, og
að lokinni fyrstu vikunni verður tek-
in sameiginleg ákvörðun um áfram-
hald. Ef áhugi verður á áframhald-
andi starfi vonumst við til þess að
krakkarnir taki sjálfir stjórnina,
skipuleggi sín eigin verkefni, en fái
Myndin af
heiminum á
Súfistanum
DAGSKRÁ í tilefni af útkomu bókar
Péturs Gunnarssonar, Myndin af
heiminum, verður á Súfistanum,
bókakaffi í versí-
un Máls og menn-
ingar í kvöld,
fimmtudags-
kvöld, kl. 20.
Jón Karl
Helgason ræðir
um skáldið og
verk hans og Pét-
ur les úr bókinni.
Einnig verður
lesið úr eldri
verkum hans og Kristján Eldjárn
gítarleikari og Brynhildur Björns-
dóttir söngkona flytja nokkur þekkt
lög við texta eftir Pétur.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Pótur
Gunnarsson
aðstoð og innlegg frá starfsmönnum
Borgarleikhússins. Borgarleikhúsið
vill með þessu verkefni bregðast við
þeirri stöðu sem myndast í kennara-
verkfalli og veita fólki tækifæri til
þess að fylla það tómarúm sem
myndast með skapandi vinnu. Við-
brögð þeirra hundrað þátttakenda
sem mættu í Borgarleikhúsið í
morgun lofa góðu um framhaklið."
Verkefnið Opið Borgarleikhús er
í gangi alla virka morgna frá kl. 10
til 13, í anddyri Borgarleikhússins.
Aðgangur er ókeypis, en fólk verð-
ur að skrá sig til þátttöku.
(S'ulísÁart(jripir
DEMANlAHUSIÐ
| Kringian 4-12, sími 588 9944
NMtoíi^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
FATASKAPAR
á fínu veröi
AILTAÐ 30% AFSLÁTTUR
1 Í/Friform
| HÁTÚNI 6A (í húsn. Fðnix) SlMI: 552 4420
Námskeið í leturfræði
(týpógrafíu)
20. - 23. nóvember kl. 8:30 -12:00.
Leiðbeinandi: Torfi Jónsson.
Meðal efnis sem farið er í:
• Saga leturfræði og prentunar.
• Samhverfa og ósamhverfa.
• Myndskurður og texti.
• Tæknilega hliðin við skurð mynda
og staðsetningar.
• Ljóssjónar miðpunktur (Optíski
miðpunkturinn).
• Hlutföll gullinsniðs.
• Spássíur.
• Sáturflötur.
• Leturval og leturþekking.
• Greinarmerki, tölur og týpógrafía.
• Umbrot sem einn þáttur
ritstýringar.
• Letur og læsileiki.
• Línulengd, línubil, leturstærð
og orðabil.
• Sérkenni leturgerðarinnar.
• Til hverra á prentgripurinn
að höfða?
• Hvernig vekja má forvitni
og áhuga lesandans?
Torfi Jónsson, týpógrafer og myndlistamaður, lauk námi við
Listaháskóiann í Hamborg árið 1962. Hann hefur kennt við skóla
og stofnanir víða um heim, þ.á.m. við Myndlista- og handíðaskólann
og var einnig skóiastjóri hans, Iðnskólann í Reykjavík,
Prenttæknistofnun og Listaháskóiann i Saar undanfarin 10 ár.
Margmiðlunarskóliitn
Faxafeni 10 ■ Sími 588 0420 ■ www.mms.is
m
Prenttæknistofnun
RAFIÐNAÐARSKÓLINN