Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 49 mjög að ekki varð lengra ratað. Ástvinir hans lúta nú höfði í þvílík- um sársauka að hjartað rúmar hann ekki. Tærar eins og bamsaugu, bláar eins og himindjúp starið þið á ferðalang án furðu og spumar. Hvílist hann á mosa, en mildir hljómar veita honum aftur vorljósa ró - lágvær kliður, án kæti, án hryggðar, handan fóðurlegra kletta, þar sem flæðir úr sprungu. Tærar eins og bamsaugu, bláar eins og himindjúp svæfið þið ferðalang meðan fjallvegir bíða. (Olafur Jóhann Sigurðsson.) Veri hann svo kært kvaddur, stóri strákurinn okkar hrausti og sterki, með heitar hendur og heitt hjarta. Gangi hann á Guðs vegum. Og þegar tíminn hefur spunnið sinn glitrandi vef yfir götu mann- anna, þá máist og mildast hið sára, hið dapra, en eftir verða góðu tím- arnir, björtu minningarnar, fegurð- in, birtan og gleðin. Halla og Viðar, Asum. Helgi vinur minn er látinn. Þegar pabbi kom til mín sunnudaginn fyr- ir viku síðan og sagði mér að hann væri dáinn var mér mjög brugðið. Eg sat dofinn og hugurinn leitaði aftur til ársins ’89 er við kynnt- umst.Við urðum strax miklir vinir og það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Helgi var góður félagi og aldrei heyrði ég hann hallmæla neinum eða tala illa um fólk. Hann var vinur vina sinna en einnig mik- ill einfari. Hans aðal áhugamál var að keyra um landið. Við ferðuðumst mikið saman, fórum bæði á fjöll og út á sjó eða upp í hreppa eins og Helgi var vanur að kalla það að fara austur í Gnúpverjahrepp þar sem hann hafði verið í sveit þegar hann var strákur. Það var mjög gaman að ferðast með Helga hvort sem það var í fjallaferðum eða út á sjó eða bara hvai’ sem var um land- ið því hann var vel kunnugur öllum kennileitum og virtist þekkja nöfnin á flestum hólum og hæðum. Hann var einnig mikill veiðimaður og eyddi hann flestum sínum frístund- um uppi á fjöllum við veiðar. Síðasta ferð okkar saman var fyrir nokkrum árum, fórum við þá norður í Aðalvík á Ströndum og vorum þar í þrjá sólarhringa að standsetja sumarhús fjölskyldu minnar. Það var frábær tími, við veiddum silunga í vatninu, gengum um allt svæðið, nutum stórkostlegr- ar náttúru og félagsskapar hvors annars. Á svona stað naut Helgi síns best, úti í náttúrunni. Já, þetta voru frábærir dagar sem ég mun geyma í minningunni. Ekki er hægt að minnast á Helga án þess að nefna hve laginn hann var í höndunum, það var alveg sama hvað hann tók sér fyrir hend- ur, hvort heldur sem var að taka í sundur utanborðsmótora, mála eða hvað sem var, allt lék þetta í hönd- unum á honum. Hann bar titilinn þúsundþjalasmiður með rentu. Hans verður sárt saknað og tóm- legt verður að koma inn í Tengi, engar veiðisögur og ekkert spjall, en ég trúi því að núna sé hann kominn á betri stað og hann mun kanna nýjar slóðir sem hann mun fræða mig á er við hittumst á ný. Elsku Ester mín, Oddný Hanna, Elva Ösp, Ella, Alli og Siggi. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfíðu tímum. Við eigum öll minningar um góðan dreng sem gott er að hugga sig við. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, Leiðir mig að vðtnum, þar sem má næðis njóta. Hann hressir sál mína, Leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, Ottast ég ekkert illt, því þú ert hjá mér, Sproti þinn og stafur huggar mig. Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum; Þú smyrð höfuð mitt með olíu, Bikar minn er barmafullur, Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína. Og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (Davíðssálmur 23.) Ásgeir Sigurjónsson. Einn fagran sumardag fyrir rúm- lega átta árum komu þeir Ásgeir sonur okkar og Helgi vestur í Aðal- vík að Sæbóli, þar sem við Anna dvöldum með dætrum okkar og tengdasyni. Við þekktum Helga ekki mikið á þeim tíma, vissum að- eins að þeir voru félagar hann og Ásgeir og að Helgi bjó í Kópavogi og starfaði við málningarvinnu hjá Ása málara. Okkur féll strax vel við Helga, enda naut hann sín sannarlega við þær aðstæður sem Aðalvíkin býður upp á, þ.e. sjóinn, vatnið, fjöllin og hina óspilltu náttúru. Það kom fljótt í ljós að allt lék í höndum Helga og var hann mjög liðtækur við hvers kyns leiki og störf og sér- lega laginn við veiðarfæri og þess háttar og naut hann sín vel, enda sannkallað náttúrubarn, en aðal- áhugamál hans voru alla tíð útivera og veiðimennska. Það hefur trúlega verið vegna þess að við gerðum okkur grein fyrir hve mörgum góð- um kostum Helgi var búinn að þannig fór að við réðum hann til starfa hjá okkur í Tengi ehf. í sept- ember 1992 og starfaði hann með okkur þar til yfir lauk. Margs er að minnast úr fámennu fyrirtæki þar sem menn tengdust sterkum bönd- um. Helgi var traustur starfsmaður og góður vinur. Hann gekk í flest þau störf sem til féllu og hafði starfað sem bílstjóri, lagermaður, viðgerðarmaður og sölumaður. Öll þessi störf leysti hann jafn vel af hendi. Hann var sérlega vinsæll og var mér kunnugt um að hvar sem hann kom á bflnum var honum vel fagnað og alstaðar virtist hann eiga vini og félaga. Þegar Helgi gerði hlé á útkeyrslunni og fór að vinna innan dyra, tók ég oft eftir að margir viðskiptavinir fóru rakleiðis til hans þegar þeir komu í fyrirtæk- ið og vildu gi’einilega spjalla við hann áður en þeir snéru sér að er- indinu, enda var hann hress og skemmtilegur og átti auðvelt með samskipti við alla menn. Eins og áður sagði vann Helgi öll sín störf af alúð og samviskusemi, en þó held ég hann hafi notið sín einna best í viðgerðum á ýmsum tækjum. Hann var sannkallaður þúsundþjalasmið- ur og fór létt með að lagfæra ýmis- konar tæki og tól. Hann var sér- fræðingur í að gera við blöndunartæki hvaða gerðar sem þau voru og breytti engu hvort þau voru hitastýrð eða rafeindastýrð. Hann var sérlega fljótur að átta sig á nýjungum og kynna sér til hlítar allar þær vörur sem við seljum og þjónum. Við áttum því láni að fagna að hafa farið í kynnisferðir ásamt Helga með góðum hópi viðskipta- vina til framleiðanda bæði í Svíþjóð og Danmörku. Kom þá vel í ljós hversu mikinn áhuga Helgi hafði á tæknihliðinni og lagði hann sig sér- staklega fram við að að læra sem mest. Eitt af því sem einkenndi Helga hvað mest, var hve hraustur hann var. Hann var bæði sterkur og kattliðugur, gekk um léttklæddur þótt kalt væri í veðri og varð sjald- an misdægurt. Hann var mikill fjallamaður og það leið sjaldan sú helgi að ekki væri farið til fjalla eða út á sjó enda stundaði hann næstum allar þær veiðar sem hér tíðkast bæði af sjó og landi. Hann var djarfur og hug- aður og það hefði kannske átt betur við hann að vera skipstjóri, vita- vörður eða jafnvel bóndi, því hann naut þess að takast á við höfuð- skepnurnai'. Helgi átti góða foreldra og fjöl- skyldu sem honum var annt um. Mér er sagt að hann hafi erft hand- lagnina og þörfina fyrir útveru frá pabba sínum og eflaust voru margir hans góðu kostir komnir frá móður hans. Helgi hefur verið í góðri sambúð með Ester Bjarnadóttur frá því áð- ur en við fyrst kynntumst og eiga þau saman dótturina Elvu Ösp sem er aðeins sextán mánuða en einnig átti Helgi dótturina Oddný Hönnu, ellefu ára, sem var pabba sínum mjög kær. Okkur er minnistætt vinnufélögunum þegar Helgi var að sækja Oddnýju þegai' hún var yngri, þá kallaði hann hana alltaf „þá stuttu“. Nú hefur þessi ágæti vinur hvatt þessa jarðvist. Ef til vill er hann horfinn til hinna eilífu veiðilendna, en við trúum því að Helgi sé genginn á vit ljóssins og að hann. gangi nú í ljósinu. Við Anna kveðjum góðan dreng með söknuði og vottum Ester og börnunum, foreldi’um, bróður og tengdaforeldrum ásamt allri fjöl- skyldu hans okkar dýpstu samúð og biðjum algóðan guð að styrkja þau í sorginni. Sigurjón G. Sigurjónsson. Það voru þungbærar fréttirnar sem mér voru sagðar á sunnudags- morguninn 5. nóvember að Helgi, kær vinur minn og samstarfsfélagi til margra ára væri látinn. Þetta er svo óraunverulegt, ótrú- legt, manni líður eins og einhver hafi tekið hjartað og kramið það, maður líður áfram í einhverjum doða, eins og þetta sé bara martröð sem maður muni vakna upp af. En þetta er kaldur raunveruleik- inn. Við kvöddumst eins og vanalega í lok vinnudags á föstudeginum, Helgi ætlaði á skytterí eins og hann var vanur, en í þetta skiptið sneri hann ekki til baka. Vegir Guðs eru órannsakanlegir og hann hefur greinilega ætlað Helga eitthvert aðkallandi hlutverk. Eftir standa aðstandendur og vinir með ótal spurningar sem aldrei fást svör við. Landið hefur misst einn af sínum mætu sonum, því Helgi var engum líkur, sannkallað náttúrubarn, og það eru ekki margir sem þekktu landið okkar eins vel og hann gerði, enda var hann búinn að fara víða. Hálendið átti hug hans og hann þekkti hverja einustu sprænu og hól með nafni, hann átti heilt safn af landakortum í bílnum sem hann geymdi í möppu. Helgi æfði aldrei líkamsrækt svo ég viti til, hann hafði þetta allt frá náttúrunnar hendi, kraftalegur, fimur og sérlega hraustur, veik- indadagar hans frá vinnu eru telj- andi á fingrum annarrar handar. Þegar kalt var úti og flestir í peysum var Helgi eins og vanalega á stuttermabol, honum var aldrei kalt. Hann hefði sómt sér vel með goðsögnum á tímum víkinga og hefði farið létt með að stökkva hæð sína í loft upp í öllum herklæðum. Helgi hafði þá náðargáfu að geta gert við nánast allt sem hann tók sér fyrir hendur, ef eitthvað var í ólagi var Helgi fenginn til að kíkja á málið og hann kom því í lag. Hann kynnti sér vel hvernig hlut- irnir voru búnir til, tók þá í sundur og setti saman aftur. Helgi var léttur og skemmtilegur og alltaf í góðu skapi og oft mátti heyra hann flauta lagstúfa sem heyrðust um allt fyrirtækið. Hann átti líka marga vini og það var gaman að sjá að þeir voru líka á meðal viðskiptavina okkar sem oft komu íyrst til hans og spjölluðu um veiðina og fleira áður en þeir keyptu það sem þá vantaði. Elsku Ester, Elva Ösp, Oddný Hanna, foreldrar Helga og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Missir ykkar og sorg er mikil, en eftir stendur minningin um góðan dreng og sú minning mun lifa að ei- lifu. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfu ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Þórir Sigurgeirsson. Það var bjartur sunnudagsmorg- unn þegar okkur starfsfélögunum var tilkynnt um fráfall Helga. Helgi hafði kvatt okkur á föstu- dag glaður í bragði eins og honum var einum lagið, því eyða átti helg- inni við veiðiskap á fjöllum. Það var líf og yndi Helga að ferð- ast um fjöll og firnindi. Hann var mikill veiðimaður að eðlisfari og hafði allt í sér sem góðum veiði- manni sæmir. Það voru ófáar stundirnar sem fóru í að skoða kort og lýsa leiðum sem voru farnar eða átti að fara í. Þegar Helgi var spurður út í staðhætti þá kom mað- ur ekki að tómum kofanum, því það voru ófáii’ staðirnir sem hann hafði ekki komið á eða kynnt sér. Helgi var traustur og góður starfsfélagi og það er hægt að telja það á fingrum annarrar handar hversu oft hann var veikur eða komst ekki til vinnu á þessu átta árum sem hann starfaði með okkur. Þegar einhver vandamál komu upp varðandi sturtuklefa eða eitt- hvað annað var alltaf kallað á Helga, því ef hann gat ekki lagað hlutina, þá var það ekki hægt, það var allavega okkar skoðun á hand- lagni hans. Það er erfitt að sætta sig við að hann svona ungur og með allt lífið framundan skuli vera fall- inn frá. Hans verður sárt saknað hérna hjá okkur í Tengi. Elsku Ester og fjölskylda, megi góður Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Starfsfélagar. Með þessum brotum úr ljóði Tómasar Guðmundssonar viljum við kveðja þig Helgi. Guð geymi þig og varðveiti. Og þvi varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum \dna þinna. (Tómas Guðm.) Elsku Ester, Oddný, Elva, Alli, Ella og Siggi. Guð gefi ykkur styrk á erfiðum tímum. Davíð, Svava og drengir. í örfáum línum langar okkur að minnast fallins félaga. Helgi vinur okkar skilur eftir sig skarð í okkar; samheldna hópi þar sem prúð- mennska haris og glatt sinni er það sem okkur er efst í huga. Helgi var glaðbeittur félagi sem ávallt var reiðubúinn til hverra þeirra starfa sem til falla í hóp sem okkar. Hann var til fyrirmyndar sem íþróttamaður, ávallt tilbúinn þegar reyna skyldi með sér og ævinlega stutt í hlátur eða í það minnsta glannalegt glott þegar við átti. Grallaraleg orðatiltæki hrukku stundum af vörum þegar ekki gekk allt sem skyldi: „det er nu det“ ... eða jafnvel án samhengis: „betra er ein gæs í hendi en hundrað í túni“ og svo kom smitandi hlátur og. sprellandi augnaráð. Það var gott' að fíflast með Helga og það er jú eitt af því sem allir þurfa að gera pínulítið - eða hvað? í því unglingastarfi sem stundað er hjá Skotíþróttafélagi Hafnar- fjarðar var Helgi góð fyiirmynd og vinur, ávallt reiðubúinn við tilsögn og vangaveltur og átti hann sér þar einlæga aðdáendur og er sárt sakn- að í þeim hópi. Við kveðjum félaga okkar með trega og söknuði. Góð minning er það sem góðir drengir skilja eftirf sig og er það ósk okkar að sú minn- ing megi styrkja Ester og litlu stúlkurnar hans í ókominni framtíð. Foreldrum Helga og fjölskyldu allri vottum við okkar innilegustu sam- úð. Hvíldu í friði, góði vinur. Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrai- greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnai’nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við bii’tingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtai’ afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingui’ fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali ei-u nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úivinnslu. jjiiljgr Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 5S1 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins me^ Þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.