Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 53

Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 53, + Arnbjörg Ey- steinsdóttir fædd- ist í Litla-Langadal á Skógarströnd, Snæ- fellsnesi, 31. ágtíst 1918. Hún lést á hjtíkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 5. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna Oddsdóttir, f. 27.11. 1876, d. 4.9. 1960 og Eysteinn Finnsson, f. 1.5. 1880, d. 29.4. 1956. Arnbjörg er ell- efta tír hópi þrettán systkina. Htín flutti ásamt foreldr- um sínum ogtveimur yngri bræðr- um að Breiðabólsstað á Skógar- strönd 1941. Arnbjörg giftist Sigurði M. Pét- urssyni, f. 20.10. 1920, d. 3.10. 1960, sóknarpresti á Breiðabóls- stað 26. nóvember 1953. Foreldrar Ennþá man ég æsku mína, engu blómi skal ég týna, ennþá finn ég ástarmjúka armastijúka enni mitt, sem bb'ðvindi af bládýpi rynni; hans voru Pétur Theódór Jónsson og Kristín Jónsdóttir, Tungukoti á Vatns- nesi, V.-Húnavatns- sýslu. Arnbjörg og Sig- urður eignuðust tvær dætur, Krist- ínu, f. 1.6. 1955, d. 2.6. 1955, og Jó- hönnu Sigríði, f. 12.1.1959. Eftir andlát eigin- manns síns flutti Arnbjörg með dóttur súia til Reykjavíkur og bjó þar síðan til æviloka. Eiginmaður Jóhönnu Sigríðar er Baldvin Þór Grétarsson og eiga þau saman tvær dætur, Jtílíu, f. 8.7. 1985 og Ambjörgu, f. 2.7. 1990. Útför Arnbjargar fór fram frá Fossvogskirkju 14. nóvember. öll þau hjartans hlýindi heféggeymdíminni. (Hulda.) Við systurnar vorum ekki nema tæplega eins og tveggja ára gamlar þegar Adda frænka passaði okkur fyrst. Heimili hennar var hlýtt og notalegt og leið okkur alltaf vel hjá henni. Það var alltaf mikil tilhlökkun að fara í heimsókn til Öddu því hún tók ætíð svo vel á móti okkur. Adda átti mikið af leikföngum sem skemmti- legt var að leika sér að. Einnig átti hún alltaf eitthvað gott í gogginn handa litlum börnum og ósjaldan bar hún fram pönnukökur með sykri og loftkökur með kaffinu handa gestum sínum. Við systur þökkum fyrir sam- fylgdina, tryggðina og alla um- hyggju hennar í okkar garð. Hönnu Siggu, Baldvini, Júlíu og Öddu vottum við okkar dýpstu sam- úð. Hugrún og Gerða. I minningu um yndislega konu. Við þökkum þér fyrir allt það sem þú gerðir fyrir okkur, elsku Adda. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Mnn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj.Sig.) Elsku Hanna Sigga, Baldvin, Júlía og Adda, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Heiðrtín Ýrr og fris Björk. ARNBJORG EYSTEINSDÓTTIR A \ - '■ í X VALUR FANNAR MARTEINSSON + Valur Fannar Marteinsson gullsmiður fæddist í Reykjavfk 24. júní 1927. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans í Fossvogi 1. október síðastlið- inn og fór títför hans fram frá Kópavogs- kirkju 6. október. Kæri vinur minn. Ég kýs að hefja þessar fátæklegu lín- ur á að kveðja þig, Valur Fannar, og um leið þakka þér fyi’ir svo ótal margt. Margar góðar stundir, við tveir og stundum fleíri saman. Strax á mínum unglingsárum vissi ég hver þú varst en ekki renndi mig í grunn að þú ættir eft- ir að verða tengdafaðir minn en sú varð nú raunin. Eitt af því fyrsta er í hugann kemur er þegar Hanna Mjöll bað mig að gera við framhlið- ina í litlu kerrunni þinni, sjálfsagt mál sagði ég. Þegar kerran kom var byrjað að mæla efni og bæta í og hnoða, þá var spurt, ert þú að mæla á milli hnoðanna svona nákvæmlega? Já, ég verð, maðurinn sem á þessa kerru er gullsmiður og vinnur með millimetra og hann séi’ strax ef bilið á milli hnoða er ójafnt. Sú viðgerð heldur enn. Stoltur bað ég þig að smíða giftingar- hringa okkar hjóna og er enn haft í gaman- málum að þeir voru tilbúnir heilum mán- uði á undan áætlun. Gaman þótti mér að fá tækifæri til að fara með þér og konu þinni í veiðitúr skömmu eftir að okkar kynni urðu persónuleg, þó að ekk- ert veiddist var gleðin yfir fegurð náttúrunnar mikil. Ekki gleymast jólaskákmótin okkar. Já, sá vinnur er fyrr tekur þrjár skákir, síðan var því breytt í fimm skákir, síðan breyttist það í að sá vinnur er fleiri hefur á þrettándanum, þegar þér fannst ég vera farin að síga of langt fram úr þá var komið með kristal og koníak og alltaf jöfnuð- ust leikar um það bil sem komið var niður í miðjan miða. Það snjóaði stundum mikið í Kópavoginum og þá var tekin skófla í hönd og rutt af tröppunum í næsta húsi við mig, þótti þér þá sjálfsagt að ekki vantaði frostlög á snjódrekann þann er verkið vann, slíkt var örlæti þitt. Oft sátum við saman og fylgdumst með okkar mönnum í Formúlunni, þú með silf- urbílunum og ég með þeim rauðu, en þó þinn væri ekki alltaf fyrstur fannst þér hann alltaf betri en minn, sama hvað gekk á og rök- studdir þú það með miklum ágæt- um. í sjóði minninganna er miklu meira; veiðiferðir, bústaðaferðir, fastir í snjóferðum og kaffispjall. Upp úr þessu stendur þó traustið sem dóttir okkar hafði á þér þegar Stúfur litli jólasveinn birtist heima í Hlégerðinu á miðju sumri sofandi uppi í skáp, barnið skildi þetta ekki og erfitt reyndist okkur að útskýra þetta, þá var leitað til afa og skyldi athugað hvort þú kynnir ekki ein- hverja þulu um svona mál því þú hafðir alltaf einhver ráð við öllu sem upp á kom. Nú hefur guð þig hjá sér og er ég fullviss um að þú ert að laga alla gylltu geislabaugana á englunum. Far þú í friði, minningin um þig lifír hjá okkur sem eftir erum. Sæll að sinn. Brynjólfur Wíum Karlsson. + Pétur Guðni Ein- arsson bifreiða- stjóri fæddist í Bol- ungarvík 20. ágúst 1937. Hann lést í Bol- ungarvík 29. október síðastliðinn og fór títfór hans fram frá Hólskirkju í Bolung- arvík 7. nóvember. Mig langar með ör- fáum orðum að minn- ast föðurbróður míns, Péturs Guðna, sem féll frá á sviplegan hátt hinn 29. október. Þegar ég var að alast upp var ég hálfgerður heimalningur hjá þeim Helgu og Pétri á Holtastígnum. Þangað fór ég til að mynda ávallt í pössun ef foreldrar mínir þurftu að bregða sér úr bænum, einnig var ég þar oft að leik við Harald. Þar var ég alltaf auðfús gestur og var mér tekið sem einum úr systkina- hópnum. Pétur var einstaklega barngóður og það var þægilegt að vera í návist hans. Ég man hvað ég hafði gaman af því að flækj- ast með Pétri á vöru- bílnum því þá fannst mér eins og ég væri merkilegasti strákur- inn í bænum og gat horft niður á aðra vegfarendur úr hásæti Scania-bifreiðarinnar. Einnig óx mér það mikið í augum að koma til Péturs í skemmuna en á þeim tíma voru þau hjónin með umboð fyrir Vífil- fell. Aðrar eins kókbirgðir hafði ég aldrei séð og fannst mér afar merkilegt að þau skyldu eiga allt þetta kók. Þegar ég varð eldri kynntist ég annarri skemmtilegri hlið á Pétri en það var þegar hann var í hlut- verki sögumanns. Á góðri stundu var Pétur iðulega hrókur alls fagn- aðar, reytti af sér brandarana og hló sjálfur manna mest. Frásagn- argáfa hans var með eindæmum góð og nærstaddir voru fljótir að sperra eyrun þegar Pétur hóf að segja sögu. Hlátur hans var einnig svo smitandi að þó svo að maður hefði ekki heyrt sjálfan brandar- ann komst maður ekki hjá því að rifna úr hlátri þegar Pétur byrjaði að hlæja. Á 100 ára afmælisdegi Einars afa, hinn 17. maí árið 1998, man ég að Dódó frænka sagði í ræðu sinni að Pétur hefði alltaf verið uppáhald okkar allra og þar held ég að hún Dódó frænka mín hafi átt kollgát- una því hann var að minnsta kosti minn uppáhaldsfrændi. En nú þegar Pétur Guðni er horfínn til annarra starfa, langar mig til þess að þakka fyrir þau for- réttindi að hafa fengið að kynnast honum. Bærinn verður aldrei sam- ur án hans en minningin um góðan dreng mun lifa um ókomna tíð. Megi fjölskylda hans finna styrk til þess að takast á við þessa miklu sorg. PETUR GUÐNI EINARSSON HELGA H0RSLEV S0RENSEN + Helga Horslev Serensen fæddist á Selfossi 5. jantíar 1944. Htín lést á heimiii sínu 5. nóv- ember siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Selfoss- kirkju 13. nóvember. Mig langar í ör- stuttu máli að kveðja hana Helgu mína. I nokkur ár vann ég með föður hennar Sörensen heitnum sem var danskur mjólkurfræðingur og einn af þeim mörgu dönsku mjólkurfræðingum sem komu hér til starfa í Mjólkur- bú Flóamanna á Selfossi til upp- dráttar og góðs. Sörensen talaði oft um börn sín og unni hann þeim mjög. Helga var yngst barna þeirra góðu hjóna. Hún var fannst mér alltaf svo lítil, grönn, falleg kona og eitthvað svo brothætt enda braut lífið hana. Við kynntumst svo vel þegar hún bjó við hliðina á mér í næsta húsi með Hinrik sinn. Við hittumst því sem næst daglega yfir kaffi- bolla og spjalli. Stundum passaði ég Hinrik fyrir hana, hún var þá lífsglöð og bað fyrir bjartri framtíð fyrir sig og litla Hinrik sinn. Hún var góð og yndisleg stúlka, góð móðir. Helga giftist og flutti til Eyrar- bakka, lífið virtist blasa við henni. Hún eignaðist fleiri börn og var hamingjusöm. Við hittumst oft, hún kom oft hingað á Selfoss. Tengsl okkar rofnuðu aldrei. Ég vissi fyrir löngu að hún átti við erfið veikindi að stríða. Hún ræddi þau við mig. Ég reyndi að gera það sem ég gat fyrir hana þegar við hittumst. Nú seinni ár versnaði henni, við hittumst þó af og til. Hún sagði mér stundum hve illa sér liði. Nú á þessari stundu þegar hún er frjáls frá sjúkdómi sínum hugsa ég um síðustu kveðju okkar og gleðst yfir henni. Helga vann nú síðast í Sláturhúsi Suðurlands. Hjá mér býr kona nú í sláturtíðinni. Þegar hún sagði Helgu hvar hún byggi fékk ég innilega kveðju frá henni og að hún ætlaði að koma fljótlega í heimsókn. Ég skilaði til baka kveðju minni til hennar, hjá mér væri hún ávallt velkomin. Nú ylja þessar kveðjur mér um hjarta. Mig óraði ekki fyrir elsku Helga mín að þetta yrðu síðustu kveðjur okkar. Ég þakka fyrir öll góðu gömlu árin sem við áttum saman þegar allt var svo öðru vísi. Nú líð- ur þér vel. Drottinn þig nú geymi og gæti vina mín. Eg votta fjölskyldu þinni inni- lega samúð, í hjarta þeirra geym- ist allt það góða sem þú gafst þeim. Sigrtín F. Sigurgeirsdóttir. Elsku vinkona, mig langar að kveðja þig með örfáum orðum. Ekki hvarflaði að mér þegar þú hringd- ir í mig laugardaginn sem þú lést að það væri okkar síðasta samtal. Þú sagðist ætla að koma á sunnudaginn með af- mælisgjöf handa mér. Þú sagðist vera svo spennt að sjá hvernig mér líkaði hún. En þú komst aldrei, Helga mín, en hann Gísli Ragnar sonur þinn kom með gjöfina til mín og mér líkaði hún svo sannarlega vel. Þú gafst aldrei annað en fallegt því þú varst mjög smekkleg kona eins og heimili þitt bar vott um. Vinátta okkar Helgu hófst fyrir um 20 ámm og styrktist meir og meir eftir því sem árin liðu, aldrei síðustu 4-5 árin leið sá dagur ef þú varst ekki á sjúkrahúsi að við heyrðum ekki í hvor annarri eða þú kæmir til mín, stundum oft á dag og stundum varstu heilu sólar- hringana hjá mér. Ef þér fannst ég ekki nógu glöð að sjá sagðir þú: „Emma mín, ertu ekki glöð að ég' er komin?“ og þá gat maður ekki annað en hlegið, því þó að þú vær- ir oft mjög lasin var alltaf stutt í húmorinn og mikið hlegið. Mikið hafðir þú gaman af að rifja upp eitthvað skemmtilegt sem börnin þín höfðu gert og síðar barnabörnin. Þú talaðir mikið um hvað hann Hinrik Freyr væri góð- ur og duglegur drengur og hvað hún Fransiska Björk væri falleg með fallegar krullur í hárinu og síðast en ekki síst hann Jóhann, sem hafði svo gaman af að spila við ömmu sína. Það var mikið stolt í þér þegar þú talaðir um þau. Kæra vinkona, þá er langri þrautagöngu lokið og þú hefur fundið frið hjá góðum guði. Ég er honum ákaflega þakklát fyrir að hafa leitt okkur saman því að það hefur svo sannarlega þroskað mig, breitt lífssýn minni og kennt mér að morgundagurinn er ekki sjálf- gefmn. Með brotthvarfi þínu mun skap- ast stórt tómarúm í lífi mínu sem vart verður fyllt. En minning um góða, trygga og skemmtilega vin- konu lifir og enginn getur tekið hana frá mér. Takk fyrir allar samverustundirnar, Helga mín. Ég ' trúi að leiðir okkar muni liggja saman á ný. Eg þakka þau ár sera ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfm úr heimi ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Við Hafþór og okkar fjölskylda vottum fjölskyldu Helgu H. Sören- sen okkar dýpstu samúð. Guð veri með ykkur. Emma G. Eiríksdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON, áður bóndi á Syðri-Grund í Svínadal, Hnitbjörgum, Blönduósi, sem andaðist mánudaginn 6. nóvember, verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju laugardaginn 18. nóvember kl. 14.00. Sætaferðir verða frá BSÍ sama dag kl. 9.00. Guðrún Sigurjónsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Einar Sigurðsson, Þorsteinn Guðmundsson, Sigrún Jónsdóttir, Sveinn H. Guðmundsson, Karin Roland, barnabörn og langafabörn. Kristján Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.