Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 13 Umfangsmikill vefur um geðræn vandamál opnaður í gær Nær til þeirra sem ekki hafa treyst sér til að leita hjálpar Morgunblaðið/Þorkell Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra opnaði vefinn persona.is í gær. INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra opnaði í gær vefinn pers- ona.is sem er umfangsmikill vefur um geðræn vandamál. A vefnum eru á annað þúsund síður og eru höfundar efnis um fimmtíu talsins. Auk þess eru birtar reynslusögur af ýmsum toga, boðið upp á sjálfspróf og spjall- rásir og er einnig hægt að beina spumingum til sérfræðinga og eru svör þá birt á Netinu. Enn fremur er hægt að leita frekari ráðgjafar sér- fræðinga gegn gjaldi og eru svör þá send með tölvupósti. Á næsta ári er stefnt að því að koma á netviðtölum milli einstakhnga og sérfræðinga sem þá ræða saman á lokaðri rás. Aðgengilegar upplýsingar um geðheilsu eyða fordómum Við opnun vefjarins sagði heil- brigðisráðherra að það væru tíma- mót að fólk gæti farið inn á slíkan vef, leitað sér upplýsinga, prófað sig áfram og komist að því hvort það þyrfti á hjálp að halda. Hún sagði ljóst að umræða um geðheilbrigði hefði opnast mikið að undanförnu og að með þessum vef væri verið að opna mikilvægan banka upplýsinga sem hægt yrði að taka út úr að vild. Olafur Þór Ægisson geðlæknir sagðist fagna því að með opnun þessa vefjar væri nú komin leið til að nýta nýjustu leiðir í tölvu- og samskipta- tækni til að veita fræðslu og ráðgjöf varðandi geðheilbrigði en ljóst væri að mikil eftirspurn væri eftir hvoru tveggja. Hann sagði eftirspurn eftir ráðgjöf lækna fara sívaxandi en að hún hefði ekki endilega verið að- gengileg hingað til og því væri þetta þörf viðbót við aðra þjónustu lækna. Hann sagði að læknar fyndu í auknum mæli fyrir því að fólk leitaði Fjárþörf heilbrigð- isstofnananna Fjárþörf Land- spítalans mest STÆRSTI hlutinn af óleystum fjárhagsvanda heilbrigðis- stofnananna á þessu ári er til- kominn vegna fjárþarfar Land- spítalans-háskólasjúkrahúss, að sögn Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda. Landspítalinn 600 milljónir umfram heimildir Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu telur Ríkisend- urskoðun að horfur séu á því að útgjöld heilbrigðisstofnana fari um 600 milljónir króna fram úr fjárheimildum þessa árs, þ.e. fram úr fjárlögum ársins og fram úr því sem gert er ráð fyr- ir í fjáraukalagafrumvarpi árs- ins. Hlutur Landspítalans-há- skólasjúkrahúss í þessari 600 m.kr. fjárþörf er um 300 millj- ónir, að sögn Sigurðar. Þá skipta eftirtaldar þrjár stofn- anir með sér fjárþörf upp á um 200 m.kr. þ.e. Heilbrigðisstofn- unin Akranesi, Heilbrigðis- stofnun Austurlands og Heil- brigðisstofnunin Suðurnesjum. Að lokum skipta daggjalda- stofnanirnar Grund og Hrafn- ista með sér fjárþörf upp á um 100 milljónir króna. til þeirra með fyrirspumir i tölvu- pósti. Enn fremur gæti fólk Ieitað að- stoðar hvar sem það væri statt og læknar svarað hvar sem þeir væru staddir og því væri hægt að segja að þetta væri meðferð án landamæra. Ólafur sagðist einnig viss um að auknar og aðgengilegar upplýsingar um geðheilsu myndu hjálpa til við að eyða fordómum og auka fólki skilning á geðrænum vanda. Líklegt að eidri börn og unglingar nýti sér vefinn Sigurður Guðmundsson landlækn- ir sagði við opnun vefjarins að um- Á PERSONA.is er að finna greinar- góðar upplýsingar um „geðheilsu, samskipti, kynlíf, vinnuna, uppeldi og allt sem tengist mannlegri hegð- un“ eins og segir á forsíðu vefjar- ins. Höfundar efnis eru um 50 og eru þrír meginflokkar viðfangsefna skráðir á forsíðuna: „geðheilsa", „daglegt líf ‘ og „börn og ungl- ingar“. Undir hveijum þessara flokka eru svo liðir sem vísa nota- ndanum áfram á efni þeim tengt. Undir flokknum geðheilsa er að finna upplýsngar um kvíða og fælni, þunglyndi, meðferð og aldr- aða, undir flokknum daglegt líf eru liðimir kynlíf, samskipti, vinnan og áföll og undir flokknum börn og unglingar eru liðimir átröskun, hejrðunarvandi, þroski og uppeldi. Á forsíðunni er jafnframt að finna skrá með nær hundrað efnis- orðum sem vísa á upplýsingar um tiltekin málefni. Notendur geta einnig hlýtt á fyrirlestra, lesið frétt- ir sem settar eru inn á vefinn reglu- lega og tekið sjálfspróf af ýmsu tagi, meðal annai-s greindar- vísitölupróf. Boðið verður upp á lista með tenglum á vefi um tengd málefni og einnig er sérstaka bóka- verslun að finna á vefnum. ræðan um geðræn vandamál hefði gjarnan verið mikið feimnismál og að hún hafi einkennst af fordómum. Hann nefndi að talið væri að geðræn vandamál færu fremur vaxandi, og sagði frá spá Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar þar sem fram kemur að fimm af þeim tíu heilbrigðisvanda- málum sem talið er að muni valda mestum búsifjum á næsta áratug eru geðsjúkdómar. Sigurður benti á að fordómar væru afleiðingar vanþekkingar og því yrði markmið þessa vefjar, það er að segja að efla þekkingu og umræðu, tll þess fallið að draga úr fordómum. Hægt að leita ráða sérfræðinga með tölvupósti Hægt er að leita ráða sérfræð- inga með því að senda spurningar með tölvupósti, svörin eru þá birt á vefnum og þannig er einnig hægt að lesa svör við spurningum ann- arra. Boðið er upp á frekari ráð- leggingar sérfræðinga, gegn gjaldi, og fær viðkomandi þá send svör við spurningum si'num með tölvupósti, annaðhvort á netfang sitt eða á sér- stakt netfang sem hann býr til á vefnum og nýtur hann þá nafn- leyndar. A næsta ári stendur til að bjóða upp á netviðtöl milli einstakl- inga og sérfræðinga þar sem þeir ræða saman á lokaðri rás. Kynni sér notendaskilmála áður en netþjónustan er notuð Aðstandendur persona.is eru hópur einstaklinga og fyrirtækja sem tengjast geðheilbrigðismálum. Framkvæmdastjóri vefjarins er Fjölvar Darri Rafnsson og ritstjóri er Ægir M. Þórisson. Á vefnum eru birtir ftarlegir trúnaðarskilmálar og notendaskilmálar og er notend- um gert að kynna sér skilmálana áður en þeir nýta sér netþjónustu Ólafur Guðmundsson, yfirlæknir á bama- og unglingageðdeild Land- spítalans, sagðist telja að vefur sem þessi næði til einhverra þeirra sem hingað til hefðu ekki treyst sér til að leita sér hjálpar. Hann sagði að þetta ætti jafnan við um eldri böm og ungl- inga en þau ættu gjaman erfitt með að trúa fullorðnum meðferðaraðila íyrir vandamálum sínum og snem sér þá frekar til jafnaldra sinna. Hann sagðist eiga von á því að eldri böm og unglingar myndu nýta sér þjónustuna á vef þessum enda væri þeim tamt að nýta sér tölvur á marg- víslegan hátt. vefjarins. Þar kemur meðal annars fram að vefurinn er eingöngu ætl- aður til fræðslu og upplýsingaöfl- unar og til þess að fólk geti áttað sig á þeim möguleikum sem standa til boða til að takast á við vandamál á þessu sviði. Tekið er fram að þjón- ustan á vefnum kemur ekki í stað- inn fyrir ráðgjöf og meðferð fag- fólks, enda sé það ekki ætlunin og er ekki ætlast til þess að fólk byggi ákvarðanir sfnar á sviði heilbrigðis- mála eingöngu á þjónustunni. Þörfin fyrir slíkan vef er ótvírætt fyrir hendi Að sögn aðstandenda vefjarins er þörfin fyrir vef sem fjallar um geð- ræn vandamál ótvírætt fyrir hendi, en upplýsingar um þau og önnur skyld mál hafa til þessa verið lítt að- gengileg á íslandi. Margir einstakl- ingar eiga erfitt með að tjá sig and- spænis sérfræðingi en þeim þykir auðveldara að tjá sig skriflega, auk þess sem vefurinn býður upp á áhugaverða kosti fyrir þá sem haldnir eru félagsfælni og öðrum kvillum sem torvelda samskipti. Vefurinn ætti einnig að nýtast þeim sem gefa sér ekki tíma til þess að leita sér hjálpar vegna anna. Rafræn við- skipti for- gangsverk RÍKISSTJÓRNIN hefur skilgreint rafræn viðskipti og rafræna stjórnsýslu sem fjórða forgangs- verkefni í framkvæmd stefnu hennar um málefni upplýsingasamfélagsins. í því felst meðal annars að búa upplýsingakerfi stjórnvalda þannig úr garði að gagnvirk rafræn sam- skipti almennings og stjómvalda fullnægi kröfum um málsmeðferð stjómvalda. Forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að kanna hvort og hvaða lagabreytinga sé þörf til að stjómsýslan geti áfram þróast raf- rænt á æskilegan hátt. Nefndinni er falið að kynna sér hvaða leiðir hafi verið farnar annars staðar á Norður- löndum og undirbúa lagabreytingar. Formaður nefndarinnar er Páll Hreinsson prófessor og formaður stjómar Persónuvemdar. ---------------- Sótt um 960 millj. kr. í Tækni- og vísindasjóð ALLS sóttu 97 umsækjendur um verkefiiastyrk til Tæknisjóðs fyrir styrkárið 2001 en umsóknarfrestur rann út um mánaðamótin. Sótt er um 350 milljónir kr. en sambærileg upp- hæð var 477 milljómr kr. í fyrra en þá vora umsóknimar 133. Tæknisjóður hefur 100 milljónir kr. til ráðstöfunar í ár í verkefnastyrid. Samtals komu 275 umsóknir í Vís- indasjóð og sótt var um 610 miHjónir kr. en það er sambærilegur fjöldi um- sókna og var í fyrra og fjárhæðin sem sótt er um er einnig á sömu nótum og fyrir ári. Vísindasjóður hefur um 150 milljónir kr. til ráðstöfunar í ár í verk- efnastyrki en vonir standa til að ráð- stöfunarfé sjóðsins verði aukið. -------------------- 50.000 kr. sekt fyrir brugg RUMLEGA þrítugur karlmaður var í gær dæmdur til sektargreiðslu í héraðsdómi Reykjaness fyrir ólög- lega framleiðslu á áfengi. Vegna málsins vom gerðir upptækir 196 lítrar af gambra, sem var 17% að styrkleika. Ákærði játaði á sig brotið en ósannað þótti að áfengið hefði verið ætlað til sölu. Auk gambrans vom ýmis tæki og tól til áfengisfram- leiðslu gerð upptæk í leiguhúsnæði í Garðabæ þar sem maðurinn stund- aði hina ólöglegu iðju sína. Meðal tækjanna var suðutæki og sex 220 lítra tunnur. Héraðsdómur taldi hæfilega sekt mannsins vera 50.000 krónur sem renna í ríkissjóð. Gunn- ar Aðalsteinsson héraðsdómari kvað upp dóminn. ------*_*_♦----- 45 daga fang- elsi fyrir ölv- unarakstur SELTIRNINGUR á þrítugsaldri var í gærmorgun dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir ölvunarakstur. Maður- inn var fundinn sekur um að hafa í byijun september á þessu ári ekið bifreið sviptur ökuréttindum og und- ir áhrifum áfengis suður Reykjavík- urveg í Hafnafirði að Hjallabraut. Ákærði játaði á sig brotið. í dómnum segir að hinn ákærði hafi fimm sinn- um gengist undir sáttir vegna brota gegn almennum hegningarlögum, áfengislögum og umferðarlögum. Hann hefur tvisvar áður gerst sekur um ölvunarakstur og tvisvar hefur hann ekið án ökuréttinda. Héraðs- dómi þótti 45 daga fangelsi hæfileg refsins. Gunnar Aðalsteinsson hér- aðsdómari kvað upp dóminn. Hluti af forsíðu persona.is. Upplýsingar, sjálfspróf og netviðtöl við sérfræðinga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.