Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 52
.52 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANHILDUR SIGRÍÐUR VALDIMARSDÓTTIR, Hólshúsi, Sandgerði, verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju laugar- daginn 18. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast bent á Krabbameins- félagið. Valdimar Sveinsson, Sigurlína Sveinsdóttir, Einar Sveinsson, Kolbrún Kristinsdóttir. t Ástkáer eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda- móðir, amma og systir, ELÍN RANNVEIG HALLDÓRSDÓTTIR, Hólabergi 12, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlega bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Guðni Auðunsson, Kristjana Halldórsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Elsa Magnúsdóttir, Svanhvít Elínardóttir, Sólveig Larsen, Jens-Peter Larsen, Kristjana Guðnadóttir, Geir Atle Gussiás, Ingvar Sigurðsson, Sigurást Heiða Sigurðardóttir, barnabörn og systkini. Okkar ástkæra, SERÍNA STEFÁNSDÓTTIR, Nesgötu 20, Neskaupstað, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju laugar- daginn 18. nóvember kl. 14.00. Anna Karen Billy, Arthur F. Billy, Lúðvík S. Sigurðsson, Brenda I. Sigurðsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Bertha S. Sigurðardóttir, Hermann Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, sonur og bróðir, EÐVALD VILBERG MARELSSON, Bröttukinn 8, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 15.00. Gréta Húnfjörð Sigurðardóttir, Sigurður Eðvaldsson Elva Dögg Pedersen, Sigrún Eðvaldsdóttir, Margrét Eðvaldsdóttir, Árni James Coliett, Snorri, Kristófer, Arnar Freyr, Marel Eðvaldsson, Lilja Bergþórsdóttir, Ingibjörg Marelsdóttir, Örn Marelsson. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR ÁRNASON málarameistari, Höfðagrund 26, Akranesi, andaðist á Landspítalánum við Hringbraut, miðvikudaginn 8. nóvember sl. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð Guð- mundar Sveinbjörnssonar. Sigríður Unnur Bjarnadóttir, Póra Einarsdóttir, Ingjaldur Ásvaldsson, Jóhanna Einarsdóttir, Páll Skúlason, Sigurður Már Einarsson, Anna Steinsen, Flosi Einarsson, Katla Hallsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ODDNÝEDDA SIGURJÓNSDÓTTIR + Oddný Edda Sig- urjónsdóttir fæddist í Snæ- hvammi í Breiðadal 28. maí 1939. Hún lést á líknardeild Landspítalans 5. nóvember síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Hey dalakir kj u 11. nóvember. Ó, elsku amma mín, nú ertu farin og mér finnst mjög erfitt að trúa því, mér finnst bara eins og þú sért ennþá heima á Breiðdalsvík og ég sé bara heima hjá mér í Hafnarfirðinum og ég sæi þig bara næsta sumar þegar ég kæmi í heimsókn austur. Eg man þú kenndir mér að baka kleinur og gera uppáhalds kakóið mitt. Og ég man hve heitt þú unnir garðinum þínmn, settir niður kartöfl- ur og síðan rabbabarinn þinn. Það var svo oft sem þú hafðir rabbabaragraut í eftirmat og þú gerðir svo oft rabba- barasultur og berjasultur og saftir. Og svo man ég eftir að ég og Palli vor- um stundum að stelast í jarðarberin þín í garðinum. Svo þegar ég fór að vinna í frysti- húsinu og mér leið svo illa eitthvað að ég hætti en þú varst svo hraust og dugleg að þú vaknaðir eldsnemma og fórst í frystihúsið svo fórstu að bera út póstinn, komst svo aftur eftir há- degi í frystihúsið, vannst til sex, komst heim og bjóst þá til matinn handa okkur. Mér finnst svo skrítið að þú sért farin því þú varst ávallt svo hraust og sterk, þú hafðir líka fengið þennan hræðilega sjúkdóm áður og sigraðist þá á honum, nú varð það reyndar öðruvísi því krabbameinið var á fleiri stöðum. En ég hélt alltaf í vonina um að þér myndi batna. Þér líður örugg- lega bara betur núna, en ég sakna þín samt mikið. Með söknuði ég því kveð þig, elsku amma mín. María Björg Gunnarsdótir. Mamma, elskulega mamma mín. Núna ert þú farin, og kemur ekki aft- ur og ég á svo erfitt með að sætta mig við það, ég hélt svo lengi í vonina um að þú myndir ekki fara. Alveg fram á síðustu stundu vildi ég ekki hlusta á annað en að þú kæmist í gegnum þinn erfiða sjúkdóm, en þú vissir betur og þín sorg var mikil yfir að fara frá okk- ur. Þú varst svo sterk og dugleg fyrst þegar þú fékkst krabbamein ’87 og þín góða trú kom þér á fætuma. Þegar ég fékk þennan illvíga sjúkdóm ’95 varst þú minn sterki klettur í stórsjó. Þú komst til mín um leið og ég kallaði á þig og nær- vera þín huggaði mig. Mamma, þegar þú veiktist aftur var sjúk- dómurinn kominn á marga staði sem gerði allt svo erfitt og tók allt þitt þrek og allan kraft. Mamma, þú varst alltaf svo dugleg, taldir aldrei neitt eftir þér, gekkst í hvaða verk sem var, og ég man að þú sagðir: Gerðu það með glöðu geði hvað sem þú þarft að taka þér fyrir hendur, þá verður allt miklu léttara. Eg man að mamma tók oft húsið allt í gegn fyrir jólin, málaði allt eld- húsið, veggfóðraði herbergin, setti jafnvel nýtt á gólfin, breytti öllu í stof- unni og herbergjunum þannig að Laufás varð nýtt hús þegar ég kom heim úr skólanum. Þú tókst svo vel á móti mér. Mamma, þú hefðir orðið góður innanhússarkitekt. E lsku mamma, þú kenndir mér svo mikið, kenndir mér að meta tónlist, myndlist, sögur og Ijóð sem ég mun ávallt geyma í hjarta mínu, þú hvattir mig til að teikna og mála, sem er dýr- mætasta gjöf mín frá þér. Þú söngst með okkur systkinunum og dansaðir við okkur um allt húsið þegar pabbi var að spila á harmonikkuna. Þú last fyrir okkur ljóð í eldhúsinu í Laufási sem voru þér hjartfólgin og það kom ekki á óvart ef það var ljóðabók í jóla- pakkanum eða afmælispakkanum. Elsku mamma, það var svo margt sem þér fannst gaman, vinna í garðin- um, setja niður blóm, rækta græn- meti. Þar leið þér vel, þú varst mikið náttúrubam. Þér fannst gaman að vinna að allri listsköpun og þér fannst sérstaklega gaman að vefa í vefstól, sem þú gerðir á Hallormsstað. Mamma vildi öllum vel og var alltaf tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd og tók svari þeirra sem minna máttu sín. Fæðingarstaður mömmu, Snæ- hvammur, var henni alltaf mjög kær og þar var gaman að labba um í fjör- unni. Mömmu þótti líka mjög vænt um allt fólkið sitt, vini og vandamenn. Elsku mamma, það er svo sárt að missa þig, geta ekki lengur hlegið með þér og búið til marga skemmti- lega hluti, sauma með þér, baka, ganga um í náttúrunni og búa til saft og fleira góðgæti og geta ekki lengur hringt í þig og spurt þig ráða. Elsku mamma, ég bið algóðan guð + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELSA D. HELGADÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík, áður til heimilis á Skúlagötu 40, lést á heimili sínu að morgni laugardagsins 11. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 10.30. Halla Guðmundsdóttir, Gunnlaugur H. Gíslason, Hans Bjarni Guðmundsson, Steinunn Njálsdóttir, Friðjón Guðmundsson, Karen Emilsdóttir, Snorri Guðmundsson, Lilja Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg frænka mín, MARGRÉT N. LÝÐSDÓTTIR, Meistaravöllum 5, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 17. nóvember, kl. 15.00. Guðný Margrét Skarphéðinsdóttir. um að vemda þig og senda ljósið sitt í sálu þína og ég kveð þig með bænun- um sem við fórum með þegar þú áttir erfitt með að sofna meðan þú lást veik. Núleggégaugunaftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mínverivömínótt Æ, virst mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt (Þýð. S. Egilsson.) Láttu nú ljósið þitt logaviðrúmiðmitt Hafðuþarsessogsæti, signaði Jesús mæti. (Höf.ók.) Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (H.Pét) Ég fel í forsjá þína, Guðfaðir,sálumína, þvínúerkominnótt Um Ijósið lát mig di-eyma ogljúfaenglageyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (Matth. Joch.) Þessar bænir allar bið ég fyrir þér, elsku mamma mín. Elín Inga Baldursdóttir. Mig langar í örfáum orðum að kveðja Eddu móðursystur mína. I vor áttum við saman gott spjall í síma, nokkrum dögum áður en ljóst var að eldri veikindi höfðu tekið sig upp aft- ur. Ekki grunaði mig þá að þetta yrði okkar síðasta spjall eða að við ættum ekki eftir að hittast aftur. Ég var svo handviss um að hún kæmist yfir þessa þraut og ætlaði að heimsækja hana þegar hún væri alkomin heim aftur. En það fór því miður á annan veg. Þegar ég var lítil stelpa fannst mér alltaf gott að koma í heimsókn í Lauf- ás. Edda gaf sér góðan tíma til að tala við okkur krakkana og alltaf átti hún eitthvað gott með kaffinu. Foreldrar mínir höfðu það að reglu að fara í heimsókn í Laufás á Þorláksmessu með jólapóstinn og ég fylgdi yfirleitt með. Þetta voru notalegar stundir. Þá var Edda yfirleitt á kafi í jólaundir- búningi en hafði alltaf tíma til að spjalla og vildi helst að við dveldum sem lengst. Hún talaði oft um það að sig langaði að koma óvænt yfir á Stöðvarfjörð þennan dag, með jóla- sveinahúfu og banka uppá hjá frænd- fólkinu. Hún lét líka verða af því ein jólin. Frá Eddu geislaði mikil hlýja, ró- legt fas og umhyggja fyrir öðrum. Hún hafði alltaf nóg að gera og ef hún var ekki að vinna átti fjölskyldan hennar tíma, svo og garðyrkjan og kórsöngurinn sem hún hafði gaman af. Síðustu tvö ár sungum við saman í kirkjukórnum og Samkór Suður- fjarða og hittumst því reglulega. Á síðustu kóræfingunni sem við hitt- umst færði hún mér peysu og tvenna sokka sem hún hafði prjónað handa syni mínum, alveg ómöguleg yfir því að vera ekki búin að koma þessu til mín fyrr. Peysan hefur mikið verið notuð, en sokkamir sem enn eru of stórir bíða síns tíma. Ég hálfpartinn tími varla að láta hann nota þá, en ég hugsa að það hefði henni þótt hálf- kjánalegt. Á stundu sem þessari leita á mann margar áleitnar spumingar og það er alltaf erfitt að kveðja fólk í blóma lífs síns, fólk sem manni finnst eiga svo margt eftir. Þegar annar máttarstólpi fjölskyldunnar fellur frá reynir á að fjölskyldan geti staðið saman til að takast á við sorgina. Kæri Baldur, ég sendi þér mínar innilegustu samúðar- kveðjur svo og Elínu, Brynju, Öllu, Palla og öllum ykkar nánustu. Kæra frænka. Þetta verða kveðju- orðin mín til þín Sífellt þig dreymi um sólfagurt vor og svífðu þar víða í anda og labbaðu gleðinnar gullprýddu spor til gæfunnar heiðbjörtu landa. (Siguijón Jónsson frá SnæhvammL) Þín Solveig Fr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.