Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Áskrift að Stöð
2 hækkar um 5%
ÍSLENSKA útvarpsfélagið hefur
tilkynnt breytingar á áskriftar-
gjaldi Stöðvar 2, Sýnar, Fjölvarps
og Bíórásar. Almennt áskriftar-
verð Stöðvar 2 hækkar úr 3.895 kr.
í 4.090 kr. á mánuði um næstu
mánaðamót og nemur hækkunin
rúmum 5%.
Nýja verðskráin felur í sér
hækkanir allt að tæpum 10% og
lækkanir allt að 2,5%. Samkvæmt
upplýsingum Hilmars Sigurðsson-
ar, framkvæmdastjóra sjónvarps
Norðurljósa, er hækkunin tilkomin
vegna verulegrar hækkunar á
gengi Bandaríkjadollara en fyrir-
tækið kaupir allt efni inn í þeim
gjaldmiðli. Gengisbreytingin nem-
ur um 8,5% á síðustu þremur mán-
uðum og 21,7% á síðustu tólf mán-
uðum. Auk þess hafi þurft að mæta
almennum verðlagsbreytingum hér
á landi.
Afsláttur út á viðskipti
Tilhögun verðbreytinganna mið-
ar fyrst og fremst að því að gera
vel við þá áskrifendur sem eru í
mestum viðskiptum við Islenska
útvarpsfélagið, samkvæmt upplýs-
ingum Hilmars. Svokallaðir M12-
áskrifendur, það er að segja þeir
sem skuldbinda sig til að greiða
áskriftargjald alla tólf mánuði árs-
ins, greiða lægri áskriftargjöld en
almennir áskrifendur og munar
þar um það bil einum áskriftar-
mánuði á ári. Þeir sem eru áskrif-
endur að flestum rásum njóta
mestrar lækkunar á áskriftargjöld-
um sínum.
Eins mánaðar áskrift að Stöð 2
hækkar úr 3.895 í 4.090 kr., eða um
rúm 5%. M12-áskrifandi greiðir
3.770 kr. fyrir sömu áskrift. Gjald
fyrir sameiginlega áskrift að Stöð
2 og Sýn hækkar um 5,84%. Mestu
hækkanirnar eru hjá þeim sem
eingöngu kaupa áskrift að Sýn eða
Fjölvarpi, eða hátt í 10%. Þannig
mun almenn áskrift að Sýn kosta
3.290 kr. og að Fjölvarpi 1.780 kr.
á mánuði.
Þeim sem eru með áskrift að öll-
um sjónvarpsrásunum fjórum er
gert að greiða 6.950 á mánuði og er
það örlítil lækkun frá núgildandi
gjaldskrá. M12-áskriftin fyrir
sömu þjónustu er nokkru lægri,
eða 6.390 kr. á mánuði.
80 nemar
hafa skráð sig
hjá Atvinnu-
miðstöðinni
UM 80 nemar hafa skráð sig hjá At-
vinnumiðstöð stúdenta í leit að
vinnu frá því verkfall fram-
haldsskólakennara hófst hinn 7.
nóvember sl.
Samkvæmt upplýsingum frá At-
vinnumiðstöðinni leita margir nem-
anna að fullu starfi meðan á verk-
falli stendur en einnig er nokkuð
um að óskað sé eftir starfi í jólafríi.
MikiII straumur nema var í At-
vinnumiðstöðina í byrjun vikunnar.
Nemendur héldu í
fjármálaráðuneytið
Milli 60 og 70 framhaldsskóla-
nemendur settust að í fjármála-
ráðuneytinu í gær í þeim tilgangi að
koma á framfæri óánægju með af-
stöðu fjármálaráðherra í verkfalli
kennara. Geir H. Haarde fjárrnála-
ráðherra ræddi stuttlega við nem-
enduma um verkfallið og afstöðu
stjómvalda til krafna kennara. Við-
vera nemanna í fjármálaráðu-
neytinu raskaði ekki störfum í ráðu-
neytinu. Þeir héldu á braut lokað
var kl. 16 ( gær. Nemendur áforma
að mæta aftur í ráðuneytið í dag.
MorgunDiaoio/KAA
Geir H. Haarde fjármálaráðherra ræddi stuttlega við framhaldsskóla-
nema sem settust að í fjármálaráðuneytinu í gær.
Greitt úr
vinnu-
deilusjóði
kennara
FYRSTU greiðslur úr vinnu-
deilusjóði Kennarasambands
íslands voru í gær lagðar inn á
reikninga félagsmanna sem
verkfall hófst hjá 7. nóvember
og höfðu sent sjóðnum upplýs-
ingar um starfshlutfall og
bankareikninga. Alls nema
greiðslumar rösklega 35 millj-
ónum króna til 1.042 félags-
manna. Enn liggja ekki fyrir
upplýsingar frá 193 félags-
mönnum.
í fréttatilkynningu frá stjóm
vinnudeilusjóðs em þeir hvattir
til að senda upplýsingar sem
allra fyrst svo hægt verði að
Ijúka þessum greiðslum í næstu
viku. Ef starfshlutfall þeirra er
svipað og þeirra sem þegar
hafa fengið greiðslu má ætla að
enn sé eftir að greiða í þessari
lotu um 6 milljónir króna.
Að óbreyttu ástandi verða
næstu reglulegu greiðslur úr
sjóðnum 1. og 15. desember og
taka þá einnig til félagsmanna í
Verzlunarskóla íslands en
verkfall þeirra hófst þann 13.
nóvember.
Skólameistari VI fékk formlega at-
hugasemd frá verkfallsstjórn kennara
Ovíst hvort tek-
ið verður tillit til
athugasemda
ÞORVARÐUR Eh'asson, skólameist-
ari Verzlunarskóla íslands, segir að
verkfallsstjóm framhaldsskólakenn-
ara hafi ekld fært nein lagaleg rök
fyrir því að breyting á vinnutilhögun
stundakennslu í Verzlunarskólanum
sé óheimil. Hann segist ætla að skoða
þetta mál á morgun í samráði við lög-
fræðinga og skólanefndarmenn. Ekki
sé ákveðið hvort stundaskrá verði
breytt.
Verkfallsverðir heimsóttu Verzlun-
arskólann og gerðu athugasemd við
að stundaskrá stundakennara, sem
starfa við skólann í verkfallinu, hefði
verið breytt. Þorvarður óskaði eftir
því að fá formlegan rökstuðning fyrir
athugasemdum framhaldsskólakenn-
ara og þá sérstaklega hvaða lagagrein
þeir teldu að hann hefði brotið.
Verkfallsstjóm sendi Þorvarði bréf
í gær þar sem segir. „Vinnuskipulagi
stundakennara og kennara í fullu
starfi sem ekki em félagar í Félagi
framhaldsskólakennara hefur verið
breytt á þann hátt að kennslutímar
þeirra hafa verið færðir til í vinnu-
tímaskipulagi skólans og þeir færðir
saman þannig að kennslu- tími nem:
enda verði samfelldari en ella væri. í
tilviki a.m.k. eins stundakennara hef-
ur þeim kennslustundafjölda sem eft-
ir er af önninni auk þess verið þjapp-
að á færri kennsluvikm- til að kennslu
verði lokið fyrr á önninni en upphaf-
lega var ráðgert, þ.e. kenndar em
tvöfalt fleiri kennslustundir á viku en
fram kemur í stundaskrám kennara
og nemenda.
Ljóst er að með þessari breytingu
hefur kennslutími ofangreindra kenn-
ara verið færður irm á kennslutíma
þeirra kennara sem í verkfalli em og
forsendur breytinganna era þær eyð-
ur sem myndast í stundaskrám nem-
enda vegna verkfalls annarra kenn-
ara. Þar með stuðla breytingamar að
því að draga úr áhrifum verkfalls Fé-
lags framhaldsskólakennara. Það er
viðtekin venja við framkvæmd verk-
falla að hagræða ekki vinnu starfs-
manna stofnunar eða fyrirtækis sem
ekki em í verkfalli.
Verkfallsstjóm KÍ álítur að fram-
angreindar breytingar séu ekki heim-
ilar í verkfalli og beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til yðar að þér sjáið
til þess að horfið verði frá þessum
breytingum."
Þorvarður sagði athyglisvert að
verkfallsstjóm tréysti sér ekki til að
vísa til lagagreina í rökstuðningi sín-
um eins og hann hefði óskað eftir.
Hann sagðist líta á þetta sem viður-
kenningu á því að hann væri ekki að
brjóta lög.
„Mér finnst afar erfitt að banna
nemendum og kennurum að færa til
tíma ef það er eingöngu gert í þeim
tilgangi að skapa þeim ónæði að
ástæðulausu. Mér er ekki alveg Ijóst
hvort það væri álitið eðlilegt eins og
málum er háttað," sagði Þorvarður.
Hann sagði að um 20 stundakenn-
arar störfuðu við Verzlunarskólann
og kennsla þeirra væri óvemlegur
hluti af allri kennslu við skólann. I
einstaka bekkjum væri þetta þó um-
talsverður hluti kennslunni. Hann
sagði að nemendur hefðu látið í ljós
óánægju með að þurfa að mæta frá kl-
8 á morgnanna tH kl. 4 á daginn til að
sækja þessa kennslu og þess vegna
hefði hún verið færð saman og búin til
heildstæð stundaskrá. Þorvarður
sagði að nemendur hefðu mætt ágæt-
lega í tíma hjá stundakennurum fram
að þessu.
Vöktum breytt
hjá neyðarteymi
VEGNA andláts konu á Landspít-
alanum - háskólasjúkrahúsi nýlega,
en hún lést af völdum bráðaofnæmis
eftir ranga lyfjagjöf, hafa verið gerð-
ar ráðstafanir til að breyta vöktum
þess heilbrigðisstarfsfólks sem er í
svokölluðu neyðai-teymi eða útkalls-
teymi.
Þegar mistök við lyfjagjöf í tilviki
konunnar urðu ljós varð misbrestur í
útkalli neyðarteymisins en með
breytingunum nú ætti ekki að verða
vandkvæðum bundið að kalla teymið
út, að sögn Jóhannesar M. Gunnars-
sonar lækningaforstjóra. Mönnun
teymisins sé þéttari og öðmvísi en áð-
ur var. Einnig var strax gripið til lag-
færinga á boðtækjum spítalans en við
útkallið reyndist einn læknanna með
rangt boðtæki. Landspítalinn er einii-
ig að yfirfara reglur um lyfjagjafir og
lýkui’ þeirri vinnu næstu daga.
Rok vikunnar
i% 16.-23. nóvember J
TÍMALAND / ZEITLAND
%
Þessi bók er hvort tveggja í senn, listaverkabók
og Ljóðabók. í henni er að finna 30 Ljóð eftir
Baldur Óskarsson, skáld, þýdd af þýskum
Ijóðskáldum, og vatnslitamyndir eftir þýska
málarann Bernd Koberling.
2.797
Verð áður 3.995 kr.
VORHÆNAN OG AÐRAR SÖGUR
-eftir Guðberg Bergsson
2.576
kr.
Verð áður 3.680 kr.
Eymundsson Rcykjavik
www.penninn.is tymundsson Akurcyri
Bókval Akurcyri
Andlát
JÓN ÁSGEIRSSON
JÓN Ásgeirsson, rit-
stjóri og fyrrverandi
fréttamaður, lést á Land-
spítalanum í Reykjavík í
gær 63 ára að aldri.
Jón fæddist í Reykja-
vík 1. febrúar 1937 og tók
íþróttakennarapróf árið
1957, lauk námi í sjúkra-
þjálfun í Noregi árið
1959 og starfaði þar í
landi um tíma eftir nám.
Hann var fyrsti sjúkra-
þjálfari Reykjalundar
samhliða eigin rekstri
sjúkraþjálfunarstofu ár-
in 1960 til 1970. Þá var hann um
skeið umsjónarmaður iþróttafrétta í
útvarpi og sjónvarpi og starfaði síð-
an sem fréttamaður útvarps 1968 til
1977.
Jón stofnaði eigið ráðgjafar- og út-
gáfufyrirtæki, Mannamót, árið 1975
og gerðist síðan rit-
stjóri Lögbergs-
Heimskringlu í Winni-
peg í Kanada og var
jafnframt fréttaritari
RÚV þar í landi. Einnig
starfaði hann að land-
kynningar- og félags-
málum.
Árið 1980 réðst Jón
til Rauða kross íslands
og starfaði þar sem
deildarstjóri fræðslu-
og kynningardeildar og
var ráðinn fram-
kvæmdastjóri RKÍ árið
1981 og gegndi því í nokkur ár. Eftir
það starfaði hann sjálfstætt sem ráð-
gjafi og sinnti ýmsum verkefnum.
Kona Jóns var Rannvá S. Kjeld og
eignuðust þau þrjú börn. Þau skildu.
Sambýliskona hans síðustu árin var
Jóhanna Guðmundsdóttir.
Viðræður
um Vífilfell
SAMKVÆMT áreiðanlegum heirn-
ildum Morgunblaðsins munu við-
ræður um kaup Þorsteins M. JónS-
sonar, forstjóra Vífilfells, Sigfúsai'
Sigfússonar í Heklu og Kaupþingsfl
Vífilfelli hefjast innan skamms. Nij-
verandi eigandi Vífilfells er fyrúj-
tækið Coca Cola Nordic Beverages
sem er í eigu Carlsberg og Coca Colfl
Company, en Coca Cola Nordíc
Beverages keypti Vífilfell fyrir um
tveimur áram.
Ekki er talið að viðræðumar þurfi
að taka langan tíma, því þar sem
framkvæmdastjóri Vífilfells er einn
kaupendanna er ekki talin þörf á
áreiðanleikakönnun, sem oft tekur
töluverðan tíma í slíkum viðskiptum-
Kaupþing á 51% í Sól-Víkingi og
Þorsteinn M. Jónsson er formaður
stjórnar þess fyrirtækis, þannig að
við því er búist að Vífilfell og Sól-
Víking verði sameinuð ef af kaupun-
um verður.