Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þetta hlýtur að vera rétt hjá mér, surtur, örin benti hingað.
Enn gengur erfíðlega að manna leikskólana í Reykjavík
Foreldrar taka börnin heim
í veikindum starfsfólks
FORELDRAR og forráðamenn
barna á Leikskólum Reykjavíkur
hafa fengið bréf frá viðkomandi leik-
skóla þar sem farið er fram á það að
þeir aðstoði leikskólana þegar veik-
indi starfsmanna koma upp. Aðstoðin
er fólgin í því að foreldrar skiptist á að
hafa börnin sín heima þegar starfs-
menn veikjast.
í bréii, sem leikskólinn Sæborg
hefur sent út, segir að erfitt hafi verið
að manna leikskólann eftir sumarfrí.
Veikindaafleysing sé ekki til staðar
og engin afleysing inni á deildum þeg-
ar starfsmenn veikjast. Af þessum
sökum er farið fram á það að foreldr-
ar hafi böm sín heima þegar svona
stendur á.
Deildarstjóri geri lista svo það
lendi ekki alltaf á sömu foreldrunum
að hafa böm sín heima. Jafnframt
hafi þessi skerðing á dvalartíma
Upplagt í eldhúsið
bráðsniðugt í barnaherbergið
hljómar vel f hjónaherbergi
stórgott í stofuna
~ • Myndlampi
Black Matrix T
• Nicam stereo
• 50 stöðva minni
Allar aðgerðir á skjá
Ȓslenskt textavarp
• Skart tengl á
t • Fjarstýring J?
SHARP
Myndbandstæki VCM 330
033áaflelns 18.900 stgr.
á aðeins 14.900 stgr.
• 2 hausa
• 2 skart tengi
• Allar aðgerðir á skjá
BRÆÐURNIR
Lógmúla 8 • Slml 530 2800
www.ormsson.is
barns áhrif til lækkunar á dagvistar-
gjöldum.
Soffía Þorsteinsdóttir, leikskóla-
stjóri á Sæborg, segir að ekki hafi
tekist að ráða nógu marga starfs-
menn til að fylla öll pláss á leikskólan-
um. Þar em enn laus fimmtán pláss.
Ein álma leikskólans er aðeins starf-
rækt að einum íjórða hluta.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
29. október sl. hafa tólf leikskólar
Reykjavíkurborgar af 72 á undan-
fijmum mánuðum þurft að grípa til
þess ráðs að loka einstaka deildum
um hádegi með reglulegu millibili
vegna manneklu. Um síðustu mán-
aðamót vantaði t.a.m. um 70 manns til
þess að manna lausar stöður á leik-
skólum borgarinnar.
Soffia segir að það sé ekki nýtt að
foreldrar séu beðnir um að taka börn-
in heim vegna þessa vanda. Hún segir
það eitt til ráða að hækka laun leik-
skólakennara og annarra starfs-
manna leikskólanna. „Það fæst ekki
fólk til starfa. Reyndar hefur verið
hægt að fá útlendinga til vinnu en við
höfum tekið þá stefnu að taka ekki
fleiri útlendinga að sinni. Við emm
með tvær erlendar konur hér og okk-
ur þykir það nóg í bili,“ segir Soffía.
Foreldrar barna á
biðlistum óánægðir
Soffla kveðst í raun undrast góð
viðbrögð foreldra við erindi leikskól-
ans. Engar kvartanir hafi borist
vegna þessa en hún segir að foreldrar
bama á biðlistum séu hins vegar afar
óánægðir með stöðu mála.
Formenn foreldrafélaga leikskóla í
vesturbænum hafa ákveðið að hittast
á fundi í vikunni til að ræða stöðu
mála. Ástn'ður Ingólfsdóttir, formað-
ur Foreldrafélags Sæborgar, segir að
svipað ástand sé á flestum leikskólum
í vesturbænum og sums staðar verra
en á Sæborg. Búið sé að stytta dvalar-
tíma bamanna á mörgum leikskólum
og segja upp dvalarsamningum.
Forsvarsmenn Félags íslenskra
leikskólakennara hafa sett fram kröf-
ur um allt að tvöföldun byijunarlauna
í næstu kjaraviðræðum. Byijunar-
laun eru nú um 102.000 krónur.
Samningar leikskólakennara eru
lausir um næstu áramót.
Fyrirlestur Nýrrar dögunar
Sorgin og
fjölskyldan
IKVÖLD verður hald-
inn fyrirlestur á veg-
um Nýrrar dögunar,
samtaka um sorg og
sorgarviðbrögð. Nanna
K. Sigurðardóttir félags-
ráðgjafi hjá Tengslum
talar um: „Sorgina og
fjölskylduna". Fyrirlest-
urinn er í safnaðarheimili
Háteigskirkju og hefst
klukkan 20. Fyrirspurnir
og umræður verða eftir
fyrirlesturinn. Kristín
Eyjólfsdóttir, starfsmað-
ur Nýrrar dögunar, var
spurð hvert væri tilefni
þessa fyrirlestrar?
„Tilefnið er sú þörf
sem við finnum að er fyr-
ir hendi hjá fjölskyldum á
íslandi; að fjölskyldan
geti unnið saman þegar
sorgin ber að dyrum, unnið úr
reynslu sinni og látið hana sam-
eina fjölskylduna en ekki sundra
henni.“
- Hvað verður helst fjallað
u m?
„Komið er inn á mikilvægi
tjáningar, hvernig fjölskylda
getur lært að tala saman og tjá
líðan sína og einnig er fjallað um
hagnýt atriði, hvernig á að tjá
sína tilfinningalegu líðan þegar
öll samskipti eru mjög viðkvæm.
Það er miklu auðveldara að
þegja ýmislegt í hel en tala út,
þegar innri sársauki er fyrir
hendi. Þá er rætt um hvernig
fjölskyldan getur tekið á tog-
streitu í samskiptum sín á milli,
sem rekja má til sorgarvið-
bragða, svo sem reiði eða ásök-
unar. Fjallað verður um hvernig
fjölskyldumeðlimir geti annast
hver annan. Okkur er mjög um-
hugað um að fólk geri sér ijóst
mikilvægi snertingar í sorgar-
ferli og hvernig við berum okkur
að í fjölskyldum þar sem slíkt
hefur ekki tíðkast."
- Er mjög mismunandi hvern-
ig fólk bregst við missi?
„Já, sorgin hefur margbreyti-
leg birtingarform, sorgarferli er
langt frá þvi að vera hið sama
hjá öllum. Það er einnig mjög
einstaklingsbundið og enginn
einn sannleikur til um hvernig
unnið skuli úr slíkri reynslu.
Samtökin Ný dögun styður
syrgjendur og alla þá sem vinna
að velferð þeirra. Samtökin eru
öllum opin og starfsemin lýtur
fyrst og fremst að stuðningi,
ráðgjöf, upplýsingaþjónustu og
fræðslu. Starfssvið samtakanna
er fyrst og fremst að veita syrgj-
endum stuðning í löngu sorgar-
ferli. Fyrst fær fólk oftast stuðn-
ing frá umhverfinu og nýtur
jafnvel áfallahjálpar en þegar
frá líður er oftast þörf á áfram-
haldandi stuðningi sem hægt er
að fá hér.“
- Hvernig hagið þið starfínu?
„Við bjóðum upp á að fólk geti
bæði hringt til okkar og komið.
Síðan gefst syrgjendum kostur á
að sækja mánaðarlega fyrir-
lestra yfir vetrartíma og þar er
fyrst og fremst verið
að fjalla um efni tengt
sorginni. Við fáum til
okkar fagfólk sem
hefur mikla reynslu í
að vinna með syrgj-
endum. Einnig erum
við að þreifa okkur
áfram með opinn
Kristín Eyjólfsdóttir
► Kristín Eyjólfsdóttir fæddist í
Reykjavík 18. febrúar 1959. Hún
lauk þroskaþjálfaprófi 1984 og
hefur starfað við það að mestu
leyti síðan í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn. Hún er í hlutastarfí
hjá Nýrri dögun, samtökum um
sorg og sorgarviðbrögð. Kristín
er gift Magnúsi Bergmann
Magnússyni sem er sjálfstætt
starfandi myndatökumaður. Þau
eiga eina unga dóttur.
Tilraun með
opinn sorgar-
hóp hófst
í haust, þar
eru allir
velkomnir
sorgarhóp þar sem allir eru vel-
komir. Þar er markmiðið fyrst
og fremst að fólk eigi kost á að
hitta aðra syrgjendur. Vera í
samfélagi við þá, sem gengið
hafa í gegnum sömu reynslu eða
svipaða, og gefa þannig hver
öðrum styrk.“
-Er engin hætta á að svona
langvarandi umfjöllun um sorg
hjá einum einstaklingi geti leitt
til svokallaðs „sorgardekurs“?
„Þau okkar sem orðið hafa
fyrir sorg spyrjum vafalaust öll
á einhverjum punkti hvort við
séum í hættu á að festast í þess-
ari vanlíðan. Spurningin: Er ég
að missa vitið? er stundum áleit-
in. Ég vil meina að yfirleitt sé
fólk ekki í hættu á að dekra við
sorg sína, hitt er ljóst að ferlið
er langt og strangt og það tekur
sinn toll. Mér finnst að persónu-
leiki fólks dýpki við sorgar-
reynslu. Sárið grær á mismun-
andi löngum tíma hjá flestu fólki
en oftast verður eftir ör eftir
áfallið. Stundum er talað um að
„fólk læri að lifa með þessari
reynslu“.“
- Veitið þið fólki hagnýtar
upplýsingar, svo sem hvar það
getur fengið áfallahjáip, bætur
af ýmsu tagi o.s.frv. ?
„í minni tíð hefur lítið sem
ekkert verið falast eftir slíkri að-
stoð, það er meira að fólk sé
beinlínis að spyrja ráða hvernig
það eigi að takast á við tilfinn-
ingar sorgarinnar í heild sinni.
Við reynum að leiða viðkomandi
einstakling áfram á ferð sinni til
uppbyggingar og fyrra lífs. Mér
finnst syrgjendur leita eftir
svörum við spurningum eins og:
Er ég á réttri leið? Er ég að
missa vitið? Hvað á ég að gera í
þessum sporum?"
- Hver fæst við að reyna að
hjálpa fólki til að svara þessum
spurningum?
„Ég er hér í hálfu starfi og
sinni þeim einstaklingum sem til
_______ samtakanna leita í
gegnum síma. Síðan
höfum við fólk sem
hefur verið starfandi
meira og minna í fé-
laginu síðan það var
stofnað fyrir þrettán
árum sem er tilbúið að
—— veita syrgjendum
stuðning ef þess er óskað. Sorg-
arhópar eins og ég nefndi áðan
eru kjörinn vettvangur til þess
að vinna með sorg sína og finna
leiðir til þess að byggja upp líf
sitt að nýju án þess sem farinn
er. Finna gleði og tilgang í lífinu
á ný.“