Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Áhorfskönnun Gallup á 19 sjónvarpsþáttum fyrir Mekkano
Milli himins og jarðar
með mest áhorf
SAMKVÆMT nýlegri könnun, sem
Gallup gerði fyiir birtingardeild
markaðs- og samskiptafyrirtækisins
Mekkano, áður GSP og Gæðamiðl-
un, á sjónvarpsáhorfi 19 þátta á
kvölddagskrá Sjónvarpsins, Stöðvar
2 og Skjás 1, mældist skemmtiþátt-
ur Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur
á laugardagskvöldum í Sjónvarpinu,
Milli himins og jarðar, með mest
áhorf, eða 37% á landsvísu. Miðað
við Faxaflóasvæðið varð þátturinn
einnig efstur með 33,4% áhorf.
Könnunin var gerð í síma í októ-
bermánuði, úrtakið var 1.200 manns
um allt land á aldrinum 16-75 ára,
en niðurstöðumar eru byggðar á
svöram 711 manns. Fólk var spurt
hvort það hefði séð síðasta þátt af
þeim þáttum sem valdir voru sér-
staklega í úrtakinu.
Spurt var um sjö þætti hjá Sjón-
varpinu, innlenda sem erlenda, sjö
þætti hjá Skjá 1 og fimm þætti á
Stöð 2.
Þættirnir á Sjónvarpinu era Milli
himins og jarðar, Sunnudagsleikrit-
ið, unglingaþátturinn OK og fram-
haldsþættimir Bráðavaktin, Fras-
ier, Soprano-fjölskyldan og Beðmál í
borginni (Sex in the City). Frá Skjá
1 var spurt um Silfur Egils, Innlit/
útlit, skemmtiþáttinn Björn og fé-
laga, gestaþáttinn Málið og fram-
haldsþættina Providence, Surnvor
og Malcom in the Middle. Þættirnir
á Stöð 2, sem spurt var um, eru
framhaldsþættimir um Ally McBeal
og Simpson-fjölskylduna, frétta-
skýringaþátturinn 60 mínútur,
heimildaþættir um 20. öldina og
*Sjáðu.
Miðað við 10 efstu þættina í könn-
uninni, miðað við áhorf yfir allt land-
ið, á Sjónvarpið fimm þætti, fjórir
eru frá Stöð -2 og einn frá Skjá 1.
Þegar niðurstöður fyrir áhorf á
Faxaflóasvæðinu eru eingöngu
skoðaðar breytist röðin lítillega.
Skjár 1, sem næst aðallega á þessu
svæði, nær inn fjóram þáttum í hóp
10 efstu, þrír era á dagskrá
Sjónvarpsins og þrír hjá Stöð 2.
Sé röð þáttanna skoðuð miðað við
áhorf um allt landið þá er Milli him-
ins og jarðar með 37% áhorf, eins og
fyrr greinir, og röðin þar á eftir sést
nánar á meðfylgjandi grafi. Ef að-
eins eru skoðuð svör fólks á Faxa-
flóasvæðinu er röð þáttanna eftir-
farandi: Milli himins og jarðar
33,4%, Silfur Egils 29,8%, Frasier
29,7%, Bráðavaktin 27%, Ally
McBeal 25,1%, 60 mínútur 22,5%,
Providence 20,7%, Innlit/útlit 20,6%,
20. öldin 20,4%, Survivor 20,1%,
*Sjáðu 19,7%, Sunnudagsleikritið
19,3%, Björn og félagar 17,1%,
Soprano-fjölskyldan 16,4%, Beðmál
í borginni 15,9%, Málið 15%,
Malcom in the Middle 11,6%, Simp-
son-fjölskyldan 11,5% og OK 9,9%.
Við nánari skoðun á niðurstöðum
könnunarinnai’ má sjá að áhorf á
skemmtiþátt Steinunnar Ólínu er
mest meðal eldra fólks, eða um og
yfir 50% áhorf á aldrinum 45-75 ára.
Athygli vekur að hinir tekjuhærri
eru áberandi í hópi aðdáenda Fras-
iers og álíka margh- á aldrinum 55-
75 ára horfðu á unglingaþáttinn OK,
eða 16%, og unga fólkið en 15% fólks
16-24 ára sögðust hafa horft á þátt-
inn.
Vantaði gögn um áhorf
Bjarni Árnason hjá birtingardeild
Mekkano sagði við Morgunblaðið að
fyrirtækið hefði óskað eftir þessari
símakönnun frá Gallup þar sem ijóst
hefði verið að vinnslu dagbókar-
könnunar Sambands íslenskra
auglýsingastofa, SÍA, og helstu fjöl-
miðla hefði seinkað veralega. Því
hefðu ekki verið til nein gögn um
áhorf á vetrardagskrá sjónvarps-
Ahorf á valda sjónvarpsþætti
K í október 2000 (allt landið)
í október 2000 (allt landið)
10 15 20 25 30
35 %
Milli himins og jarðar
Bráðavaktin
Fraiser
Ally McBeal
Silfur Egils
60 mínútur
Sunnudagsleikrit
20. öldin
Sjáðu
29,8%
28,8%
24,8%
23,1%
22,6%
21,6%
20,5%
19,4%
16,6%
16,5%
| 16,4%
| 16,3%
15,7%
| 13,9%
12,9%
_____________ 12,0%
11,2%
ie Middle 9,7%
Beðmál í borainni
lnnlit/útlit
Providence
Survivor
Björn og félagar
OK
Rikissjónvarpið
Stöð 2 W4
Skjár 1 0
Maicolm in t
[37,0%
Heimild: Könnun Gallup fyrir Mekkano
stöðvanna. „Við vildum hafa aðgang
að ferskum upplýsingum. Þær upp-
lýsingar sem almennt var verið að
vinna með vora frá því í mars á
þessu ári. Það er í raun ekki nógu
gott að okkar mati að svo gamlar
upplýsingar séu notaðar. Einnig
vildum við sýna að Mekkano er til-
búið að taka af skarið í þessum efn-
um sem öðram,“ sagði Bjami. Að-
spurður af hverju þessi aðferðafræði
hefði verið valin, að spyrja um valda
sjónvarpsþætti, sagði Bjarni að
starfsmenn Mekkano hefðu sest nið-
ur og valið helstu þætti hverrar
stöðvar, einkum nýja þætti sem ekki
hefðu verið mældir í dagbókarkönn-
un SIA síðastliðið vor.
Umsóknar-
eyðublöðin
ekki tilbúin
EYÐUBLÖÐ sem umsækjendur um
fæðingarorlof þurfa að fylla út hjá
Tryggingastofnun era ekki tilbúin
og þess vegna getur stofnunin ekki
tekið á móti umsóknum vegna fæð-
ingarorlofs á næsta ári, að sögn Guð-
laugar Gísladóttur, forstöðumanns
þjónustusviðs Tryggingastofnunar.
Hún segir jafnframt að reglugerð
um fæðingarorlof sé ekki tilbúin.
I Morgunblaðinu í gær er fullyrt í
fyrirsögn að Tryggingastofnun sé
byrjuð að taka við umsóknum þeirra
sem ætla að taka fæðingarorlof í
byrjun næsta árs. Guðlaug sagði að
þetta væri ekki rétt. Samkvæmt lög-
um ættu umsóknir um fæðingarorlof
að berast sex vikur fyrir töku orlofs.
Hins vegar væri tekið fram að þetta
skilyrði miðaðist við 1. desember nk.
Hún sagði að umsóknareyðublöð
vegna fæðingarorlofs væra ekki til-
búin og því gæti Tryggingastofnun
ekki tekið við umsóknum.
Samkvæmt fæðingarorlofslögun-
um á félagsmálaráðherra að gefa út
reglugerð um fæðingarorlof, en hún
hefur enn ekki verið gefin út. Guð-
laug sagði að það væra margir sem
kæmu að þessu máli og því tæki tíma
að ljúka öllum undirbúningi þess.
------*_+-♦------
Apótek í
Kvosina
LYF & heilsa opnar í dag nýja versl-
un í Austurstræti 12. Er því aftur
komið apótek í Kvosina í Reykjavík.
Lyf & heilsa verður í húsnæðinu
sem Samvinnuferðir-Landsýn fluttu
nýlega söluskrifstofur sínar úr. Hús-
næðið hefur verið gert upp, að utan
og innan. Auk iyfsölu verður í versl-
uninni lögð áhersla á faglega ráðgjöf
og fjölbreytt úrval af öllu því sem
lýtur að heilsu og vellíðan, góðri um-
hirðu og útliti, samkvæmt upplýsing-
um frá fyrirtækinu.
Verslunin í Austurstræti er tutt-
ugasta búð fyrirtækisins og sú átt-
unda sem opnuð er á þessu ári.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri opnar apótekið klukkan níu
árdegis.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Anna Lilja Jónsdóttir og Örn Sigurðsson ineð prófverkefni sín.
Fyrstu
sveinsprófin
í myndskurði
Í46ár
FYRSTU sveinspróf í myndskurði í
46 ár voru afhent próftökunum,
Erni Sigurðssyni og Önnu Lilju
Jónsdóttur, í Þjóðmenningarhúsinu
sl. þriðjudag að viðstöddum Birni
Bjamasyni menntamálaráðlierra
og Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar-
ráðherra. Þau luku sveinsprófinu í
maí sl. Prófverkefnin voru spjöld í
endurreisnarstfl.
Ekki hafði útskrifast sveinn í
myndskurði síðan 1954 þegar Egill
Sveinsson tók prófið. Haim lærði
hjá Ríkharði Jónssyni myndskera.
Félag áhugamanna um tréskurð
fór þess á leit 1996 að Iðnskólinn í
Reykjavík hæfi kennslu í mynd-
skurði í kvöldskóla. Þessi málalejt-
an bar árangur og útskrifuðust Örn
og Anna Lilja úr myndskurði frá
Iðnskólanum vorið 1999. Utskurð
námu þau hjá Sveini Ólafssyni
myndskera en áður höfðu þau
stundað nám um tíma í Skurðlistar-
skóla Hannesar Flosasonar og Örn
einnig notið leiðsagnar Friðriks
Friðleifssonar myndskera. Örn er
húsgagnasmíðameistari og Anna
Lijja húsgagnasmiður.
Steingrímur Hermannsson fyrrv. forsætisráðherra um bráðabirgðalög 1990
Verkalýðs-
hreyfingin
mótmælti ekki
STEINGRÍMUR Hermannsson,
fyrrverandi forsætisráðherra, segir
að Einar Oddur Kristjánsson hafi,
eins og frá er greint í ævisögu hans
sem nú er að koma út, gengið á fund
sinn skömmu áður en þjóðarsáttar-
samningamir voru gerðir 1990 til að
benda á að forsenda þjóðarsáttar
væri að ríkisstjómin tryggði að
ákvæði um hækkun launa í kjara-
samningum við BHMR kæmu ekki
til framkvæmda. Við það ákvæði
gætu verkalýðsfélögin ekki unað.
Umrætt ákvæði í kjarasamning-
um háskólamanna í þjónustu ríkisins
kvað á um að þeim bæra allar hækk-
anir sem um semdist í öðram kjara-
samningum ef þær yrðu umfram
samninga BHMR. Steingrímur seg-
ir að þeir Einar, sem þá var for-
maður VSÍ, hefðu rætt að til að
tryggja þetta gæti þurft að nema
BHMR-samningana úr gildi með
lögum.
Steingrímur kvaðst hafa sagt Ein-
ari að verkalýðshreyfingin og vinnu-
veitendur gætu treyst því að ríkis-
stjórnin myndi gera allt til að
forsendur þjóðarsáttarsamninganna
stæðust. Segir hann það hafa verið
umdeilt hvort þjóðarsáttinni stafaði
hætta af þessu ákvæði samninga
BHMR.
Steingrímur segir sér hafa verið
ljóst að Einar hafi gengið á fund sinn
með vitund og vilja verkalýðshreyf-
ingarinnar, hann hefði sjálfur heyrt
svipaðan tón hjá fulltrúum hennar.
Þetta staðfesti Einar síðar í viðtali
við Dag B. Eggertsson sem skrifaði
ævisöguna og kemur fram í bókinni.
Telur Steingrímur það líka segja
sína sögu að frá verkalýðshreyfmg-
unni komu engin mótmæli við setn-
ingu bráðabirgðalaganna.
„Það er hins vegar rangt,“ segir
Steingrímur, „að Einar „hafi krafist
laga í nafni verkalýðshreyfingarinn-
ar“ eins og fullyrt var í fyrirsögn í
Morgunblaðinu í gær. Það var ríkis-
stjórnarinnar að ákveða hvernig
tryggt yrði að umrætt ákvæði í
kjarasamningum BHMR kæmi ekki
til framkvæmda. Því miður reyndist
lagasetning vera eina leiðin.“
Steingrímur sagði, að sér þætti
leitt að umræddur misskilningur
hefði orðið.
I
I
I