Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aform um margföldun
á fískeldi í Tálknafírði
Unnið er að aukningu bleikjueldis hjá Eyr-
um ehf. í Tálknafirði. Stefnt er að fram-
leiðslu á allt að 1.000 tonnum af bleikju og
6-10 þúsund tonnum af laxi árlega.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Starfsmenn bleikjustöðvar Eyra ehf. á Gileyri í Tálknafirði færa fisk á
milli kera. Þröstur Leó Gunnasson leikari heldur á háfnum en Finnur
Pétursson framkvæmdastjóri losar fiskinn úr netinu.
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Tálkni hf.
á Tálknafirði keypti fiskeldisstöðina
Eyraeldi af Eyrasparisjóði á síðasta
ári. Þar eru nú framleidd 60 til 80
tonn af bleikju á ári og flutt á er-
lenda markaði. Fyrirtækið er með
starfsemi á Gileyri og hefur nú fest
kaup á jörðunum Norður-Botni og
Hjallatúni.
Eyrar ehf. - fiskeldi hafa nú
kynnt hreppsnefnd Tálknafjarðar-
hrepps áform sín um mjög aukna
starfsemi á sviði fiskeldis í hreppn-
um og óskað eftir leyfi til sjókvía-
eldis. A fundi sínum fyrr í vikunni
samþykkti hreppsnefndin bókun
þar sem fagnað er öllum erindum
sem gætu stuðlað að frekari at-
vinnuuppbyggingu í byggðarlaginu
og oddvita og sveitarstjóra falið að
ræða við forsvarsmenn Eyra ehf.
um hugmyndir þeirra.
Borað eftir heitu vatni
Tálkni hf. er í eigu Níelsar Ár-
sælssonar útgerðarmanns og fjöl-
skyldu hans. Segir Níels að unnið sé
að aukningu bleikjueldisins á Gi-
leyri úr 60 til 80 tonna framleiðslu á
ári þannig að unnt verði að slátra
250 til 300 tonnum árið 2002. Það
segir hann að sé hámarksafrakstur
stöðvarinnar miðað við núverandi
vatnsbúskap. Hugmyndin sé að
auka eldið enn frekar, eða þannig að
unnt verði að slátra 1.000 tonnum á
ári að fjórum árum liðnum.
Forsenda fyrir því að unnt sé að
ráðast í þessa stækkun bleikju-
stöðvarinnar og uppeldi laxaseiða
fyrir sjókvíaeldið er að borun eftir
heitu vatni í landi Norður-Botns
takist. Vísindamenn Orkustofnunar
eru að leggja lokahönd á áætlanir
um borun og vonast Níels til þess að
unnt verði að hefjast handa nú í
haust. Raunar hefur áður verið bor-
að eftir heitu vatni í Norður-Botni
en með litlum árangri. Bindur Níels
vonir við að betri árangur náist með
nýrri bortækni.
Aformin um sjókvíaeldið byggjast
á því að unnt verði að fá mikið af
ódýrum seiðum. Þau verða annað-
hvort látin klekjast út á staðnum
eða keypt 2-3 gramma þung af
Stofnfiski. Laxaseiðin verða alin
áfram í þrepaskiptri eldisstöð. Fisk-
urinn verður settur út í sjókvíarnar
í apríl ár hvert, um það bil 700
grömm að þyngd, og alinn í slátur-
stærð yfir sumarið og fram á vetur.
Miðað er við að laxaslátrun hefjist í
september og standi fram undir jól.
Sjókvíaeldi hefur áður verið reynt
í Tálknafirði en orðið þar fyrir
skakkaföllum eins og víðar. Níels
segir að kvíarnar hafi aðallega verið
inni í Hópinu en þar leggi sjóinn og
erfitt sé að vera með fisk þar allan
veturinn. Telur hann vænlegra til
árangurs að hafa kvíamar fyrir ut-
an Sandodda því þar sé meiri hreyf-
ing á sjónum og örari vatnsskipti.
ViII framleiða
frauðplast og fóður
Telur Níels ákjósanlegt að ala
bleikju og lax í Tálknafirði og stað-
urinn sé einn sá besti á landinu til
þess. Fyrir utan náttúrulegar að-
stæður, djúpan og veðursælan fjörð
með miklu af heitu og köldu vatni sé
stöðin skammt frá þorpinu og liggi
ágætlega við samgöngum á landi og
í lofti.
Reisa þarf stórt stálgrindarhús í
Norður-Botni fyrir þrepaskiptu
fiskeldisstöðina og kaupa sjókvíar,
auk annars stofnkostnaðar. Níels
segist ekki vera kominn svo langt
með undirbúning að hægt sé að
áætla kostnað en segir að hann
hlaupi á hundruðum milljóna kr.
Nái áformin fram að ganga skapast
mörg störf við fiskeldið og þjónustu
við það. Vonast Níels til dæmis til
þess að geta sett upp frauðplast-
kassaverksmiðju til að sjá stöðinni
fyrir umbúðum og hefur áhuga á að
kaupa mjöl á heimsmarkaðsverði og
búa til fóðrið á staðnum.
Reyðarál hf. og Fjarðabyggð
Samið um hafnar-
gerð og lóðamál
innan skamms
STEFNT er að því að samningum
milli Reyðaráls hf. og Fjarðabyggð-
ar um lóð undir fyrirhugað álver,
hafnargerð og ýmis fjárhagsleg og
skattaleg atriði verði lokið í febrúar
á næsta ári. Þetta kom fram á fundi
Reyðarálsmanna með heimamönn-
um eystra á dögunum en um þessar
mundir er lögð mest áhersla á að
Ijúka ýmiss konar rannsóknarvinnu
vegna skýrslu um mat á umhverfis-
áhrifum álversins, sem leggja á fram
í mars á næsta ári.
Greint er frá þessu á fréttasíðu
Reyðaráls, en gert er ráð fyrir að
Fjarðabyggð eigi og reki hafnar-
mannvirki sem reisa þarf í tengslum
við fyrirhugað álver fyrirtækisins á
Reyðarfirði. Um mikið mannvirki er
að ræða því viðlegukanturinn er ætl-
aður fyrir allt að 60 þúsund tonna
skip og verður um 260 metrar á
lengd. Er áætlað að kostnaður við
gerð hafnarinnar nemi um 800 -
1000 milljónum króna og er nú unnið
að tillögu að mati á umhverfísáhrif-
um hafnarinnar.
Þá hefur Vegagerðin hafið undir-
búning að endurnýjun vegarins milli
Eskifjarðar og Reyðarfjarðar vegna
fyrirhugaðra álversframkvæmda.
Endanlegt vegstæði hefur ekki enn
verið ákveðið en stefnt er að því að
færa veginn neðar í Hólmahálsinn.
Þar er um friðland að ræða og því
ljóst að þær breytingar þurfa að fara
í mat á umhverfisáhrifum. Samhliða
breytingum á veginum milli Eski-
fjarðar og Reyðarfjarðar er unnið að
gerð fyrirhugaðrar „hjáleiðar“ fram-
hjá þéttbýlinu á Reyðarfirði. Er
búist við að framkvæmdir við hjá-
leiðina hefjist á árinu 2002 og þá
verði einnig hægt að vinna við veginn
yfir Hólmaháls, en framkvæmdir við
breytingar á öðrum vegaköflum milli
Eskifjarðar og Reyðarfjarðar ættu
að geta hafist fyrr.
Sigurjón Sighvatsson um tilboð i Eiða
Hef ennþá áhuga á staðnum
„ÉG hef lýst áhuga mínum á málinu
og hann er ennþá fyrir hendi,“ sagði
Siguijón Sighvatsson, kvikmynda-
framleiðandi í Bandaríkjunum, um
áhuga sinn á kaupum á Eiðum, skóla-
húsnæði og öðrum húsum á staðnum
og hefja þar ýmsa uppbyggingu.
Bæjarstjóm Austur-Héraðs hafn-
aði í síðustu viku tilboðum sem borist
höfðu í Eiða og hefur hún lýst áhuga á
tilboði Sigurjóns, og .Sigurðar JGísla
Pálmasonar um að byggja þar upp al-
þjóðlegt menningarsetur. Sigurjón
kvaðst í samtali við Morgunblaðið
ekki vilja segja neitt frekar um þátt
sinn í málinu eða hvort viðræður
væru íramundan við bæjarstjóm.
„Það er bara gleðilegt ef Eiðar fá
meiri athygli, þetta er fallegur staður
og hvemig sem málin fara þar er það
gott fyrir alla ef hægt verður að
byggja hann meira upp.“
Morgunbiaðið/naiiaor bveinbjoms
Erla Þuríður Pétursdóttir, skattstjóri í Vestfjarðaumdæmi.
Yngsti skattstjórinn
YNGSTI skattstjóri landsins er
Erla Þuríður Pétursdóttir, skatt-
stjóri á ísafirði. Hún er 26 ára
gömul og var sett í embættið til
eins árs í ágúst síðastliðnum. Hún
er jafnframt langyngsti félags-
maðurinn í Skattstjórafélaginu.
„Ég held að einhvern tíma í
fyrndinni hafi yngri maður hlotið
þetta starf, en ég er altént yngst í
stéttinni núna,“ segir Erla Þuríð-
ur. Hún kveðst þó minnst hugsa
um þessa staðreynd en meira um
starfið sjálft. Erla Þuríður vann
áður sem lögfræðingur hjá Ríkis-
skattstjóraembættinu á skatta-
skrifstofu.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir,
sem hefur verið skattstjóri í Vest-
fjarðaumdæmi undanfarin ár,
fékk ársleyfí og var ákveðið að
auglýsa ekki stöðuna en Ríkis-
skattstjóra falið að finna stað-
gengil.
„Ég var beðin um þetta og
fannst þetta gott tækifæri og
ákvað að slá til,“ segir Erla Þuríð-
ur, sem útskrifaðist sem lögfræð-
ingur árið 1999. „Starfið er afar
skemmtilegt en að sama skapi
krefjandi. Ég hef ekki mikla
reynslu en áhuginn er fyrir hendi.
Mér líkar líka vel að búa á Isafirði
og að kynnast öðru, t.d. þessu líf-
lega félagsstarfi. Ég er Reykvík-
ingur og hef alltaf búið í borg-
inni.“ Hún segir að sér hafi verið
tekið afskaplega vel fyrir vestan.
-
Grunaðir
um fjölda
afbrota
LÖGREGLAN í Keflavík
handtók í síðustu viku tvo pilta
grunaða um að hafa stolið bif-
reið í Njarðvík. Þegai- lög-
reglan yfirheyrði piltana kom í
Ijós að þeir og aðilar þeim
tengdir eru viðriðnir a.m.k.
fjóra bílstulda, allnokkur inn-
brot og þjófnaði og a.m.k. þrjár
íkveikjur. Piltarnir eru sextán
og sautján ára gamlir. Þeir eru
báðir búsettir á Suðurnesjum.
Afbrotin, sem piltarnir eru
grunaðir um, voru framin víða
á Reykjanesi og á höfuðborgar-
svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknardeild lögreglunnar í
Keflavík á enn eftir að yfir-
heyra nokkra aðila vegna máls-
ins sem teygir anga sína víða.
Lögreglan í Keflavík hefur
unnið að rannsókn þess í sam-
vinnu við lögregluna í Hafnar-
firði, Kópavogi og Reykjavík.
Piltarnir höfðu stolið bifreið í
Njarðvík. Lögreglan veitti
bílnum eftirför en ökumaður
bílsins stöðvaði hann og kom-
ust piltarnir undan á hlaupum.
Grunur féll hinsvegar á piltana
og voru þeir færðir til yfir-
heyrslu.
Réðust til inn-
göngu á heim-
ili í Ölfusi
SEX piltar brutust inn á heimili
í Ölfusi á sunnudagsmorgun og
hótuðu húsbóndanum líkams-
meiðingum. Einn úr hópnum
hafði lent í útistöðum við hús-
bóndann á dansleik fyrr um
nóttina. Svo virðist sem piltam-
ir,hafi ætlað að gera út um þann
ágreining.
Þeir komust inn í húsið með
því að brjóta rúðu. I húsinu voru
auk húsbóndans og eiginkonu
hans tvær ungar dætur þeirra
og stúlka á unglingsaldri. Pilt-
amir létu ófriðlega innan dyra
og unnu skemmdir á húsbúnaði
og myndum. Einnig bmtu þeir
rúður í bílskúr og skemmdu
klæðningu utan húss. Ekki kom
til átaka en piltamir höfðu í
frammi ýmsar hótanir um
líkamsmeiðingar við húsráðend-
ur. Lögreglan á Selfossi hand-
tók nokkra þeirra en sumir gáfu
sig fram sjálfviljugir. POtamir
em allir búsettir á Suðurlandi.
Veitir Jórdön-
um ráðgjöf
BRAGI Guðbrandsson, for-
stjóri Barnavemdarstofu, er
þessa dagana staddur í Jórdan-
íu þar sem hann veitir ráðgjöf
um barnavernd. í frétt frá
Barnavemdarstofu segir:
„í maí sl. komu konungshjón
Jórdaníu hingað til lands í opin-
bera heimsókn í boði forseta ís-
lands. Við það tækifæri áttu
Ranía drottning og forstjóri
Barnavemdarstofu, Bragi
Guðbrandsson, fund um barna-
verndunarmálefni og starfsemi
Barnahúss. Tilefni fundarins
var hinn mikli áhugi Raníu á
bamavernd en hún er t.d. fmm-
kvöðull að því að opna umræðu
um kynferðisofbeldi gegn böm-
um í arabaríkjunum.
í kjölfar fundarins lét drottn-
ingin í ljós áhuga á því að for-
stjóri Bamavemdarstofu veitti
Jórdaníu ráðgjöf í þessum efn-
um. Fyrir milligöngu ræðis-
manns íslands í Amman barst
síðan beiðni frá skrifstofu
drottningar um að Bragi
Guðbrandsson kæmi til Jórd-
aníu í þessum erindagjörðum."
i
Í
k
J