Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
Slökkviliðsmenn á Akureyri aðstoðuðu starfsmenn Eimskips við
hreinsa upp olíu á Oddeyrarbryggju.
Olíuleki á Oddeyrarbryggju
SLÖKKVILIÐ Akureyrar var kall-
að til aðstoðar á athafnasvæði
Eimskips við Oddeyrarbryggju í
gærmorgun en þar hafði orðið olíu-
slys. Oh'uslanga við tjakk á krana
strandflutningaskipsins Mánafoss
fór í sundur, þar sem verið var að
hífa gám og sprautaðist olía
(glussi) yfir bryggjuna og veggi
Oddeyrarskála. Að sögn Arnar
Stefánssonar, starfsmanns Eimsk-
ips, fóru um 300 h'trar af olíu niður
en nánast ekkert í sjóinn. Strax var
ráðist í að loka niðurföllum á
bryggjunni og siðan hófst hreinsun
þar sem starfsmenn Eimskips nutu
aðstoðar slökkviliðsmanna. Að
sögn Arnar gekk hreinsunin vel og
ekki urðu tafir á áætlun Mánafoss
vegna óhappsins.
Mmsm
SAMHERJI HF
Innköllun hlutabréfa í Samherja hf.
vegna rafrænnar skráningar.
Mánudaginn 12. febrúar 2001, verða hlutabréf
í Samherja hf. skráð rafrænt hjá
Verðbréfaskráningu íslands hf. Þann dag verða
viðskipti með hlutabréf féjagsins stöðvuð á
Verðbréfaþingi Islands.
Hér með eru hlutabréf í Samherja hf. innkölluð
í samræmi við ákvæði laga um rafræna
eignaskráningu verðbréfa. Nánartilgreint verða
öll hlutabréf í félaginu tekin til rafrænnar
skráningar en þau eru öll í einum flokki og gefin
út á nafn hluthafa.
Hluthöfum er bent á að koma að athugasemdum,
ef þeirtelja að eignarhald þeirra sé ekki réttilega
skráð, við hlutaskrá félagsins, að Glerárgötu 30,
600 Akureyri eða í síma 460 9000. Jafnframt
skulu þeir sem eiga takmörkuð réttindi í
hlutabréfum félagins koma rétti sínum á framfæri
við viðskiptabanka sinn, sparisjóð eða
verðbréfafyrirtæki sem gert hefuraðildarsamning
við Verðbréfaskráningu Islands hf.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu
hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því
ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt
er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar
hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga
viðskipti með hluti sína í félaginu að
undanskildum sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni mfrænhi skráningu þwfa hluthafar
aðfela mikhtngsstofnun umsjón með eiguarhlut
sínurfí í félaginu með stofnun VS-reit
Samningur Háskólans á Akureyri og Flugmálastjdrnar
Samgöngulíkan fyrir
innanlandsflug
SAMNINGUR um rannsóknar-
samstarf milli Háskólans á Akureyri
og Flugmálastjómar var undirritaður
við opnun endurbyggðrar flugstöðvar
á Akureyri nýlega, en samkvæmt
honum mun háskólinn vinna grein-
ingu á samgöngulíkani fyrir innan-
landsflug.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há-
skólans á Akureyri, sagði að markmið
háskólans væri m.a. að stunda rann-
sóknir í þágu atvinnulífs og bæta lífs-
gæði í landinu. „Skilvirkt og gott inn-
anlandsflug er eitt af grundvallar-
skilyrðunum fyrir búsetu í landinu og
skiptir þá ekki máli hvort menn búa á
höfliðborgarsvæðinu eða landsbyggð-
inni. Mikilvægi innanlandsflugsins
gegnir sama hlutverki hér á landi og
jámbrautasamgöngur í fjölmennari
þjóðfélögum," sagði Þorsteinn og
bætti við að hér á landi hefði vantað
rannsóknir á eðli innanlandsflugsins,
stöðu þess og þróun.
Hann sagði að háskólinn væri að
byggja upp þekkingu á sviði sam-
göngu- og ferðamála innan ferðaþjón-
ustusviðs rekstrardeildar, Rann-
sóknastofnunar háskólans og Ferða-
málaseturs íslands sem starfar innan
háskólans, en tvö þau síðasttöldu era í
samstarfi við Flugmálastjóm vegna
umrædds verkefnis.
Samningurinn felur í sér að skil-
greindar verða leiðir og aðferðir til
þess að byggja upp líkan af flutning-
um í lofti innanlands, einkum far-
þegaflutningum. Einnig verður hug-
að að öðram samgönguháttum, þ.e.
þeim sem teljast vera í samkeppni við
flugið. Um verður að ræða fyrsta áf-
anga í að byggja upp heildstætt líkan
af fragtflutningum á Islandi sem nota
mætti til þess að spá fyrir um þróun
innanlandsflugsins á komandi áram.
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður VE landaði í Krossanesi í fyrrinótt.
Ert þú sérfræðingur á sviði ferðaþjónustu?
Ferðamálaráð Íslands
auglýsir stöðu sérfræðings á sviði ferðaþjónustu
lausa til umsóknar
Staðan heyrir undirforstöðumann skrifstofu Ferðamálaráðs
Islands á Akureyri en stöðunni fylgir kennsluskylda við
Háskólann á Akureyri, einkum við ferðaþjónustusvið rekstrar-
deildar.
Eitt af megin verkefnunum er að stýra og vinna að rannsóknum
á sviðiferðaþjónustu.
Æskileg menntun er M.Sc eða Ph.D. í ferðaþjónustu og eða
greinum tengdum ferðaþjónustu s.s. viðskiptatengdum
greinum, landafræði eða tölfræði.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 461 2915.
Umsóknir um stöðuna sendisttil skrifstofu Ferðamálaráðs
íslands, Strandgötu 29,600 Akureyri fyrir 27. nóvember n.k.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Samkvæmt lögum skal Ferðamálaráð sinna ýmsum verkefnum
í ferðaþjónustu. Ferðamálaráð starfrækir fimm skrifstofur í
fjórum löndum: Reykjavík, Akureyri, New York, Frankfurt og
París. Starfsmenn eru 21.
Stærstu málaflokkar: Landkynning og markaðsmál, upplýsingar
fyrir ferðamenn og söluaðila, rannsóknir og kannanir, um-
hverfismál, gæðamál og fjölþjóðlegt samstarf.
Ferðamálarád Islands
:‘V
>í:i, 1
1
lcelandic Tourist Board
Fyrsti loðnu-
aflinn til
Krossaness
FYRSTI loðnuaflinn á haustvertíð-
inni barst í Krossanes í fyrrinótt, er
Sigurður VE landaði „slatta“, eða
um 200 tonnum af ágætis loðnu. Að
sögn Arna Björns Kristbjörnssonar,
sem var skipstjóri í þessum túr, var
leitað að loðnu norðaustur af landinu
án árangurs. Aflinn fékkst út af
Vestfjörðum í tveimur köstum.
Vegna brælu á miðunum var haldið
til hafnar á Akureyri.
Ámi Bjöm sagðist ekki bjartsýnn
á mikla loðnuveiði á haustvertíðinni
enda hafi ekki verið um neina veiði
að ræða fyrir áramót síðastliðin tvö
ár. Hann sagðist hafa lítið orðið var
við loðnu á miðunum en þar vora um
10 skip að reyna fyrir sér. „Þetta er
dæmigert Vestfjarðaástand en loðn-
an er alveg óútreiknanleg. Þarna
hafa bátar verið að fá afla í björtu en
yfirleitt er loðnan veidd á nóttunni."
Árni Björn var í sínum íyrsta túr
sem skipstjóri á Sigurði en hann hef-
ur verið stýrimaður á skipinu frá ár-
inu 1991. Hann er sonur Kristbjörns
Árnasonar, hins þekkta aflaskip-
stjóra á Sigurði, og hefur verið með
föður sínum á sjó í tæp 20 ár. Krist-
björn var í fríi í þessum túr en til stóð
að hann héldi með skipið aftur á mið-
in í gærkvöld.
------------------
Að vekja áhuga
barna
í NORRÆNNI bókasafnaviku
bjóða Bókasafn og kennaradeild Há-
skólans á Akureyri í samvinnu við
Félag áhugafólks um heimspeki á
Akureyri, til fyrirlestrar þar sem
þau Andri Snær Magnason og Ás-
laug Jónsdóttir ræða um sköpun
heims og hnattar í Sögunni af bláa
hnettinum.
Rithöfundarnir Andri og Áslaug
hafa bæði gefið út margar bækur
auk þess sem Áslaug er sérstaklega
þekkt fyrir myndskreytingar í
bamabókum. Sagan af bláa hnettin-
um hlaut íslensku bókmenntaverð-
launin í flokki fagurbókmennta og
var það í fyrsta sinn sem barnabók
fær þau verðlaun.
Allir eru velkomnir á fyrirlestur-
inn.
------♦-♦-♦-----
Vinafundur í
Glerárkirkju
VINAFUNDUR eldri borgara verð-
ur í Glerárkirkju í dag, fimmtudag-
inn 16. nóvember, og hefst hann kl.
15.
Lilja Sigurðardóttir flytur hug-
leiðingu, séra Sigurður Guðmunds-
son biskup flytur Ijóð og nemendur
úr Tónlistarskólanum á Akureyri
koma í heimsókn.