Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 66
^56 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
H
UMRÆÐAN
Garðyrkju-
skólanemar á
faraldsfæti
NÝR árgangur nemenda mætti til
leiks við Garðyrkjuskóla ríkisins að
Reykjum í Oifusi í
haust. Tekið er inn í
skólann annað hvert
ár þannig að þessi
árgangur klárar sitt
tveggja ára bóklega
nám áður en næsti
árgangur kemur í
skólann. Námskrá
Garðyrkjuskólans
hefur verið tekin til
gagngerrar endur-
skoðunar og er nú
kennt eftir nýrri
námskrá sem sam-
þykkt var af bú-
fræðsluráði í vor.
Fyrstu kynni eru
alltaf mikilvæg þann-
ig að ákveðið var að
hrista nemendahópinn saman með
því að fara í haustferð. Fyrstu þrjá
daga nemendanna í skólanum nutu
þeir leiðsagnar Evu G. Þorvalds-
dóttur, forstöðukonu Grasagarðs
Reykjavíkur, á námskeiði um ís-
lensku ílóruna, en að því loknu var
haldið af stað norður í land.
Ferðalagið hófst á miðvikudegi, í
sunnlensku blíðskapai’veðri. í for
með nemendum voru fjórir kennar-
ar og tveir fylgifiskar og farartækið
fjallarúta af bestu gerð. Nemendur
þriggja brauta voru með í ferðinni,
garðplöntu, ylræktar og
skrúðgarðyrkju. Haldið
var frá Reykjavík aust-
ur í Ölfus og svo áfram
upp í Haukadal í Bisk-
upstungum. Þar tók
Loftur Jónsson, skógar-
vörður á Suðurlandi, á
móti hópnum og gekk
með gestunum um skóg-
ræktarsvæðið. Er
skemmst frá því að
segja að sú gönguferð
var fróðleg í alla staði og
ánægjulegt að ganga um
fallegt gróðurlendi í
haustlitunum. Að skóg-
argöngu lokinni var
ferðinni heitið á Geysi,
hverasvæðið kannað ít-
arlega og snæddur hádegisverður.
Eftir hádegisverð hélt hópurinn
að Gullfossi og svo áfram inn á
Kjalveg. Eins og fyrr segir var
veðrið ákaflega fagurt og fjallasýn
á Kili með eindæmum, því var jafn-
vel haldið fram að þarna hefðu sést
fjöll sem ekki hefði verið hægt að
koma auga á áður... Það bar helst til
tíðinda á leiðinni að Hveravöllum
að undir Bláfelli mætti hópurinn
leigubíl á suðurleið, frekar undar-
BLOM
VIKUMAR
448. þáttur
llmsjón Sigríður
lljartar
Úr Lystigarðinum á Akueyri.
leg sjón á fjallvegi, en norðanmenn
setja færð á fjallvegum greinilega
ekki fyrir sig ef þeir þurfa að kom-
ast suður í hvelli.
A Hveravöllum settust ferða-
langamir niður og borðuðu nestið
sitt (það er skrýtið hvað nesti ann-
arra lítur alltaf miklu betur út en
nestið sem maður hefur sjálfur út-
búið) og teygðu svo úr öllum skönk-
um íyrir næsta rútuáfanga. Áfram
var haldið norður og undir kvöld-
mat var áfangastaðurinn í augsýn,
Hólar í Hjaltadal.
Skúh Skúlason, skólameistari á
Hólum, tók á móti hópnum og leiddi
fólkið í matsalinn. Eftir ljúffengan
kvöldverð að hætti hússins sýndi
Skúli nemendum og kennurum
skólastaðinn og kirkjuna og sagði
lauslega frá sögu staðarins. Var svo
gengið til náða.
Fimmtudagurinn heilsaði með
roki og rigningu. Eftir snemm-
búinn morgunverð á Hólum brun-
aði rútan með allri áhöfn yfir á Ak-
ureyri. Tryggvi Marinósson,
yfirmaður umhverfisdeildar Akur-
eyrarbæjar og fulltrúar hans tóku
þar á móti hópnum og fóru með
hann vítt og breitt um bæinn.
Sýndar voru helstu framkvæmdir
á vegum deildarinnar og áhuga-
verðar plöntur skoðaðar í görðum.
Seinna um daginn var Lystigarð-
urinn á Akureyri heimsóttur,
Björgvin Steindórsson garðyrkju-
fræðingur gekk með gestunum um
garðinn, rakti sögu hans og spjall-
aði vítt og breitt um plöntuval og
staðsetningu. Eftir kaffidrykkju 1
Lystigarðinum var haldið inn í
Ráðstefna um opinber
innkaup 2000
Rafræn viðskipti í dag
Grand Hótel Reykjavík,
þriðjudaginn 21. nóvember 2000
Kynntar verða byltingarkenndar nýjungar sem verða
að veruleika á næsta ári með innleiðingu rafrænna
innkaupa. Þessi bylting mun i grundvaliaratriðum
gjörbreyta starfi forstöðumanna og innkaupafólks, með
intemettækni og sjálfvirkni í opinberum innkaupum.
Ráðstefnan verður haldin þríðjudaginn 21. nóvember
á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, kl. 12:00-16:00.
Ráðstefnan hefst með léttum málsverði kl. 12.00.
Þátttökugjald er kr. 7500, málsverður og ráðstefnugögn
innifalin. Dagskrána er að finna á www.rikiskaup.is.
Skráning/mæting 11:30-12:00.
Ráðstefnustjóri: Þórhallur Arason,
skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu.
Þátttökutilkynningar berist I slma
530 1400 eða með tölvupósti
rikiskaup@rikiskaup.is
RÍKISKAUP
Ú t b o ð - b 0 t r i k a u p I
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ilagnarsson
Landstvímenrringnr -
Samnorrænn tvímenningnr
Samnorrænn tvímenningur 16.
nóv. og 17. nóv.
Þetta er í fjórða sinn sem öll
Norðurlöndin standa saman að
þessari keppni og í þetta sinn sér
Bridgesamband Islands um fram-
kvæmdina.
Útreikningurinn fer fram á Net-
inu, þannig að úrslit ættu að liggja
fyrir fljótlega eftir að spilamennsku
lýkur. Hægt verður að spila annað
kvöldið eða bæði, en keppnin á
föstudaginn er einnig Landství-
menningur 2000.
Samnorrænn tvímenningur verð-
ur spilaður í Þönglabakka 1,
fimmtudaginn 16. nóvember. Spila-
mennska hefst kl 19.30. Skráning á
staðnum. Að spilamennsku lokinm
fá þátttakendur afhenta bók með
spilunum og umsögn um spilin sem
Guðmundur Páll Amarson heims-
meistari skrifar.
Spilað víða um land
á föstudaginn
Landstvímenningur/Samnor-
rænn tvímenningur verður spilaður
föstudaginn 17. nóvember á eftir-
farandi stöðum:
Akranesi, Patreksfirði, Súðavík,
Akureyri, Vopnafirði, Eskifirði,
Homafirði, Keflavík og Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar hjá BSÍ í s.
587 9360. Gefin verða gullstig og
verðlaun fyrir efstu sæti. Að spila-
mennsku lokinni fá þátttakendur af-
henta bók með spilunum og umsögn
um spilin, sem Guðmundur Páll
Amarson heimsmeistari skrifar.
Spilamennska hefst í Þöngla-
bakkanum kl. 19.
íslandsmót kvenna
íslandsmót kvenna í tvímenningi
Verður haldið í Þönglabakkanum
helgina 18.-19.nóvember. Spila-
mennska hefst kl. 11 báða dagana.
Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Eir-
íksson. Skráning er hafin í s. 587 9360
eða bridge@bridge.is.
íslandsmót (h)eldri og
yngri spilara
Islandsmót yngri spilara í tví-
menningi verður 26.-27.nóv. í flokki
yngri spilara eru þátttakendur fædd-
ir 1976 eða síðar. Þátttaka er ókeypis.
Islandsmót (h)eldri spilara í tví-
menningi verður einnig spilað í
Þönglabakkanum helgina 26.-27.nó-
vember. Lágmarksaldur er 50 ár og
samanlagður aldur parsins minnst
110 ár.
Bæði mótin byija kl. 11 laugardag.
Skráning í s. 587 9360 eða brid-
ge@bridge.is.
„Tösku-brids“ í heimahús
„Tösku-brids“ er skemmtilegt
keppnisform, sem Hollendingar tóku
upp fyrir nokkrum árum. 24 forgefin
spil eru í töskunni sem er lánuð í
heimahús gegn 1.500 kr. gjaldi.
Keppnisfyrirkomulag er tvímenning-
ur (Mitchell) og er mótið reiknað út í
tveimur riðlum N-S og A-V. Þannig
geta allir kynnst keppnisbrids og tek-
ið þátt í bridsmóti þegar þeim hentar.
Hvert mót er spilað í tvo mánuði,
þá er reiknað út og úrslitin birt hér í
bridsþætti Arnórs Ragnarssonar.
Ný „taska“ verður útbúin fyrsta
hvers mánaðar, þannig að alltaf eru
tvö mót í gangi í senn. Fyrstu úrslit
verða birt í byrjun janúar. Spilað er
um bronsstig skv. reglum BSÍ. Allar
upplýsingar hjó Bridssambandi ís-
lands, Þönglabakka 1, 3. hæð, sími
587 9360.
Bridskvöld Bridsskólans og BSÍ
14 pör mættu á fyrsta bridskvöldið
mánudaginn 13. nóv. Spilaður var Mi-
tchell.
Lokastaðan:
N-S riðill
ÁmiGuðbjömss.-ÓlafíaAndrésd. 76
Pétur Jónasss. - Guðrún Guðmundsd. 71
HrafnhildurGuðm.d.-BryndísGuðm.d. 65
A-V riðill
Halldór Halldórss. - Eggert Sverriss. 74
HalldórHjartars.-AriGunnarss. 71
BenediktFranklínss.-MagnúsWaage 68
Spilað verður næstu fjóra mánu-
daga í Þönglabakka 1 og hefst spila-
mennskan kl. 20.00. Allir velkomnir
og aðstoðað er við myndun para. Um-
sjónarmaður er Hjálmtýr Baldurs-
son.