Morgunblaðið - 21.11.2000, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Davíð Oddsson forsætisráðherra afhendir Friðriki Þór Edduna fyrir
Engla alheimsins, sem kjörin var mynd ársins.
Morgunblaðið/Þorkell
Björk Guðmundsdóttir afhendir Þorgeiri Þorgeirsyni heiðursverð-
launin.
Englar alheimsins fengu flestar Eddur
EDDUVERÐLAUNIN, fslensku
kvikmynda- og sjónvarpsverð-
launin, voru afhent í Þjóðleikhús-
inu síðastliðið sunnudagskvöld við
hátíðlega athöfn. Mynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, Englar aI-
heimsins, var valin mynd ársins.
Kvikmyndin var einkar feng-
sæl, þar sem Friðrik Þór var val-
inn leikstjóri ársins, Ingvar E. Sig-
urðsson leikari ársins, Björn
Jörundur Friðbjörnsson fékk
verðlaun fyrir aukahlutverk í
myndinni svo og Margrét Helga
Jóhannsdóttir. Einnig fékk mynd-
in sérstök fagverðlaun fyrir tón-
Iist og voru það þeir Hilmar Örn
Hilmarsson og Kjartan Sveinsson
úr hljómsveitinni Sigur Rós sem
veittu þeim viðtöku. Myndin var
svo valin sem framlag Islands til
forvals Óskarsverðlaunanna.
Björk Guðmundsdóttir var valin
leikkona ársins fyrir hlutverk sitt
í Myrkradansaranum. Þorgeir
Þorgeirson hlaut sérstök heiðurs-
verðlaun, en hann varð fyrstur
manna hérlendis til þess að læra
sérstaklega til fagsins.
■ í algleymi engla/77
Kennarar
halda bar-
áttufund
Bjartsýni ríkjandi
í deilu MATVÍS
EKKERT miðaði í gær í kjaradeilu
framhaldsskólakennara og ríkisins
en fundi lauk hjá ríkissáttasemjara í
gærkvöldi eftir nokkurra klukku-
stunda árangurslausar viðræður.
Tvær vikur eru liðnar í dag frá því að
verkfallið hófst í öllum framhalds-
skólum landsins. Félag framhalds-
skólakennara hefur boðað til bar-
áttufundar í íslensku óperunni í dag
kl. 14 meðal félagsmanna sinna.
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara,
sagði við Morgunblaðið að fundi
loknum í gærkvöldi að samningavið-
ræður gengu afar illa. Samkomulag
væri síður en svo að nást.
A síðustu fundum hefur helst verið
rædd sú krafa ríkisins að auka
kennsluskyldu kennara, sem þeir
eru óánægðir með, að sögn Elnu
Katrínar. A næsta fundi, sem boðað-
ur hefur verið hjá sáttasemjara á
morgun, miðvikudag, vonast Elna
Katrín til að launaliðir og launakerfi
komi til umræðu. Hins vegar sé sá
tímapunktur nú að velta megi því
fyrir sér hvort samningaviðræður
hafi einhvern tilgang, þegar svo mik-
ið ber á milli deiluaðila.
Elna Katrín sagðist ekki geta tek-
ið undir yfirlýsingar skólastjómenda
um að haustönnin sé ónýt, leysist
deilan ekki fijótlega. Geri hún það sé
möguleiki á að kenna fram að jólum
og færa próf fram í janúar.
SAMNINGAFUNDUR var hald-
inn í húsakynnum ríkissáttasemj-
ara í gær í kjaradeilu MATVIS
(Matvæla- og veitingasambands ís-
lands) og Samtaka atvinnulífsins,
en sambandið hefur boðað verkfall
um 1.200 félagsmanna sinna frá kl.
19 föstudaginn 24. nóvember nk.
takist samningar ekki fyrir þann
tíma.
Formaður MATVÍS, Níels S. 01-
geirsson, sagði við Morgunblaðið í
gærkvöldi að þokast hefði í já-
kvæða átt til samkomulags. Það
væri vilji beggja samningsaðila að
klára málið áður en til verkfalls
kæmi. „Við fömm fetið,“ sagði Ní-
els. Áfram verður fundað í kjara-
deilunni hjá ríkissáttasemjara í
dag.
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
situr í samninganefnd Samtaka at-
vinnulífsins. Hún sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi vera
bjartsýn á að deilan við MATVÍS
leystist fyrir boðað verkfall. Agæt-
lega hefði miðað á fundinum í gær.
MATVÍS er heildarsamtök iðn-
aðarmanna í matvæla- og veitinga-
greinum, þ.e.a.s. bakara, fram-
reiðslumanna, kjötiðnaðarmanna,
matreiðslumanna, nema og annarra
sem starfa við framreiðslu, fram-
leiðslu, matreiðslu og sölu á mat-
vælum. Ef til verkfalls kemur
stöðvast því rekstur veitingahúsa,
kjötvinnslufyrirtækja og brauð-
gerða um allt land.
Hjá sáttasemjara var einnig
fundað í gærkvöldi í kjaradeilu
skipstjórnarmanna, kokka og bryta
á kaupskipum og ferjum. Þeir hafa
boðað verkfall frá og með næsta
fimmtudegi, takist samningar ekki
fyrir þann tíma. Níels sat þann
fund einnig og vildi hann lítið segja
um möguleika á samningi fyrir
fimmtudaginn. Fundur vegna
þeirra deilu verður hjá sáttasemj-
ara síðar í dag.
Trilla dregin til
GUÐRÚN HF, trilla frá Hafnar-
firði, með þremur mönnum um
borð, varð vélarvana og rafmagns-
laus um 18 sjómílur norðvestur af
Garðsskaga síðdegis í gær og kom
togarinn Háey frá Vestmannaeyj-
um Guðrúnu til bjargar, eftir að
hafa séð til neyðarblyss frá henni.
Þyrla og varðskip Landhelgis-
gæslunnar voru til taks ef með
þyrfti, en til þess kom ekki. Háey,
sem var á leið til Hafnarfjarðar af
veiðum fyrir vestan land, tók trill-
una í tog. A leiðinni til Hafnar-
fjarðar í gærkvöldi slitnaði taugin
tvisvar sinnum og tafði það förina
nokkuð.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Óskar Þór Kristjánsson, skip-
stjóra Háeyjar, í gærkvöldi átti
hafnar
hann eftir um 19 mflna siglingu til
Hafnarfjarðar og reiknaði með að
koma til hafnar um tvöleytið í nótt.
Veður var gott þegar Guðrún bil-
aði og hamlaði ekki ferðinni í land,
að sögn Óskars Þórs. Hann sagði
skipverja vera í góðu ásigkomu-
lagi, Háeyjarmenn hefðu náð að
koma heitum kaffisopa til þeirra,
því ekki hefði veitt af í kuldanum.
Fimm pilt-
ar réðust á
húsvörð
LÖGREGLAN í Reykjavík var
kvödd á vettvang um miðjan dag í
gær að Menningarmiðstöðinni í
Gerðubergi í Breiðholti þegar til-
kynnt var um árás unglingspilta á
húsvörð Gerðubergs.
Verið var að vísa fimm piltum úr
húsi vegna óspekta, að sögn lög-
reglu, þegar einn þeirra, 15 ára að
aldri, réðist að húsverðinum. Lá
hann óvígur eftir og var fluttur á
slysadeild með áverka á hálsi og
sprungna vör. Vitni urðu af árásinni
og fer lögreglan með rannsókn máls-
ins.
--------------
Rjúpnaskyttur
í sjálfheldu
LÖGREGLAN á Selfossi fékk til-
kynningu frá þremur rjúpnaskyttum
á Fagradalsfjalli um miðjan dag í
gær, um að þær væru í sjálfheldu á
fjallinu sökum hálku. Lögreglan
gerði björgunarsveitum viðvart sem
voru í viðbragðsstöðu þegar ijúpna-
skyttumar létu vita að þær hefðu á
endanum komist niður af fjallinu,
heilar á húfi.
-------------
Skjávarpa
stolið
SKJÁVARPA var stolið síðdegis í
gær úr einni kennslustofu Háskólans
í Reykjavík. Lögreglan fékk tilkynn-
ingu um þjófnaðinn um sexleytið og
er talið að að skjávarpinn, sem er að
verðmæti 300-400 þúsund krónur,
hafi horfið úr stofunni milli klukkan
fjögur og fimm í gær, en kennt var í
stofunni fram að þeim tíma.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jólaljós
Starfsmenn á vegum Reylqavíkur-
borgar unnu við það í gærkvöldi að
skreyta miðborgina með jólaljósum
sem lýsa munu upp aðventuna.
Sérblöð í dag
48 SiWJR
A ÞRIÐJUDOGUM
Heimili
22 SÍMIfi
Jóhannes Harðarson semur
við Groningen/Bl
Manchester United heldur
sínu striki í Englandi/B8
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is