Morgunblaðið - 21.11.2000, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hagnaður Delta
hf. meiri en
reiknað var með
Samræmd vísitala neysluverðs
í EES-ríkjum
Hækkunin fyrir
Island um 1 %
HAGNAÐUR af rekstri Delta hf.
fyrstu 9 mánuði ársins var 166 millj-
ónir króna en endurskoðuð áætlun
fyrir árið í heild sinni gerði ráð fyrir
162 milljóna króna hagnaði. í til-
kynningu til Verðbréfaþings íslands
segir að afkoman hafi tekið miklum
stakkaskiptum frá fyrra ári en allt
árið 1999 var 59,5 milljóna tap á
starfseminni.
Hreint veltufé frá rekstri nam 350
milljónum króna á tímabilinu sem er
einnig veruleg aukning frá 1999 en
þá nam veltufé frá rekstri 149 millj-
ónum króna fyrir allt árið. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
(EBITDA) fyrstu 9 mánuði ársins
nam 467 milljónum króna. Gert er
ráð fyrir að afkoma síðasta ársfjórð-
ungs verði ekki lakari en þess þriðja.
Gengistap félagsins, sem helst má
rekja til veikingar krónunnar, er um
45 milljónir fyrstu 9 mánuði ársins.
Um 70% af tekjum félagsins eru til
komnar vegna sölu á erlenda mark-
aði en um 30% vegna sölu á innan-
landsmarkað.
Lyfjahugvit 20% af sölutekjum
Fram kemur í tilkynningunni frá
Delta hf. að hlutur lyfjahugvits hafi
vaxið mikið og sé nú um 20% af sölu-
tekjum útflutningssviðs en 80% er
sala á lyfjum. Delta hf. hefur mark-
aðsleyfi í um 20 löndum og hefur sal-
an á Þýskalandsmarkaði, sem er
stærsti markaður félagsins, vaxið
mikið en einnig hefur náðst mikil-
vægur árangur við að koma lyfjum
félagsins inn á ný markaðssvæði.
Töfluframleiðsla fyrirtækisins hefur
aukist mjög og stefnir í að hún nái
hálfum milljarði taflna á árinu.
Rekstrargjöld Delta hf. fyrstu 9
mánuði ársins námu 1.203 milljónum
króna. Eigið fé í lok tímabilsins var
1.475 milljónir króna og hafði hækk-
að um 182 milljónir frá áramótum.
„Það er stefna Delta að halda
áfram að fjölga þróunarverkefnum
félagsins og efla enn frekar sölu- og
markaðsstarf innanlands sem utan.
Á undanförnum mánuðum hefur
aukin áhersla verið lögð á markaðs-
starf innanlands auk þess sem nýir
stórir samstarfssamningar á sviði
þróunar og markaðssetningar á er-
lendum mörkuðum hafa verið undir-
ritaðir, nú síðast við indverska lyfja-
fyrirtækið Dr. Reddýs Group sem
talið er að muni skila fyrirtækinu 400
milljónum króna í tekjur á næstu ár-
um. Talsverð fjölgun starfsmanna
hefur orðið á árinu samfara auknum
umsvifum og eru starfsmenn Delta
nú um 170.
Horfur á fjórða ársfjórðungi eru
góðar og sala á stærstu mörkuðum
gengur vel. Nýlega hófst útflutning-
ur til Hollands á húðlyfinu Ketok-
onazol sem ætlað er til meðferðar á
flösu og sveppasýkingum í hársverði.
Lyfið er í formi fljótandi sápu og er á
markaði á Islandi undir heitinu
Dermatín. Er það fyrsta lyfið sem
ekki er í töflu- eða hylkjaformi sem
Delta flytur út í einhverjum mæli,“
segir í tilkynningunni frá Delta hf.
SAMRÆMD vísitala neysluverðs í
EES-ríkjum var 107,2 stig
(1996=100) í október síðastliðnum
og stóð í stað frá september. í frétt
frá Hagstofu íslands kemur fram að
á sama tíma hækkaði samræmda
vísitalan fyrir ísland um 1,0%. Frá
október 1999 til jafnlengdar á þessu
ári var verðbólgan, mæld með sam-
ræmdri vísitölu neysluverðs, 2,4% að
meðaltali í ríkjum EES, 2,7% í Evru-
ríkjum og 3,8% á íslandi. Mesta
verðbólga í Evrópu á þessu tólf mán-
aða tímabili var á Irlandi 6,0% og í
Lúxemborg 4,3%. Verðbólgan var
minnst, 1,0%, í Bretlandi, og 1,3% í
Svíþjóð.
Eurostat, hagstofa Evrópusam-
bandsins, hefur endurskoðað vinnu-
reglur við framsetningu, birtingu og
afstemmingu á samræmdri vísitölu
neysluverðs. Við það hafa vísitölur,
vogir og verðbólgutölur þessa árs
verið leiðréttar fyrir nokkur lönd,
þ.á m. ísland, sem og samtölur
vegna Evru-svæðisins, ESB og
EES. Leiðréttingin felur í sér 0,3%
hækkun á samræmdu vísitölunni
fyrir Island.
Samræmd vísitala neysluverðs er
reiknuð af hagstofum EES-ríkja í
hverjum mánuði. Munurinn á sam-
ræmdu vísitölunni og íslensku
neysluverðsvísitölunni er fyrst og
fremst sá að eigið húsnæði er ekki
með í samræmdu vísitölunni.
Verðbólga í
nokkrum ríkjum
Breyting samræmdrar neysluverðs-
vísitölu frá ág. 1999 til ág.2000
Irland
Lúxemborg 4,3%
Spánn 4,0%
Grikkland 3,8%
— ísland 3,8%
Belgía 3,7%
Portúgal 3,7%
Bandaríkin 3,4%
Finnland 3,4%
Holland* 3,2%
Noregur 3,1%
Danmörk 2,8%
Ítalía 2,7%
Þýskaland 2,4%
Frakkland* 2,1%
Sviss 2,1%
Austurríki* 1,9%
Svíþjóð 1,3%
Bretland 1,0%
Japan -0,8%
Meðalt. EMU* Bi-Slt' 2,7%
Viðsk.lönd** 2,5%
Meðalt. ESB* 2,4%
Meðalt. EES* HBl 2,4%
' Bráðabirgðatölur " Skv. gengisvog Seðlab. Ist
I EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðs-
vísltðlu en í Bandar,, Japan og Sviss við neysluverðsvísitðlur.
ÓÁÞREIFANLEGAR EIGNIR
(INTELLECTUAL CAPITAL / KNOWLEDGE MANAGEMENT)
MG
Annie Brooking er einn
frumkvöðla á sviði
vitsmunalegs auðs.
Sérfræðisvið hennareraukið
bókfært virði fyrirtækja,
vegna óáþreifanlegra eigna.
Á því sviði hefur hún þróað
Draumamiðann, aðferð sem
gerir fyrirtækjum kleift að meta stöðu sína með
tilliti til breytilegra markaða, innra skipulags og
mannlegra og vitsmunalegra auðlinda. Matið
er síðan undirstaða þróunar og breytinga á
þessum auðlindum. Hefur þessi aðferð t.d.
aukið möguleika nýrra hugbúnaðarfyrirtækja á
að fá fjárfesta úr 1% í 13%.
Annie hefur unnið í hátæknigeiranum í 30 ár,
sem kennari í tölvunarfræði hjá South Bank
University, Brunel University og fleirum. Hún
var stofnandi og forstöðumaður háskólatengds
rannsóknarseturs um þróun gervigreindar fyrir
iðnað, vöruþróunarstjóri hjá Sun Microsystems,
markaðsstjóri Symbolics Inc. og ráðgjafi hjá
MAXWEST, en starfar nú sem sjálfstæður
ráðgjafi. Hún vinnur við að meta
hugbúnaðarfyrirtæki fyrir fjárfesta í Evrópu og
Bandaríkjunum. Annie skrifaði bækurnar
Intellectual Capital, Intellectual Capital - Core
Asset for the Third Milennium Enterprise og
Corporate Memory - Strategies for Knowledge
Management, auk fjölda greina.
Þann 6. desember, kl. 09.00 - 17.00, stendur
Stjórnendaþjálfun Gallup fyrir námskeiði með
Annie Brooking. Markmið námskeiðsins er að
þátttakendur:
• Átti sig á mikilvægi og hlutverki óáþreifanlegra
eigna í fyrirtækjum í dag
• Hanni Draumamiðann fyrir tiltekið markmið
fyrirtækisins
• Beri kennsl á mikilvægar þekkingarstöður
innan fyrirtækisins
• Undirbúi aukna þekkingarmiðlun innan
fyrirtækisins
• Beri kennsl á hvaðan þekking sprettur upp
innan fyrirtækisins og hvað gleypir hana
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og
vinnuverkefnum. Vegna verkefnanna er æskilegt
að það séu tveir þátttakendur frá hverju fyrirtæki.
Þátttökugjald er 40.000 kr., veitingar og
námsgögn innifalin. Hámarksfjöldi þátttakenda
er 26 manns.
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Hrönn Pétursdóttur,
netfang hronn@img.is eða sími 540-1000.
Vertu í þjálfun
Stjórnendaþjálfiin Gallup
Hagnaður
Hampiðj-
unnar146
milljónir kr.
HAGNAÐUR Hampiðjunnar og
dótturfélaga var 146 milljónir króna
fyrstu 9 mánuði þessa árs. Rekstrar-
tekjur samstæðunnar voru 1.714
milljónir króna. Rekstrargjöld voru
1.603 milljónir króna og hagnaður án
fjármagnsgjalda og fjármunatekna
var 111 milljónir króna. Sambærileg-
ur hagnaður í 6 mánaða uppgjöri fyr-
irtækisins var 97 milljónir króna og
93 milljónir fyrir allt árið í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hampiðjunni hf. voru fjármagns-
gjöld og fjármunatekjur neikvæð
sem nemur 51 milljón króna. í 6
mánaða uppgjörinu var þessi liður
neikvæður um 26 milljónir króna og
hefur því versnað um 25 milljónir
króna og stafar það af lækkun ís-
lensku krónunnar. Hagnaður íyrir
aðrar tekjur og gjöld var því 60 millj-
ónir króna. Aðrar tekjur og gjöld
voru 153 milljónir króna.
Hagnaður fyrir tekju- og eigna-
skatt var 213 milljónir króna. Tekju-
og eignaskattur var 68 milljónir
króna og hagnaður Hampiðjunnar
fyrstu 9 mánuði þessa árs var þannig
146 milljónir króna. Gert er ráð fyrir
að heildartekjur þessa árs verði um
2.200 milljónir króna sem er 47%
aukning á milli ára, en heildartekjur
síðasta árs voru 1.495 milljónir
króna.
------*-+-*-----
Tap OZ.COM
864 millj. kr.
TAP OZ.COM fyrstu níu mánuði
ársins var tæplega 9,8 milljónir
bandaríkjadala, eða um 864 milljónir
króna, en á sama tímabili í fyrra var
tapið 1,9 milljón bandaríkjadala, eða
um 170 milljónir króna. Heildartekj-
ur fyrirtækisins fyrstu níu mánuði
ársins námu tæplega 5,3 milljónum
bandaríkjadala, eða 464 milljónum
króna, en voru 295 milljónir króna
fyrir sama tíma árið 1999. Þetta er
aukning upp á 57,5%.
Tap á rekstri OZ.COM á þriðja
ársfjórðungi þessa árs varð 278
milljónir króna fyrir afskriftir og
fjármagnsliði, að því er fram kemur í
upplýsingum fyrirtækisins um af-
komuna á þriðja ársfjórðungi ársins
2000. Þar kemur fram að tekjur fé-
lagsins á tímabilinu námu ríflega 1,9
milljónum bandaríkjadala, eða um
172 milljónum króna, sem er tæp-
lega tvöföldun tekna frá sama tíma í
fyrra.
------♦-+-♦-----
GPRS hjá
Landssímanum
um áramót
STEFNT er að því að GPRS-tæknin,
þráðlaus sítenging við Netið í gegn-
um GSM-síma, verði tilbúin hjá
Landssíma íslands öðru hvorum
megin við næstkomandi áramót, að
sögn Þórarins V. Þórarinssonar, for-
stjóra fyrirtækisins. Hann segir að
byrjað sé á uppsetningu nauðsynlegs
búnaðar í símstöðvum.
„Vandræðin við allar þessar fram-
farir í símamálunum eru þau að þeim
fylgja kaup á nýjum símum,“ segir
Þórarinn. „Þetta á einnig við um
GPRS-tæknina. Markaðurinn fyrir
þessa þjónustu er því lítill í upphafi,
annars vegar vegna þess að lítið er
til af tækjum, og hins vegar vegna
þess að fáir hafa tekið þessa tækni
upp. Við eigum því ekki von á að mik-
il eftirspurn verði eftir þessari þjón-
ustu fyrr en á næsta ári.“
••• •$