Morgunblaðið - 21.11.2000, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLADIÐ
LISTIR
Hamrahlíðarkórinn á lokatónleikunum í tónleikaröð Tónskáldafélags Islands
Frumflutt verk
eftir Hildig’unni
Rúnarsdóttur
ÍSLENSK kórtónlist frá
síðustu tveimur áratugum
tuttugustu aldar er á efnis-
skrá lokatónleikanna í
þriðju og síðustu tónleik-
aröð Tónskáldafélags ís-
lands í Listasafni Islands
kvöld, þar sem Hamrahlíðar-
kórinn syngur undir stjóm
Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Kórinn flytur tónsmíðar eftir tíu
íslensk tónskáld, elsta verkið er sam-
ið árið 1981 og hið yngsta 1999; Nú
skil ég stráin eftir Hildigunni
Rúnarsdóttur. Það verk verður
frumflutt á tónleikunum í kvöld en
Hildigunnur skrifaði það við ljóð eft-
ir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
fyrir systur sína, Hallveigu Rún-
arsdóttur, sem syngur einsöng, og
Hamrahlíðarkórinn. Á efnisskránni
eru einnig tvö lög sem nú verða flutt
í fyrsta sinn á tónleikum; lög
Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar
við ljóð Jónasar Hallgrímssonar,
Ferðalok og Enginn grætur
Islending. Lögin vom samin
fyrir Hamrahlíðarkórinn 1993
og frumflutt í leikritinu Ferða-
lokum eftir Steinunni
Jóhannesdóttur sama
ár. „Ferðalok era eitt
frægasta ástarljóð íslenskra bók-
mennta sem varla nokkur maður
hefur haft dirfsku til að tónsetja,“
segir Þorgerður og fagnar því að fá
tækifæri til að flytja það á tónleik-
um.
Þá verða flutt verkin Brot eftir
Þorkel Sigurbjömsson, Örvænting
eftir Hauk Tómasson, Ungæði - Vet-
ur eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Kvöldvísur um sumarmál eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, Haust -
Þögn - Vor eftir Jón Nordal,
Afmorsvísa eftir Snorra Sigfús Birg-
isson, Limrur eftir Fjölni Stefánsson
og íslenskt rapp (Rondo fantastico
VI) eftir Atla Heimi Sveinsson.
Þorgerður segir hugmyndina að
Hamrahlíðarkórinn syngur í Listasafni Islands í kvöld. Myndin er tekin
af hluta kórsins á æfingu fyrr á þessu ári.
tónlistarhátíð Tónskáldafélags ís-
lands, íslensk tónlist á 20. öld, stór-
kostlega og dáist að stjóm Tón-
skáldafélagsins fyrir að hafa gert
hana að veraleika. „Mér finnst það
mjög magnað af þeim,“ segir hún.
Hamrahlíðarkórinn og Þorgerður
era einu flytjendurnir sem hafa tekið
þátt í öllum þremur tónleikaröðum
hátíðarinnar. „Kórinn tók að sér fyr-
ir ári að flytja tónverk sem að ein-
hveiju leyti sýndu þróunina í ákveð-
inni tegund kórtónlistar liðinnar
aldar,“ segir hún og bætir við að
verkefnavalið hafi í flestum tilfellum
verið einskorðað við tónlist verald-
legs eðlis og án hljóðfæra og til þess
að gefa sem breiðasta mynd af tíma-
bilinu hafi styttri tónsmíðar haft for-
gang.
Tónleikarnir í Listasafni Islands
hefjast kl. 20 í kvöld og era á dag-
skrá Reykjavíkur - menningarborg-
ar Evrópu árið 2000.
Einkasafn
Berg-
gruens
selt þýska
ríkinu
ÖRYGGISVÖRÐUR sést hér
standa milli verkanna Gulu peys-
unnar og Konu í stól, sem eru tvö
þeirra verka spænska listamanns-
ins Pablos Picassos sem finna má
á Stuehler Bau, einkasafni Þjóð-
verjans Heinz Berggruens.
Metið á fimmtán millj-
arða íslenskra króna
Um eitt hundrað og þrettán
málverk og skúlptúra eftir lista-
menn á borð við Picasso, Klee og
van Gogh er að finna í einka-
safninu, sem þýska fjármálaráðu-
neytið hefur nú samþykkt að
kaupa.
Safn Berggruens, sem hingað
til hefur verið að láni hjá Berlín-
arborg og er metið á fjögur
hundruð milljónir marka eða
rúmlega fimmtán milljarða ís-
lenskra króna, mun þar með
verða eign þýska ríkisins.
Háskólatónleikar
í Norræna húsinu
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða í
Norræna húsinu á morgun, mið-
vikudag, kl. 12.30.
Þórann Elfa Stefánsdóttir syng-
ur við undirleik Evu Þyriar
Hilmarsdóttur. Á dagskránni eru
verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson,
Jón Ásgeirsson, C. Armstrong
Gibbs og C.V. Stanford.
Þórunn Elfa Stefánsdóttir nem-
ur við Söngskólann í Reykjavík en
Eva Þyri Hilmarsdóttir nemur
píanóleik við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Báðar munu þær ljúka
lokaprófum á vori komanda.
Tónleikarnir taka um það bil
hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 500 kr. Ókeypis
er fyrir handhafa stúdentaskír-
teina.
jKjyi-2000
/ Þridjudagur 21. nóvember
LISTASAFN ÍSLANDS KL. 20
íslensk kórtónlist - Hamrahlídarkór-
inn
Lokatónteikar þriðja og síðasta hluta
hátíðar Tónskáidafétagsins, sem
hófst 18. október og lýkur 21. nóv-
ember. Hátíðin hefur verið tiieinkuð
tónsmíðum frá 1985 og til aldarloka.
Stjórnandi Hamrahlíðarkórsins er
Þorgerður Ingólfsdóttir. Á efnisskrá
er íslensk kórtónlist frá síðustu
tveimur áratugum.
Ljósadýrð
MYNDLIST
& HÖNNUN
Listasafn ASf,
Ásmundarsal
LJÓSAHÖNNUN
Lovorka Banovic, Monna Blegvad,
Aleksej Iskos, Igor Kolobaric, Hans
E. Madsen, Aðalsteinn Stefánsson,
Carlo Volf & Janne 0hre. Til 3. des-
ember. Opið þriðjudaga til sunnu-
daga frá kl. 14-18.
LJÓSASÖGUR er sýning í Lista-
safni ASÍ sem Hönnunarsafn Islands
í Garðabæ styrkir í samráði við Raf;
hönnun, EPÁL og Samskipti ehf. í
skemmstu máli fjallar sýningin um
lýsingu og ljós af hvers konar toga.
Jafnframt því að vera titill sýning-
arinnar er Ljósasögur - eða Lysfor-
tællinger eins og heitið hljómar á
dönsku -félagsskapur sem stofnaður
var nákvæmlega fyrir þremur árum,
eða í nóvember 1997. Á hverju ári set-
ur hópurinn saman eina sýningu í
Danmörku, sem síðan fer á flakk til
annarra landa.
Ljósasögur hefur höfuðstöðvar
sínar í Danmörku en meðlimimir era
af ýmsu þjóðerni eins og nöfn hönn-
uðanna bera með sér. Ávarp þeirra
eða „manifest" er dæmigert fyrir
þessa breidd. Þátttakendurnir segj-
ast vera í könnunarleiðangri á svæði
þar sem fátt sé um takmörk. Frá hinu
þekkta halda þeir á vit hins óþekkta
og láta kylfu ráða kasti um afleiðing-
amar. Nýjar gátur geta af sér form
sem leita tilgangs sem heimtar nýtt
form. Sýningar Ljósasagna era við-
komustaðir á ferðalagi þessara stöð-
ugt Ieitandi listamanna.
Með sýningum sínum hefur hópur-
inn smám saman haslað sér völl og
framleiðendur hafa bragðist við með
að snara nokkram hugmyndum af
hverri sýningu á markað. Þannig
virka sýningar hópsins sem hug-
myndabanki fyrir framleiðendur, og
svo virðist sem þar með hafi slíkum
hönnunarsýningum hlotnast nýtt
Ljósmynd/Halldór B. Kunólfsson
Islendingurinn Aðalsteinn Stefánsson er einn af at-
hyglisverðum listamönnum sem taka þátt í sýning-
unni Ljósasögur, í Listasafni ASÍ.
hlutverk með við-
snúningi á sjálfu
framleiðsluferl-
inu. I staðinn fyrir
að hönnunarfyrir-
tæki sýni væntan-
legum neytendum
framleiðslu sína
taka hönnuðirnir
af skarið og sýna
tilraunir sínar
mögulegum fram-
leiðanda í von um
að sá hinn sami
falli fyrir tilraun-
inni og taki hana
til framleiðslu.
Um leið skapast
mun meiri eftir-
vænting í tengsl-
um við viðkom-
andi sýningu.
Verkin sem þar
era til sýnis era
ekki naglrekin
heldur sjá gestir
tillögur að ljósum
sem þeir geta
sjálfir tekið af-
stöðu til á fram-
stigi hönnunarinn-
ar.
Ef til vill er hér
kominn vísir að
nýrri tegund sýninga þar sem lista-
menn gefa tóninn að verki fremur en
fullgert verk. Það hefur oft hvarflað
að okkur nútímamönnum að kominn
væri tími til að skilja milli listamanns-
ins og framleiðandans, eða öllu held-
ur að tími væri kominn til að brjóta
upp framleiðsluferli listarinnar til að
hverfa aftur til þeirra hátta þegar
listframleiðsla var teymisvinna. Heit-
ið vísindamaður segir okkur ekki
lengur neitt því við spyrjum að bragði
að sérþekkingu mannsins. Hví skyldu
listamenn sætta sig við minni sérhæf-
ingu en vísindamenn, eða hví skyldi
arkiteldnn - svo dæmi sé tekið -
sætta sig við að aðrir byggi verkið
sem hann hefur upp hugsað og útfært
á teikniborðinu? Margar spumingar
vakna við skoðun þessarar fallegu
sýningar, einmitt sem varða takmörk
lista og hönnunar, eða öllu heldur,
hvar listin tekur enda og hönnunin
læðist inn. Eins og ávallt þegar Ijós
og lýsing er annars vegar, kvikna til-
finningar í tengslum við hugmyndir
og ævintýraheimur opnast á mörkum
margra vídda. Þannig er sýning
Ljósasagna í Listasafni ASI; list fyrir
augað, tilfinningamar og hugarflug-
ið, svo allar gáttir opnast í einu og all-
ir vegir verða færir.
Halldór Björn Runólfsson