Morgunblaðið - 21.11.2000, Page 38

Morgunblaðið - 21.11.2000, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fjórar bækur frá Fósturmold NÝ BÓKAÚTGÁFA, Fósturmold ehf., sendir frá sér fjórar bækur á þessu hausti. Prinsessur eftir Leó E. Löve. Að sögn höfundar er þessi bók byggð á reynslu hans sem ungs lög- fræðings af málum er tengdust kyn- ferðislegri misnotkun. „Þessari bók verða ekki gerð skil í fáum orðum. Hana þarf því annað hvort að lesa eða láta ólesna,“ segir í kynningu. Bókin er 203 blaðsíður. Leiðb. verð: 2.980 kr. Ferð um ísland 1809 eftir William Jaekson Hooker í þýðingu Arngríms Thorlacius. „Þetta er ferðasaga ungs, bresks grasafræðings, William Jack- son Hooker, sem hingað kom sum_- arið 1809 með ensku kaupfari. Á þessum tíma er breska heimsveldið sennilega voldugasta riki í Evrópu, en ísland að sama skapi einhver af- skekktasti og aumasti útnári hennar. Þetta er því lýsing heimsmanns á framandi landi, byggðu frumstæðu fólki - skítugu, lúsugu, sjúku, trú- ræknu en svolítið hjátrúarfullu, blá- fátæku en þó ótrúlega gestrisnu. Þetta var í stjórnartíð Napóleons og bandamenn hans Danir áttu í stríði við Breta. íslendingar voru kúgaðir af dönskum nýlenduherrum sem voru í herkví Breta, sem aftur vildu Rannveig I. E. Löve fá að stunda hér verslun. Og mitt í öllu saman stóð danskur ævintýra- maður og Englandsvinur, Jörgen Jörgensen, og kippti í spotta og atað- ist. Jörundi hefur jafnan verið lýst sem trúði, en hvemig gat trúðurinn tekið öll völd í landinu? Hver var fííl- ið?“ Bókin er 250 blaðsíður. ISBN 9979-60-584-7. Leiðb. verð: 3.980 kr. Völuspá, Sonatorrek og 12 lausa- vísur Egils. Þráinn Löve samdi skýr- ingar við Völuspá. Hér eru nýjar og byltingarkenndar skýringar á Völu- spá með gerbreyttum og frumlegum túlkunum á mörgum atriðum í þessu merka kvæði. Þráinn Löve, fyrrum konrektor við Kennaraháskóla Is- lands, hefur á undanfömum ámm unnið að þessu verki og setur hér fram margar kenningar, sem varpa ljósi á torskilin atriði og gera kvæðið allt ljóslifandi. Sonatorrek og 12 lausavísur EgOs. Margar af vísum Sonatorreks em hér skýrðar betur er fyrr hefur tekist og verður kvæðið hér samfelld heild með rökréttri stígandi alit til enda. Bókin er 225 blaðsíður. ISBN 9979-60-585-5. Leiðb. verð: 2.980 kr. Myndir úr hugskoti eftir Rann- veigu I.E. Löve. Rannveig, sem varð 80 ára á síðasta sumri, er elst 15 systra sem kenna sig við Réttarholt í Sogamýri í Reykjavík. I þessari bók rifjar hún upp atvik úr ævi sinni, bregður upp myndum af atvinnu- og lifnaðarháttum þess tíma sem hún var að alast upp og segir frá því hvernig hún braust til mennta á krepputímum. I bókinni segir hún frá baráttu við berklaveikina, sem lagði svo ótal margt ungt fólk að velli. Sjálf var hún höggvin, eins og kallað var og sigrað- ist á berklunum. Hún segir frá brautryðjandastarfi sínu sem sérkennari og lýsir á lifandi hátt þeirri lífsbaráttu sem hún þurfti að heyja til þess að komast af og búa í haginn fyrir komandi tíma. Bókin er 320 blaðsíður. ISBN 9979-60-582-0. Leiðb. verð: 4.980 kr. LeóE. Löve TOJVLIST Dómkirkjan KÓRTÓNLEIKAR Tónlistardagar Dómkirkjunnar. Verk eftir Grieg, Bmckner, Saint- Saens, Alain, Dvorák og Fauré. Margrét Bóasdóttir sópran, Berg- þór Pálsson barýton; Anna Guðný Guðmundsdóttir, pianó; Dómkórinn undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Laugardaginn 18. nóvember kl. 17. MIKIL aðsókn var að tónleikum Dómkórsins á laugardaginn og hvert sæti skipað hlustendum, jafnt uppi sem niðri. Því miður drekkti mann- fjöldinn um leið því litla af auknum eftirhljómi sem náðst hefúr með und- anfömum endurbótum á kirkjunni innan stokks, og voru hvorki kór- né einsöngvarar par öfundsverðir af því að þurfa að syngja við álíka gjöfulan hljómburð og gæfist í vörulager svampdýnuframleiðanda. Kraftur og hljómfylling koma við slíkar aðstæður að litlu haldi; aðeins fágun og ná- kvæmni skila sér þokkalega, enda virtist stjómandinn gera sér ljóst, bæði í verkefnavali og túlkun, hvað hljómlistarflutningur í höfuðkirkju landsmanna er alvarlegum takmörk- unum háður. Raunar mætti taka svo djúpt í árinni að fullyrða, að Dóm- kirkjan verði hvað hljómburð snertir aldrei viðunandi hljómlistarhús, og í engu samanburðarhæft við fjölda þeirra sóknarkirkna prófastsdæmis- ins sem standa nú að mestu ónýttar utan messutíma eftir tilkomu Salarins á Digranesi. Vel kann að vera að undirritaður sé viðkvæmari að þessu leyti en gengur og gerist. En sömuleiðis er eins lík- legt, að fjöldi þeirra sem fylltu kirlquna umrætt síðdegi og meta hljómburð mikils hafi látið þau sjón- Kyrrlát- ur náðar- geisli armið þoka íyrir öðrum. Alltjent var af miklum og hlýjum undirtektum áheyrenda ekki annað að sjá en að menn hefðu mikla ánægju af flutn- ingnum, þó að íyrir þeim sem hér rit- ar hafi hljómleysið sett verulegt strik í tónlistarupplifúnina. Örh'til bót í máli hefði kannski verið að vandaðri tón- leikaskrá sem segði hlustendum írá höfundum og verkum, og hefði hugur áheyrenda þá ugglaust beinzt eitt- hvað frá fyrrgreindum vanda, en því var ekki að heilsa. Hið stutta a cappella kórverk Ave, maris stella eftir „Edward" Grieg (eins og tónleikaskráin vildi enska hann) er meðal örfárra kórverka Griegs fyrir blandaðan kór. Dómkór- inn virtist þar heldur daufur og jafnvel svolítið hniggjam í inntónun, og hélzt það áfram í Locus iste Bruckners næst á eftir, þrátt fyrir fallega fíngert niður- lag. Það var ekki fyrr en kom að ís- lenzkum texta, í Drottinn ég er þess ekki verður eftir Camiile Saint-Saéns, að hljómurinn tók að opnast og kórinn fór að nálgast sitt bezta. Margrét Bóasdóttir söng tæran og fallegan einsöng í Vocalise Dorienne - Ave Maria eftir Jehan Alain, en varla með þeirri markvissu mótun er þyrfti til að gæða verkið spennu, og svipað gilti um hljómmikinn söng Bergþórs Pálssonar í Drottinn er minn hirðir eftir Antonin Dvorák, er var mikið til eins út í gegn. Píanóleikur Önnu Guð- nýjar Guðmundsdóttur var í sam- ræmi við sönginn og fremur til hlés, en þó áferðarfallegur. Píanóið gekk í skarð kammersveit- ar í hinni hálftíma löngu Sálumessu Gabriels Fauré sem var síðust á dag- skrá, og hefði vissulega verið fróðlegt að geta lesið sér til í betur frágenginni tónleikaskrá um hvaðan sú útgáfa væri runnin, hafí ekki einfaldlega ver- ið leikið upp úr píanóútdrætti fyrir kóræfingar. Enda þótt kórinn sé í for- grunni í frumgerð tónskáldsins og píanóparturinn væri ágætlega út- færður af Önnu Guðnýju væri samt synd að segja að slaghörpuútdráttur- inn megnaði að lyfta verkinu upp á sama plan og hljómsveitarfrumgerð- in, ekki frekar en vélritaður texti megni að vekja sömu áhrif og listfeng skrautskrift. Þetta var dáhtið svipað því að skoða regnboga af svart-hvítri Ijósmynd. Hraðaval stjórnandans verkaði oft í hægara lagi, en trúlega hefur þó mestu um ráðið skraufþurr akústíkin, sem sló á dauðaþögn um leið og hverri hendingu lauk. Einsöngvaramir tveir stóðu sig með mestu prýði, þótt ekki virtust þeir ýkja innblásnir af ómvist- inni, og lái þeim hver sem vill. Kórinn hlaut í stöðunni sem fyrr sagði að leggja mest upp úr fágun, nákvæmni og innileika. Tókst honum víða mjög vel upp með tærum og vel sammótuð- um söng í góðu jafnvægi, þrátt fyrir helzti mikla yfirvikt í sópran og svolít- ið afturreigingslega tenóra í Requiem aetemam. Þökk sé textaúrvinzun tón- skáldsins á Dies irae-þættinum er hin htla perla Faurés að mestu á ljúfari nótunum, enda hefðu meiriháttar efstadagsátök við þessar aðstæður, og með píanói einu til stuðnings, tæp- lega komið vel út. En fíngerð fágun síðrómantíska meistarans, kannski svipfegurst í In paradisum-lokaþætt- inum, skilaði sér Ijómandi vel í tján- ingu Dómkórsins og yljaði hlustend- um um hjartarætur á hráköldu árvetrarkvöldi líkt og kyrrlátur náð- argeisli af himnum ofan. Ríkarður Ö. Pálsson Nýr fíðlukonsert TÖNLIST Geislaplötur HAUKURTÓMASSON Haukur Tómasson: Konsert fyrir fiðlu og kammersveit (1997), Ár- hringur (1994), Spírall (1992), Stemma (1997). Jón Ásmunds- son: Stemma (hljóðritað 1966). Einleikur: Sigrún Eðvaldsdóttir (fiðla). Hljómsveit: Caput En- semble. Hfiómsveitarstjóri: Guð- mundur Oli Gunnarsson. Heild- artími: 70’28. Útgefandi: Grammofon AB BIS (BIS- CD-1068).Verð:kr. 1.799. Dreifíng: Japis. ROBERT von Bahr er stofn- andi og aðaleigandi sænsku plötuútgáfunnar BIS, smáfyrir- tækisins framsækna. Nú á dög- um er BIS orðið eitt virtasta plötufyrirtæki heims enda er útgáfan þekkt fyrir vönduð vinnubrögð, góða tæknivinnu og vandaðan tónlistarflutning. Verk- efnavalið hjá BIS er afar fram- sækið og oft veltir maður því fyr- ir sér hvernig fyrirtækið þorir að taka þá áhættu sem felst í því að grafa upp gleymd tónskáld og hljóðrita jafnvel heildarútgáfu á tónlist þeirra. Ekki er það síður mikilvægt að þeir skuli gefa út verk yngri tónskálda sem risarn- ir á markaðnum líta ekki við. Meira að segja tónskáld frá jað- arsvæðum eins og Islandi og Færeyjum ná eyrum BIS. Robert von Bahr hlaut Fálkaorðuna árið 1996 og hafa ýmsir hlotið hana af minna tilefni. Nú hefur litið dagsins ljós nýr geisladiskur frá BIS með tónlist Hauks Tómassonar. Áður hefur BIS hljóðritað óperu Hauks, Fjórða söng Guðrúnar, og fékk sú útgáfa mikið lof gagnrýnenda erlendis (BIS-CD-908) enda þyk- ir verkið mjög áhugavert og til útgáfunnar vandað í alla staði. Svo er og um þennan nýja disk, hljóðfæraleikur er með ágætum og upptakan prýðileg en sárlega vantar aðgengilegra lesefni til skýringar. Þegar maður fær í hendur tónlist sem maður hefur aldrei heyrt áður og hún reynist í ofanálag strembin í meira lagi, þá eru góðar og skýrar upplýsingar í textahefti alveg bráðnauðsynlegt haldreipi. Texti Atla Ingólfssonar krefst talsverðrar undirstöðu- þekkingar í tónlistarfræðum og mér er til efs að hann nýtist hin- um almenna hlustanda til að skilja það sem hér fer fram. Und- irritaður er ýmsu vanur í þessum efnum en þegar um er að ræða tónlist eins og þessa er þörf á að- gengilegri skýringum. Og á ís- lensku, takk. Þegar bæði höfund- ur skýringartexta, tónskáldið og flytjendur eru íslenskir finnst mér ekki til of mikils mælst að lesefnið sé einnig skrifað á ís- lensku. Lausleg athugun á BIS- diskum í safni mínu leiddi í Ijós greinilega tilhneigingu BIS- manna til að notast við móðurmál tónskálds í skýringartextum: Skalkottas (gríska), Tubin (eist- neska), Kokkonen, Aho og Sibel- ius (finnska), Holmboe, Gade og Nielsen (danska) og Jón Leifs (ís- lenska) o.s.frv. Þannig að for- dæmið er líka fyrir hendi. Að mínu mati ber Konsertinn fyrir fiðlu og kammersveit frá 1997 höfuð og herðar yfir annað sem hér er flutt. Tónmálið í þessu verki er einnig hvað aðgengileg- ast og skýrir það e.t.v. þessa skoðun. Ekki verður heldur litið framhjá frábærum fíðluleik Sig- rúnar Eðvaldsdóttur sem breytir öllu í gull sem hún kemur nálægt. Óbrigðult tóneyra, framúrskar- andi tækni og einstök tilfinning fyrir framvindu hlýtur að skipa Sigrúnu í fremsta flokk fíðluleik- ara. Þetta heyrist glögglega í mínímalískum öðrum kafla konsertsins sem tónskáldið kýs aðeins að nefna II og er glettu- kafli (held ég) - eins konar eilífð- arvél (perpetuum mobile). Yfir- bragð hæga kaflans (III) er íhugult frekar en ljóðrænt. I ein- leikslínu fiðlunnar er sem leikið sé af fingrum fram og hér fer Sigrún á kostum. Taktfastur lokakaflinn er bráðskemmtilegur og reynir augljóslega verulega á alla hlutaðeigandi og ekki síst á einleikarann sem gerir gott betur en að rísa undir væntingum. Eg verð að segja eins og er að ég veit ekki hvert Haukur stefnir í verkunum Árhringur (1994) og Spírall (1992). Og ekki bætir úr skák að hann skuli aðeins nefna hina einstöku kafla verkanna með rómverskum tölum. Eru góðu gömlu ítölsku heitin ekki lengur nothæf til að lýsa samtímatón- list? Spyr sá sem ekki veit. Ár- hringur er í fjórum númeruðum köflum (I - IV) sem segir í sjálfu sér ekkert um innihald eða markmið. Spírall er í sjö köflum (I-VII) og er sama marki brennd- ur, leiðin sem er farin er óljós og leiðarendi óviss. Kannski er það ætlun höfundar. Ef hann er hér að beita einhverjum úthugsuðum tónfræðilegum brögðum þá ná þau því miður ekki til mín og skýringar Atla Ingólfssonar um hljómagang sem þróast eins og spíralhreyfing eru því miður of- vaxnar skilningi mínum. Hins vegar má vel dást að framúrskar- andi hljóðfæraleik Caput-hópsins og snarpri hljómsveitarstjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Lokaverkið á diskinum heitir Stemma (1997). Þar er uppbygg- ing hinnar fornu stemmu sett í óvænt samhengi samtímatónlist- arinnar en djúpt er á frumgerð stemmunnar sem kvað heyrast sem snöggvast um miðbik verks- ins. Þetta verk hreif mig því mið- ur ekki. Það sem upp úr stendur er vandaður hljóðfæraleikur Caput- hópsins undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, snilld Sigrún- ar Eðvaldsdóttur í einleikshlut- verkinu og býsna áhugaverður fiðlukonsert. Valdemar Pálsson Steinninn gnði o g glæpalýðurinn KVIKMYNDIR Stjörnubíó SNATCH ★★★ Leikstjóri og handritshöfundur Guy Ritchie. Tónskáld John Murphy. Kvikmyndatökustjóri John Maurice-Jones. Aðal- leikendur: Jason Statham, Robby Gee, Dennis Farina, Rade Serb- edzija, Vinnie Jones, Brad Pitt, Benicio Del Toro, Aian Ford. Sýningartími 100 mín. Bresk. Columbia. Árgerð 2000. FYRSTA myndin hans Guy Ritchie, Lock, Stock, and Two Smok- ing Barrels (’98), var upprifin, há- bresk. Sannkölluð Tarantino-æfing, því enginn getur fengist lengur við kolsvartar, vanstilltar glæpakóm- edíur eftir Pulp Fiction og Reservoir Dogs, nema að vera kenndur við bandaríska kvikmyndaskáldið. Hvort sem það er sanngjamt eður ei. Mynd- imar hans Ritchie eru engu að síður jafnmikill afrakstur vinnunnar sem leikstjórinn/handritshöfundurinn hafði gert á tónlistarmyndbandasvið- inu. Lock... var dálítið óvænt úr þessari átt, tryllt og full af skoplegu ofbeldi, urmull persóna, sem velktust dáh'tið hver fyrir annarri, kom við sögu. Ekki bætti úr skák að helftin af leik- urunum voru einslitir, óþekktir Lundúnabúar, talandi sína óskiljan- legu cockney-mállýsku. Nýja myndin, hans, Snatch, er mikið betri. Fyndn- ari, hraðari og Ritchie gætir þess að „marka“ hveija og eina persónu, gefa þeim líf og einkenni með tilsvörum og látæði. Söguþráðurinn er þó náskyld- ur í báðum myndunum og uppbygg- ingin á svipuðum nótum. Bakgrunn- urinn em undirheimar Lundúna, eftir að myndin hefst í ósvífnu demanta- ráni í Belgíu. Þjófamir hafa risa- gimstein uppúr krafsinu og vilja allir koma höndum yfíur djásnið. Inn í söguna af veraldarvolki dem- antsins fléttast saga af tveimur vinum sem stunda ólöglegan hnefaleika- rekstur. Undirheimahöfðinginn Brick Top (Alan Ford) fær þá til að koma á bardaga þar sem annar keppandinn á að liggja í valnum í fjórðu lotu. Félag- arnir fá óheflaðan sígaunastrák (Brad Pitt) til að taka að sér hlutverk þess sem á að tapa, en hann er ekki á þeim buxunum og allt stefnir í óefni. Sem fyrr segir kynnir Ritchie til sögunnar urmul persóna, þær era hver annarri spaugilegri og vel leikn- ar. Bestir eru Brad Pitt, í makalaust góðu formi, með óskiljanlegan, írskan sígaunaframburð, allur hinn tætings- legasti, og Dennis Farina, sem frænd- inn, glæpakóngurinn í New York, sem hefur augastað á steininum góða. Benicio Del Toro er einnig dágóður sem Fjórfingraði Frank, Vinnie Jon- es heftir hrikalegt skálksútlitið með sér og Aian Ford er með illilegri mönnum sem sést hefur á tjaldinu, og dágóður leikari að auki. Rúsínan í pylsuendanum er Rade Serbedzija (Fyrir regnið), sem sýnir á sér | spaugilegri hliðina, sem harðsoðinn, ? rússneskur mafíósi. Þá er ógetið þriggja, þeldökkra lúða, sem í for- heimsku sinni og seinheppni minna á The Three Stooges og aðra slíka spaugara. Ritchie missir sjaldan tök- in á þessum litríka mannskap og skil- ar af sér meinfyndinni svarta- gallskómedíu þar sem ofbeldið er fyndið og glæpirnir gamanmál. Sæbjörn.V.aldimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.