Morgunblaðið - 21.11.2000, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Aflagðir
hlutir“
MYNDLIST
Sýningarsalurinn Man
MYNDVERK
PÉTUR GUÐMUNDSSON
Opið á túna verslunarinnar
og milli 14-18 á sunnudögum.
Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ er fátítt, hafí það yfirhöfuð
gerst, að rýnirinn hefji skrif sín á því
að minnast á sýningu á sama stað á
undan. En hér knýr nauðsyn að
vekja nokkra athygli á, meður því að
nýafstaðin sýning Eyjólfs Einars-
sonar, telst ótvírætt eitt kraftmesta
framlag hans til íslenzkrar mynd-
listar til þessa, jafnframt féllu verkin
betur að rýminu en sést hefur á
staðnum í annan tíma. Og þó gekk
sýningin merkilega hljóðlátlega hjá
og þar liggur hundurinn grafinn,
eitthvað að hjá fjölmiðlum, söfnum
og listunnendum þegar slfkt getur
gerst um rismikinn framníng virts
og gróins myndlistarmanns. En það
gerir trúlega síbyljan og andvara-
leysið sem henni fylgir, sýningar í
skyndi illa grunnaðar og fljótfærnis-
lega fram settar, sem sagt list í
hvelli. Allt lagt í upphafið en minna
skeytt um framhaldið sem þó er mik-
ilvægast; að styðja við bakið á öllu
því sem hefur grunnaðan og sterkan
undirtón í allri þessari ringulreið yf-
irborði og hyglisýki sem einkennir
tímana...
Þetta sett fram hér, vegna þess að
brigðin við að sjá næsta framlag í
salnum voru svo mikil, sem er frum-
raun ísfirðingsins Péturs Guð-
mundssonar í Reykjavík. Gerandinn
hefur fengist við húsamálun og sjó-
mennsku á staðnum, stúdent frá MA
1971, nam við MHÍ 1972-96. Mikill
áhugamaður um framgang mynd-
listar á staðnum, einn af stofnendum
Myndlistarfélagsins á ísafirði og um
leið þátttakandi í mótun Slunkaríkis
og listaskóla Rögnvalds Ólafssonar,
sem starfar í Edinborgarhúsinu á
Isafirði. Allt frábærir hlutir en hins
vegar sýnist eitthvert alvöru- og
stefnuleysi ríkjandi þáttur í sjálfri
myndsköpuninni enn sem komið er.
Viðfangsefnin eins og tuggin upp eft-
ir öðrum hvort heldur í skúlptúr sem
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Jarðandinn, 2000.
málverki, lausnir full auðveldar og
ósannfærandi. Grunar mig að Pétur
sé að byrja aftur í myndlistinni eftir
nokkuð hlé eða slitrótta iðkun henn-
ar og hafi enn ekki náð að fóta sig á
þeirri hálu braut. Satt að segja afar
erfitt að átta sig á og meta hvert
stefnir eftir tvö innlit á sýninguna,
vel því þann kostinn að bíða átekta...
Bragi Ásgeirsson
Fjarstæðu-
kennd kímni
KVIKMYJVDIR
Laugarásbíó
DROWNING MONA*^
Leiksijóri: Nick Gomez. Handrit:
Peter Steinfeld. Aðalhlutverk:
Danny DeVito, Bette Midler, Neve
Campbell, Jamie Lee Curtis, Casey
Affleck, William Fichtner og Peter
Dobson. Bandaríkin 2000.
MÓNA kerlingin deyr, og öllum er
sama. Og meira er að flestir eru bara
fegnir að losna við skassið það, sem
öllum var til ama. Þó verður að
rannsaka hvernig dularfullan dauð-
daga hennar bar að garði, og það
kemur í hlut lögreglustjóra smábæj-
arins, Mr. Rath, sem Danny DeVito
leikur, en hann er einnig framleið-
andi þessarar kvikmyndar.
Það er örugglega hin fjarstæðu-
kennda og oft og tíðum ferska kímni
sem hefur heillað DeVito við lestur
handritsins, en hann hefði kannski
átt að rýna betur í það, eða bara leik-
stýra myndinni sjálfur.
Myndin er nefnilega full brokk-
geng, bæði í húmor og stfl, og ef bet-
ur hefði verið haldið á spöðunum
hefði mátt gera hér betri mynd. Sér-
staklega er húmorinn stundum ekki í
takt við neitt sem maður hefur séð
áður, sem er býsna svalt, en heildin
virkar bara ekki.
Casey Affleck leikur Bobby, til-
vonandi tengdason lögreglustjórans
og helsta fórnai’lamb Mónu og lítt að-
laðandi fjölskyldu hennar. Hann er
ekki sérlega skemmtilegur leikari, og
persónan hans verður hálfleiðinleg
líka, og einhvern veginn er manni
nokk sama um þetta allt saman, ég
fann hvorki fyrir spennu né forvitni.
Margir góðir leikai-ar standa sig
mjög vel í þessari mynd. Danny vinur
minn DeVito klikkar ekki frekar en
fyrri daginn en hann er í mjög yfir-
veguðu hlutverki hér. Hin sí-
skemmtilega leikkona Jamie Lee
Curtis er yndisleg, sjálf Bette Midler
leikur Mónu en nær því miður ekki
að gera sannfærandi persónu úr
henni, Neve Campbell er fín og meira
mætti sjást af leikaranum fína Peter
Dobson.
Myndin er ekki nógu grípandi, en
sumir brandaramir eru það óborgan-
legir og frumlegir að þeir gera það
þess virði að sjá þetta furðuverk.
Hildur Loftsdóttir
ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 41
Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna
IMámstefna um fimmtu rammaáætlun
Evrópusambandsins
Föstudaginn 24. nóvember n.k. kl. 10:00 -16:00 í Háskóla íslands, Tæknigaröi, Dunhaga 5
Námsstefiia um gerð umsókna og fjármögnun rannsókna- og tækniþróunarverkefna úr rannsóknarsjóðum
Evrópusambandsins, ásamt yfirliti yfir rekstur og þátttöku í slíkum verkefnum.
Fjallað verður almennt um skilyrði umsókna og hvemig gerð þeirra skuli háttað. Rætt verður um
samningagerð vegna veritefha og þann lagagrunn sem þau byggja á, auk þess sem mismunandi samningsform
verða skoðuð. Einnig verða tekin fyrir helstu atriði sem huga þarf að í rekstri slíkra fjölþjóðaverkefna
og hvaða kröfúr eru gerðar til þeirra af hálfu Evrópusambandsins.
Dagskrá:
Yfirlit yfir 5. rammaáœtlun ESB
Eiríkur Bergmann Einarsson, verkefnisstjóri Evrópumála hjá
Rannsóknaþjónustu H.I.
t Vmsóknagerð
Peter Van Poortvliet, hollenskur sérfrœðingur í gerð Evrópuumsókna
• Ferill umsókna og mat þeirra
Paul Richardson, framkvœmdastjóri Evrópuverefnisins VMART
RA
SAMTÖK
iÐNAÐARJNS
CDil
Námsstefnan er öllum opin sem eru að huga að umsóknum í fimmtu
rammaáætlun Evrópusambandsins en fjöldi þátttakenda verður takmarkaður
við 25 manns.
Þátttökugjald er kr. 2.000. Innifalið í þátttökugjaldi er léttur hádegisverður.
Tekið er á móti skráningum hjá Rannsóknaþjónustu Háskóla íslands í
síma 525 4900 eða með tölvupósti á eirikur.bergmann@hi.is og er
skráningarfrestur til 20. nóvember
Rannsóknaþjónusta
Rannsóknaþjónusta Háskóla fslands, Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Rvk., sími 525 4900, fax 552 8801
netfang evropusamvinna(a)evropusamvinna.is, vefsíöa www.evropusamvinna.is
LANCOME
PARIS
RENERpIE.
CONTOUR LIFT
Besti stuðningur
húðarinnar
www.lancome.com
RFNFRtUl'
'NTOUR U
LANCÓME kynning í dag.
Snyrtifræðingur frá LANCÓME kynnir einstaka nýjung sem styrkir stoðvefi
húðarinnar svo andlitið fær á sig nýjan blæ.
Vertu velkomin(n) til okkar og fáðu sýnishorn af
RÉNERGIE CONTOUR LIFT og Rénergie kreminu.
Einnig kynnum við nýja ilminn, miracle.
Glæsilegir kaupaukar handa LANCÓME viðskiptavinum.
Lyf&heilsa
Austurstræti, sími 562 9020