Morgunblaðið - 21.11.2000, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 61
UMRÆÐAN
Vatnsblönduð mjólk
og hysknir kennarar
ÞRÁTT fyrir þá
óumdeildu staðreynd
að kennarar hafi setið
eftir í kjaraþróun í
samanburði við aðrar
stéttir háskólamennt-
aðra starfsmanna ríkis-
ins hefur samninga-
nefnd ríkisins í engu
orðið við þeirri réttlæt-
iskröfu að leiðrétta
kjörin. Reiknast tölu-
glöggum svo til að laun
kennara þurfi að
hækka um 32,4% til
þess eins að halda í við
samanburðarhópa.
Vegna þess má ætla að
í launaumslög kennara
vanti í krónum talið nokkra tugi þús-
unda í hverjum mánuði.
Dagsverk kennara
I stað þess að horfast í augu við
ofangreinda staðreynd, fylgja við-
tekinni jafnræðisreglu í opinberri
stjórnsýslu og verða
við leiðréttingakröfu
kennara hefur samn-
inganefnd ríkisins
brýnt kutann og lagt til
atlögu við bæði fagvit-
und og trúverðugleika
kennarastéttarinnar.
Ráðherrar og þing-
menn ríkisstjórnar-
flokkanna, ásamt odd-
vita sínum í samninga-
nefnd ríkisins, hafa nú
ítrekað látið að því
liggja að kennarar
vinni ekki vinnuna
sína.
í opinberri umræðu
hafa þessir aðiliar sí-
endurtekið sett fram það sjónarmið
að endurskoða þurfi gildandi vinnu-
tímaskilgreiningu í þeim tilgangi að
færa ótilgreinda þætti yfirvinnunar
yfir í dagvinnuna. Ekki er hægt að
skilja þennan málflutning á annan
veg en þann að kennarar vinni ekki
Kennarar
Ekki er hægt að skilja
þennan málflutning
á annan veg en þann,
segir Krisiján Ari
Arason, að kennarar
vinni ekki fullt dags-
verk í dagvinnu.
fullt dagsverk í dagvinnu. Málflutn-
ingur sem þessi sætir furðu, ekki
síst í ljósi þess að engin starfsstétt á
íslandi vinnur jafn-vel skilgreint
dagsverk og kennarar. Tæplega
tveir þriðju hlutar vinnutímans fara
að jafnaði í kennslu og kennslu-
undirbúning. Framhaldsskólakenn-
ari sem hefur fullt starf þarf að
kenna 23,87 kennslustundir á viku.
Kristján Ari
Arason
Til að sinna 40 mínútna kennslu-
stund fær kennarinn 1,7 klst. til um-
ráða, og er þá undirbúningur,
kennsla, úrvinnsla og heimavinna
innifalin. Aðrir skilgreindir verk-
þættir eru m.a. prófavinna, vinna
undir stjóm skólameistara, vinna við
undirbúning og skipulag skólastarfs
við upphaf og lok annar. Alls 80 klst.
á ári eru ætlaðar í endurmenntun og
almennan kennsluundirbúning eða
innan við 5% af skilgreindum vinnu-
tíma.
Mjólkurbland í skólana
Ekki verður séð að hægt sé að
bæta verkþáttum inn í hina skil-
greindu dagvinnu nema með því að
auka kennsluskylduna eða hafa
skipti á öðrum verkþáttum. Ef horft
er til nágrannaríkja kemur í ljós að
kennsluskyldan í framhaldsskólum á
íslandi er að meðaltali hærri en á
hinum Norðurlöndunum að teknu
tilliti til lengdar starfstíma skóla. Má
vera að samninganefnd ríkisins telji
íslenska kennara geta mjólkað kúna
betur en í öðrum löndum en vart
verður mjólkurmagnið aukið í lítrum
nema með vatnsblöndun.
Sá möguleiki er fyrir hendi að
flytja að hluta til þá vinnu sem nú er
unnin undir stjórn skólameistara yf-
ir í yfirvinnu og færa þar inn í dag-
vinnuna skilgreinda verkþætti úr yf-
irvinnunni. Þeir tímar verða þó vart
taldir í mörgum tugum í ársverki
kennarans. I ljósi þessa má undrast
þá áherslu sem viðsemjendur kenn-
ara og talsmenn þeirra leggja íé?
breytta vinnutímaskilgreiningu.
Ohjákvæmilega hafa kennarar
neyðst til að sinna mikilli kennsluyf-
irvinnu. Vart þarf á það að benda að
ástæðan er einkum hin lágu laun
sem kennurum er boðið upp á. 111-
mögulegt er að fá nýja kennara til
starfa og þeir sem fyrir eru eiga í
erfiðleikum með að halda uppi þeirri
starfsemi í skólunum sem mælt er
fyrir um í lögum. Ekki er hægt að
gera ráð fyrir að þar verði breyting
á nema kjör kennara verði í það
minnsta sambærileg þeim sem aðrir
samanburðarhópar hafa.
Höfundur er kennari í
Borgarholtsskóla.
ROSNER
Kvensíðbuxur
þrjár skálmalengdir
mikið úrval
Suðurlandsbraut 50, simi 553 0100,
(bláu húsin við Fákafen).
Opið virka daga 10-18, laugard. 10-16.
Bílavara-
hlutaverslun
fyrir japanska
og kóreska bíla
RIKISSTJORNIN
Á RANGRIBRAUT
Óssurar Skarphéðinssonar
og Margrétar Frímannsdóttur
þar sem þau kynna Leið Samfylkingarinnar
og sitja fyrir svörum ásamt heimamönnum.
Þriðjudaginn 21. nóvember
Sal iðnsveinafélagsins, Tjarnargötu 7
Reykjanesbæ kl. 20.00
Miðvikudaginn 22. nóvember
Deiglunni Akureyri kl. 20.00.
Fimmtudaginn 23. nóvember
Hótel Selfossi, Norðursal, kl. 20.00
Laugardaginn 25. nóvember
Kornhlöðuloftinu Reykjavík, kl. 12.00
Allir velkomnir
Össur og Margrét heimsækja jyrirtæki og stofnanir á ofantöldum stöðum.
Samfylkingin
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur leitt til vaxandi verðbólgu, hárra vaxta
ágreinings á vinnumarkaði og verri stöðu í efnahagsmálum.
Samfylkingin hefur varað við lausatökum í efnahagsmálum og miklum
viðskiptahalla og hún vill ábyrga ríkisfjármálastefnu og sátt vió launþega.
Stefna ríkisstjórnan'nnar hefur leitt til þess að við höfum dregist
verulega aftur úr í menntamálum.
Samfylkingin setur menntamál í forgang þannig að menntun hérlendis
verði samkeppnishæf á alþjóðmælikvarða og að laun kennara séu bætt
samhlióa breytingum í skólastarfi. Framtíð unga fólksins er okkar framtíð.
Stefna rikisstjórnarinnar hefur þrengt að kjörum aldraða og öryrkja.
Samfylkingin vill afkomutryggingu fyrir aldraða og öryrkja sem eyðir óvissu
þeirra sem minna mega sín í samfélagi okkar.
Samfylkingin vill afnema gjafakvótakerfið og tryggja jafnan aðgang allra
að auðlindinni.