Morgunblaðið - 21.11.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 21.11.2000, Blaðsíða 64
84 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 i------------------------------ MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Morgunblaðið/Jón Svavarsson Þeir voru margir kallaðir en aðeins einn útvalinn þegar „knapi ársins“ var útnefndur en titilinn hlaut að þessu sinni Logi Laxdal. Logi Laxdal knapi ársins ______Logi Laxdal var útnefndur „knapi ársins“ af_ hófapressunni á uppskeruhátíð hestamanna. Pað var fyrst og - — ■— — fremst Islandsmet í 150 metra skeiði sem lagði grunninn að út- nefningunni en þar fyrir utan er að nefna frábæran árangur Loga í skeiðkappreiðum ársins . Valdimar Kristinsson var á hátíðinni og gladdist með öðrum hestamönnum. ÁRANGUR Loga á árinu hefur verið sér- lega góður og eru það aðallega þrír hestar sem hafa verið mest áberandi í þátttöku hans í skeiðinu. Þar fer að sjálfsögðu fremstur Þormóður rammi frá Svaðastöðum sem kom nokkuð á óvart með frábærum sprettum síðsumars og hápunkturinn að sjálfsögðu metið 13,64 sekúndur sem þeir settu á veðreiðum Fáks 31. ágúst. Viku síðar áttu þeir einnig góða spretti langt undir nýja og gamla metinu á KPMG-móti And- vara. Þar var meðvindur yfir mörkum svo ekki þurfti að huga að metumsókn en þar voru tímarnir 13,16 sek., 13,26 sek og 13,75 sek. Þá var Logi með góða tíma á Hraða frá Sauðárkróki en hann keppti bæði í 150 og 250 metra skeiði í sumar. Bestu tímar í 150 metrunum voru 13,90 sek. þrívegis og marg- sinnis rétt ofan við 14 sekúndurnar. Þá keppti Logi nokkrum sinnum á Tangó frá Lambafelli og náðu þeir bestum tíma 21,89 sekúndum í 250 metrunum en í 150 metrun- um var besti tíminn 14,03. í allri keppni eru alltaf margir kallaðir en fáir útvaldir og á það einnig við um val á knapa ársins. Valið þótti að þessu sinni mjög vandasamt og voru þeir sem að valinu stóðu sammála um að í það minnsta fjórir hefðu vel getað hampað titilinum. Þar ber að sjálf- sögðu fyrstan að nefna Sigurbjörn Bárðar- son sem hefur hlotið þennan titil oftar en nokkur, en aðeins fjórir hafa hlotið titilinn auk Sigurbjörns. Sigurbjörn er að venju með glæsilegan árangur og ber þar hæst er hann reið Markúsi frá Langholtsparti til sigurs í B-flokki á landsmótinu í sumar. Er það langþráður sigur hjá Sigurbirni og á hann þá aðeins eftir að ríða til sigurs í A- flokki gæðinga á landsmóti og heimsmeist- aratitill í fjórgangi er einnig eftir en ef hon- um tekst að vinna þetta tvennt hefur hann líka unnið alla eftirsóttustu sigra eða titla sem hægt er að vinna í íslands- hestamennskunni. Það kann að vera að ár- angur Sigurbjörns á árinu hafi ekki verið metinn að fullum verðleikum og hefur þá líklega haft áhrif hversu oft hann hefur hampað þessum titli. Atli Guðmundsson var mjög heitur eins og einhver orðaði það en hjá honum ber hæst glæsilegur sigur í A-flokki á landsmóti en þar reið hann Ormi frá Dallandi til sig- urs. Þar fyrir utan er hann með mjög góðan árangur á öðrum mótum. Ætla má að staða hans hefði verið sterkari ef hann hefði sigr- að í fimmgangi á íslandsmótinu eins og búist hafði verið við fyrirfram en hann vann það ágæta afrek að sigra í samanlögðu en það er einmitt titill sem Sigurbjörn hefur einokað mjög í gegnum tíðina. Þá er Atli mjög afkastamikill á sviði kynbótasýninga og er þar með góðan árangur. Þá er röðin komin að Þórði Þorgeirssyni sem er ókrýndur konungur kynbótasýning- anna í ár eins og undanfarin ár. Hann sýndi alls 85 kynbótahross á árinu, meðaleinkunn hrossanna sem hann sýndi er 7,81 og náðu 45 einkunn yfir 8. Sem dæmi má nefna að hann er með stóðhesta í elsta flokki á lands- móti í öðru sæti, fimmta, sjötta, áttunda, níunda, tíunda og ellefta sæti. í flokki fimm vetra hesta er hann með hest í efsta sæti, þriðja sæti í flokki fjögurra vetra stóðhesta. Þórður kom vel til álita sem knapi ársins fyrir þennan frábæra árangur en það sem vantar upp á til að herslumuni væri náð er sigur í öðrum greinum á sterku móti eins og til dæmis íslands- eða landsmóti í „dýrum greinum“. Vignir Jónasson átti gott ár og þar bar hæst árangur hans á Klakki frá Búlandi en þeir félagar hafa verið að klífa upp metorð- astigann hægt og sígandi og náðu toppnum á Islandsmótinu í fimmgangi. Hafa þeir ver- ið í fjórða sæti á heimslistanum í fimmgangi, hæstir íslendinga og vafalaust eiga þeir eft- ir að hækka eftir þessa vegtyllu. Vignir hef- ur vakið athygli fyrir góða reiðmennsku á árinu. Hann hefur haft undir höndum frá- bær hross og skilað þeim í góð sæti. Þá má geta árangurs hans í frumraun sinni sem landsliðseinvaldur er hann stjórnaði lands- liði Islands á Norðurlandamótinu í Noregi í sumar. Það kemur honum að vísu ekki til góða í vali á „knapa ársins" en látið fljóta hér með eigi að síður. Sveinn Ragnarsson náði einhverjum eftir- sóttasta sigri hestamennskunnar er hann og Hringur frá Húsey sigruðu í tölti meistara á Islandsmótinu. Var það glæstur sigur og óumdeildur. Sveinn, sem telst ósvikinn áhugamaður, var með mörg járn í eldinum og á flestum sviðum í góðum málum. Hann Hinn frábæri skemmtikraftur Guðni Ágústsson var ræðumaður kvöldsins og þótti fara á kostum. Hann sagði meðal annars frá því þegar hann hcimsótti Hallbjörn Hjartarson sem hélt að hann væri Jóhannes Kristjánsson eftirhernia en Guðni lét það ekki á sig fá og fór létt með að herma eftir Jóhannesi að herma eftir Guðna landbúnaðarráðhcrra. Það var að sjálfsögðu ekki annað hægt en taka „Hott hott á hesti“ á aðalhátíð hesta- manna en Ómar Ragnarsson sagðist ekki hafa sungið það í fímmtán ár og vel kominn tími til að dusta rykið af úlpunni góðu sem er ómissandi fylgifiskur lagsins. var atkvæðamikill í skeiðinu með Framtíð frá Runnum, í gæðingakeppni með Brynjar frá Árgerði og nokkurn fjölda kynbóta- hrossa sýndi hann í góðar tölur. Þá koma næstir Norðurlanda- meistararnir. Hinrik Bragason sigraði á Farsæli frá Arnarhóli í tölti og fjórgangi. Páll Bragi Hólmarsson sigraði á Isaki frá Eyjólfsstöðum í fimmgangi og slaktauma- tölti en auk þess sýndi hann kynbótahross með ágætum árangri svo eitthvað sé nefnt. Ekki er raðað í sæti í þessu vali á „knapa ársins“ og upptalningin hér að framan handahófskennd hvað það varðar. En allt voru þetta framúrskarandi knapar sem hér komu við sögu og ekki þarf að deila um hæfni þeirra. Keppnin er orðin mun jafnari en áður var, hart barist um sigrana og ekki síður um góðu hestana til að auk möguleik- ana á brautinni. Sigurbjörn Bárðarson sem borið hefur höfuð og herðar yfir aðra knapa i áranna rás þarf orðið að hafa meira fyrir hlutunum og er það út af fyrir sig vel. Spennandi keppni virkar eins og vítamín- sprauta á keppnina og eykur það áhugann. Enn slær Kolfinnur í gegn KOLFINNUR frá Kjarn- holtum gerir það ekki endasleppt. I sumar sló hann eftirminnilega í gegn á landsmótinu er hann kom þar fram ásamt tólf af- kvæmum sínum sem sýndu rými og kraft eins og best gerist. En Kolfínnur mætti einnig á uppskeruhátíðina öllum að óvörum og er óhætt, að segja að hann hafi slegið enn og aftur í gegn, nú með fegurðardrottningu íslands, Elínu Málmfríði Magnúsdóttur, á bakinu og teymdur af nýkrýndum herra hreysti, Gunnari Má Sigfússyni, sem að sjálf- sögðu sýndi nokkrar stöður til að gleðja kvenpening hestamennskunnar. Veislustjórinn Hákon Að- alsteinsson brást undrandi við þegar mikili reykjar- mökkur lagðist yfir sviðið og dynjandi tónlist með til- heyrandi ljósaspili tók völd- in. Virtist sem veislustjór- inn væri að missa tökin á öllu saman en viti menn, allt f einu kemur Kolfinnur upp úr gólfinu með ung- frúna góðu á bakinu og vöðvahnyklarann sér við hlið. Lengi vel vissu menn ekkert hvaða ,jálkur“ þetta væri en þegar allt í einu birtust á sviðsskjánum hin góðu grip Kolfinns á lands- mótinu renndi margan Morgunblaðið/Jón Svavarsson Kolfinnur frá Kjarnholtum tók sig vel út á sviðinu á Broadway með herra hreysti og ungfrú Island ásamt Oddnýju Jónsdóttur sem færði þeim blómvönd. Þótti sá gamli slá vel í gegn á nýjum vettvangi. grun í hvaða höfðingi færi þar. En Kolfinnur stóð sig með mikilli prýði á sviðinu f öllum hávaðanum, reykn- um og látunum og tiplaði léttur niður tröppurnar af sviðinu og út úr salnum. Ekki er gott að segja hvort þessi óvænta koma Kolfinns á uppskeruhát íðina eykur enn á vinsældir hans en ekki leyndi sér að vaxtar- ræktarmaðurinn eignaðist góðan hóp aðdáenda enda betur byggður en Kolfinn- ur. Hvort hæfileikar hans eru meiri og betri skal ósagt látið en mikið svaka- lega má hann vera góður ef hann er jafnoki Kolfinns í þeim efnum enda Kolfinnur með háar tölur fyrir fegurð í reið, svo dæmi sé tekið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.