Morgunblaðið - 21.11.2000, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 21.11.2000, Blaðsíða 65
Ert þú í loftpressu- hugleiðingum? Komdu þá við hjá AVS Hagtæki hf. Við hjálpum þér að meta stærð loftpressunnar með tilliti til afkastaþarfar. Stimpilpressur og skrúfupressur í mörgum stærðum og gerðum, allt upp í fullkomna skrúfu- pressusamstæðu (sjá mynd) Eigum einnig loftþurrkara í mörgum gerðum og stærðum. Gott verð - góð þjónusta! Til sýnis á staðnum PAÐ LIGGUR f LOFTINU ^ySg|g,§TigM,l HF- Akralind 1, Kópavogi, sími 564 3000. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 65 HESTAR FRETTIR Jólakorta- sala Blindra- Morgunblaðið/Jón Svavarsson Kirlgubæjarbræður þeir Ágúst og Guðjón Sigurðssynir höfðu ástæðu til að gleðjast þegar Kirkjubæjarbúið var útnefnt ræktunarbú ársins. Kirkjubær á toppinn KIRKJUBÆJARBÚIÐ var af fag- ráði hrossaræktar útnefnt rækt- unarbú ársins 2000 og tóku þeir bræður Guðjón og Ágúst Sigurðs- synir við viðurkenningunni úr höndum Ara Teitssonar, for- manns stjórnar Bændasamtak- anna. Mikill fjöldi hrossa frá búinu kom í dóm á árinu, náði góður hluti þeirra fyrstu verð- launum eða einkunn yfir átta. Það styrkir hina tölulegu útkomu Kirkjubæjarhrossanna í dómi að flest þessara hrossa voru að koma fram í fyrsta skipti í dóm. Þá stendur Kirkjubæjarræktunin á bak við mörg hross frá öðrum búum sem hafa staðið sig vel á kynbótasýningum og má í því sambandi nefna hrossin frá Hóla- búinu og Töfra frá Kjartansstöð- um. Hrossaræktin í Kirkjubæ stend- ur á gömlum merg en þar hafa hross verið ræktuð í meir en hálfa öld. Þeir Guðjón og Ágúst tóku við búinu 1992 af föður sín- um Sigurði Haraldssyni. Ágúst Sigurðsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að það væri vissulega ánægjuefni að fá þessa viðurkenningu á ræktunarstarf- inu í Kirkjubæ. Það væri hins vegar á vissan hátt erfitt fyrir sig að vera í sviðsljósinu með þessum hætti þar sem hann gegni starfi hrossaræktarráðunauts. „Eg vona sannarlega að við eigum þessa viðurkenningu skilið því þetta virkar að sjálfsögðu sem góð hvatning fyrir okkur bræður í ræktunarstarfinu en sömuleiðis er þetta mér hvatning í starfi mínu sem hrossaræktarráðu- nautur. Það er manni styrkur í ráðgjafastarfinu að vita að maður hefur sjálfur náð árangri og er að gera rétta hluti,“ segir Ágúst. Ritstjóri Eiðfaxa, Jens Einars- son, hefur varpað fram spurning- um um það hvort við hæfi sé að hrossaræktarráðunautur sé gjald- gengur í val sem þetta og sömu- leiðis hvort Hólabúið sem sé rík- isbú eigi að vera gjaldgengt í slíkri samkeppni. Var Ágúst spurður hvaða skoðun hann hefði á því? „Mér finnst gott að umræða á þessum nótum fari í gang, ekki bara á kaffistofum hesthúsanna heldur og þarf hún að vera opin- ber. Sé einhver ágreiningur um þetta er gott að hann komi fram,“ svarar Ágúst. Hann var því næst spurður livernig hann myndi bregðast við ef niðurstaðan úr slíkri umræðu yrði á þá leið að hrossaræktar- ráðunautur ætti ekki að fást við hrossarækt samfara starfi sínu? „Ætli ég vinni þá ekki bara fyr- ir mér með öðrum hætti,“ svarar hann að bragði og heldur áfram. „Hrossaræktin er minn drifkraft- ur í starfínu. Það er margt mjög skemmtilegt í þessu starfi en þeg- ar ég byrjaði í því var hrossa- ræktin mér mikilvægari en sjálf- sagt getur það breyst í tímans rás, það er aldrei að vita. Hitt er svo annað mál að mínir framtíð- ardraumar hafa ekki staðið til þeirrar áttar að vera eilíft í opin- beru starfi," svaraði Ágúst Sig- urðsson hrossaræktarráðunautur en kannski miklu frekar hrossa- ræktandi. Alls voru tíu bú tilnefnd til verðlaunanna að þessu sinni og þótti keppnin að þessu sinni mjög tvísýn. Virtust skoðanir hinna einstöku „sérfræðinga" mjög skiptar áður en tilkynnt var hvaða bú hlyti heiðurinn þetta ár- ið. Var Hólabúið gjarnan nefnt til sögunnar og sömuleiðis Holts- múlabúið. Þá var hrossaræktar- búið í Þúfu einnig nefnt en önnur bú voru Fet, Lækjarbotnar, Vot- múli, Auðsholtshjáleiga, Ketils- staðir og Steinnes. félagsins JÓLAKORTASALA Blindrafélags- ins er komin í fullan gang en jóla- kortasalan er einn af mikilvægustu burðarásum í fjáröflunarstarfsemi félagsins. í rúm 60 ár hefúr félagið fyrst og fremst treyst á stuðning al- mennings og atvinnulífs við starf- semi sína. Félagið veitir í dag fjöl- þætta þjónustu á mörgum sviðum, má þar nefna í húsnæðis,atvinnu-, fé- lags- og fræðslumálum. í ár hefur félagið til sölu kort til einstaklinga og fyrirtækja. Kortin til einstaklinga eru tvenns konar, ann- ars vegar jólakort með teikningum Bjarna Jónssonar af íslensku jóla- sveinunum og með jólasveinavísum eftir Jóhannes úr Kötlum. Hins veg- ar eru jólakort með myndum frá Viktoríutímanum. Jólakortin með ís- lensku jólasveinunum eru 13 stk. saman í pakka en kortin með mynd- um írá Viktoríutímanum eru 15 stk. saman í pakka. Fyrirtækjakortin eru með ljósmynd frá Mýrdalsjökli. Fimm mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt tuttugu og þriggja ára Reykvíking i fimm mánaða fang- elsi fyrir ölvunarakstur um Álfta- nesveg og Hafnarfjarðarveg í ágúst sl. Hann ók bifreið sinni sviptur ökurétti. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust en hann var auk fangels- isdómsins dæmdur til að borga all- an sakarkostnað. Snemma árs 1996 var ákærði sviptur ökurétti í eitt ár vegna ölv- unaraksturs. Áður en það ár var liðið hafði hann sex sinnum fengið dóm eða gengist undir sátt fyrir akstur án tilskilinna réttinda. í febrúar 1998 var ákærði enn frem- ur sviptur ökurétti í þrjú ár. Frá þeim tíma hefur hann 6 sinnum hlotið dóma fyrir akstur án öku- réttinda. Ráðstefna Skýrslutæknifélags íslands Stjórnun viðskiptatengsla CRM - customer relation management 22. nóvember 2000 á Hótel Loftleiðum 12:35 Innritun fundargesta 12:55 Setning Óskar B. Hauksson, formaður SÍ 13:00 Ævintýri Lísu í CRM landi Bjarni Sv. Guðmundsson, framkvæmdastjóri, Hugvit hf. 13:40 Stjórnun viðskiptatengsla - snýst hún um fólk eða tækni? Sverrir Hauksson, framkvæmdastjóri, Markhúsið ehf. 14:20 Implementing of a CRM system in Superfos Packaging Ewa Ivarsson, Project Manager, Superfos Packaging 15:00 Kaffihlé 15:25 Valkostir í samskiptalausnum (CRM) frá Navision Software Ragnar G. Eiriksson, tæknistjóri Navision Software á Islandi 15:45 Samskiptalausn Axapta (CRM) Stefán Þ. Stefánsson, markaðsstjóri Concorde Axapta Island 16:05 Oracle CRM Jón Sigurðsson, sölustjóri Financials og Business intelligence, Teymi hf. 16:25 Siebel eBusiness Kristján Jóhannsson framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs Nýherja hf. 16:45 Ráðstefnuslit Þátttökugjald: félagsmenn kr. 8.800, utanfélagsmenn kr. 11.800. Þátttöku ber að tilkynna í síðasta lagi 21/11 í síma 553 2460 eða með tölvupósti til sky@sky.is. NASSAU iðnaðarhurðir Þrautreyndar við íslenskar aðstæður SALA UPPSETNING VIÐHALÐSÞJÓNUSTA Sundaborg 7-9, Reykjavík Sírni 5688104, fax 5688672 idoxi&idex.ix Jafnan á metsölulista... Var að berast í versl- anir Einstæð bók! Fjöldi þekktra manna og kvenna sýnir á sér nýja hlið og segir frá atvikum og fólki sem ekki gleymist. Til styrktar Barnaspítala Hringsins og forvarnastarfi meðal barna. STOÐ OG STYRKUR Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Björgui aræfing ÁRLEG sjóbjörgunaræfing nem- enda Lögregluskólans í Reykja- vík fór fram í Koilafirði á dögun- um. Þar voru nemendumir m.a. þjálfaðir í björgun úr sjó og sigl- ingu björgunarbáta og voru að lokum hífðir af varðskipinu Óðni um borð í þyrlu Landhelgisgæsl-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.