Morgunblaðið - 21.11.2000, Síða 84

Morgunblaðið - 21.11.2000, Síða 84
ATLAIMTSSKIP - ÁREIÐANLEIKI í FLUTNINGUM - Leitið upplýsinga í sima 520 2040 www.atlantsskip.is MORG UNBLAÐIÐ, KRINGL UNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Ekki missa af tilboðunum hjá ACO. Sony og Panasonic vörur á ótrúlegu verði, hugsaðu I sknpadu I upplifdu Skaftahlíð 24 • Simi 530 1800 Fax Q30 1801 Yfír 100 manns komu að björgunaraðgerðum í Skagafírði í fyrrakvöld — Atta enn • á sjúkra- húsi eftir rútuslys í Fljótum MILDI er að ekki fórr verr þegar rúta með 39 manns fór út af veg- inum við fyrir neðan grunnskól- ann Sólgarð, nærri Barði í Fljót- um á sjöunda timanum síðdegis á sunnudaginn. I rútunni voru fé- lagar í Sönghópi Félags eldri borgara í Skagafirði, en þeir voru að koma af sönghátið á Siglufirði og voru á leið til Sauðárkróks. Alls hlutu 27 farþegar aðhlynn- ingu á sjúkrahúsinu Sauðárkróks. Sex manns liggja enn á sjúkrahús- inu þar, einn var fluttur til Reykjavíkur og annar til Akur- eyrar. Enginn farþega var lífs- hættulega slasaður. Belti hefðu breytt miklu Farþegar sem í rútunni voru telja nær fullvíst að hefðu belti WPrið í rútunni hefðu færri slasast en raun varð á. Undir skoðun far- þeganna tekur Birgir Gunnars- son, framkvæmdastjóri Heilbrigð- isstofnunarinnar á Sauðárkróki. „Ég tel að mittisbelti hefðu getað breytt miklu í þessu slysi þannig að færri hefðu slasast," segir Birgir. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins og voru sjúkraflutninga- menn, læknar og björgunarsveit- arfólk frá Blönduósi í vestri til Akureyrar í austri kallað út. Alls komu sex sjúkrabílar fólki til að- stoðar og fluttu þeir þá sem mest voru slasaðir til Sauðárkróks. Óskar Óskarsson, formaður al- •Tnannavarnanefndar Skagafjarð- ar, telur að á milli 100 og 150 manns hafi komið nærri björgun- araðgerðum. ■ Mikill viðbúnaður/42-43 Morgunblaðið/RAX Andri Þór Sigurðsson fagnar afa sfnum, Sveini Gislasyni, er hann kom í heimsókn til afa og ömmu í gær. Sveinn og kona hans, Lilja Sigurðardóttir, voru meðal þeirra sem lentu í slysinu í Fljótum á sunnudag. Hlutu þau ekki alvarlega áverka. Á myndinni til vinstri sést rútan utan vegar við Sólgarð í Fljótum og hjólfórin í vegkantinum. Dregið úr vetrarflugi til Ameríku og Evrópu AFKOMA Flugleiða hefur versnað talsvert á milli ára samkvæmt níu mánaða uppgjöri félagsins. Hagn- aður á þessu tímabili var 403 millj- ónir króna í ár miðað við 2.057 milljóna króna hagnað á fyrstu níu mánuðum síðasta árs og bendir uppgjörið til þess að tap verði á rekstri félagsins á þessu ári. Til þess að bregðast við verri afkomu á árinu í kjölfar hækkana á elds- neytisverði, óhagstæðrar gengis- þróunar og innlendra kostnaðar- hækkana hafa Flugleiðir sett af stað tveggja ára áætlun sem ætlað er að snúa taprekstri félagsins í hagnað. Samkvæmt níu mánaða uppgjör- inu urðu jákvæðar breytingar á rekstri félagsins frá sex mánaða uppgjörinu og á tímabilinu júlí til september var afkoman svipuð og á sama tíma í fyrra. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir engu að síður nauðsynlegt að grípa til aðgerða, enda sé afkoman ekki í samræmi við markmið félagsins. Helstu breytingar sem gerðar verða í rekstri Flugleiða næstu tvö árin eru m.a. þær að dregið verður úr vetrarflugi til Ameríku um 8- 15% og um 8-10% til Evrópu. Þeg- ar hefur verið dregið úr flugi til Minneapolis, Kaupmannahafnar og Frankfurt og aðrar flugleiðir verða endurmetnar um áramótin. Þá stendur til að gera breytingar á starfsemi Flugfélags íslands, en að sögn Sigurðar er það stefna fé- lagsins að hætta óarðbæru flugi innanlands, og nú stendur yfir at- hugun á möguleikum þess að snúa taprekstri í hagnað á flugleiðum eins og til Vestmannaeyja og Hornafjarðar. Félagið stefnir á frekari vöxt í fraktflutningum og aukningu í hót- elrekstri á höfuðborgarsvæðinu. ■ Óarðbæru/20 Einkavæðingarnefnd og utanrflrisráðuneyti funda með mannvirkjasjóði NATO Otímabundin afnot af hluta ljósleiðarakerfísins MANNVIRKJASJÓÐUR Atlants- hafsbandalagsins kostaði hluta af uppsetningu ljósleiðarakerfis Lands- símans hf. og fékk fyrir það ótíma- bundin einkaafnot af þremur pörum af átta sem í strengnum eru. Einka- væðingamefnd hefur verið með þetta atriði til skoðunar meðal annarra sem tengjast hugsanlegri einkavæðingu Landssímans hf. og segist formaðm- einkavæðingamefndar ekki telja að það verði nein vandamál því samfara að leysa þetta með viðunandi hætti, en hann gerir ráð fyrir að fundað verði með mannvirkjasjóðnum af þessu tilefni fyrir lok nóvember. Greiddu 22 milljónir dala Heildarkostnaður við lagningu Ijósleiðara um landið að meðtöldum búnaði og að frátöldum innanbæjar- kerfum var um fjórir mifljarðar króna á verðlagi ársins 1997 og þar af greiddi Mannvirkjasjóður Atlants- hafsbandalagsins um 22 milljónir Bandaríkjadala að því er fram kom í svari við fyrirspurn á Alþingi haustið 1997. Hreinn Loftsson, formaður einka- væðingamefndar, sagði að það væru ýmis atriði sem tengdust undirbún- ingi að hugsanlegri einkavæðingu Landssímans sem nefndin hefði verið að skoða og leggja á ráðin um hvernig leyst yrðu og þar á meðal væri hvem- ig fara ætti með þennan þátt málsins, þ.e.a.s. afnot Bandaríkjahers af hluta Ijósleiðarakerfisins. Hann liti ekki þannig á að það yrði neitt vandamál að leysa þetta með viðunandi hætti fyrir alla aðila, því þetta væri ekki fyrsti og eini staðurinn þar sem upp hefðu komið mál af þessu tagi. Þeir væm með tillögur í þessum efnum í undirbúningi og hefðu átt fundi með utanríkisráðuneytinu og vamarmála- skrifstofu og hann gerði fastlega ráð fyrir því að fulltrúi einkavæðingar- nefndar og fullrúi utanríkisráðuneyt- isins funduðu með mannvirkjasjóðn- um fyrir lok þessa mánaðar. „Öll rök hníga að því að þetta verði leyst,“ sagði Hreinn ennfremur. Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Landssímans, sagði að sérstakur samningur hefði verið gerður um þetta á sínum tíma þess efnis að mannvirkjasjóður Atlantshafsbanda- lagsins kostaði sem svaraði þremur pömm af átta í ljósleiðarahringnum og hefði af þeim ótímabundin einka- afnot, en eignarhaldið væri formlega hjá Landssímanum. Þórarinn sagði að þessum þremur pömm væri haldið aðgreindum í sím- kerfinu og engin umferð færi um þau önnur en umferð vegna ratsjárstöðv- anna. Á sínum tíma hefði verið gerð áætlun um kostnað vegna lagningar strengsins og samið um kostnaðar- þátttöku mannvirkjasjóðsins í hlut- falli við það.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.