Morgunblaðið - 23.11.2000, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Neðansjávarmyndavél kom að góðum notum á Húnaflóa
Lík sj ómanns fínnst
eftir sex vikur í sj 6
MntHnmKloAí/l
Hvammstangi, Morgunblaðið.
Á ÞRIÐJUDAG fundu björgunar-
menn lík sjómanns, sem drukknaði
fyrir um einum og hálfum mánuði
úti á rúmsjó á Húnaflóa.
Það var hinn 8. október sl. að
Friðrik Friðriksson, skipstjóri á
Ingimundi Gamla HU 65, fórst með
bát sínum í mynni Húnaflóa, en
tveir menn björguðust í björgunar-
bát, þeir Haraldur Friðrik Arason,
dóttursonur Friðriks, og Sveinn
Garðarsson, frændi hans.
Nánir vinir og aðstandendur
sættu sig illa við að reyna ekki til
þrautar að finna lík Friðriks, þrátt
fyrir að björgunarsveitarmenn við
allan Húnaflóa hefðu í nokkur
skipti gengið stóran hluta af fjörum
umhverfis flóann. Ráðist var í að fá
neðansjávarmyndavél frá Djúp-
mynd hf. til Hvammstanga. Búnað-
urinn er eins konar sleði, með
áfestri myndavél, sem kemst niður
á 300 m dýpi með fjarstýrðum sjálf-
keyrandi búnaði.
Vissan um þennan búnað gaf að-
standendum og vinum Friðriks
heitins styrk og von um að finna
mætti lík hans, þar sem staðsetning
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Ómar Karlsson um borð í Hörpu.
bátsins var vel ljós og sterkar líkur
bentu til að lík Friðriks væri þar
nærri. Meðal þeiira bjartsýnu,
voru Ómar Karlsson og Harpa Vil-
bertsdóttir á Hvammstanga, en
þau gera út frá Hvammstanga vél-
bátinn Hörpu HU 4 sem 60 tonna
bátur. Ómar, sem er skipstjóri á
Hörpu HU hafði áður reynt að fara
í leit með búnaðinn, en orðið frá að
hverfa vegna veðurs.
Það var svo þriðjudaginn 21. nóv.
sem loks gaf. Þá fór Ómar til leitar
með sjö manna áhöfn, auk Stefán
Martin tæknimanns og eiganda
Djúpmyndar hf. Þrátt fyrir gott
veður, stóð leitin yfir í marga
klukkutíma. Talsverður straumur
var á leitarstað, þannig að leitar-
búnað bar marga tugi metra af leið
í djúpinu. Eftir um fimm klukku-
tíma leit fannst lík Friðriks á um
240 metra dýpi, nokkuð frá báts-
flakinu og náðist að slæða það upp.
Að sögn ðmars má telja þennan ár-
angur líkastan ki-aftaverki, þar sem
skyggni var aðeins um einn metri
og laus botnlög þrengdu mjög
sjóndeildarhring myndavélarinnar.
Haraldur Friðrik segir þennan
myndbúnað afar mikilvægan við
slíkar aðstæður og hafi í reynd
gjörbreyta möguleika á slíkum
ferli, svo sem hér varð. Að finna lík
afa hans hafi verið mikill léttir og
auðveldara á allan hátt að sætta sig
við orðinn hlut.
Fjölskylda Friðriks heitins biður
Morgunblaðið að koma á framfæri
þakklæti til allra, fyiTr þá miklu
vinnu sem lögð hefur verið í leitina.
Sérstakar þakkir eru færðar Stef-
áni Martin fyrii- hans aðstoð.
Gengi krónminar veiktist enn lítillega í gfær í líflegum viðskiptum
Dalur hefur
hækkað um nær-
fellt fjórðung
GENGI krónunnar veiktist áfram
nokkuð í gær í líflegum viðskiptum á
gjaldeyrismarkaði, þrátt fyrir inn-
grip Seðlabankans í tvígang sem
keypti krónur annan daginn í röð
fyrir rúmlega eitt þúsund milljónir
króna. Sölugengi Bandaríkjadals
komst í fyrsta skipti yfir 90 kr. og
hefur dalurinn nú hækkað um tæp-
lega fjórðung frá því í ársbyrjun.
Gengisvísitala krónunnar var
121,15 í upphafi viðskipta í gær.
Seðlabankinn kom þá strax inn á
markaði og keypti krónur fyrir 6
milljónir dollara. f kjölfarið styrktist
krónan en það gekk til baka í
kjölfarið. Seðlabankinn greip aftur
inn í um miðjan daginn, keypti krón-
ur aftur fyrir 6 milljónir dala. Við
það styrktist krónan aftur en það
gekk einnig til baka og við lok mark-
aða var gengisvísitala krónunnar í
121,48 stigum, sem jafngildir 0,24%
lækkun frá deginum áður.
Birgir ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri sagði að Seðlabankinn
hefði í tvígang keypt krónur í gær,
fyrst fljótlega eftir að markaðurinn
var opnaður í gærmorgun og síðan
aftur í eftirmiðdaginn. Upphæðin
hefði verið sú sama og á þriðjudag-
inn eða rúmur einn milljarður króna.
Miðað við þriðjudagskvöldið hefði
krónan lækkað um 15 punkta í gær
og verið 5,50% yfir miðju í stað
5,35%. Veltan hefði verið þó nokkur
á gjaldeyrismarkaðnum eða um 6,7
milljarðar króna sem væri nálægt
tvöfóld viðskipti á venjulegum degi.
Birgir sagði að þeir myndu áfram
fylgjast með þróuninni á gjaldeyris-
markaði og framfylgja stefnu bank-
ans.
í fréttum Búnaðarbankans verð-
bréfa kemur fram að Bandaríkjadal-
ur hafi í kjölfar veikingar krónunnar
í gær í fyrsta skipti farið yfir 90
krónur. Gefið er upp sölugengið
90,24 kr. við lokun markaða í gær, en
það þýðir að dalurinn hefur hækkað
um 3,92% frá síðustu mánaðamótum
og um 24,04% frá síðustu áramótum.
Til samanburðar var gengi evrunnar
76,02 kr., sem er 3,32% hækkun frá
síðustu mánaðamótum og 4,04%
hækkun frá áramótum.
Gengisvísitala krónunnar sýnir
vegið meðalverð tiltekinna erlendra
ISLENDINGURINN Kristenn Ein-
arsson er einn af þeim sem nefnd-
ur hefur verið sem næsti yfir-
maður norska
ríkisútvarpsins
NRK, í norsk-
um fjölmiðlum,
en Einar Forde,
núverandi for-
stjóri NRK, læt-
ur af störfum
eftir einn mán-
uð.
í samtali við
Morgunblaðið
segir Kristenn að á næstu dögum
komi í ljós hver arftaki Forde
verður. Þangað til vilji hann sjálf-
ur ekki tjá sig um málið. Norskir
fjölmiðlar hafa beint athygli að
meintum launakröfum Kristens en
hann er sagður fara fram á sem
samsvarar um 19 milljónum fs-
lenskra króna í árslaun.
„Þetta er orðum aukið en eins
og ég segi þá vil ég ekki tjá mig
um þetta mál að neinu leyti,“ seg-
ir Kristenn. Aðspurður segir hann
starf yfirmanns NRK vissulega
áhugavert.
Talsmaður NRK segir í samtali
gjaldmiðla í krónum talið og byggir
vægi hvers gjaldmiðils á viðskiptum
í þeim gjaldmiðli. Gengisvísitalan
hækkar því þegar gengi krónunnar
lækkar vegna þessa að verð eriendra
gjaidmiðla í krónum hækkar. Vísi-
talan var sett á 100 í lok árs 1991 og
eftir síðustu formlegu gengislækkun
krónunnar í júnflok 1993 um 7,5%
fékk vísitalan miðgildið 115,01. Gat
gengið sveiflast um þetta miðgildi
um 2,25% til hvorrar áttar. Þessi
vikmörk voru víkkuð í 6% í hvora átt
í september 1995 og í febrúar í ár
voru vikmörkin víkkuð í 9% til
hvorrar áttar. Efri mörk vikmark-
anna frá miðgildi eru 125,36, en eins
og fyrr sagði var gengisvísitala
krónunnar við lokun markaða í gær
121,48.
við Aftenposten í gær að ekki hafi
verið ákveðið hvað næsti yfir-
maður NRK fái í laun. „Ef rétta
manneskjan krefst tveggja millj-
óna [norskra] króna í laun erum
við tilbúin að taka það til athug-
unar. Við þurfum að vera raunsæ
og taka til greina hvað æðstu
stjórnendur í atvinnulífinu fá í
laun.
NRK er rekið með tapi og upp-
sagnir starfsfólks standa fyrir
dyrum sem og aðrar sparnaðarað-
gerðir. Starfsmenn NRK hafa því
gagnrýnt meintar launakröfur.
Stjórnarformaður fimm
net- og bókafyrirtækja
Kristenn Einarsson er fimmtug-
ur að aldri og hefur búið í Noregi
frá níu ára aldri. Á unglingsaldri
breytti hann stafsetningu á nafn-
inu sínu eins og sjá má. Hann er
fæddur í Reykjavík og uppalinn á
Akureyri uns hann flutti til Lar-
vik í Noregi með foreldrum sín-
um, Gerði Kristinsdóttur frá
Möðrufelli í Eyjafirði og Jónasi
Einarssyni frá Hjalteyri. Hann er
kvæntur Kari Michelsen og á tvær
dætur, 19 og 23ja ára gamlar.
Framkvæmdir
við Eyvindarárbrú
Næstlægsta
tilboði lík-
lega tekið
VEGAGERÐIN hefur hafnað
lægsta tilboði Sands og stáls ehf. á
Húsavík í byggingu nýrrar brúar yf-
ir Eyvindará við Egilsstaði. Að sögn
Einars Þorvarðarsonar, umdæmis-
verkfræðings Vegagerðarinnar á
Austurlandi, standa yfir viðræður
við forráðamenn Myllunnar ehf. á
Egilsstöðum, sem átti næstlægsta
tilboð, og líklegt talið að samið verði
við þann verktaka á næstu dögum.
Eins og fram hefur komið sam-
þykkti bæjarstjórn Austur-Héraðs á
fundi sínum í fyrrakvöld fram-
kvæmdaleyfi til handa Vegagerðinni
þrátt fyiir mótmæli á fimmta hundr-
að íbúa sveitarfélagsins sem vildu
brúna á öðrum stað yfir Eyvindará
og frá íbúabyggðinni.
Eftir að samið hefur verið við
Mylluna ættu framkvæmdir að geta
hafist fljótlega, að sögn Einars, en
áætluð verklok eru 31. ágúst árið
2001. Myllan átti 94 milljóna króna
tilboð í verkið en áætlun Vegagerð-
arinnar hljóðaði upp á 113 milljónir.
Lægsta tilboðið, frá Sandi og stáli,
var upp á 68 milljónir og þótti óraun-
hæft að mati Vegagerðarinnar.
Kviknaði
ísæti
bifreiðar
ELDUR kviknaði undir sæti fólks-
bifreiðar á gatnamótum Litluhlíðar
og Bústaðavegar skömmu eftir há-
degi í gær. Eldsupptök má að ölluro
líkindum rekja til sætishitara.
Konan sem ók bflnum, sem er ný-
legur Volvo, varð vör við að reyk
lagði undan sæti hennar þar sem hún
staðnæmdist á rauðu Ijósi. Hún var
þá nýbúin að ná í bílinn á verkstæði
en þangað hafði hún farið með hann
vegna bilunar í sætishitara. Viðgerð-
in tókst þó ekki betur en svo að eldur
kviknaði í sætinu. Slökkviliðið kom á
staðinn stuttu síðar en þá var tals-
verðúr eldur í bílnum. Innrétting og
sæti bflsins skemmdust mikið.
Samkv. upplýsingum frá slökkvilið-
inu er nokkuð um að það kvikni í út
frá sætishiturum.
NRK
Kristenn er viðskiptafræðingur,
menntaður í Englandi.
Hann hefur verið framkvæmda-
stjóri Norsku bókaklúbbanna und-
anfarin níu ár. Norsku bókaklúbb-
arnir reka ellefu bókaklúbba í
Noregi og er ársvelta fyrirtækis-
ins um sex milljarðar íslenskra
króna. „Helmingur allrar bóka-
verslunar í Noregi fer um Norsku
bókaklúbbana. Félagar í klúbbun-
um eru um 630 þúsund talsins,
sem jafngildir áskrift á fjórða
hverju heimili í Noregi, segir
Kristenn í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann hefur verið viðloðandi
Norsku bókaklúbbana síðustu 25
ár að undanskildum átján mánuð-
um á árunum 1988-1989 þegar
hann gegndi framkvæmda-
sljórastöðu hjá fataversluninni
Bik Bok. Kristenn gegnir einnig
stjórnarformennsku í fimm fyrir-
tækjum tengdum Netinu eða bók-
um.
Aðspurður segist Kristenn
koma til íslands einu sinni á ári
og einnig sé hann í samskiptum
við íslensk bókaforlög vegna
starfs síns.
Islendingur nefndur
sem yfirmaður
Ósld. Morgunbladið.