Morgunblaðið - 23.11.2000, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 23.11.2000, Qupperneq 48
Í8 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000 KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR EINAR ÖRN BIRGIS Mér er minnisstætt hvað það var auðvelt að ræða við þig um lífið og til- veruna og hvernig allt andlitið komst á flug þegar eitthvað spennandi var fram undan. Það var þér svo eðlis- lægt að koma auga á það bjarta, bæði í þínu eigin lífi og annaira og það, ásamt húmornum og meðfæddum leikarahæfileikum, gerði það að verkum að það tók sig upp gamalt bros hjá ólíklegustu mönnum þegar þú komst á flug. Eg vona að þú haldir uppteknum hætti á nýjum stað og kveð þig með söknuði. Elsku Alla og Birgir, Gúddý, Birg- ir, Guðlaug og fjölskyldur. Við vottum ykkur okkar bestu samúðarkveðjur og aðdáun á styrk ykkar og samheldni á þessum erfiðu tímum. Haukur og Soffía. Kveðja frá Þrótti Sumarið 1996 fengum við Þróttar- ar mikinn liðsstyrk. Þar var kominn Einar Örn Birgisson, glaðvær og geðþekktur piltur em átti heldur bet- ur eftir að lífga upp á félagið. Einar fór reyndar rólega af stað fyrra sumarið, sem hann lék með okkur, en það átti eftir að breytast því sumarið 1997 átti hann án efa sitt besta heila keppnistímabil á ferlinum og erum við Þróttarar stoltir yfir því að það hafi gerst hjá okkur. Einar átti stóran þátt í því að við komumst upp um deild það árið, skoraði grimmt og vann geysilega vel fyrir liðið. Enda vakti frammistaða hans það mikla athygli að hann fékk tækifæri til að spreyta sig í atvinnu- mennsku í kjölfarið. Þótt Einar væri hættur að leika með Þrótti var hann samt aldrei langt undan því vinahóp- urinn, sem hann eignaðist í félaginu var stór, þar af nokkrir af hans bestu vinum. Hjá okkur Þrótturum situr ekki bara eftir minningin um góðan fótboltamann. Við eigum líka fallegar minningar um fínan dreng sem gerði góðan hóp betri. Við vottum fjöl- skyldu hans okkar innilegustu sam- úðarkveðjur Þú varst mjög góður og bh'ður maður, Einar, og svona gæti ég lengi talið, ég hef ekki þekkt þig lengi. En þegar ég hitti þig þá komstu mér allt- af til að brosa. En svo þegar ég fékk þær fréttir að þú værir týndur byrj- 'r aði ég strax að biðja fyrir þér og vona.Eg vonaðist til að þú myndir finnast heill á húfi fyrir þann 16. nóv. vegna þess þá væri afmælisdagurinn minn, ég vildi að þú myndir finnast bara sem fyrst. Þann 16. nóv var loks búið að finna þig og ég bjóst við því að þú værir vel á þig kominn og það væri allt í lagi með þig. En því miður varð ekki svo. Því miður fór það á verri veginn. En núna ert þú alltaf þar sem er friður og ríkir birta að ei- lífu. Ég vona að Guð taki vel á móti þér og setji þig undir sinn verndar- væng og að Guð veri með og styrkir þá alla sem þurfa þess. Mér var gefið þetta ljóð í gjöf og kveð þig með því, Einar. Gráttu ekki af því að ég er dáin ég er innra með þér alltaf. Þúhefurröddina húneríþér hana getur þú alltaf heyrt þegarþúvilt. Þú hefur andlitið hltamann. Égeríþér. Þú getur séð mig fyrir þér þegarþúvilt Alltsemereftir afmér erinnrameðþér. Þannigerumviðalitafsaman. (Barbo Lindgren, þýð. Vilborg Dagbj artsdóttir.) Með kærri samúðarkveðju, Snædís Góa. Kæri vinur, undarleg er sú tilfinn- ing að finnast maður hafa alla hluti á -valdi sínu einn daginn og þann næsta vera kominn á vit örlaganna þar sem mennimir eru leiksoppur einhvers æðra valds sem svo erfitt er að skilja. Ég sá þig fyrst þar sem þú slóst björtum ljóma á umhverfið svo allt annað fölnaði. Ég minnist návistar þinnar sem var svo einstök, hjarthlý og einlæg. Góður vinur og traustur. Hlustaðir vel á þá sem áttu í vanda og varst þeim mikill stuðningur. Og fjöl- skyldu þinni varstu náinn svo og leið þér best í nálægð þeirra. Börn systk- ina þinna gáfu þér mikla gleði sem og þú þeim. Fegurð þín kom jafnt innan frá sem utan, brosið svo blítt og aug- un glampandi. Það væri auðveldlega hægt að skrifa margar síður um hugmyndir þínar og persónuleikav Svo mörg eru minnisstæðu atriðin. Ég brosi þegar ég hugsa til þess dags er þú seldir Subaru-inn. Þá komstu mér á óvart með því að binda fyrir augu mín og leiða mig að nýja bflnum (sem reynd- ar var uppítökubfll), þú losaðir klút- inn frá augunum og á hlaðinu stóð þessi glæsilegi Skodi, vafinn rauðum borða, með stórri slaufu á toppnum og korti þar sem þú ætlaðir mér bfl- inn. Það er mér yndisleg minning hversu eðlilegur þú varst og áttir auðvelt með að sjá húmorinn í hvers- dagleikanum. Hvernig hver dagur hafði sinn Ijóma. Sá ljómi lifir áfram um ókomin ár. Þegar ég hugsa til þín líður mér vel því þú varst góð sál og þér var leikur einn að láta öðrum h'ða vel. Ég trúi því og vona að þú sért enn meðal okkar þó að við sjáum þig ekki. Vona að þú styrkir fjölskyldu þína sem þér þótti svo vænt um. Ég mun ávallt geyma minningu þína í hjarta mínu. Lára Guðrún. í byrjun febrúar réðst Einar Örn til starfa hjá fyrirtæki okkar, Ágúst Armann ehf.? sem deildarstjóri herradeildar. Áður hafði hann unnið hjá okkur um tíma í sportvöruversl- uninni Maraþon í Kringlunni. Það var því auðveld ákvörðun að velja hann í þetta veigamikla starf þar sem við þekktum hann og hans starfs- hætti í gegnum verslunina. Það tekur tíma að setja sig inn í öll mál sem deildarstjóri, svo sem að kynnast okkar birgjum erlendis, lag- erhaldi og síðan en ekki síst öllum okkar ágætu viðskiptavinum um land allt. Einnig er grundvallaratriði að fylgjast með tískunni á hverjum tíma. Éinar Öm beitti sér í að ná tökum á öllum þessum málum og fundum við að hann var afar námfús og metnaðar- fullur að ná tökum á verkefninu. Þó svo að hann hafi aðeins starfað innan við hálft ár hjá fyrirtækinu fór hann í þrjár ferðir utan sem fulltrúi fyrirtækisins. Þeir erlendu birgjar sem kynntust honum hrifust af fram- komu hans og áhuga á viðskiptum. Eftir eina ferðina var hann búinn að fá umboð fyrir öll norðurlöndin fyrir fyrirtækið og var mjög áhugasamur um að við seldum ekki aðeins á Isl- andi heldur til hinna Norðurlandanna þar sem hann setti Noreg á oddinn. Hann sótti fast fram að marki við- skiptanna eins og í knattspymunni. Ef dvöl hans hefði verið lengri við fyrirtækið er aldrei að vita hvers mörg mörk hefðu verið skorað. Meðal starfsmanna og viðskipta- vina var Einar Örn vinsæll og hvers manns hugljúfi, hann hafði góða nær- veru, léttur og geðprúður. Það þarf kjark, áræðni og trú á sjálfan sig og framtíðina að opna tískuvöraverslun í dag í þeirri miklu samkeppni sem nú ríkir á markaðn- um. Einnig mikinn dugnað að ná GAP-umboðinu því vitað er að marg- ir, stórir sem smáir í íslensku við- skiptalífi, hafa reynt að ná því um- boði til sín á undanförnum áram. Öll okkar kynni af þessum ljúfa dreng vora til fyrirmyndar og viljum við votta unnustu, foreldram, systk- inum og ættingjum öllum okkar dýpstu samúð. Eigendur og starfsfólk Ágústar Ármanns og Ármann Reykjavík. Safnaðarstarf Líf í sorg - líf í von í Hall- grímskirkju í KVÖLD, fimmtudagskvöldið 23. nóv., kl. 20.30 mun séra Sigurður Pálsson, sóknarprestur í Hall- grímskirkju, flytja síðasta fyrirlest- urinn í fyrirlestraröð sem Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa staðið fyrir undanfarin fimmtu- dagskvöld. Fyrirlesturinn, sem nefnist Líf í sorg, líf í von, verður fluttur með litskyggnusýningu og er efni hans miðað við þá sern eru að glíma við sorg og missi. Á. eftir gefst tækifæri til umræðna. Öllum er heimill aðgangur. Áskirkja Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14-17. Söngstund kl. 14-15. Kaffispjall. Biblíulestur í safnaðar- heimilinu kl. 20. Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-11.30. Foreldramorgunn í umsjón Önnu Eyjólfsdóttur hjúkr- unarfræðings og Péturs Björgvins, fræðslufulltrúa Háteigssafnaðar. Bros og bleiur kl. 16-17.30. Sam- vera fyrir foreldra um og undir tví- tugu í safnaðarheimilinu. Gengið inn að norðan (Viðeyjarmegin). Jesúbæn kl. 20. Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn með handaryfirlagningu og smurning. Langholtskirkja. F oreldra- og barnamorgnar kl. 10-12. Fræðsla: Vanlíðan mæðra eftir fæðingu. Elva Möller hjúkrunarfræðingur. Svala djákni les fyrir eldri börnin. Söngstund með Jóni Stefánssyni. Langholtskirkja er opin til bæna- gjörðar í hádeginu. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.00. Gunnar Gunnars- son leikur á orgel fyrstu 10 mínút- Hallgrímskirkja urnar. Að lokinni samveru er léttur málsverður í boði í safnaðarheimili. Samvera eldri borgara kl. 14. Neskirkja. Unglingaklúbbur Nes- og Dómkirkju kl. 20 í safnaðarheim- ili Neskirkju. Seltjarnarneskirkja. Starf fyrir 9- 10 ára börn kl. 17. Islenski söfnuðurinn í Kaupmanna- höfn býður öllum krökkum á aldrin- um 0-8 ára í kirkjuskóla í Jónshúsi laugard. 18. nóv. kl. 10. Kaffi, djús og kex á eftir. Muna að taka mömmu og/eða pabba með. Starfs- fólk kirkjuskólans. Fossvogskirkja. Fyrirlestrar um sorg era á fimmtudögum í nóvem- ber og hefjast kl. 20.30 í kvöld. Fjórði og síðasti fyrirlesturinn nefnist „Líf í sorg og von“. Sr. Sig- urður Pálsson sóknarprestur flytur. Fyrirlesararnir era allir þekktir guðfræðingar, sem hafa sem fræði- menn og sálusorgarar glímt við vandann sem þjáningin veldur og hafa íhugað það svar, sem kristin- dómurinn miðlar með huggunar- boðskap sínum. Kirkjugarðarnir og prófastsdæmin. Árbæjarkirkja. TTT-starf 10-12 ára í Ártúnsskóla kl. 17-18. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstudag kl. 10-12. Digraneskirkja. Leikfimi IAK kl. 11. Foreldramorgnar kl. 10-12. Helgistund kl. 11. Kvöldbænir kl. 18. Safnaðarfélag Digraneskirkju, fundur í safnaðarsal kl. 20.30, sr. Sigfinnur Þorleifsson ræðir um starf sjúkrahúsprestsins. Fella- og Hólakirkja. Starf fyiár 11-12 ára drengi kl. 17-18. Grafarvogskirkja. Foreldramorgn- ar kl. 10-12. Fræðandi og skemmti- legar samverustundir, heyrum guðs orð og syngjum með börnunum. Kaffisopi og spjall, alltaf brauð og djús fyrir börnin. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30. Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í dag kl. 14.30-17 í safnað- arheimilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 17. Éyrirbæna- efnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. Fundir fyrir 9-12 ára stráka kl. 17 í umsjá KFUM. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyr- ir ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonar- höfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Fríkirlqan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 9- 12 ára krakka kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Bænastund kl. 22. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10 foreldramorgunn í safnaðar- heimilinu. Kl. 17.30 TTT-starf 10- 12 ára krakka. Keflavíkurkirkja. Fermingarandir- búningur kl. 14.50-17 í Kirkjulundi. Ytri-Nj arðvíkurkirkj a. Biblíulestr- ar kl. 20. Fyrirbænasamvera kl. 18.30 í umsjá Ástríðar Helgu Sig- urðardóttur, farið verður í Lúkas- arguðspjall. Fyrirbænasamvera kl. 18.30. Fyrirbænaefnum er hægt að koma áleiðis fyrir hádegi virka daga kl. 10-12 í síma 421-5013. Spila- kvöld aldraðra kl. 20. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Beðið fyrir sjúkum og sorg- mæddum. Kristjana Steingrímsdóttir og Erla Siguijónsdóttir urðu íslandsmeist- arar í kvennaflokki en 26 pör spiluðu um meistaratitilinn um sl. helgi. Þær tóku snemma forystu í mótinu og héldu til mótsloka. Guðmundur Ágústsson, forseti Bridssambandsins, afhenti þeim blóm og verðlaun. BRIDS Umsjón Arnór G. R a g n a r s s o n Bridsdeild eldri borgara í Kópavogi Það mættu 22 pör til keppni á föstudag, 17. nóvember. Hæsta skor ÍN/S: Einar Einarss. - Hörður Davíðss. 254 Fróði B. Pálss. - Magnús Jósefsson 252 Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 243 Hæsta skor í A/V: Albert Þorsteinss. - Sæmundur Bjömss. 251 Páll Hannesson - Kári Sigurjýnss. 243 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 236 Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 236 Síðastliðinn þriðjudag spiluðu einnig 22 pör og þá varð staða efstu para þessi í N/S: Eysteinn Einarss. - Jón Stefánss. 264 Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Arnórss. 253 Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 234 Hæsta skor í A/V: Kristján Ólafsson - Lárus Hermannss. 266 Jón Andrésson - Valdimar Þórðarson 253 Bragi Salomonss. - Þorsteinn Erlingss. 245 Meðalskor báða dagana var 216. Islandsmót (h)eldri og yngri spilara íslandsmót yngri spilara í tví; menningi verður haldið 26.-27. nóv. í flokki yngri spilara era þátttakendur fæddir 1976 eða síðar. Þátttaka er ókeypis. íslandsmót (h)eldri spilara í tví- menningi verður einnig haldið í Þönglabakkanum helgina 26.-27. nóvember. Lágmarksaldur er 50 ár og samanlagður aldur parsins minnstllOár. Bæði mótin byrja kl. 11.00 laugar- dag. Skráning í s. 587 9360 eða bridge@bridge.is Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 20. nóvember var spilaður eins kvölds tvímenningur hjáfélaginu. Urslit urðu þannig: Halldór Þórólfsson - Andrés Þórarinsson200 Ásgeir Ásbjömsson - Dröfn Guðmundsd. 188 Högni Friðþjófss. - Gunnlaugur Óskarss.186 Atli Hjartarson - Þórður Þórðarson 186 Meðalskorvar 165 Næstkomandi mánudag, 27.11., hefst aðaltvímenningur félagsins, sem standa mun í þrjú kvöld og verð- ur spilað með barometer-fyrirkomu- lagi. Spilað er í Álfafelli, félagssal íþróttahússins við Strandgötu og hefst spilamennska kl. 19.30. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Lokið er 3ja kvölda hraðsveita- keppni þar vann sveit Jóns Steinars 1909 stig. Þar spiluðu: Jón St. Ingólfss. - Hermann Friðriksson Jens Jensson - Karl 0. Jónsson 2. sæti: Sveit Önnu G. Niels. 1948 3. sæti: Sveit Gróu Guðnad. 1771 Mánudaginn 27. des. nk. hefst 3ja kvölda tvímenningur „Jólasería". Verðlaun fyrir 2 pör sem skora mest á hverju kvöldi. Heildarverðlaun fyr- ir 3 pör sem skora mest samtals. 2 kvöld af 3 gilda til aðalverðlauna. Skráning á spilastað ef mætt er stundvíslega kl. 19.30. Bridskvöld Bridsskólans og BSI Mikill áhugi og góð stemmning er á mánudögum á bridskvöldum Bridsskólans og BSÍ. Mánudaginn 20. nóv. mættu 17 pör til leiks. Úrslit urðu þessi: N-Sriðiil Pétur Jónass. - Guðrún Guðmundsd. 111 Benedikt Franklínss. - Magnús Waage 106 Kristinn Stefánss. - Jóna Samsonard. 97 A-V riðill Magnús Bergss. - Ágúst Guðmundss. 104 Gunnlaugur Jóhannss. - Örn Ingólfss. 104 Bjarni Jónatanss. - Stefán Stefánss. 100 Spilað er á mánudögum kl. 20 í Þönglabakka 1, 3. hæð. Allir era vel- komnir og aðstoðað við myndun para.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.