Morgunblaðið - 23.11.2000, Qupperneq 68
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000
FOLKI FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND
J Váleg
einsemd
För Feliciu
(Felicia’s Journey)
Takk fyrir að kaupa ekki neitt
Drama
★★★
Leikstjórn og handrit: Atom Eg-
oyan. Aðalhlutverk: Bob Hoskins,
Elaine Cassidy. (111 mín.)
y Bretland/Kanada 1999. Skífan.
Öllum leyfð.
ÞÓTT Kanadamaðurinn Atom
Egoyan sé ekki mjög þekkt nafn í
kvikmyndaheiminum þá er hann
þar í flokki meðal allra fremstu og
á vafalítið allnokkra dygga en lág-
væra fylgjendur. Það er t.a.m. mál
margra að mynd
hans Sweet Here-
after frá árinu
1998, þar sem Iam
Holm fór á hrein-
um kostum, sé ein
allra besta mynd
þess árs, ef ekki
sú besta. Felicia’s
Journey er mynd-
in sem Egoyan
gerði þar á eftir og svo virðist sem
honum hafi líkað að vinna með
breskum þungavigtarmanni því
hann hefur fengið annan og lítt
síðri Breta til þess að fara með
lykilhlutverk myndarinnar, litla
bolabítinn Bob Hoskins. Myndin
segir raunasögu ungrar írskrar
stúlku sem leggur, með barn undir
belti, í ferð yfir til Englands í von-
lausri leit að þarlendum föðurnum.
í staðinn verður einfarinn Hilditch
á vegi hennar og notar sér ófarir
hennar, þykist sjá á henni aumur
en er einfaldlega að svala sjúklegri
einsemd sinni sem tengist með
beinum hætti sérkennilegu sam-
bandi hans við móður sína.
Þótt Felicia’s Journey sé langt
frá því að vera eins öflugt drama
og forverinn þá gengur hlutverka-
skipanin fullkomlega upp því
Hoskins er hreint magnaður og
eignar sér algjörlega myndina.
Skarphéðinn Guðmundsson
Á MORGUN föstudag er alþjóð-
legi „Kaupum ekkert dagurinn !“
en af því tilefni hefur hópur af ís-
lensku listafólki tekið sig saman
og undirbúið mikla dagskrá þenn-
an dag hér í Reykjavík. Tilgangur-
inn er að vekja fólk til umhugsun-
ar um neyslu sína og fá það til að
stoppa og hugsa áður en það kaup-
ir. I forsvari fyrir hópinn hér á Is-
landi eru þær Berglind Jóna
Hlynsdóttir og Helena Stefáns-
dóttir.
Allt ókeypis
„Við erum að bjóða fólki ókeypis
gleði. Allt er ókeypis, það kostar
ekki neitt inná myndlistarsýning-
arnar eða tónleikana og allar veit-
ingar eru
ókeypis og verkin eru ekki til
sölu. Það er enginn peningur í
þessu,“ segir Helena. „Við notum
list og menningu í mótmælaskyni,
við skrifum ekki greinar í blöð
heldur notum við list og þá mögu-
leika sem hún býður uppá til að
benda á það sem okkur finnst bet-
ur mega fara. Allan föstudaginn
verður dagskrá úti um alla borg.
Það verður „Kaupum ekkert"
verslun á Skólavörðustíg 21, sem
verður opin á verslunartíma frá
11:00 til 18:00 en þar verður m.a.
boðið uppá kaffi og kökur. Þetta er
búð þar sem ekkert verður hægt
að kaupa, þar sem viðskiptavinir fá
kvittanir fyrir því að hafa ekki
keypt neitt og hljóta þakkir fyrir.
í Kringlunni verður líka 30 manna
leikhópur með leikatriði alveg frá
kl: 10:00 til 18:00 og er aldrei að
vita uppá hverju hann tekur.
Nokkur bílastæði verða friðuð eða
frelsuð á mismunandi stöðum í
borginni. Þau hætta s.s. í því hlut-
verki að vera til sölu og þeim er
breytt í annað umhverfi sem býður
uppá aðra möguleika. Einnig verð-
ur eitthvað af boðskap okkar varp-
að á byggingar, en fólk á eftir að
rekast á það hér og þar um borg-
ina. Að auki verða ýmsar minni-
háttar uppákomur, innsetningar í
búðargluggum o.fl.“
Alþjóðleg samtök
„Kaupum ekkert dagurinn" er
alþjóðlegt fyrirbrigði að sögn
Berglindar en það er dagur sem
ekki á að kaupa neitt, helst ekki
Það eru engar líkur á því að þau Berglind Jóna Hlynsdóttir, Sveinbjörn Pálsson og Helena Stefánsdóttir sjáist
með innkaupapoka á morgun.
' ■■ ■■ ■-•'■> . ■. '
keyra bíla og markmiðið er að
vekja fólk til umhugsunar um
frelsi mannsins til þess að tjá sig.
Þessar hugmyndir eiga upptök sín
í Kanada og Evrópu en samtökin
þar gefa út blað um þetta málefni
á 2 mánaða fresti. Einnig ætla
evrópsku samtökin að safna vegg-
spjöldum frá öllum „Kaupum ekk-
ert dögunum" í öllum löndunum til
þess að setja upp n.k gagnabanka
um þessar aðgerðir. „Fyrir mig er
þetta algjör bylting og í framtíð-
inni er það markmiðið að þessi
dagur eigi eftir að þjóna umræðu
um þessi mál,“ segir Berglind.
„Heimasíðan okkar, www.kaupum-
ekkert.org, er n.k. tenging við
þessar hugmyndir en þar getur
fólk sent okkur tölvupóst og viðrað
skoðanir sínar. Þetta eru því al-
þjóðlegar hugmyndir sem miðast
að því að reyna fá fólk aðeins til að
stoppa, því eins og staðan er í dag
eru 20% jarðarbúa að neyta 80%
af framleiðslu jarðar. Eg er t.d. í
daglegum samskiptum við hópana
í hinum löndunum, þar sem við
skiptumst á hugmyndum og stað-
reyndum um neyslu, og einnig
hvernig aðgerðum er best að beita
á þessum „Kaupum ekkert degi“.“
Myndlist með
boðskap
í bílastæðahúsinu á Hverfisgötu
20 verður myndlistarsýning sem
Daníel Magnússon myndlistar-
maður setur upp. Það eru milli 15
og 20 myndlistarmenn sem sýna
verk sem öll tengjast á einhvern
hátt neyslu og neyslumenningu.
Flestir myndlistarmennirnir sem
sýna eru frekar pólitískir og hafa
verið að vinna á þessum nótum,
þ.e. hafa einhverja hugsjón sem
skín í gegn í verkum þeirra. Þetta
er mjög breiður hópur jafnt starf-
andi myndlistarmenn sem og nem-
endur og áhugamenn. Sýningin er
bara þennan eina dag frá 17:00 til
11:00 en það eru kókaínsystur sem
að byrjar að rífa upp stemmning-
una kl. 17:00. Það verða einnig upp-
lestrar en kl.18:00 munu Andri
Snær Magnason, Dísirnar þrjár og
Viðar Hreinsson lesa úr nýút-
komnum bókum sínum.
Klukkan 19:00 mun hljómsveitin
múm leika af fingrum fram og svo
munu Dj Árni Sveins og Kári enda
kvöldið en þá taka tónleikar við í
Skötuhúsinu niðri á höfn.
Skíðastafir fullaröins
frákr. 900
Skíðabindingar fullorðim
frákr. 4.200
Skíðagallar bama
frákr. 1.900
Skíðagallar fullorðlns
frákr. 2.900
Keppnisskíði unglini
og fullorðins
fiákr. 3.000
Lange keppnisskór
unglinga
frákr. 6.900
Snjóbretti
10-25%
afsláttur
\r
Skíöaskórbarna
st. 21-29
frákr. 1.980
skíðaskór fullorðins
frákr.3.990
Eldriárgerðjrá allíað skíðastafir, barna 1
30% atSlættl frAOe 7fW1 1
Topp
skiðamerkin
frákr. 1.990
Skíðaúlpur
10-60% afsli
Odýrir skíðahanskar og tififur
Skíðahjálmar
frákr. 1.500
Skíðaþjðnusta, slípum,
brýnum og berum a skíði
Ljósmynd/Bjargey Ólafsdóttir
Frá opnuninni á a5 og gestir. f forgrunni er verk
Hildar Margrétardóttur „unajpeg“ og það glittir í
„tvo ketti“ í bakgrunni.
Bjargey Ólafsdóttir og Ragnar Kjartansson sem kisur
en þau voru með gjöminginn „Tveir kettir“ á sýning-
unni a5 og gestir, en verkið var undir miklum áhrif-
um frá söngleiknum vinsæla Cats.
✓
Islensk myndlist
í Stokkhólmi
UM SÍÐUSTU helgi voru opnaðar í Stokkhólmi tvær
sýningar sem vöktu mikla athygli og nokkrir íslend-
ingar áttu verk á. Önnur var í loftvarnarbyrgi undir
kirkju í miðbæ Stokkhólms og heitir „a5 og gestir“
en opnunin tókst með miklum ágætum og stendur
sýningin til 27. þessa mánaðar. Sýningin var hluti af
norrænu samvinnuverkefni sem Islendingar eru
hluti af, sjá nánari upplýsingar á www.a5.nu. Hin
sýningin var í „Mellan rumet“ sem er gallerí í
tengslum við listaakademíuna í Stokkhómi en hún
hét „Arty Party“ og stóð aðeins yfir þetta eina
kvöld.
Sýninguna skipulögðu Kristín Elva Rögnvaldsdótt-
ir og Ragnar Kjartansson og eins og titillinn gefur
til kynna hafði sýningin það að markmiði að tengja
list og skemmtun. Að sögn aðstandenda skemmtu
flestir sér vel og tókst sýningin vonum framar.
Verk eftir sænsku listakonuna Tildu love frá sýning-
unni Arty party.