Morgunblaðið - 10.12.2000, Page 8
8 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Jólaskreytingameistarinn í Hlyngerði kominn á stjá:
Konan skammaði
Það er alveg ótrúlegt aö þegar
Ólat'ur Ragnar forseti handleggs-
brotnaði felldi Dorrit tár en kon-*
an mín skammaöi mig og hann,
var fluttur með þyrlu en ég þurftU
Þú getur sko alveg hætt að láta þig detta svona, góði. Þú færð hvorki tár né þaðan af síð-
ur að ég kalli á þyrlu, þú ert enginn Ólafur Ragnar forseti.
^rífandi hvernig sem á þær er li
NSDV-55
Samanstendur af DVD spilara, útvarpi og dolby digital magnara.
> Spilar alla diska: C0 - CDR - CDWR - DVO
• Magnari 5x40W RMS
• 1x50 djúpbassi
• DTS Digital Surround í ’ i I
• Dolby digital 5.1 útg.
• Meiri tengimöguleikar
Verð 119.900 stgr
Verölaun og prúfútkoma: UK - What Hi-Fi? tæknitímarit:
//1 já>ntœLi ársins 2000 - 2001
NSF-10
NS-9
Hljómflutningstæki
• 2x50W RMS-útvarpsmagnari með 24 stöðva minni
• Einn diskur
• Aðskilinn bassi og diskant
• Stafræn tenging
• Tvfsklptur hátalari (2 way)
• Djúpbassi
Verð 59.900
Hljómflutningstæki
• 2x50W RMS-útvarpsmagnari með 24 stöðva minni
• Einn diskur
• Aðskilinn bassi og diskant
• Stafræn tenging
• Tvískiptur hátalari (2 way)
• Djúpbassi • Hátalarar líka til í rðsavlð
Verð 64.900
stgr
Lfttu viíf f glæsiíegri hljómtcekjadeild okkar
að Lágmúla 8 og rœddu við sölumenn.
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
Hjálpræðisherinn á Akureyri
Setur út jólapott-
inn eftir helgi
NU EFTIR helgina
verður tekið á
móti beiðnum um
fjárhagsaðstoð hjá Hjálp-
ræðishernum á Akureyri.
Erlingur Níelsson, starfs-
maður Hjálpræðishersins,
sinnir þeim beiðnum
ásamt fleiri starfsmönnum
hersins. Hann var spurður
hvort mikið væri um hjálp-
arbeiðnir til Hjálpræðis-
hersins á Akureyri.
„Við eigum von á að það
verði fyrir þessi jól.
Reynslan hefur sýnt okk-
ur að þörfin fyrir fjárhags-
lega aðstoð hefur aukist að
undanförnu og þetta ger-
ist þrátt fyrir mikið tal um
góðæri í landinu. Við vor-
um með fataúthlutun í sl.
viku og höfðum opið hús
þannig að þeir sem þurfandi voru
fyrir fatnað gátu valið sér það
sem hentaði og til var.“
- Hversu háan fjárstuðning
getið þið veitt skjólstæðingum
ykkar?
„Hvað verður veitt fer eftir því
hvað inn kemur í jólapottinn og
við setjum hann út núna eftir
helgi og sjáum svo til hversu
rausnarlegt fólk verður. Stefnt er
að því að úthluta í kringum 20.
desember og þá sjáum við hversu
margar umsóknir hafa borist og
hvað hægt er að hjálpa hverjum
og einum. Fyrirtæki hér í bænum
hafa verið mjög hjálpleg við okk-
ur undanfarin ár svo við gætum
sinnt þessu hjálparstarfi og St.
Georgsgildið hefur gefið rausnar-
legar upphæðir í þessa söfnun
undanfarin ár.“
-Eruð þið með annars konar
fjáröflun?
„Fjáröflun okkar byggist mest
á framlögum í jólapottinn auk
þess sem við höfum fengið föst
framlög eins og fyrr gat frá ýms-
um fyrirtækjum."
- Rekur Hjálpræðisherinn um-
fangsmikla starfsemi á Akureyri?
„Já, hún er nokkuð umfangs-
mikil og myndarleg, sérstaklega
á barna- og unglingasviðinu. Það
er þó nokkuð mikið af krökkum
og unglingum sem sækja fundi
hér. Við erum bæði með sunnu-
dagaskóla og krakkaklúbb sem
við nefnum Örkina hans Nóa.
Annan klúbb erum við með fyrir
eldri krakka sem við köllum
Mannakorn og svo tvo klúbba fyr-
ir yngri og eldri unglinga."
- Hvað með húsnæðisaðstoð?
„Það eru nokkuð mörg ár síðan
við seldum gistihúsið sem við rák-
um hér, það var um 1980, og síðan
höfum við ekki verið með aðstoð
afþvítagi.“
- Er ekki þörf á slíku að þínu
mati?
„Nei, ég held að þörfin sé ekki
fyrir hendi hér á Akureyri. Að-
stæður hér eru talsvert aðrar en í
Reykjavík. Við höfum t.d. reynt
að hafa opið hús á aðfangadags-
kvöld eins og tíðkast hjá Hjálp-
ræðishemum í Reykjavík en að-
sókn hjá okkur var engin. Það
erum við ánægðir með ___________
hér, það sýnir að Akur-
eyri nýtur þess að vera
lítið bæjarfélag þar
sem fólk veit hvað af
öðru og menn sitja
ekki einir á aðfanga-
dagskvöld." ""
-Hvert er þá höfuðviðfangs-
efni ykkar hjá Hjálpræðishernum
á Akureyri?
„Höfuðviðfangsefnið er að út-
breiða fagnaðarerindið um Jesú
Krist með ýmsu móti. Jafnframt
því að reyna að koma til móts við
fólk með ýmiss konar aðstoð. Við
erum með fatamarkað hér sem
Erlingur Níelsson
► Erlingnr Nielsson fæddist á
Akureyri 5. febrúar 1962. Hann
lauk prófi eftir almennt nám frá
Foringjaskóla Hjálpræðishersins
1983 í Ósló og hefur starfað hjá
Hjálpræðishernum á Akureyri, á
fsafirði og í Reykjavík frá þeim
túna. Nú er hann starfsmaður í
bama- og æskulýðsdeild Hjálp-
ræðishersins á Akureyri. Erling-
ur er kvæntur Ann Merethe
Jakobsen sem stundar hjúkrun-
araám við Háskólann á Akur-
eyri. Þau eiga fjögur börn.
Stór hluti
skjólstæð-
inga okkar
er ungir
foreldrar
opinn er einu sinni í viku og þar
seljum við föt á mjög vægu verði.
Mjög margir nýta sér þetta.“
- Hvaðan fáiðþið fötin?
„Þau fáum við frá fólki í bænum
og úr sveitunum í nágrenninu.“
- Hvað með matarúthlutun fyr-
irjólin?
„Nei, eina úthlutunin sem við
erum með er peningaúthlutun en
þó hafa stundum fylgt matargjaf-
ir sem við höfum fengið frá fyrir-
tækjum i bænum og reyndar hef-
ur einn einstaklingm-, ágætur
maður hér í bæ, komið með úr-
beinuð hangikjötslæri sem hann
biður okkur jafnan að koma í rétt-
ar hendur.“
-Hvers vegna heldur þú að
beiðnir verði fieiri núna en endra-
nær?
„Það er margt sem bendir til að
margir búi við léleg kjör og þurfi
á aðstoð að halda til að geta veitt
sér og sínum gleðileg jól. Því er
ekki að neita að kröfurnar sem
við gerum aukast alltaf og það
hefur að sjálfsögðu áhrif á þessa
þörf. En stór hluti skjólstæðinga
okkar er ungt fólk sem á börn og
þar er oft ákaflega þröngt í búi.
Þetta getur stafað af atvinnu-
leysi, veikindum að sjálfsögðu og
sumir skjólstæðingar okkar eru
einstæðir og hafa fyrir mörgum
börnum að sjá.“
- Hefur Hjáipræðisherinn
miklu hiutverki að gegna í bæjar-
lífi Akureyrar?
„Já, ég held að hann hafi tals-
verðu hlutverki að gegna. Það fer
svolítið eftir því hvernig okkur
tekst að rækta þetta
hlutverk okkar. Við er-
um öll af vilja gerð og
reynum að setja svip á
bæinn okkar og láta
gott af okkur leiða.“
- Hvað á herinn
....... langa sögu á Akureyri?
„Árin eru orðin 96. Hjálpræðis-
herinn kom hingað 1904 frá
Reykjavík, en þangað kom hann
1895. Virkir heimenn í Hjálpræð-
ishernum á Akureyri eru á bilinu
tíu til tólf en þar fyrir utan eru
margir félagar í kvennahreyfing-
um hersins sem vinna gott og
óeigingjarnt starf.“