Morgunblaðið - 10.12.2000, Blaðsíða 64
VlÐSKIPTAMUGBÚNAÐUR
Á Hf.lMSMÆLlKVARÐA
<Q>
NÝHERJI
S: 569 7700
PÓSTURIN
í! Einn heimur -eitt dreifikerfi!
www.postur.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNJ 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRLKA UPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Skjálfta-
hrina við
Grímsey
NOKKUÐ öflug jarðskjálftahrina
varð við Grímsey á fostudagskvöld og
aðfaranótt laugardags, en stærstu
skjálftamir mældust um þijú stig á
Richter. Upptökin voru 25-30 kíló-
metra suðaustur af Grímsey.
Páll Halldórsson jarðeðHsfræðing-
ur segir að fyrstu skjálftamir hafi
orðið upp úr klukkan tíu á föstudags-
kvöld og sá síðasti um klukkan níu í
gærmorgun.
Páll segir að skjálftar séu algengir
á þessu svæði en að þetta sé meiri órói
en hafi verið þama á síðustu mánuð-
um. Hann segir að ekki sé ástæða til
að ætla að hrinan sé fyrirboði um
neitt en tekur fram að alltaf sé fylgst
'*%;1 með jarðskjálftamælum.
---------------
Stóðhestur-
inn Otur á
leið úr landi
STÓÐHESTURINN Otur frá Sauð-
árkróki hefur verið seldur úr landi.
.^Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verður hann fluttur til
Þýskalands á næstu dögum, en
kaupendumir em Þjóðverjar sem
lengi hafa borið víurnar í hestinn.
Ekki fékkst uppgefið kaupverð.
Otur er 18 vetra gamall og hefur
notið ágætra vinsælda og meðal
þekktustu afkvæma hans er Orri frá
Þúfu.
Morgunblaðið/Sverrir
Margir eiga erindi í verslanir þessa dagana til að huga að innkaupum fyrir hátíðina. Eva Dögg, tveggja og hálfs
árs, og Fanndís Ósk, fjögurra ára, skemmtu sér hið besta í innkaupakörfunni í gær, og hafa eflaust verið að
velta því fyrir sér hvort mamma og pabbi væru búin að kaupa jólagjöfina.
Viðskiptaráðherra vill breytingar á viðræðunefnd um sameiningu bankanna
Formaður bankaráðs átelur
vinnubrögð viðskiptaráðherra
BANKARÁÐ Búnaðarbanka ís-
lands hefur hafnað tilmælum Val-
gerðar Sverrisdóttur, viðskipta- og
iðnaðarráðherra, um að Þorsteinn
Þorsteinsson, yfirmaður verðbréfa-
sviðs Búnaðarbankans, taki að sér
forystu viðræðunefndar bankans í
sameiningarviðræðum þeim sem
standa nú yfir við Landsbanka ís-
lands. Átelur Pálmi Jónsson, for-
maður bankaráðsins, vinnubrögð
ráðherrans í þessu máli. „Stjóm
hlutafélagsins fer lögum samkvæmt
r<**'ieð málefni þess milli félagsfunda
og ekki er viðeigandi að einn hlut-
hafi sé með íhlutun af þessu tagi,“
sagði hann.
Ráðherra boðaði Pálma og Stefán
Pálsson, bankastjóra Búnaðarbank-
ans, til skyndifundar á föstudag og
lagði þar til að Þorsteinn tæki við
stjórn viðræðnanna fyrir hönd Bún-
aðarbankans.
Pálmi vill taka fram að fregnir af
fundinum með ráðherra séu ekki frá
honum komnar. „Rök ráðherrans
vom þau að Halldór J. Kristjánsson
færi einn fyrir Landsbankamönnum
og best færi á að hið sama gilti um
Búnaðarbankann. Að höfðu samráði
við varaformann bankaráðsins [Þór-
ólf Gíslason, innsk. Mbl.] hafnaði ég
þessum tilmælum alfarið," segir
Pálmi og bendir á að bankaráð Bún-
aðarbankans hafi samþykkt að for-
maður þess og varaformaður eða
staðgengill hans hafi forystu í þess-
um viðræðum. Auk þess hafi banka-
stjórar komið mjög að einstökum
þáttum þeirra.
Aðspurður segist Pálmi vera
undrandi á viðbrögðum viðskipta-
ráðherra í þessu máli. En ero við-
ræður um sameiningu bankanna
ekki komnar í tímaþröng, miðað við
þá ætlan stjórnvalda að setja um
hana lög fyrir jólaleyfí Alþingis?
„Það er auðvitað ljóst að mikið
veítur á áliti Samkeppnisráðs um
þennan samrona og hvert efni þess
verður. Náist ekki að koma fram
lagasetningu um þessi efni fyrir há-
tíðarnar er komin upp mikil óvissa
svo ekki sé meira sagt,“ sagði
Pálmi.
Valgerður Sverrisdóttir, við-
skiptaráðherra, staðfesti við Morg-
unblaðið að umrædd samtöl hefðu
farið fram. „Mér hefur ekki þótt
vera nægileg skilvirkni í þessum
viðræðum af hálfu Búnaðarbankans,
fyrst og fremst vegna þess að svo
margir aðilar hafa komið að þeim og
enginn einn haft um þær forystu af
hálfu bankans," segir hún.
Valgerður staðfestir að ekki hafi
verið fallist á þessar tillögur af hálfu
bankans, en telur hins vegar ekki
óeðlilegt að viðskiptaráðherra hlut-
ist til um mál á þessu stigi.
„Ég ber hina pólítisku ábyrgð á
þessu máli og ríkisstjórnin vill sam-
eina bankana. Þess vegna hlýt ég að
geta fylgst með þessum viðræðum
og haft af þeim afskipti, sýnist mér
svo,“ sagði hún.
Kaupmenn
segjajóla-
verslun fara
vel af stað
JÓLAVERSLUN hefur farið mjög
vel af stað í byrjun desember, að
sögn þeirra kaupmanna í höfuð-
borginni sem Morgunblaðið ræddi
við í gær. Hvar svo í sveit sem menn
eru settir bera þeir sig vel, í Kringl-
unni, á Laugavegi eða annars stað-
ar, og virðist samdóma álit að jóla-
verslun nú sé meiri en á sama tíma í
fyrra. Nýtt kortatímabil hófst hjá
greiðslukortafyrirtækjunum í gær.
Mai'grét Guðbergsdóttir, verslun-
arstjóri í bókaverslun Eymundsson í
Kringlunni, sagði að mjög mikið
hefði verið að gera undanfama
daga. Fólk væri bæði að skoða bæk-
ur í því skyni að velja jólagjafir, en
einnig væri talsvert keypt.
Rannveig Ólafsdóttir, verslunar-
sljóri ítískuvöruversluninni Saulján
á Laugavegi, segir einnig að tals-
vert hafi verið að gera. „Þetta hefur
farið stigvaxandi hjá okkur og á enn
eftir að aukast með nýju kortatíma-
bili,“ sagði hún og benti á að Lauga-
vegurinn hefði notið mikilla vin-
sælda meðal borgarbúa að undan-
fömu, enda væri veðurblfðan með
eindæmum um þessar mundir.
Kaupmenn annars staða bera sig
einnig vel. Eyjólfur Baldursson,
verslunarstjóri í Eirvík heimilis-
tækjum á Suðurlandsbraut, segir
þannig að salan í stærri raftækjum
hafi tekið mikinn kipp í byijun nóv-
ember og þá hafi jólavertíðin í raun
byrjað af fullum krafti. „Ég tel að
salan sé mun meiri en í fyrra, bæði í
stærri og smærri tækjum,“ sagði
Eyjólfur.
Amar Már Ottósson í húsgagna-
versluninni Marco í Mörkinni tekur
undir það með Eyjólfi að nóg sé að
gera í verslunum utan Laugavegs
og Kringlunnar. Hann segir að mik-
ið hafi verið að gera frá 1. desember
og nýtt kortatímabil geti jafnvel
aukið enn á söluna. „Þetta hefur far-
ið vel af stað og fólk virðist bjartsýnt
og ánægt,“ sagði Arnar Már.
Æ KU
L-l-n-a-n
Grundvöllur að góðri framtíð
Æskulínubók er verótryggður 36 mánaða reikningur
með bæstu vöxtum almennra reikninga bankans.
Forráðamenn barna geta þó bundið reikninginn
til lengri tima, þanni^ að innstæðan verði laus til
útborgunar við ákveðinn aldur, t.d. 16 eða 18 ára.
®BÚNAÐARBANKINN
Trausturbanki
Varnarsamningur fslands og Bandaríkjanna
Viðræður um bókun í febrúar
VIÐRÆÐUR um bókun við varn-
arsamning íslands og Bandaríkj-
anna hefjast í febrúar nk. Þetta var
ákveðið á fundi samráðsnefndar
háttsettra embættismanna þjóð-
anna í Washington í vikunni.
Bókunin var gerð árið 1996 og
fjallar nánar um ýmis efni varnar-
samningsins. Hún rennur út í apríl
nk. Að sögn Halldórs Ásgrímsson-
ar utanríkisráðherra fór vel á með
fulltrúum beggja þjóða á fundinum
í Washington.
Hann segir að bókunin sjálf hafi
ekki komið efnislega til umræðu,
en um fjölmargt annað í efni samn-
ingsins hafi náðst samkomulag eða
viðræður séu á lokastigi um. Megi
þar nefna framkvæmd tiltekinna
þátta í varnarsamstarfinu, þar á
meðal um aðgengi að herstöðinni á
Keflavíkurflugvelli sem og verk-
töku og sjóflutninga fyrir varnar-
liðið.
Auk þess verður á næsta ári hálf
öld liðin frá því varnarsamningur
þjóðanna var gerður og hefur verið
ákveðið að minnast þess með við-
eigandi hætti.
„Fundurinn staðfesti hin djúpu
og traustu tengsl milli þjóðanna og
var einkar ánægjulegur," sagði
Halldór Ásgrímsson ennfremur.