Morgunblaðið - 10.12.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.12.2000, Blaðsíða 22
22 SUNNUÐAGUR 10. DESEMBER 2000 MORGUNB LAÐIÐ Siglufjörður, HúsavíkV) W % i NORÐURLANÐ k kVÉVfTRA | Dalvík Blönduós Akureyri \j Seyðisfjörður ö oX J T/UU^NppÐURLAND Stykkishólmur ~ |^A VESTRA V V- ' \|iC> VESTURLANp; - (v&fc' : ' '\s\/ y0' ■; —<yhyy ! AkranosO,- j j c///'’[ / Ólafsvík ;/^SUÐUBLAND ;V KeflavíkQ Grindavík Þoriáks- höfn ý/ WHvol^vðlfur < / SELTJARI Tværverslunarkeðjurmeð 70% markaðshlutdeild á lyfjamarkaði Lyfjabúðir á höfuðborgarsvæðinu BESSASTA'A- ________ MntKTO . KÓPM06UR " . ^ggr ;”’5kx • ct X JrMM HAFNARFJORÐUR Lyfjabúðir utan höfuðborgarsvæðisins O Lyfja/Lyfjabúðir O Lyf og heilsa O Önnur apótek Tf— Vestmannaeyjar O Höfn 5 Okm FYRIRKOMULAG á rekstri lyfja- verslana hefur tekið talsverðum stakkaskiptum frá því að ný lög, sem losuðu um hömlur á fjölda apóteka, gengu í gildi 1. mars 1996. Þróunin hefur einkennst af fjölgun apóteka og fækkun rekstraraðila og er stað- an orðin þannig í dag, eftir samein- ingu Lyfju hf. og Lyfjabúða hf., að tvær verslunarkeðjur eiga 33 af 56 apótekum á landinu, en fyrir rúmum fjórum árum voru alls 44 apótek starfrækt af einyrkjum hér á landi. Alls eiga þessar tvær verslunar- keðjur 25 af 34 apótekum á höfuð- borgarsvæðinu, en 9 apótek eru í eigu sjálfstæðra lyfsala. Sé miðað við heildarveltu á þessum markaði má reikna með að þessar tvær versl- unarkeðjur hafi samanlagt rúmlega 70% markaðshlutdeild, og að nýja keðjan sé nú komin með yfír 60% markaðshlutdeild á höfuðborgar- svæðinu. I kjölfar þess að dregið var úr höftum á rekstri lyfjabúða jókst samkeppni og verð á lyfjum lækkaði. Samkeppnisyfirvöld könnuðu lyfja- verð í 30 apótekum á höfuðborgar- svæðinu eftir að lögunum var breytt. Fyrst var gerð könnun í mars 1997 og aftur í nóvember sama ár, og seg- ir Kristín Færseth, sem hafði um- sjón með verðkönnuninni, að á tíma- bilinu hafi flest lyf lækkað í verði og í sumum tilfellum hafi sjúklingar ekki þurft að greiða neitt. „Samkeppni hafði alveg klárlega áhrif á lækkandi lyfjaverð í byrjun. Við gerðum síðan verðkönnun í sum- ar um allt land, en það hittist svo illa á að þegar við vorum búin að gera þessa könnun í júní, þá hækkaði Tryggingastofnun hlutdeild sjúkl- inga í lyfjum örfáum dögum seinna. Þessi verðkönnun sýndi þó að þá ríkti samkeppni markaðinum, á því er enginn vafi.“ Lyfsala jókst um 933 milljónlr á milli áranna 1998 og 1999 í könnuninni í sumar kom fram að mikill verðmunur var á einstökum lyfjum á milli lyfjaverslana á höfuð- borgarsvæðinu og einnig reyndist þar verulegur verðmunur á milli ein- stakra lyfjaverslana. Þegar tekið var samanlagt verð allra lyfjanna reynd- ist verð þeirra vera 33% hærra í dýr- ustu lyfjaversluninni en í þeirri ódýrustu, og fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega var verðmunurinnn ennþá meiri, eða 37%. Við samanburð á lyfjaverði á landsbyggðinni við verð á höfuð- borgarsvæðinu kom í ljós að lyfin voru að meðaltali 6,5% dýrari úti á landi, og var verðmunurinn 9,5% íyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Sá verðmunur skýrist að verulegu leyti af því að lyfjaverslanir á höfuðborg- arsvæðinu veita þeim hópum sjúkl- inga meiri afslátt af lyfseðilsskyld- um lyfjum. Sala á lyfjum hefur vaxið mjög undanfarin ár. Árið 1989 voru seld lyf hérlendis fyrir rúma fjóra millj- arða króna, bæði í lyfjabúðum og í sjúkrahúsum, en á síðasta ári nam Sala lyfja aukist um fimm millj- arða á tíu árum í kjölfar þess aö hömlum var aflétt í lyfsölu árið 1996 jókst samkeppni á markaöinum, en þróunin hefur einnig oröió sú að talsverð samþjöppun apóteka hefur átt sér staó. Tvær verslana- keöjur eru nú markaósráðandi eftir að Lyfja og Lyfjabúóir sam- einuöust, og í kjölfarió hafa samkeppnisyfirvöld tekió þá sam- einingu til skoðunar. Eiríkur P. Jörundsson skoóaói þróun mála á lyfjamarkaói og komst meóal annars að því aó sala á lyfjum hefur stóraukist undanfarin ár. salan tæpum 9,2 milljörðum króna og hefur því vaxið um 130% á tíu ár- um, í krónum talið. Þannig jókst sal- an um 14,5% á milli áranna 1997 og 1998 og um 11,3% á milli áranna 1998 og 1999 og fór þá úr 8,3 millj- örðum í 9,2 milljarða króna. Með sama áframhaldi má gera ráð fyrir að sala á lyfjum fari yfir 10 milljarða króna á þessu ári. Hlutur Tryggingastofnunar í lyfjakostnaði hefur aukist úr 2,4 milljörðum króna árið 1991 í rúma 4,7 milljarða árið 1999, og þar af fóru 3,9 milljarðar til lyfjaverslana og 608 milljónir til göngudeilda sjúkrahúsa. Sameining nauðsynleg tll frekari hagræðingar Nýlega tilkynntu eigendur Lyfju hf. og Lyfjabúða hf. að búið væri að ganga frá samkomulagi um samein- ingu þessara tveggja verslanakeðja. Mun nýja félagið reka 16 lyfjabúðir og er áætluð velta liðlega þrír millj- arðar króna. Félagið verður sjálf- stætt dótturfélag innan Baugssam- stæðunnar, sem á Lyfjabúðir hf., en undir stjóm núverandi fram- kvæmdastjóra Lyfju og mun Baug- ur eiga 55% hlutafjár í nýja félaginu. Samkeppnisstofnun hefur skrifað viðeigandi aðilum bréf og óskað eftir gögnum vegna sameiningar félag- anna, og hefur málið því verið tekið til skoðunar hjá samkeppnisyfir- völdum. Annar framkvæmdastjóra hins nýja félags, Róbert Melax, seg- ir að sameiningin hafi verið nauð- synleg til þess að halda áfram þeirri hagræðingu sem félögin hafi staðið fyrir undanfarin ár, en þau hafi verið Sala lyfja 1989-1999 leiðandi í lágu lyfjaverði og ætlunin sé að svo verði áfram. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir að sameining Lyfju og Lyfjabúða sé fyrst og fremst til að styrkja þau til framtíðar og til að nýta þetta tækifæri til að gera betur á lyfjamarkaði en gert hafi verið. „Heildsölugeirinn á þessum markaði er mjög sterkur og við teljum að með sameinuðu félagi verði samn- ingsstaðan betri. Þá teljum við nauð- synlegt að vera með öflugt félag hér á landi til að geta byggt upp sterkt félag erlendis, þar sem tækifæri eru að opnast.“ Fyrir tæpum tveimur árum var staðan á lyfjamarkaðinum þannig að Lyfja og Lyfjabúðir voru einu versl- anakeðjumar, en önnur apótek voru rekin af einyrkjum í lyfsalastétt. í ársbyrjun 1999 töldu menn að þess- ar tvær verslanakeðjur yrðu ráðandi á markaðinum í framtíðinni, og í samtah við Morgunblaðið í febrúar sama ár sagðist Ingi Guðjónsson, annar framkvæmdastjóra Lyfju og hins nýja félags, telja að innan tveggja ára yrðu þessi tvö félög með yfir helming markaðshlutdeildar á landsvísu. „Þessi þróun gerist mjög hratt, því hagkvæmni stærðarinnar skilar sér í betri innkaupum. Þeir einyrkjar sem halda velli, verða þeir sem reka vel staðsett apótek.“ Rótgróln apótek sameinast í nýrri verslunarkeðju Fjöldi einyrkja í lyfsalastétt var hins vegar á öðru máli og til að bregðast við samkeppninni var í mars 1999 stofnað nýtt félag, Hag- ræði hf., sem rekur nú verslunar- keðjuna Lyf og heilsa, sem saman- stendur af fyrrum einkareknum lyfjaverslunum. Að sögn Karls Wemerssonar, framkvæmdastjóra Hagræðis hf., gerðu apótekarar sér grein fyrir þeirri samkeppnisaðstöðu sem kom- in var upp, sem varð til þess að þess- ir fyrrum keppninautar ákváðu að setjast niður og stofna eitt félag á grunni rótgróinna apóteka. Apótek- in voru í upphafí 12, en hefur síðan fjölgað og í dag rekur Hagræði 17 apótek og 3 útibú undir nafninu Lyf og heilsa. Karl segir að velta þessara apó- teka losi 2,1 milljarð á þessu ári, en þá séu ekki komin að fullu inn heils- ársáhrif vegna fjölgunar apótek- anna, og telur hann að á ársgrund- velli sé verslunarkeðjan með um 2,6 milljarða króna veltu. Hann segir að fyrirtækið hafi því vaxið mjög hratt á stuttum tíma, og það hafi hugsanlega haft áhrif á að hin tvö félögin ákváðu að sameinast. „Við vorum að sigla á einu og hálfu ári í rúmlega tvo milljarða og verða þama miklu stærri en báðir hinir á einu og hálfu ári. Það má vel vera að það hafi gert að verkum að þeir hafi ekki verið tilbúnir til að keppa við okkur alveg einir og sér.“ Karl segir að ýmislegt hafi verið gert til þess að apótekin komi fram sem ein keðja. Fyrst og fremst sé verið að bjóða sama verðið í öllum búðunum, sem m.a. hafi leitt til þess að apótek sem komið hafa inn í fé- lagið á landsbyggðinni hafi getað lækkað sín verð. „Síðan höfum við að einhverju leyti látið betri kjör í innkaupum ganga til viðskiptavina. En gagn- vart heildsölum sem selja sérlyf, þá er eingöngu hægt að kaupa þau lyf inn á einum stað, og því er mjög erfitt fyrir okkur að fá betri kjör.“ Einokun heildsala vegna flók- inna innflutningsreglna Að sögn Karls setja heildsalarnir upp ákveðið verð fyrir tiltekna vöm, sem sé jafnhátt án tillits til þess hversu mikið sé keypt af vör- unni. „Og það er eitthvað sem gerir þennan markað skrítinn. Uppistað- an af veltunni er lyfin, og þar er ósköp lítið hægt að eiga við verðið.“ Karl segir að það hafi eitthvað verið skoðað af lyfjabúðum að flytja lyf inn á eigin vegum, en það sé hins vegar flókið og dýrt ferli og þar glími menn við mikið reglugerða- veldi, sem sé dyggilega stutt af yfir- völdum. „Það má segja að heildsöl- umar hafi einokunaraðstöðu, vegna þess hve reglumar em flóknar og innflutningur lýtur ströngum regl- um.“ Að sögn Karls em lyfjaverslanir Baugs jafnframt í lykilaðstöðu varð- andi staðsetningu apótekanna, en miklu skiptir að þau séu í alfaraleið og nálægt verslunarmiðstöðum. „Þeir hafa einokunarrétt í Smára- lind og halda þar mönnum vísvitandi úti og munu væntanlega gera það í framtíðinni í nýjum verslunarmið- stöðum sem þeir skipuleggja. Eins og til dæmis í Spönginni í Grafar- vogi, þar sem enginn annar kemst að mep apótek.“ Á þessu ári hafa lyfjaverslanir selt lyf og vömr fyrir 3,8 milljarða króna fyrstu 6 mánuðina. Telja má að salan verði eitthvað meiri seinni 6 mánuð- ina, þannig að líklega er heildar- markaðurinn um 7,8 milljarðar á ári, en í þeirri upphæð er ekki reiknaður með virðisaukaskattur af sölunni. Miðað við áætlaða ársveltu versl- unarkeðjanna tveggja er markaðs- hlutdeild þeiira 73% á landsvísu. Nýja verslunarkeðjan sem verður til við sameiningu Lyfju og Lyfjabúða rekur flestar verslanir sínar á höfuð- borgarsvæðinu. Miðað við liðlega þriggja miHjarða heildarveltu má
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.