Morgunblaðið - 10.12.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.12.2000, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ A fjórða áratug síðustu aldar sárvantaði nokkra skíðakappa í Skátahreyfíngunni hús - svo þeir byggðu það bara sjálfír og skátaskálinn Þrymheimur varð að veruleika. Jóhanna K. Jóhannesdóttir hitti þrjá skíðagarpanna og frumkvöðla skálabyggíngarinnar, þá Hannes Þorsteinsson, Guðmund Ofeigsson og Þórarin Björnsson, síunga karla sem láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Ingdlfur Guðbrandsson og Þórarinn Björnsson bera timbur til skálasmíðarinnar. Olíubrúsar fengnir frá breska hernum voru notaðar í undirstöður Þrymheims. GANGSTÉTTIR borgarinnar eru glerhálar þennan desembermorgun sem blaðamaður skautar afar óglæsilega að húsi Guðmundar og frú Kristínar konu hans þar sem fyrstu ár Þrymheims skulu reifuð með þremenningunum. Silfurhærð- ur herramaður í ullarfrakka stefnir að sömu útidyrum, hann kinkar kolli og kynnir sig, þetta er Hannes og þá vantar bara Þórarin sem brunar örskömmu síðar á rauða tryllitækinu sínu inn götuna, snarstansar og stekkur út. Hús- freyja tekur okkur með virktum og býður til sætis í stássstofunni. Þeir Guðmundur og Hannes eru á níræðisaldri og Þórarinn á tíræð- isaldri, 91 árs síðan í nóvember, þótt blaðamaður eigi erfitt með að trúa þeirri sögu. Elli kerling hefur farið mjúkum höndum um þre- menningana sem eru strákslegir í orði og æði og finnst það allt annað en leiðinlegt að fá tækifæri til að hittast og rifja upp gamla tíma. Eitt sinn skáti - ávallt skáti Þeir hafa verið vinir síðan þeir voru smápattar og kynntust í skátahreyfingunni. Æ síðan hafa þeir fylgst að og það er fátt sem þeir vita ekki hver um annan. „Það er ekki út af engu sem við segjum eitt sinn skáti - ávallt skáti,“ segir Þórarinn og lítur til fé- laga sinna, „við hnýttum vinabönd fyrir margt löngu og það er fátt sem vinnur á skátahnútum." Margar og góðar sögur af vin- skapnum fljúga á milli og erfiðlega gengur að stýra talinu að því hvernig Þrymheimur kom til. „Skíðastarfið hófst upp úr 1930 og þá vantaði okkur auðvitað skíða- skála,“ segir Guðmundur loks um upphafið að skálasmíðinni, „svo við fórum að huga að skálabyggingu. Húsinu var valinn staður við rætur Skarðsmýrarfjalls á Hellisheiði, á miðju skíðasvæði skáta svo það voru hæg heimatökin." Með striðinu komu peningarn- ir og með peningunum skálinn Fyrst í stað gengu framkvæmdir hægt og húsið í sveitinni var aðeins að finna í hugarfylgsnum félaganna næstu árin á eftir. Um 1940 varð svo breyting á. „Þetta byrjaði allt með stríðinu, þá komu peningarnir og fólk fór að geta gert eitthvað svo við létum hendur standa fram úr ermum,“ segir Hannes, „og á uppstigningar- dag 1942 byrjuðum við Jukkararnir á verkinu og fengum dygga aðstoð frá skátum úr öðrum skálum." Þeir félagar muna Þrymsdaga og -nætur eins og aðeins nokkrir dag- ar en ekki áratugir séu liðnir frá því þeir gengu þessar fyrstu ferðir með efniviðinn í nýbygginguna á bakinu. Það hvorki var né er ak- fært upp að Þrymheimi nema á sér- búnum bílum og þá aðeins um há- sumarið svo öll aðföng voru dregin á sleða, borin af mannahöndum eða sett á hesta þegar best lét. Þær voru því ótalmargar ferðirnar upp og niður hlíð til að reisa skálann. Gestkomandi verða líka enn í dag að treysta á eigin hreysti, þrek og þor til að komast í þennan sælureit skátanna. Oll vinnan við skálann var hin vandaðasta og prýddu Þrym út- skorin drekahöfuð og skátaliljur. Inni var að finna rúmgott anddyri með skíðageymslu, baðstofu með arineld og kojupláss fyrir 24. Hiti var nægur þar sem skálinn var hit- aður upp með heitu vatni úr hver þar skammt frá. „Hitaveitan okkar dugði reyndar skammt - aðeins þennan fyrsta vet- ur og síðan ekki söguna meir,“ seg- ir Guðmundur og skellihlær. „Já, en við gátum þó farið í tunnubað sem þótti ansi gott og var nú stund- um biðröð eftir baðinu,“ svarar Þórarinn að bragði. Þegar blaðamanni leikur forvitni á að vita hvernig skátaskálinn var fjármagnaður, svo nútíma tískuorð sé notað, líta piltar sem snöggvast hver á annan. „Ja, við skulum bara segja að við höfum borgað lítið,“ segir Hannes, glottir prakkaralega og þótt hann reyni að leyna stríðnisglampanum í augunum lætur enginn blekkjast. Guðmundur sem hélt byggingar- reikningana tekur undir og segir: „Það gekk með ólíkindum vel að kaupa og sníkja og „stela“ skal ég segja þér, væna mín.“ Hannes gríp- ur orðið á lofti: „Suss, Guðmundur minn, þetta var nú bara kallað að bjarga hlutunum á þeim árum en ætli hann Þórarinn eigi ekki mest- an heiðurinn, hann vann í trésmiðju Árna Jónssonar og fékk viðinn í húsið á kostakjörum." Hvaðan aðföngin komu skiptir víst litlu í dag en sögur af hjólbör- um sem „bara birtust og var svo skilað aftur“ vekja mikla kátínu karlanna. Spurðir hvort skálabyggingin hafi verið tímafrek er Þórarinn fljótur til svars: „Já, ég var svolítið upptekinn við þetta og mátti ekki vera að því að gifta mig fyrr fertug- ur og skálinn risinn.“ Hvað er eiginlega Jukkari? „Lengi vel var þrefað um nafn skálans uns sátt náðist um Þrym- heim, sterkt nafn og kjarngott, fengið úr fornsögunum,“ segir Hannes minnugur háværra orð- ræðna um hárrétta heitið. Skálinn fór snemma að ganga undir gælu- nafninu Þrymur sem þykir þjált og fara vel þeim ungæðisanda sem leikur um skálann. „Við fórum nú oftast á kapp- hlaupi á skíðunum upp að skála og það eru ekki nema tvö þrjú ár síðan við tókum sprettinn þangað síðast," segir íþróttagarpurinn Hannes og tekur fram að þeir í Skátafélaginu Jukkurunum hafi allir verið miklir skíðakappar, hálendisfarar og jöklamenn. „Jukkarar, hvað er nú það?“ spyr blaðamaður í forundran og minnist þess ekki að hafa rekið augun í það orð í neinum orðabókarleiðangra sinna. „Nú það var bara maturinn okk- ar, jukkið sem búið var til úr því sem við fundum í pokunum okkar á ferðalögum skátahópsins. Við blönduðum saman kartöflum og pylsum og sitthverju fleiru og suð- um svo bara nógu lengi og þetta borðuðum við í hálendisferðunum og tókum nafnið upp eftir því - jukkinu,“ útskýrir Þórarinn þolin- móður. „Einhverjir fengu nú illt í magann af þessu en það var ekkert sem skánaði ekki á nokkrum dög- um,“ ískrar í Hannesi. Þessi eðal- matseld hefur fylgt Jukkurunum æ síðan og hefur verið á borðum Jukkarafjölskyldna oftar en sumir kunna að kæra sig um að muna. Teinréttir stælgæjar á stuttbuxum Jukkararnir voru miklir útivist- armenn og gengu um fjöll og firn- indi á fjölmörgum ferðum sínum um landið. „Við Jukkararnir vorum nær ein- göngu í ferðalögum og svoleiðis en ekki í smábarnastarfi. Já, við þeystumst um allar trissur og út um allar sveitir,“ segir Guðmundur aðspurður um skátastarfið. „Þegar við fórum um sveitir klæddum við okkur upp og fórum í úniformið," segir Hannes og sýnir blaðamanni ljósmynd af teinréttum myndarpiltum í stífpressuðum stuttbuxum með skátahúfuna stæl- Iega skásetta á höfðinu. Voru þeir þá ekki umsetnir kven- fólki? „Jú, jú, jú, jú - það held ég nú,“ segir Guðmundur án þess að hika og Þórarinn dregur upp úr pússi sínu forláta myndaalbúm. „Hér er- um við að snyrta okkur - maður varð nú að vera almennilega rakað- ur þegar heimasæturnar litu inn,“ segir Þórarinn og glottir í kamp- inn. Nýjar kynslóðir skáta taka við Oft var þröng á þingi í Þrym og segir sagan að hundrað glaðværir skátar hafi gist skálann þegar mest var. „Þá var sofið undir borðum, uppi á borðum, uppi í risi og úti í geymslu og aldrei færri en tveir í hverri koju,“ segir Þórarinn. Eftir því sem árin liðu stofnuðu þremenningarnir og hinir Jukkar- arnir fjölskyldur og nýjar kynslóðir skáta tóku við skálanum. Skálanum fylgja enn þann dag í dag gamlir siðir sem hver einasti skáti fylgir af kostgæfni. Einn þeirra er að „kyssa negrana". Negrarnir eru tveir biksvartir staurar sem standa við landamörk skálans og er staurunum heilsað með miklum virktum við komu og kvaddir með jafnmikilli alúð þegar haldið er heim. En þótt skátarnir væru ævinlega velkomnir fór gamli Þrymur að láta á sjá og var ástand skálans orðið æði dap- urlegt síðustu árin. Fyrir fimm ár- um þótti nokkrum góðum skátum úr Skátafélaginu Landnemum, kominn tími til að fríska upp á gamla félagann sem hafði veitt þeim skjól og skemmtun um langa hríð á æsku- og unglingsárunum og segir Haukur Haraldsson, Land- nemi og einn forsprakka endur- byggingarinnar, vinnuna hafa verið mikla en við hana var haft að leið- arljósi að viðhalda og vernda vand- að og fallegt handbragð frá fyrstu tíð. Nokkuð sem var bæði tímafrek- ara og dýrara en að reisa nýtt hús frá grunni. Haukur segir slíkt ekki hafa verið meginatriðið þar sem Landnemunum var annt um húsið og vildu bjarga þeim minjum og menningarverðmætum sem þar var að finna. Jarðskjálftar settu sitt strik í reikninginn og tafði stór skjálfti verkið nokkuð enda oft mikil skjálftavirkni á þessum Hengilsslóðum. En smátt og smátt og af þrotlausum áhuga og dugnaði var Þrymur færður í sín fornu glæsiklæði og endurvígður við há- tíðalega athöfn 25. nóvember sl. Skátaliljurnar skarta sínu feg- ursta að nýju, vígalegir drekarnir spúa eldi af þakskegginu og glað- værir skátasöngvar óma nú sem fyrr í kvöldkyrrðinni. Nýjar kyn- slóðir skáta fá nú fyrir atbeina Landnemanna að njóta vistarinnar í Þrym - þessum elsta útivistar- skála Islands sem enn er i notkun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.