Morgunblaðið - 10.12.2000, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
* _________
A meðan ETA heldur morðunum áfram hafna Katalónar sjálfstæðishugmyndinni sem slrkri
„Sjálfstæði er hugmynda-
fræði nítjándu aldarinnar“
rekast óhjákvæmilega á í þessu fjöl-
menningarlega þjóðfélagi.
Aivarlegasta vandamálið tengist
hins vegar sjálfstæðisbaráttu bask-
nesku þjóðarinnar og þá einkum því
fámenna broti hennar sem kennir sig
við ETA, frelsissamtök Baska, og
hefur háð blóðuga baráttu sína með
hryðjuverkum í meira en þrjátíu ár.
Frá því að eins og hálfs árs vopnahléi
samtakana lauk í desember síðast-
liðnum hafa þau myrt 21 mann, nú
síðast katalónska stjórnmálamann-
inn Ernest Lluch, fyrrverandi heil-
brigðisráðherra Spánar. Ein milljón
manna kom saman í miðborg Barsel-
óna, heimaborg Lluchs, tveimur dög-
um eftir morðið í mótmælaskyni við
ofbeldisverk ETA og kröfðust þess
að viðræður jrðu hafnar á milli ríkis-
stjórnar José María Aznars, forsæt-
isráðherra Spánar, og baskneska
þjóðernisílokksins, PNV, sem er við
völd í Baskalandi. Esteve segir það
skoðun sína og 99% Katalóna að deil-
an verði ekki leyst nema með viðræð-
um. PNV er á sama máli enda hefur
hann slitið tímabundin tengsl sín við
pólitískan arm ETA eftir að vopna-
hléinu lauk. Aznai- og ETA eru hins
vegar á öðru máli.
1 ljósi þessarar spennu sem ein-
kennir héraðasambandið á Spáni og
þeirrar spennu sem brotist getur út í
baráttu um sjálfstæði (og mörg önn-
ur Evrópulönd hafa fengið að reyna)
virðist afstaða Katalóna til sjálfstæð-
is vera skynsamleg. Sumir eru þó á
því að aðrar ástæður liggi að baki því
að þeir sækist ekki eftir fullum að-
skilnaði frá miðstjórnarvaldinu í
Madríd. Gárungarnir orða það þann-
ig að Katalónar séu meiri hagfræð-
ingar en þjóðernissinnar; þeir viti vel
hvaðan þeh- fái saltið í grautinn sinn,
ef svo má segja.
Pujolflokkurinn á timamótum
með nýtt leiðtogaefni
Tuttugu ára valdatíð Jordis Pujol
og ílokks hans, Convergéncia
Democrática de Catalunya eða CDC,
er sennilega ein skýrasta birting-
armynd frægrar íhaldssemi
Katalóna. Flokkurinn hefur unnið
síðustu sex kosningar eða allar kosn-
ingar til katalónska þjóðþingsins eft-
ir franeotíma. Pere Esteve, sem
starfað hefur innan flokksins frá
stofnun hans árið 1975 og setið á
þingi síðastliðin átta ár, segir ástæðu
þessarar löngu valdatíðar flokksins
einnig vera Pujol sjálfan. „Hann var
réttur maður á réttum tíma og á rétt-
um stað þegar þjóðin hlaut sjálf-
stjómarréttindin. Pujol hafði barist
ötullega fyrir viðurkenningu á katal-
ónsku þjóðemi á francotíma og var
fangelsaður fyrir að tala fyrir lýð-
ræðislegum réttindum. Hann var því
þjóðþekktur talsmaður frelsis og
sjálfstæðis þegar lýðræðið brast á
eftir dauða Francos. Og hann hefur
staðið undir væntingum fólksins og
haldið áfram að færa okkur í átt að
meira frelsi og sjálfstjórn til þessa
dags.“
Esteve segir að flokkur hans
standi á tímamótum nú. Sjálfur sagði
hann af sér sem aðalritari flokksins
síðastliðinn október. „Ég ákvað að
bjóða mig ekki fram í forystu flokks-
ins vegna þess að Jjóst má vera að það
er komið að því að nýtt fólk taki við
forystunni. Sjálfur er ég hættur þing-
störfum hér í Katalóníu en ég á sæti á
Evrópuþinginu.Til þess að tefja ekki
fyrir nauðsynlegum breytingum og
valdaskiptum innan flokksins ákvað
ég að gefa ekki kost á mér í áfram-
haldandi forystuhlutverk."
Artur Mas fjármálaráðherra sem
tók við af Esteve er að hans sögn sá
sem mun taka við af Pujol sem næsti
leiðtogi flokksins.
Þurfa sjálfstjórnarhéröðin
meiri völd?
En hvert verður hlutverk nýs leið-
toga? Verður það enn að berjast fyrir
aukinni sjálfstjóm? Eða eru Katal-
ónai' komnir þangað sem þeir vilja í
þeim efnum?
Margir, þar á meðai Aznar, eru á
því að sjálfstjómarhéröðin þurfí ekki
meiri völd og ættu ekki að fá meiri
völd ef skynsemin fengi að ráða.
Rekstrarkostnaðurinn einn vex sum-
um í augum en með auknum flutningi
valds frá Madríd til héraðanna hefur
störfum í opinberri stjómsýslu fjölg-
að um tæp 500% síðastliðin fimm ár.
Og til vitnis um valdahlutfóllin er að
héröðin og bæjarfélögin fara með
helming allra opinberra fjárútláta í
spænska ríkinu. Öll héruðin nema tvö
fá hins vegar bróðurpart peninganna
frá Madríd, einungis Baskaland og
Navarra innheimta alla skattana sína
sjálf. Og það er um þessa útdeilingu
miðjunnar á peningum sem héröðin
þurfa að hugsa en um hana er samið á
fimm ára fresti í harðri og langri póli-
tískri rimmu.
Héröðin eru missjálfstæð en
Katalónía er meðal þeirra sem hefur
sjálfstjórn í hvað flestum málum.
Hún fer með löggjafar- og fram-
kvæmdavald yfir stjórnsýslustofn-
unum héraðsins, sveitarfélögum,
katalónskri menningu, borgarskipu-
lagi, opinberum framkvæmdum
innan héraðsins, samgöngum, versl-
un, ferðamálum, heilbrigðis- og fé-
lagsmálum, íþróttum og tóm-
stundastarfi. Sömuleiðis hefur hún
með höndum löggjafar- og fram-
kvæmdavald í menntamálum, lána-
starfsemi, bankastarfsemi og trygg-
ingastarfsemi, námastarfsemi, orku-
málum, umhverfismálum og fleira
mætti telja.
Svo virðist sem Katalónar standi
ansi vel. Utanríkis- og varnarmál eni
ekki á könnu heimamanna, nema það
sem snýr beinlínis að þeirra málum í
alþjóðlegum samningum og sam-
starfi. Fjármálaleg sjálfstjóm er
heldur ekki til staðar, en eins og gefið
var í skyn í úttekt The Economist á
stjórnmálaástandinu á Spáni fyrir
skömmu þá eru Katalónar ekki áfjáð-
ir í að slíta sig úr fjármálalegum
tengslum við Madríd; „Katalónía er
stórskuldug," sagði í fróðlegri úttekt
tímaritsins, og „Pujol vill fá meiri
peninga frá Madríd“.
Á Spáni búa fjórar þjóðir í
sautján héröðum
Núverandi skipan mála í Katalóníu
virðist því skynsamleg og sjálfstæðis-
kröfur óskynsamlegar. Að mati Est-
eve er staðan sem nýr leiðtogi tekur
við þessi: „Við erum ekki sjálfstæð
þjóð. Sjálfstæði myndi þýða að við
slitum tengsl við Spán, yrðum frjáls.
Við erum heldur ekki fullveldi. Þetta
er staða sem við kjósum okkur að
vera í. En hvað vantar? Við viljum
vera viðurkenndir sem þjóð innan
spænska ríkisins og jafnframt innan
Evrópu. Og við verðum að hafa í huga
að hugtakið þjóð felur ekki í sér það
sama og hugtökin sjálfstjórnarhérað
og fullveldi. En spumingin er þá
þessi: Er ómögulegt að viðurkenna
Katalóna eða líta á Katalóna sem
þjóð innan spænska ríkisins? Það var
ekki hægt á francotíma því þá bjó op-
inberlega aðeins ein þjóð í landinu.
En það er hægt núna vegna þess að
við búum við annað kerfi. I Evrópu er
líka breytt ástand þar sem vald hefur
dreifst á fleiri og smærri þjóðarein-
ingar.“
Esteve bendir á að á Spáni búi fjór-
ar þjóðir í sautján héröðum, það er að
segja Katalónar, Baskar, Galíseu-
menn og svo Kastillumenn eða Spán-
veijar. I menningarlegu, sögulegu og
stjórnmálalegu tilliti sé einungis
hægt að tala um fjórar þjóðir. „Ef all-
ir væru sammála um þetta myndi
Spánn vera allt annað ríld, ekki brot-
ið ríki, einungis öðruvísi saman sett,“
segir Esteve.
Hugleiðingar um sjálfstæði segir
Esteve ekki vera uppi á borðinu hjá
stjóm Pujols. Inntur eftir ástæðum
þess svarar hann einfaldlega: „Sjálf-
stæði kemur baráttu Katalóna fyrir
réttindum sínum innan Spánar og
Evrópu ekki við. Sjálfstæði er vissu-
lega spennandi hugmynd en hún er
hugmyndafræði nítjándu aldarinnar
og skiptir okkur ekki máli hér og nú.
Aðalatriðið er að Katalóma haldi
áfram að tryggja efnahagslega, póli-
tíska og menningarlega stöðu sína
innan Spánar og Evrópusambands-
ins með gagnkvæmum samningum,
að við tryggjum okkur þau réttindi
sem við eigum að hafa sem þjóð.“
Þessi höfnun á sjálfstæðishug-
myndinni er athyglisverð, ekki síst
þar sem afstaða CDC til stöðu Katal-
óna innan Spánar og Evrópu virðist
mjög byggjast á þjóðemislegum hug-
myndum að öðm leyti eins og komið
hefur fram. Sú afstaða endurspeglað-
ist til dæmis skýrt í yfirlýsingu Puj-
ols í liðinni viku um að hann myndi
berjast fyrir því að katalónska yrði
viðurkennd sem eitt af opinbemm
tungumálum Evrópusambandsins en
þannig yrði hún jafnrétthá þar og
kastiljanska og aðrar þjóðtungur. Og
raunar virðist þjóðernishyggja
nítjándu aldar hafa gengið í endur-
nýjun lífdaga sé litið til þess sem hef-
ur verið að gerast í Evrópu undan-
farinn áratug.
Eins og Esteve bendir á era að-
stæður þó aðrar á Spáni en í fyrram
Júgóslavíu svo dæmi sé tekið. „Júgó-
slavía var brotið ríki og það þurfti að
endurreisa það. Það fyrsta sem fólk
gerir við slíkar aðstæður er að spyija
sig: Hver erum við? Eram við Júgó-
slavar eða eram við Króatar eða
Bosníumenn? Síðan fylgir fólk sann-
færingu sinni en það verður að skapa
nýtt ríki úr brotum hins gamla.
Spánn er ekki brotið ríki. Hjá okkur
snýst málið því ekki um nýtt ríki
heldur um það hverjir taki ákvarðan-
irnar og hvar. Hjá okkur snýst málið
um það hvemig samstarfinu er hátt-
að við viðsemjendur okkar. Þar krefj-
umst við þess að vera metnir sem
þjóð en það teljum við okkur geta
gert þótt við séum ekki sjálfstætt
ríki. Burtséð frá þessu er ég hins veg-
ar sammála því að þjóðemishyggja
og sjálfstæðishugmyndir era afar
áhugaverð athugunai-efni í þessu
samhengi."
ETA vinnur á eigin forsendum
Sjálfstæði og þjóðemishyggja era
driíkrafturinn á bak við hryðjuverk
ETA þótt vissulega megi draga í efa
raunveralegan tilgang slíkra að-
gerða. Þegar horft er til atburða síð-
ustu mánaða virðist staðan í sam-
skiptum Baska og ríkisstjórnai'
Aznars brothætt.
Að mati Esteve er ástandið afai'
erfitt. „Það ríkir mikil óvissa enda er
ekki að sjá að lausn verði fundin á
málinu í bráð. Á meðan halda morðin
áfram með fárra daga millibili. Við
eram þeirrar skoðunar að samræður
við Baskneska þjóðernisflokkinn sé
eina leiðin til þess að reyna að leysa
málið. Aznar telur það hins vegar
ekki koma til mála að ræða við þjóð-
ernissinna í Baskalandi, ekki frekar
en ETA-menn sjálfa. Hann vill fara
pólitísku leiðina og telur að með því
að sigra þjóðernisflokkinn í næstu
kosningum í Baskalandi geti hann
náð tökum á ástandinu. Eg tel það
mjög ólíklegt enda vinnur ETA á sín-
um eigin forsendum."
Flokkur Jordis Pujols
hefur setið að völdum í
Katalóníu, einu af
sautján sjálfstjómarhér-
uðum Spánar, í tuttugu
ár samfleytt. Pólitískt
markmið hans hefur ætíð
verið að faera héraðið í
átt til aukinnar sjálf-
stjórnar en á sama tíma
og Baskar krefjast sjálf-
stæðis og ETA heggur
meira og meira þá hafna
Katalónar öllum hug-
myndum um sjálfstæði
sem gömlum og úreltum.
Þröstur Helgason
ræddi við Pere Esteve,
fráfarandi aðalritara
flokks Pujols, um stöðu
Katalóníu og ástandið á
Spáni almennt.
SJÁLFSTÆÐI er ekki á dag-
skrá Katalóna, að sögn Pere
Esteve, eins af aðalhug-
myndafræðingum hins
þaulsætna stjórnarflokks Jordis
Pujols, forseta Katalóníu, síðustu
tuttugu ár. „Sjálfstæði er hugmynda-
fræði nítjándu aldarinnar og skiptir
okkur ekki máli hér og nú,“ heldur
hann áfram. „Aðalatriðið er að Katal-
ónía haldi áfram að tryggja efnahags-
lega, pólitíska og menningarlega
stöðu sína innan Spánar og Evrópu-
sambandsins með gagnkvæmum
samningum, að við tryggjum okkur
þau réttindi sem við eigum að hafa
sem þjóð.“
Katalónía er eitt af sautján hérað-
um Spánar sem hlutu sjálfstjómar-
réttindi með nýrri stjómarskrá sem
tók gildi árið 1978 eftir fyrstu lýðræð-
islegu kosningamar í landinu í meira
en fjóra áratugi. Dreifing valds þótti
nauðsynleg á Spáni eftir áratuga-
langa fasíska einræðisstjóm Francos
þar sem það var meira að segja bann-
að að tala annað tungumál en kast-
iljönsku, tungumálið sem umheimur-
inn kallar spænsku. Að margra mati
varð valddreifingin hins vegar meiri
en hún þurfti að vera og ljóst má vera
að fjöldi sjálfstjómarhéraðanna gef-
ur allýkta mynd af fjölda þjóða og
þjóðarbrota innan Spánar. Hugsan-
lega hefði verið skynsamlegra að
koma einungis á sjálfstjórn í hérað-
um þar sem þjóðemisleg og menn-
ingarleg rök voru augljóslega fyrir
hendi, í Katalóníu, Baskalandi og
Galisíu. Markmiðið var hins vegar
alltaf að koma á valdajafnvægi í land-
inu og kannski hefðu þessi þrjú sjálf-
stjómarhérað ekki staðið vel gagn-
vart hinum fjórtán héraðunum
sameinuðum undir hatti Kastih'u ef
þessi kostur hefði verið valinn. Um
þetta eru þó enn skiptar skoðanir.
Nú, tuttugu og fimm áram eftir
dauða Francos, rikir talsverð tog-
streita á milli sjálfstjórnarríkjanna
sautján. Fyrst og fremst er þetta
pólitísk og efnahagsleg togstreita þar
sem ríkari héraðunum, svo sem
Katalóníu, þykir þau halda uppi þeim
verr settu sem aftur telja sig aldrei fá
næga peninga frá miðstjórnarvaldinu
í Madríd. Menningarlegrar tog-
streitu verður einnig vart þar sem
ólík tungumál og menningarheildir
Morgunblaðið/Þröstur Helgason
Pere Esteve, fráfarandi aðalritari Þjóðarflokks Katalóníu.