Morgunblaðið - 10.12.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000 23
reikna með að velta Lyfju og Lyfja-
búða sé ríflega 2,7 milljarðar á
höfuðborgarsvæðinu, en þar er velta
Lyfja og heilsu um einn og hálfur
milljarður og velta sjálfstæðu apó-
tekanna um 500 milljónir. Miðað við
þessar tölur er því markaðshlutdeild
nýju keðjunnar um 60% á höfuð-
borgarsvæðinu.
I aðdraganda þess að ný lög um
frelsi í lyfsölu voru samþykkt á Al-
þingi, var tekist á um það hvort slíkt
fyrirkomulag myndi leiða til aukinn-
ai' samkeppni og lækkunar lyfja-
verðs. í upphafi 21. gr. gildandi
lyfjalaga nr. 93/1994 segir: „Hvert
lyfsöluleyfi takmarkast við rekstur
einnar lyfjabúðar og ber lyfsöluleyf-
ishafi sjálfur faglega ábyrgð á
rekstri lyfjabúðarinnar. Lyfjafræð-
ingi má einungis veita eitt lyfsölu-
leyfi í senn, en leyfishafi getur sótt
um leyfi til að reka útibú frá lyfjabúð
sinni í byggðarlagi þar sem ekki er
starfrækt lyfjabúð."
Þróunin skilað sér í lægra
verði og betri þjónustu
I athugsemdum í frumvarpi við
þessa grein segir að rétt þyki að tak-
marka hvert lyfsöluleyfi við faglega
ábyrgð á rekstri einnar lyfjabúðar,
til þess að samkeppni fái betur notið
sín gagnvart einokun og hringa-
myndun. Þessi grein laganna nær þó
ekki til eignarhalds á apótekum,
heldur gerir einungis kröfu um að sá
aðili sem telst ábyrgur fyrir rekstri
hverrar lyfjabúðar skuli vera fagleg-
ur ábyrgðaraðili. Með þessum hætti
hafa því margir apótekarar i raun
breyst í það að verða launþegar í
stað sjálfstæðra verslunarrekenda,
eftir því sem eignarhald lyfjaversl-
ana færist á færri hendur.
Vilhjálmur Egilsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis, segir að svo virðist sem að
samkeppni á þessum markaði sé nú
miklu meiri en hún var, áður en
frelsi var veitt í lyfjasölu. Samein-
ing á apótekunum hafi m.a. verið
gerð í því skyni að ná niður kostn-
aði við innkaup og aðföng, og það
virðist almennt hafa skilað sér í
lægra verði.
„Síðan er auðvitað spuming í
hvaða farveg þetta fer, og hvernig á
þessari nýju sameiningu verður tek-
ið af samkeppnisyfirvöldum. Eg á nú
ekkert von á að það verði öðruvísi
tekið á samruna í þessari starfsemi
heldur en gengur og gerist annars
staðar. Markaðurinn er auðvitað
galopinn, og ég tel að þróunin hafi
skilað sér í lægra verði og betri
þjónustu við neytendur. Og ég tel að
það sé nú aðalútgangspunkturinn.
En ég held að í þessu, eins og
öðru, þurfi að fylgjast með þróun-
inni. Það er þó engin ástæða til að
grípa inn í þetta ferli fyrr en mark-
aðurinn breytist þannig að það sé
neytendum eitthvað verulega í óhag.
En á meðan verðlag og þjónusta er
sífellt að þróast til hagsbóta fyrir
neytendur, sé ég ekki forsendur til
þess að grípa inn á þá þróun.“
Mun fylgjast vel með
þróun á lyfjamarkaði
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra, segir
að þessar sameiningar lyfjaverslana,
sem átt hafa sér stað undanfarið,
komi sér ekki verulega á óvart, enda
væri þróunin ekki ólík því sem gerst
hefur í öðrum verslunarrekstri. Ráð-
herra segist þó ætla að fylgjast vel
með framhaldinu, enda sé sala á lyfj-
um hluti heilbrigðisþjónustunnar og
skipti þar gríðarlega miklu máli.
„Ef þetta verður til þess að lækka
lyfjaverð til sjúklinga og Trygginga-
stofnunar, þessi samruni sem núna
hefur orðið, þá er það auðvitað eitt-
hvað sem er gott mál. En ef þetta
verður til þess að samkeppni minnk-
ar og verðið hækkar til sjúklinga, þá
verðum við auðvitað ekki eins
ánægð. Ég mun því fylgjast mjög
grannt með því á næstunni hver þró-
unin verður. Þetta er auðvitað hluti
heilbrigðisþjónustunnar og skiptir
gríðarlega miklu máli, þannig að það
er von okkar að þetta verði til lyfja-
lækkunar, annars fer þróunin ekki í
þá átt sem menn stefndu að.“
Gera þarf heildarúttekt
á lyfjamarkaðinum
Margrét Frímannsdóttir, fulltrúi
Samfylkingar í efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis, telur að skoða
þurfi vel hvort sameining Lyfju og
Lyfjabúða samrýmist samkeppnis-
lögum. Hún segir að sjúklingar hafi
þurft að búa við hækkandi lyfjaverð
og hækkandi hlutfall sjúklinga í
lyfjaverði undanfarin misseri. Mar-
grét segist hins vegar sannfærð um
nauðsyn þess að hagræða á þessum
markaði, en engu að síður hljóti að
þurfa að skoða þetta mál sérstak-
lega.
„Markaðurinn er það lítill hjá
okkur og þröngur, að það verður að
setja þar skýrar línur hvar mörkin
liggja í samkeppnislögunum, og ég
er smeyk um að þetta þýði of mikla
samþjöppun og að hætta sé á fá-
keppni. Ég held að það verði að
skoða þetta mjög vel og stöðva það
með öllum tiltækum ráðum að fá-
keppni verði á þessum viðkvæma
markaði, sem skiptir miklu máli fyr-
ir sjúklinga. Fyrir utan það, að við
erum oft á tíðum með fólk sem þarf
verulega á þessari þjónustu að
halda, sem hefur litla möguleika til
þess að afla sér tekna.“
Ögmundur Jónasson, fulltrúi
Vinstri grænna í efnahags- og við-
skiptanefnd, telur að gera þurfi
heildarúttekt á þróun þessara mála í
lyfsölu og lyfjaverði.
„Það þarf að skoða tilkostnað
sjúklinga við kaup á lyfjum og hlut-
deild ríkisins í niðurgreiðslum lyfja.
Síðan þarf einnig að gera úttekt á
markaðnum og rannsaka þær stað-
hæfingar sem annars vegar hafa
komið frá stjómvöldum um að unnt
sé að lækka lyfjakostnað meira og
þá á kostnað lyfjafyrirtækjanna og
þau taki minna til sín. Hins vegar
hafa komið fram gagnstæðar full-
yrðingar frá lyfjafyrirtækjunum um
að ríkið niðurgreiði ekki nóg.“
Að sögn Ögmundar þarf fyrst og
fremst að tryggja hag sjúklinganna,
en jafnframt að huga að hlut skatt-
borgara, og því þurfi að sameinast
um að gera faglega úttekt á þessum
málum í heild sinni.
„Ég hef aldrei verið einn af þeim
sem hafa verið trúaðir á að sam-
keppnin eigi eftir að færa lyfjaverð
hér stórkostlega niður, og setti
spurningamerki við það þegar farið
var út á þá braut. Vegna þess að
menn gleyma þvi stundum, að í sam-
keppninni þurfa menn að fjármagna
yfirbyggingu. Og í annan stað er sú
hætta fyrir hendi, sem virðist vera
að gerast núna, að hringamyndun
geri samkeppnina að engu, en eftir
sitjum við að sjálfsögðu með yfir-
byggingarkostnaðinn."
Ofnæmi eða óþoli gagnvart hreinsiefnum
í heimilishaldi og iðnaði.
Tlðum þvotti með sótthreinsandi efnum.
Óhreinindum, málningu, olíu, kítti, sementi
o.þ.h.
Húðþurrki vegna vinnuumhverfis.
LYFIA
K. Pétursson ehf
www.kpetursson.net
j
Ifiaiíam Srosir við þér á nýrri oíd!
íPúfinnur vart arman eins vaífost að vetril
‘E9fy(fáein stetí lO.jatu: SffÖSRfV
Lwqis í <BangRpkí Cfiiang ftíai/Rai og sóC á
ÖRjFÁ sœti /Toppar ftustarCanda “ 21. jan.
SctCdarClfí MaCasíu og ‘IhaiCandi: SpffuríPetuirtg
9forður *TfiaiCand, CwqisdvöC í ‘BatigkpF °£ Kjada 1
Ódýrara en heima hjá sér!
Hvað segja farþegarnir, sem reynt hafa?
„Vel var greitt úr öllu, allar upplýsingar góðar og rétta!
stóðst. Veðrið var himneskt, fararstjórarnir einstakir,
uppfullir af fróðleik, glaðir, skemmtiiegir og tilbúnir að
leysa hvers manns vanda. Og hótelin. hvílíkur lúxus. no
sem mig drevmdi ekki um að upplifa! Frábær matur og
þjónusta. Hafðu þökk fyrir að opna okkur slík undur o
menningarheim.
Þvílík upplifun fyrir lítinn pening. OKKAR BESTA FE
FERDASKRIFSTOFAN
PRIMAP
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavik, sími S62 0400, fax S62 6S64,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasiða: hppt://www.heimsklubbur.is
Útnefnd í alþjóðasamtökin
EXCELLENCE IN
TRAVEL NETWORK
Fyrir frábærar ferðir
gerir jólin gleðilegri