Morgunblaðið - 10.12.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000 35
Islenska
er ekki kúl
Enska erkúl, en íslenska erheimóttar-
leg, og þess vegna hlýturþað sem er
auglýst á ensku að vera flottara en það
sem er auglýst á íslensku.
M
enn hafa af því
nokkrar áhyggj-
ur hér á landi að
enska sé að verða
heldur fyrirferð-
armikil, ekki síst í ýmsum starfs-
greinum á borð við flug og líka í
viðskiptum. Munu þess vera_
dæmi að íslensk fyrirtæki á ís-
landi sendi íslenskum fjölmiðlum
til birtingar auglýsingar á ensku.
Það eru sennilega tvær aðal-
ástæður fyrir því hvað enska er
útbreitt mál á íslandi á sviðum
þar sem íslenska ætti að duga. I
fyrsta lagi er oft mest um vert að
ekki verði
VIÐHORF
Eftir Kristján G.
Arngrímsson
misskilning-
ur í samskipt-
um. Þessi
ástæða er til
dæmis mikilvæg í flugi, viðskipt-
umogvísindum.
í öðru lagi skiptir það máli að
íslenska er ekki sérlega spenn-
andi tungumál í samanburði við
enskuna, að margra mati - senni-
lega þó aðallega þeirra sem hafa
alist upp við íslensku, en kunna
hana samt ekki sérlega vel. Það
er að segja, íslenska er bara ekki
mjög kúlt mál.
(Hér með er lagt til að orðið
„kúl“ verði tekið upp í íslensku á
þeim forsendum að það hagi sér
nákvæmlega eins og lýsingarorð-
ið „fúlt“. Eitthvað er kúlt, rétt
eins og eitthvað er fúlt - en merk-
ingin er þó að vísu þveröfug).
Ef nánar væri að gáð gæti vel
komið í ljós að síðarnefnda
ástæðan vegi þyngra en mann
grunaði.
Fyrst þetta með að forðast
þurfi misskilning. Sennilega er
það augljósast í samskiptum flug-
manna og í samskiptum vísinda-
manna. Þýðingar hafa galla. Þær
taka tíma - og í flugi er enginn
tími aflögu - og þær bjóða upp á
mismunandi túlkanir á hugtökum
og orðum - sem er fínt í skáld-
skap, en í vísindum gildir að vera
nákvæmur og mikilvægt að allir
séu að meina það sama.
Þess vegna getur það beinlínis
verið spurning um öryggi að tala
ensku fremur en til dæmis ís-
lensku. Þessi ástæða fyrir ensku-
notkun er meðvituð, og það væri
hægt að ráðast gegn henni með
reglugerðum og ráðuneytisátaki.
Hins vegar alveg spurning hvort
slíkt myndi skila árangri.
Flugmönnum gæti þótt þeir
vera að stofna lífi farþega sinna í
voða og vísindamönnum kynni að
þykja sem þeir væru beinlínis að
fela rannsóknarniðurstöður sínar
fyrir öðrum vísindamönnum með
því að skrifa þær á íslensku. Það
er beinlínis hluti af hinni vísinda-
legu aðferð að birta niðurstöður
rannsókna til þess að hægt sé að
gagnrýna þær. Að skrifa slíkar
niðurstöður á íslensku (eða ein-
hverju öðru máli sem fáir skilja)
gæti því hreinlega staðið vísinda-
legum framförum fyrir þrifum.
Þannig getur verið fullgild
ástæða fyrir því að íslendingar
vilji fremur nota ensku en sitt
eigið móðurmál. Mætti nefna
þetta nytsemisástæðu.
En það er önnur ástæða fyrir
því að íslendingar láta freistast
og nota ensku fremur en ástkæra
ylhýra, og sú vegur jafnvel
þyngra vegna þess að hún er lík-
lega ómeðvituð. Hún er sú, að
mörgum íslendingum finnst ís-
lenska er ekki nærri eins æsandi
og enska.
Morgunblaðið greindi frá því
um daginn að verslanaeigendur á
Islandi sendu stundum íslenskum
fjölmiðlum auglýsingar til birt-
ingar á ensku. Hvers vegna
skyldu verslanaeigendurnir gera
þetta? Vegna þess að þeir þekkja
kúnnahópinn sinn. Vegna þess að
auglýsing á ensku minnir á út-
lönd. Vegna þess að enska er kúl,
en íslenska er heimóttarleg, og
þess vegna hlýtur það sem er
auglýst á ensku að vera flottara
en það sem er auglýst á íslensku.
Þetta atriði vegur sífellt
þyngra eftir því sem auglýsingar
og markaðssetning verða stærri
þáttur í því að selja vöru og þátt-
ur vörunnar sjálfrar minnkar.
Spurning hvort það að auglýsa
vöru á íslensku gæti jafnvel í ein-
hverjum tilfellum gert úti um
sölumöguleika á henni. (Væri
þetta tækt rannsóknarverkefni í
markaðssálfræði - eða heitir það
viðskiptasálfræði?)
Islendingum - og ekki bara ís-
lenskum unglingum og fíflurn -
hefur löngum þótt eitthvað út-
nesjalegt við málið, og þá sér-
staklega ýmsar gerðir þess er
þrífast utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Hefur til dæmis jafnvel há-
menntuðu fólki þótt mjög fyndið
að gera sér upp ýmsa útnesja-
framburði sjálfum sér og öðrum
til kæti.
Vandinn við þessa ástæðu fyrir
því að íslendingar vilja stundum
nota ensku fremur en íslensku er
sá, að það er ekki hægt að bein-
línis gera tungumál kúl. Engin
auglýsingaherferð, ekkert ráðu-
neytisfrumkvæði, engar reglur -
ekkert - dugar gegn því dapur-
lega hlutskipti íslenskrar tungu
að vera ekki spennandi í saman-
burði við ensku. Þar af leiðandi er
þessi ástæða, sem kalla mál fag-
urfræðilega, síst léttvægari og
auðveldari viðfangs en nyt-
semisástæðan sem nefnd var að
ofan.
Stundum er sagt að tungumál
hafi tvennskonar eðli. Annars
vegar sé það samskiptatæki, og
hins vegar sé hvert og eitt tungu-
mál heimur út af fyrir sig og lykill
að sjálfsvitund og heimsmynd
þeirra sem erú mæltir á það.
Samskiptatækisútskýringin á því
hvað tungumál sé á miklu fylgi að
fagna nú á tímum. (Það skyldi þó
ekki hafa eitthvað með það að
gera að hún á sér líklega rætur í
ensk-amerískri heimsmynd?)
Heimsmyndarútskýringin þykir
óþægilega rómantískog bjóða
heim þjóðernisrembingi - og það
er nokkuð til í því.
En hún er einmitt það sem
liggur til grundvallar fagurfræði-
legu ástæðunni fýrir því að ís-
lendingar vilja margir fremur
nota ensku en íslensku. Enskan
færir manni nýjan heim þar sem
er gáfað fólk, flott föt, veðrið er
gott og óendanlegt magn til af
peningum. Islenskan er gamall
staður þar sem allt er á einhvern
hátt um fisk.
Þetta er ekki beint sanngjörn
samkeppni.
ALLT ER FERTUGUM FÆRT VALHÚSGÖGN 40 ÁRA
Stofnað l.des 1960
-
Sigurjón Björnsson prófessor hefur lengi stundað hestaferðir og
í þessari bók segir hann frá ferðum sfnum, iýsir reiðleiðum, segir frá
náttúrunni, rifjar upp sögur tengdar þeim stöðum sem riðið er um og
lýsir stemmningunni meðal samferðamanna og hesta.
í bókarlok eni viðtöl við nokkra þekkta hestamenn. Bókin er
litprentuð með um 300 Ijósmyndum þar sem sjá má íslenska hestinn
við ýmsar aðstæður. Þá er í bókinni fjöldi korta af reiðleiðum.
Glæsileg bók fyrir alla unnendur íslenska hestsins
www.mbl.is