Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 38
t 38 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Bæjarstjórn
Reykjanesbæjar
Brýn þörf
á tvöföldun
Reykjanes-
brautar
Á FUNDI bæjarstjómar Reykja-
nesbæjar 19. desember sl. var eft-
irfarandi ályktun lögð fram og bók-
uð:
„Bacjarstjórn Reykjanesbæjar
áréttar samþykkt 23. aðalfundar
Sambands sveitarfélaga á Suður-
nesjum frá 14. október sl. um brýna
þörf á tvöföldun Reykjanesbrautar. I
ályktuninni segir m.a.: „Aðalfundur
SSS haldinn í Garði 13. og 14. okt.
2000 fagnar framkominni vegaáætl-
un fyrir árin 2000-2004, þar sem
kveðið er á um flýtingu framkvæmda
frá því sem áður var áformað varð-
andi Reykjanesbraut og Suður-
strandarveg.
Aðalfundurinn harmar þó, að enn
er gert ráð fyrir 5 ára framkvæmda-
tíma og að verktími verði á árunum
2002 til 2007.
Aðalfundur SSS bendir á að sívax-
andi umferð á Suðumesjum, ekki síst
í tengslum við flugstarfsemina, kall-
ar á brýna þörf á að fjármagn verði
tryggt til að hrinda vegaáætlunum í
framkvæmd og að áfram verði unnið
að því af fullum krafti að útvega
meira fjármagn til að flýta verkinu."
Hinir alvarlegu atburðir sem átt hafa
sér stað á brautinni á undanförnum
áram, undirstrika enn hve alvarlegt
ástandið er og hafa ýmsir, jafnt al-
þingismenn og ráðherrar, tekið undir
það. Öllum ætti því að vera Ijóst hve
brýnt er að allir leggist á eitt við að
finna leiðir til að fjármagna fram-
kvæmdimar og að 5 ára fram-
kvæmdatími er alltof langur.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar tel-
ur sérstaklega mikilvægt að tvöföld-
un Reykjanesbrautar frá Reykja-
nesbæ að Hafnarfirði hafi forgang og
að tryggt verði fjármagn á vegaáætl-
un 2001-2004 til að ljúka þeim fram-
kvæmdum."
Dæmdir fyrir að
ræna pizzusendil
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt tvo nítján ára pilta í sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi en
þeir rændu pizzu og 1.000 krónum af
pizzusendli aðfaranótt laugardagsins
14. mars sl. fyrir utan fjölbýlishús í
Reykjavík. Refsingin fellur niður eftir
tvö ár haldi þeir almennt skilorð.
Hjördís Hákonardóttir, héraðsdóm-
ari, kvað upp dóminn.
Piltamir játuðu fyrir dómi að hafa í
sameiningu ráðist að pizzusendlinum.
Annar þeirra sneri hann niður á með-
an hinn tók pizzuna og peningana.
PUtamir bára fyrir dómi að ránið
hefði verið skyndiákvörðun sem ráð-
ist hafi af tilvifjun en hafi ekki verið
skipulagt fyrirfram. Þeir sögðust báð-
ir iðrast verknaðarins. Pizzusendill-
inn bar fyrir dómi að hann hefði
meiðst h'tillega á hálsi og fæti en ekki
hlotið varanlegan skaða. Auk skil-
orðsbundinnar refsingar var piltun-
um gert að greiða málsvamarlaun
veijenda sinna, 80.000 krónur hvor.
Ymislegt annað en steiktar
pylsur og súrkál í boði
Knut Hanschke var spurður hvort hann væn til sölu eða leigu.
en skógar og fjalllendi. Hann dvelur í
Þýskalandi í fáeina daga, ferðast
jafnvel um akandi og er kaupglaður
að hætti íslendinga. En af hverju
skyldi fólk leggja leið sína til Þýska-
lands? Knut hefur svör á reiðum
höndum: „Traustir innviðir þjóð-
félagsins og öraggir áfangastaðir,
miðaldabæjarkjarnar í borgum, vin-
og bjórhátíðir og menning, allt frá
Wagner-óperam til popptónleika.
Margt annað mætti nefna eins og
fótbolta og byggingarhst en þetta tel
ég vera aðalatriðin.“
Síðan er Knut spurður hvemig
starf í ferðaþjónustu hafi breyst í
gegnum tíðina.
„Áður fyrr miðaðist starfið við að
bíða þar tU haft væri samband við
okkur en nú er ráðið mun starfsam-
ara og hefur frumkvæði að við-
skiptum. Markaðssókn er lykilorðið
ásamt samstarfi einka og opinbera
geirans. Við höfum haft erindi sem
erfiði en eftir sameiningu þýsku
ríkjanna jókst ferðamannstraumur
gífurlega, ekki síður frá ríkjum Norð-
ur-Evrópu en annars staðar frá.
Fjöldi gistinótta Breta sem era um
60 milljónir var jafnmikil og hjá
Norðurlandabúum samanlagt sem
telja 24 milljónir. Þrátt fyrir alla
markaðssetningu tel ég að persónu-
leg samskipti séu enn mjög mikilvæg
í starfi sem mínu.“
Eftir fjögur ár lætur Knut af störf-
um hjá ferðamálaráði og hyggst þá
flytja til Saarbriicken í Þýskalandi
ásamt eiginkonu sinni.
Enn er Knut á besta aldri, 57 ára
gamall, og kveðst ekki ætla að setjast
í helgan stein þegar hann kemst á eft-
irlaunaaldur heldur sinna áhuga-
málum af kappi; sighngum og út-
varpsmennsku, m.a. lýsa fótbolta-
leikjum en fótbolti hefur lengi verið
honum hugleikinn, hann fer meira að
segja á íslenska fótboltaleiki en í
Þýskalandi segir hann Eyjólf Sverr-
isson halda merki Islendinga á lofti
hjá Herthu-Berlín. „Góðir knatt-
spymumenn eru prýðileg landkynn-
ing. Ef leikmennimir era slyngir
hlýtur landið að vera gott! Éyjólfur
er mikill baráttumaður og það kunna
Þjóðverjar að meta.“
Það er þó langt í frá að Knut hafi
lagt árai- í bát hjá ferðamálaráði því
ýmsilegt hefur hann á pijónunum um
hvemig lokka megi í slendinga til
Þýskalands.
„Ætlunin er meðal annars að höfða
meira til unga fólksins á næstunni,
komið hefur verið upp heimasíðu með
skemmtilegum leikjum og fleira og
er slóðin www.germany-tourism.de.
Einnig höfum við undanfarið lagt
áherslu á, að ýmislegt annað en
steiktar pylsur og sýrt kál sé á boð-
stólum í þýðverskum borgun og bæj-
um. Þessu til staðfestingar gáfum við
nýlega út bækling sem vakið hefur
verðskuldaða athygli. Við ætlum
einnig að höfða meira til fjöl-
skyldufólks en áður og síðast en ekki
síst er hafinn undirbúningur að
heimsmeistarmótinu í knattspymu
sem haldið verður í Þýskalandi árið
2006 en ég er þegar farinn að leggja á
ráðin ásamt Atla Eðvaldssyni um
hvemig skipuleggja skuli ferðir ís-
lenskra fótboltaáhugamanna á mót-
ið.“
Þar með var Knut Hanschke rok-
inn út í veður og vind, flugvélin hans
til Kaupmannahafnar var á leiðinni í
loftið eftir örfáar klukkustundir en
ekki er ólíklegt að við megum búast
við honum hingað til lands fljótlega
aftur.
Ferðir Knuts Hánschke, yfírmanns þýska
ferðamálaráðsins í Norður-Evrópu, til Is-
lands nálgast nú fjórða tuginn en örlögin
hafa tengt starfsferil hans við landið okkar.
Hrönn Marinósdóttir ræddi við hann um
ferðaþjónustu, kurteisi, fótbolta og fleira.
KNUT Hánschke, yfirmað-
ur þýska ferðamálaráðs-
ins í Norður-Evrópu, er
léttur í lund og miídll
herramaður, minnir jafnvel á bresk-
an slíkan en það aftekur hann með
öllu. ,Áttu þá við að Þjóðverjar séu
ekki herramenn? ímynd fólks er oft
hjákátleg og á við engin rök að styðj-
ast. Bretar era sjálfsagt kurteisir en
að meðaltali h'tið betri en aðrir. Telja
má um 5% hverrar þjóðar vera fá-
bjána, þeir era því meira áberandi í
Þýskalandi en til dæmis Islandi en
hinir era eins fjölbreytilegir og þeir
era margir.“
Til er skemmtileg saga af iyrstu
ferð Knuts Hanschke með íslenska
blaðamenn til Þýskalands en þá vai-
hann sem endranær ötull við að
hjálpa konum í hópnum úr kápunum,
opna fyrir þær bíldymar og svo fi-am-
vegis. Á öðrum degi ferðar var hann
því spurður af skeleggri blaðakonu:
Ertu til sölu eða leigu? Knut er ekki
falur en hann er boðinn og búinn til
þess að kynna landið sitt hvar og hve-
nær sem er en varla er til sá þýski
, staður semhannekkiþekkir,íþað
minnsta kveðst hann geta mælt með
gististöðum eða veitingahúsum í nán-
ast hverjum bæ og borg landsins.
íslensku blaðamannaferðirnar tii
Þýskalands með Knut Hánschke í
fararbroddi era ófáar, að meðaltali
ein á ári í frá því hann hóf störf hjá
ferðamálaráði Þýskalands árið 1986.
Fjörutíu ár að baki
Starfsferill Knuts á sviði ferðamála
spannar reyndar fjöratíu ár, hvorki
meira né minna. Árið 1960 hóf hann
störf á ferðaskrifstofu í Frankfurt en
þaðan fluttist hann frá Braunschweig
þar sem hann er uppalinn. í tæp tutt-
ugu ár starfaði hann að sölu- og
markaðsmálum hjá hinum ýmsu flug-
félögum víða um heim, meðal annars í
New York en þaðan á hann afar góð-
ar minningar. Síðan fluttist hann til
Kaupmannahafnar og hóf störf hjá
þýska ferðamálaráðinu.
Örlögin hafa hagað því þannig að
Island hefur á ýmsan máta fléttast
inn í líf Knuts um dagana en hjá Loft-
leiðum í Frankfurt vann hann á ár-
unum 1975 til 1982. „Tilviljun réð þvi
nokkum veginn en þannig var að ég
hafði verið starfsmaður TWA sem
hafði skrifstofu við hlið Loftleiða í
Frankfurt. Þeir hættu að bjóða ferðir
til Þýskalands svo ég gekk yfir á
næstu skrifstofu og bað um vinnu
sem ég og fékk. Frá þeim tíma á ég
góða vini hér á landi en segja má ég
hafi kynnst betur íslendingum, sið-
um þeirra og venjum eftir að ég hóf
störf hjá ferðamálaráði.“
Rnut hitti blaðamann í skammdeg-
inu skömmu fyrir jólin en þá var hann
í 35. Islandsheimsókn sinni. „Mér
telst svo til að ég hafi lent á Keflavík-
urvelli fimmtíu og einu sinni um æv-
ina en í um þriðjungi tilfella verið á
leið minni tÚ eða frá Bandaríkjunum.
Fyrstu árin kom ég hingað mér til
skemmtunar en undanfarið hef ég
verið mest í viðskiptaerindum."
Ekki kveðst Knut hafa týnt hjart-
anu á Islandi eins og segir í frægu
kvæði Goethe um Heidelberg en
hann kann ákfalega vel við sig.
„Þótt ekki sé unnt að telja ykkur
jafnopin og ítali eða Spánveija við
íyrstu kynni þá býr hér gott fólk og
heiðarlegt. Mér finnst þið ættuð að
gæta Vel að sérkennum ykkar sem
lítil eyþjóð og halda áfram að lesa
bækur, þar með talin unga kynslóðin,
þótt Netið sé til staðar."
Á íslandi nýtur Knut þess að borða
fiskmeti sem hann telur með því
besta í heiminum, auk þess sem
lambakjötið okkar sé hreint afbragð.
„Ég er mikill áhugamaður um vín- og
matarmenningu og skipulegg oftast
fríin mín með tilliti til þess hvar hægt
er að fá góðan mat og drykk.“ Ijóð-
veijar era miklir bjórdrykkjumenn
en Knut segist hafa breyst úr bjór-
áhugamanni í léttvínsmann, það ger-
ist hjá mörgum með aldrinum.
Ferðum fækkað
héðan til Þýskalands
Ferðum Islendinga til Þýskalands
hefur fækkað með árunum, þær náðu
hámarki í kringum árið 1989 með um
81.000 gistinóttum en era nú um
50.000 talsins. Þó er örlítil aukning á
ferðum frá því í fyrra, að sögn Knuts,
sérstaklega jókst straumurinn í
ágúst og september eða um 20% frá
því á sama tíma í fyrra. Líklega skýr-
ingu telur hann vera aukna sam-
keppni; möguleikar okkar á ferðum
til annarra landa hafa aukist, auk
þess sem flug Flugleiða til Hamborg-
ar hefur verið lagt niður en það var
vinsæll áfangastaður íslendinga.
Knut segir Bæjaraland vera hvað
mest heimsótt af I slendingum en þar
á eftir kemur Nordrhein Westfalen '
og um 100% aukning hefur orðið á
ferðum til Berlínar.
Þjóðveijar ferðast mikið til Is-
lands, mest á eftir Bandaríkjamönn-
um, með um 40.000 gistinætur en
auðveldlega má tvöfalda þá tölu ef
meira fjármagni væri veitt til kynn-
ingar- og markaðsmála, að mati
Knuts.
Dæmigerður íslendingur sem
ferðast til Þýskalands er 47 ára gam-
all karlmaður í borgarferð en svo
virðist sem borgimar heilli fólk meira
-------- GAMLARSKVÓLD ------------
Greifarnir fylgja okkur inn í árið 200 I
Miðaverð í forsölu kr. 2000, við inngang kr. 2500.
Húsið opnar kl. 01,00
--------- NÝÁRSKVÖLD -------------
Nýársfagnaður Leikhúskjallarans Galakvöldverður. Uppselt
Ósóttir miðar seldir á milli jóla og nýárs.
Nýársball rneð hljómsveitinni Sixties
Miðaverð kr. 4000 • samkvæmisklæðnaður
takmarkaður miðafjöldi
Hverfisgötu 19
sími 55 1 9636