Morgunblaðið - 31.12.2000, Side 40
40 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir, fósturmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
HALLDÓRA NANNA GUÐJÓNSDÓTTIR,
frá Flatey,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð,
Garðabæ, fimmtudaginn 28. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurður Bjarnason,
Gunndór Sigurðsson,
Valþór Sigurðsson,
Hörður Sigurðsson,
tengdadætur og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
DAGNÝ HELGADÓTTIR
frá Kaldárholti,
Dofraborgum 38,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju mið-
vikudaginn 3. janúar kl. 13.30.
Logi Helgason,
Kristín Þ. Logadóttir,
Helgi Þór Logason, Guðrún Vala Davíðsdóttir.
+
Hjartkær móðir og amma,
RANNVEIG DÝRLEIF MATTHÍASDÓTTIR
frá Grímsey,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Sérstakar þakkir til starfsfólks elli- og hjúkrun-
arheimilisins Grundar fyrir einstaka umönnun.
Hjördís Hreiðarsdóttir,
Rannveig Ása Guðmundsdóttir.
Útför eiginkonu, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
JÓSÍÖNU MAGNÚSDÓTTUR,
Lindargötu 14,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
3. janúar klukkan 10.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem
vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á minningarkort Félags
aðstandenda Alzheimerssjúklinga, sími 533 1088.
Steinar Guðmundsson,
Anna Steinarsdóttir, Gísli Snorrason,
Magnús Steinarsson, Eygló Guðjónsdóttir,
Hansína Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns, föður okkar, sonar
og bróður,
SÍMONAR PÁLSSONAR,
Hörgsiundi 6,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki gjör-
gæsludeildar Landsþítalans Háskólasjúkrahúss.
Einnig stjórn og starfsfólki Flugleiða á (slandi og erlendis, fjölskyldu okkar,
ættingjum og vinum.
Guð blessi ykkur.
Þurfður Vilhjálmsdóttir,
Jóhanna Símonardóttir,
Vilhjálmur Styrmir Símonarson,
Sveinn Orri Símonarson,
Jóhanna Símonardóttir, Páll Þorsteinsson,
Vigdís Pálsdóttir,
Áslaug Katrín Pálsdóttir,
Þorsteinn Pálsson,
Páll Ásgeir Pálsson,
Gylfi Þór Pálsson
og aðrir aðstandendur.
+ Elías Þórðarson
fæddist á Fit á
Barðaströnd 7. októ-
ber 1921. Hann lést
á Sjúkrahúsi Pat-
reksfjarðar 11. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Þórður V.
Marteinsson frá
Grænhól, f. 1. maí
1879, d. 7. maí 1929,
og Ólaffa Ingibjörg
Elíasdóttir frá
Siglunesi, f. 26.
september 1885, d.
1. ágúst 1970. Systk-
ini Elíasar urðu ellefu en tvö
þeirra dóu í bernsku, Marteinn
Ólafur vikugamall og Árdís
tæpra tveggja ára. Önnur voru
og eru: Ólafía Ástríður, Guðrún
Elísa, Gísli, Aðalsteinn, Lilja
Sigurrós, Marta, Lára, Kristján
Hákon og Þórarinn Fjeldsted.
Öll voru systkinin fædd á ára-
biiinu 1904 til 1924. Að Eliasi
KæriElli.
Þegar þín er minnst kemur margt
upp í hugann og allt ber það að sama
brunni. Hver einasti hugsandi maður
sem til þín þekkti sá í þér þá mann-
kosti sem hann vildi sjálfúr hafa.
Hver stjórnar örlögum okkar?
Hvers vegna eru svo misjafnar byrð-
ar á okkur lagðar? Þegar litið er yflr
lífshlaup þitt, Elli minn, verður það
sannmæli „að lengi má manninn
reyna.“ Það er með miklum ólíkind-
um sem lagt var á herðar þínar. Föð-
urmissir á barnsaldri og seinna stór-
felldur systkinamissir, mest af
völdum ættgengs sjúkdóms. Sjálfur
færð þú lömunarveiki sem barn og á
látnum er Marta ein
sinna systkina á lífi.
Þriggja ára lam-
aðist Elías vegna
veikinda og varð
hann því ávallt að
styðjast við staf
hvert sem leið hans
lá. Þetta hindraði
hann þó ekki í því
að vinna og afla,
einkum sér og móð-
ur sinni, lífsviður-
væris. Elías hafði
gott lag á handflök-
un og bústörfum.
Hann starfaði því
einkum að þessu tvennu eftir því
sem aðstæður leyfðu hverju
sinni. Tiltölulega ungur tók Elí-
as að þjást af augnsjúkdómi sem
stöðugt ágerðist og á miðjum
aldri má heita að Elli, eins og
hann var almennt kallaður, hafi
verið orðinn algjörlega blindur.
Útför Eh'asar fór fram frá Pat-
reksfjarðarkirkju 16. desember.
besta aldri fer sjónin. Þetta eru
stærstu áfollin en ekki þau einu. Er
hægt að standa uppréttur í viðlíka
brotsjó? Elli, hvaða ofurkraftur hélt
þér uppi?
Þú varst með fjárbúskap á
Hreggsstöðum þegar ég man fyrst
eftir þér. Þá var sjónin nánast horfin
en með góðra manna hjálp tókst þér
að sinna fé þínu af alúð þótt þú geng-
ir við staf. Það er á þessum tíma sem
þú hefur sjálfsagt oftar en einu sinni
hugsað okkur krökkunum þegjandi
þörfina því börn geta verið tillitslaus
og svo var þarna, því miður. Sjálf-
sagt hefur þú fyrirgeílð þessum púk-
um síðar. Minningin um það hve
mikill söngmaður þú varst er einnig
frá Hreggsstöðum. „Bláu augun“ og
„Fjólan“ voru þá gjarnan tekin af
miklum sannfæringarkrafti.
Miklu seinna eru minningarnar
bundnar við litlu húsin þín tvö á Pat-
reksfirði þar sem við, þessir sömu
krakkar, fengum oft að gista og
dvelja hjá þér. Það var á þeim árum
sem við töldum okkur vera orðin full-
orðin. Þú tókst ævinlega vel á móti
gestum og veittir þeim af því sem þú
hafðir að bjóða hverju sinni. Þá var
gjarnan rætt um daginn og veginn.
Þú fylgdist vel með þínu fólki, varst
vel að þér í þjóðfélagsumræðunni og
fylgdist vel með því sem var að ger-
ast í atvinnulífínu á staðnum og inn
um allar sveitir. Þú naust þess að
ræða málin og það var gaman að tala
við þig. Þú áttir auðvelt með að hlæja
og gera að gamni þínu. Og það var
virkilega gefandi að fá þig til að
hlæja.
Fyrir nokkrum árum kom ég til
þín á gjörgæsludeild Landspítalans
og þá var ástandið ekki gott en þú
reifst þig upp og nokkrum sinnum
áttum við eftir að hittast eftir þetta.
Þá áttir þú oft eftir að gera að gamni
þínu við gesti og gangandi. En þú
áttir líka eftir að líða mikinn sárs-
auka og mikið líkamlegt máttleysi.
Þegar þú svo fórst fórstu hljótt,
það var eins og örlögin hefðu gefíst
upp og játað sig sigruð og nú væri
kominn á friður með ykkur.
Best man ég þig, Elli, þar sem þú
stóðst fyrir utan húsin, sperrtur og
óbeygður, með stafína og tókst veðr-
ið þrátt fyrir takmarkaða eða enga
sjón. í huga mínum ert þú sá sem
aldrei gafst upp og bauð harðneskju-
legum örlögum birginn.
Hvort sem litið er á brottför þína
úr þessum heimi sem ósanngjama
eða sem frið frá erfiðum veikindum
stendur alltaf sú staðreynd eftir að
veröldin verður fátækari að þér
gengnum.
Gísli Marteinsson.
ELIAS
ÞÓRÐARSON
n
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
zí R S
OSWALDS
SÍMI 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AÐALSTRÆTI 4B • 101 REYKJAVÍK
Dnvid Inger Óláfur
l Ufinmtj. Utfiimrstj. . Utfmtrstj.
I. í KKIST UVÍNNUSTO L A
EWINDAR ÁRNASONAR
JULIANA
VIGGÓSDÓTTIR
+ Júlíana Viggós-
dóttir fæddist í
Reykjavfk 2. ágúst
1929. Hún lést 14.
desember síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Fossvogskirkju 28.
desember.
Mér finnst svo skrít-
ið að þú skulir vera
farin, ég trúi því eig-
inlega ekki. Það er allt
svo tómlegt og það
vantar svo mikið þeg-
ar það vantar þig -
bestu mömmu í heimi. Þú varst allt-
af svo kát og glöð og þú máttir aldr-
ei vita af veikri sál, þá varstu komin
til hjálpar. Þú varst góð við alla,
enda dýrkuðu þig allir. Og þegar
Blómabúðin
öauðsKom
v/ T-ossvogskiekjwgarS
Símú 554 0500
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
% £
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
vinir mínir komu í
heimsókn komst þú
fram við þá eins og
syni þína og þeir voru
alltaf velkomnir.
Mamma, ég sakna
þín svo mikið að orð fá
því ekki lýst, ég vildi
að þú værir hérna
ennþá, svo ég gæti
sagt þér hvað ég elska
þig rosalega mikið
elsku mamma mín. Eg
veit að þér líður vel
núna og ég verð að
sætta mig við að þú
sért farin, en minning-
in um þig verður alltaf í hjarta mínu
og þangað til örlögin bera mig til
þín.
Bless í bili mamma mín.
Elsku mamma.
Eg mun alltaf sakna þín,
ég mun aldrei gleyma þér,
þú munt alltaf vera hér, í hjarta mínu
og ég veit að þú munt bíða mín,
þegar örlögin senda mig til þín.
Elsku mamma mín
Ég bið til þín.
(Finnur Andrésson.)
Þinn yngsti sonur,
Finnur.
Mikið úrval af
fallepm
rúmfatnaíi
Skólavörðustíg 21, Rcykjavík, sími 551 4050