Morgunblaðið - 31.12.2000, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000 41
RANNVEIG DYRLEIF
MA TTHÍASDÓTTIR
+ Rannveig Dýr-
leif Matthías-
dóttir fæddist í
Grímsey 4. nóvem-
ber 1910. Hún lést
21. desember síðast-
liðinn. Foreidrar
hennar voru Matth-
ías Eggertsson,
prestur, f. 15. júní
1865, og kona hans
Mundíana Guðný
Guðmundsdóttir, f.
29. aprfl 1869.
Systkini: Ásgeir, f.
3. júlí 1891; Kristín,
f. 9. ágúst 1892;
Emelia Guðrún, f. 26. júlí 1894;
Hallgrímur, f. 17. júlí 1896; Hall-
grímur, f. 8. janúar 1898; Matth-
ías, f. 26. maí 1900; Daníel Will-
ard Fiske, f. 15. aprfl 1902;
Guðmundur, f. 15. maí 1904;
Anna f. 24. ágúst 1905; Rannveig
Dýrleif, f. 11. desember 1906;
Guðmundur Egg-
ert, f. 26. febrúar
1909; Agnes, f. 25.
aprfl 1912; og Hall-
dór, f. 7. október
1915. Þau eru öll
látin.
Rannveig eignað-
ist dótturina Hjör-
dísi Hreiðarsdóttur,
f. 22. september
1943, og er dóttir
hennar Rannveig
Ása Guðmundsdótt,-
ir, f. 4. september
1970.
Rannveig vann
allt til 75 ára aldurs við sauma
og sníðar og þá helst hjá Sjó-
klæðagerðinni, Max og Hlín.
Einnig vann hún heima við
saumaskap fyrir Sólídó, barna-
fatagerð, og ýmsa einstaklinga.
Utför Rannveigar fór fram í
kyrrþey.
Jæja, elsku amma mín, nú ertu
loksins búin að fá hvíldina sem þú
hefur þráð svo lengi. Dagur er að
kveldi kominn og tími til kominn að
hvfla lúin bein og sinna öðrum verk-
efnum annars staðar. Þú varst síðust
af 14 systkinum til að yfírgefa þessa
jarðvist, síðasti hlekkurinn í sterkri
og traustri keðju. Mikið erum við
mamma lánsamar að hafa fengið að
hafa þig svona lengi hjá okkur.
Ég ólst upp hjá ykkur mömmu,
Önnu systur þinni og þér og ég sé það
alltaf betur og betur með hverju
árinu hvflík forréttindi og lán það var
fyrir mig. Ég fæ seint fullþakkað
„kellunum mínum“ fyrir alla ástúðina
ogumhyggjuna.
Þú varst fædd í Grímsey og alltaf
leitaði hugurinn til æskustöðvanna
þótt þú hafír ung að árum flust þaðan
og ekki heimsótt eyna nema einu
sinni eftir það. Ung fórst þú að vinna
við sauma og sníðar og hélst því
áfram allt til 75 ára aldurs. Dugnað-
ur, kraftur og seigla voru þín aðals-
merki og ég er ekki frá því að þrjósk-
una hafi ég erft frá þér, amma mín,
ásamt mörgum öðrum góðum kost-
um. Þú varst mikil húsmóðir og eld-
aðir bestu sunnudagssteik með brún-
uðum kartöflum, sem ég hef nokkru
sinni smakkað.
Mér varð nú hugsað til þín, amma
mín, á aðfangadag þegar ég var að
elda hátíðarmatinn. Mér hefur ein-
hverra hluta vegna aldrei tekist al-
mennilega að brúna kartöflur, en
þennan dag tókst mér það fullkom-
lega. Þær urðu alveg eins og þær
voru hjá þér. Ég er viss um að þú hef-
ur verið þama með mér, kíkt yifír öxl-
ina á mér og leiðbeint mér. Einhvem
veginn finnst mér þú nær mér núna
en þú hefur verið síðastliðin ár og sú
tilfinning hjálpar mér mikið við að
sætta mig við fráfall þitt. Líkamleg
og andleg vanheilsa hafði sett sitt
mark á þig. Þú, sem varst alltaf á
ferðinni og svo algjörlega sjálfbjarga,
varðst skyndilega upp á aðra komin
og ég er viss um að það hefur ekki
verið auðvelt að sætta sig við. En nú
ertu laus úr fjötmnum, elsku amma
mín, og við mamma munum gera
okkar besta til að syrgja þig ekki of
lengi, heldur fagna frelsi þínu. Við
vitum að það hjálpar þér til að aðlag-
ast á þeim stað sem þú ert nú.
Hann frændi okkar, Matthías
Jochumsson, kom svo fallega orðum
að því, sem mig langar að segja við
þig:
Nú frjáls y á Guði gleðst þín önd
í góðri höfn á friðarströnd.
Það gleður þá, sem gladdir þú,
að gleðin eilíf skín þér nú.
Elsku, besta amma mín. Nú er
komið að kveðjustund. Ég þakka
Guði fyrir allai- góðu minningarnar,
sem ég á um þig. Ég minnist heitu
handanna þinna og hlýja faðmsins
þíns, hlátursins sem gat verið svo
dillandi, hvemig þú tókst öll á loft
þegar þú heyrðir harmonikkutónlist,
hvemig þú dottaðir fyrh- framan
sjónvarpið og svafst af þér heilu bíó-
myndimar og sagðir svo „Ekki var
nú mikið varið í þetta“ þegar þú
vaknaðir þegar myndin var á enda.
Ég minnist hvernig þú bjóst til bestu
kleinur og laufabrauð í heimi og
hvernig alltaf var sérstök „ömmu-
lykt“ af þér. Ég finn þess lykt enn
fyrir vitum mér.
Nú ertu komin til foreldra þinna og
systkina og ég er viss um að nú er
glatt á hjalla hjá ykkur og nóg að
skrafa. Við mamma þökkum þér sam-
fylgdina og fyrir alit sem þú gerðir
fyrir okkur. Nærvera þín í hjörtum
okkai- og vissan um að þú vakir yfir
okkur gefur okkur styrk. Minning
þfn mun lifa. Far þú í Guðs friði.
Þín nafna,
Rannveig Ása.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN GUÐNASON,
lést fimmtudaginn 28. desember á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Regína Jörgensdóttir Kjerulf,
Alda Kjerulf Jóhannsdóttir, Sveinn Gunnar Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ÚTFARARÞJÓNUSTAN
EHF.
Frágang-
ur afmæl-
is- og
minning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit töivusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í texta-
meðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að
senda greinarnar í símbréfi
(569 1115) og í tölvupósti
(minning@mbl.is). Nauðsyn-
legt er, að símanúmer höfund-
ar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstak-
ling birtist formáli, ein uppi-
stöðugrein af hæfilegri lengd,
en aðrar greinar um sama ein-
stakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línulengd, -
eða 2.200 slög (um 25 dálk-
sentimetra í blaðinu).
Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú er-
indi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Persónuleg þjónusta
Höfum undirbúið og séð um útfarir
fyrir landsmenn í 10 dr.
Sími 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@utfarir.is
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri_________________útfararstjóri
Blómaskreytingar við öll tilefni
Opið til kl. 19 öll kvöld
Blómastofa
Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Utfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
'sLi 896 8242
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
I Baldur
I Frederiksen
wá ja útfararstjóri,
II j^tisími 895 9199
+
Elskulegur bróðir minn, faðir og frændi okkar,
SIGURÐUR FINNSSON
útgerðarmaður,
frá Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðviku-
daginn 3. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja
minnast hans, er bent á minningarsjóð um
drukknaða sjómenn á Siglufirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Finnsdóttir,
Arnar Sigurðsson,
Bylgja Hauksdóttir,
Bára Hauksdóttir,
Jóhanna Hauksdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og lang-
amma,
SIGURBJÖRG ÓLÖF GUÐJÓNSDÓTTIR,
Grýtubakka 10,
Reykjavík,
sem lést á Landspitala Landakoti föstudaginn
22. desember, verður jarðsungin frá Seljakirkju
miðvikudaginn 3. janúar kl. 13.30.
Jósep Matthíasson,
böm, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
VALGEIR MAGNÚS GUNNARSSON,
er lést föstudaginn 22. desember, verður jarð-
sunginn frá Digraneskirkju miðvikudaginn
3. janúar kl. 15.00.
Ása Gunnarsdóttir, Þorleifur Jóhannesson,
Gunnar Bjartmarsson, Hulda Kolbeinsdóttir,
Ásólfur Gunnarsson,
Sigríður Gunnarsdóttir,
Guðrún Hlíf Gunnarsdóttir, Bjöm Vilhjálmsson,
Berglind Gunnarsdóttir, Garðar Svavarsson
og frændsystkini.
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
HRÓLFUR ÁSMUNDSSON,
sem lést á Droplaugarstöðum á aðfangadag,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 4. janúar kl. 13.30.
Tryggvina Steinsdóttir,
Kristrún Hrótfsdóttir,
Gestur Hrólfsson.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
SVEINS SIGURSTEINSSONAR,
Njálsgötu 86,
Reykjavík.
Katrín Pálsdóttir,
Kristinn Ómar Sveinsson, Lára G. Sighvatsdóttir,
Eyjólfur H. Sveinsson, Aldís Kristinsdóttir,
Bergdís Sveinsdóttir, Þorbjörn Sveinsson,
afabörn og langafabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
ELÍASAR ÞÓRÐARSONAR
frá Fit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Patreksfjarðar og hjúkrunarheimilisins Eirar.
Marta Þórðardóttir
og aðstandendur.
i
4
41
I
c