Morgunblaðið - 31.12.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hugleiðingar um áramót
Er mennt máttur?
Frá Eyjólfí Guðmundssyni:
SKIPTAR skoðanir hafa
verið um það hvort sálir okk-
ar mannanna lifi eftir þessa
jarðvist. Sumii' álíta jafnvel
að engin sál sé tíl.
Meðal fjölhæfs gáfufólks
er þessi hugsanagangur
rikjandi og er þá hvorki trú-
að á tilveru Guðs né annarra
ósýnilegra anda.
Sá sem þetta ritar hefur
aðra skoðun.
Guð er til sem vitigæddur
andi og kraftur, okkur
mönnum lítt skiljanlegur.
Góðar verur, svo sem englar,
eru tengdar þessum guð-
dómi, geta komið okkur til
hjálpar, þegar á reynir.
Mótaðilinn - myrkrahöfð-
inginn, sem stundum er
nefndur Satan, er líka til.
Hann er andi og persóna,
ásamt illum öflum, sem for-
feður okkar nefndu ýmist
ára, djöfla eða púka. Þessi
illu öfl geta sótt að okkur, á
degi sem nóttu og orðið or-
sakavaldur að margs konar
ógæfu. Til að berjast gegn
þessum neikvæðu öflum, er
bænin besta vopnið og þá
einfaldlega vegna þess að
góðir andar laðast að okkur,
en hin illu öfl verða að hopa
af hólmi.
Þorlákur biskup helgi.
gripið inn í líf okkar og skap-
að gæfu eða ógæfu.
Eftir að land varð kristn-
að, beindu menn bænum sín-
um ekki aðeins til Guðs, held-
ur einnig til dýrlinga -
manna og kvenna sem í lif-
anda lífi höfðu stundum
lækningamátt og voru mjög
trúaðar persónur. Við ís-
lendingar eigum okkar þjóð-
ardýrling, Þorlák Þórhalls-
son, sem fæddur var á
Hlíðarenda í Fljótshlíð árið
1133. Hann varð síðar klerk-
ur í Odda og eftir það biskup
í Skálholti.
Þorlákm- biskup hinn
helgi, eins og hann hefir oft
verið nefndur, hefir lengi
þótt góður til áheita, reyndar
allt frá því að hann lést árið
1198.
Rétt er að geta þess, fyrir
þá sem vilja heita á Þorlák,
að til er Áheitasjóður Þorláks
helga. Hann er varðveittur í
Búnaðarbankanum á Hellu.
Með stjórn hans fara: Banka-
stjórinn í Búnaðarbankanum
á Hellu, sýslumaður Rang-
æinga, Hvolsvelli, sóknar-
presturinn í Odda.
EYJÓLFUR
GUÐMUNDSSON
frá Heiðarbrún,
Sólvallagötu 45, Reykjavík.
Sálir okkar mannanna lifa, eftir
dauða líkamans, en geta verið jarð:
bundnar í misjafnlega langan tíma. I
sumum tilvikum eru þær tengdar
jörðinni svo öldum skiptir. Nokkuð
haldgóðar upplýsingar um þetta
hafa fengist gegnum miðla og sjá-
endur.
Forfeður okkar trúðu því að til
væru náttúruandar, svo sem álfar,
huldufólk og áhrifamiklar landvætt-
ir. Þeir reyndu á ýmsan hátt að
vingast við þessar ósýnilegu verur,
eða guði. Það var gert með fórnum,
svokölluðum blótum.
En í dag trúa íslendingar að til
séu duldar vættir, úti í náttúrunni -
andar sem eigi að umgangast með
tillitssemi.
Ut frá þessu má segja að við lifum
í heimi, þar sem ýmsar ólíkar verur
eða andar hafa sína tilvist. Þetta
skiptir okkur miklu því þessi öfl,
hverju nafni sem þau nefnast, geta
Útsalan byrjuð!
Kays sumarlistinn kominn.
Nýja sumartískan á alla fjölskylduna.
Viðskiptavinir sækið frílista strax.
B. Magnússon,
Austurhrauni 3,
Gbæ/Hf.
Frá Margréti Á Halldórsdóttur:
ÞESSI spurning hefur oft komið upp
í huga mér undanfarnar vikur eftir
því sem lengra hefur liðið á verkfall
framhaldsskólakennara. Ég hef verið
að velta því fyrir mér hvaða skilaboð
það eru sem ráðamenn þessarar
þjóðar eru að senda okkur skattborg-
urum. Telja þeir ástæðu til þess að
hafa hér góða skóla og mennta æsku-
lýðinn á sama hátt og gert er hjá öðr-
um menntuðum þjóðum eða eru þeir
að reyna að rífa niður það sem búið
er að byggja upp og drepa niður alla
löngun og vilja unga fólksins til æðri
menntunar? Ég hef miklar áhyggjur
fyrir hönd okkar allra yfir viðbrögð-
um ráðherra vorra. Því hvað á allt
þetta unga og skynsama fólk sem við
eigum svo fúllt af að halda, þegar
þessir menn koma fram í fjölmiðlum
með miklum hroka og úthúða kenn-
urunum? Því fólki sem þetta unga
fólk hefur sett traust sitt á og sótt
menntun sína til? Hvemig á unga
fólkið að geta sett sér skynsamleg og
háleit markmið þegar viðbrögð
þeirra sem valdið hafa eru þannig að
þeim virðist alveg sama um það?
Þetta er ungt fólk í mótun. Það
þarfnast uppörfunar og aðhlynning-
ar til þess að hugsun þess og hæfi-
leikar nái að blómstra. Þess vegna
finnast mér þessi viðbrögð ráða-
manna eins og köld vatnsgusa fram-
an í unga fólkið okkar og ótrúleg van-
virðing við það.
Sem móðir tveggja framhalds-
skólanema hlýt ég að krefjast þess af
ykkur, ráðamenn, að þið gerið eitt-
hvað í málinu strax. Þetta verkfall er
mikill álitshnekkir fyrir ykkur. Til
þess að nemendur og við foreldráS^
höfum einhverja trú á því að hér á
landi sé góða menntun að fá og að
mennt sé máttur, verða að vera vel
menntaðir kennarar til staðar, það
segir sig sjálft. Anægðir kennarar,
sem geta sinnt starfi sínu áhyggju-
lausir um afkomu sína, hljóta að vera
gulls ígildi. Ekki satt?
MARGRÉT Á.
HALLDÓRSDÓTTIR,
móðirtveggja
framhaldsskólanemenda,
Hrauntungu 56,200 Kópavogur.
Minningarkort Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna
www.skb.is/framlog/minningarkort.html sími 588 7555
H
.
Tækifæri aldarinnar
Mjög stór húseign, eins og ný, til sölu fyrir athafna-
mann/menn.
Fjölbreyttir rekstrarmöguleikar.
Vel stætt og vel rekið sveitarfélag býður alla mögu-
lega aðstoð.
Nægur undirbúningstími.
Jarðhiti. Mikið landrými, gott útsýni.
í þjóðbraut. Akstur í 2-4 klst. frá Reykjavík.
Gjafverð. Hagstæð stofnlán.
Nefndu störf þín og atvinnuhugmyndir og þér
verður svarað.
Tilboð merkt: „Fyllsti trúnaður — 21021“ berist
fyrir 5. janúar til auglýsingadeildar Morgunblaðsins.
UTSALAN
hefst 2. janúar kl. 9.00
—retélisHnn-
v/Laugalæk