Skírnir - 01.01.1890, Blaðsíða 3
f'ERÐ STANLEYS í APRÍKtí 1887-89.
3
Belgakonung, sem tók honum forkunnarvel, og bauð honum
að nota ókeypis öll gufuskip á Congófljótinu. Stanley var
gerður að heiðursborgara í Lundrmum, þegar hann kom frá
Bryssel. Hann sendi því næst skip til Congófljótsins moð
föruneyti sitt, en fór sjálfur til Kaíró.
þar hitti hann Junker og Schweinfurth, sem er mikill vinur
Bmins, og hefur skrifazt á við hann, meðan brjef gátu borizt
milli þeirra. Sehweinfurlh or gagnkunnugur í Afríku. Stan-
loy kvaðst ætla Congóleiðina, en þessir tvcir frægu ferðamenn
voru á allt öðru máli. j>oir brýndu fyrir honum, að frá aust-
urströndinui (Zanzibar) væru ekki nema 150 mílur til Emins
og Congóleiðin væri langt um lengri. Bn ástæður Stanleys
til að fara þessa leið voru þær, að á gufuskipum gat hann
komizt svo langt upp eptir Congófljótinu, að einar 100 mílur
voru eptir beina leið til Emins landveg, en allt það svæði var
reyndar alveg ókannað og ókunnugt. það var einkum tvenut,sem
Stanley færði til gegn Zanzibarleiðinni; hann mundi þá neyð-
ast til að fara um lönd hins volduga konungs í XJganda, sem
var lítill vinur hinna kristnu trúarboðara, er dvöldu í landi
hans ; mundi konungur þegar láta höggva þá, er haun heyrði,
að sveit hvítra manna væri á leiðinni; að minnsta kosti hefði
hann farið svo að ráði sínu einu sinni áður. I öðru lagihefði
liann reynt það áður og orðið hált á því, að hafa austur-
ströndina að baki sér, því þá væri ekki hægt að halda föru-
neytinu saman ; Afríkumenn strjúka þá til átthaga sinna.
Margir játuðu, að Congóleiðin væri hættuminnst, þó hún væri
lcngst, því Nílleiðin varð ekki farin vegna Mahdistanna. I
bréfi, sem Stanley sendi til Lundúna í janúar 1887 frá Kaíró,
segir hann, að Junker og Sehweinfurth hafi spáð, að hann yrði
hálft annað ár að komast til Emin pasja Congóleiðina. En sú
varð rauuin á, að það var sannspá.
Prá Kaíró fór Stanley til Zanzibar; þar var fyrir stórt
gufuskip, sem átti að flytja hann og málamenn haus til Cougó.
þar hítti hann Stanley Tippú Tip, gamalkunningja sinn.
Hann er talinn einhver hinn voldugasti þrælasölumaður í Af-
nku og verzlar auk þess mikið með fílabein ; hann kom til
Zanzibar til að semja við soldán þar í landi og tii að verzla.
J nafni Belgakonungs gerði Stanley þann samning við hann,
að hann skyldi vorða jarl Congóríkisius í Stanley-Falls-fylki
1*