Skírnir - 01.01.1890, Page 55
SAMÓA-MÁLIÐ.
55
það, að skjölin í málinu, sem lögð voru fyrir þingin í Berlín,
Lundúnum og Washington vorið 1889, voru 994 þétt prentaðar
blaðsíður, og þó var ekki allt prentað. Allt þetta mas, allar
þessar málalengingar, hafa risið út af eyjaklasa í Kyrrahafi,
sem ekki er mikið stærri en Vestmannaeyjar.
Samoa-eyjarnar eru merkilegar í sögu hinnar nítjándu
aldar, því á þeim byrjaði Bismarck sína nýlendu-«pólitík». Arið
1879 náði þýzkaland undir sig höfn og landræmu við hana á
eyjunum og vildi með þessu móti efla verzlun sína í Kyrrahafi-
Bandaríkjamenn höfðu náð höfn á eyjunum árið áður,
og höfðu ýmugust á þjóðverjum. Eins var um Englendinga í
Astralíu, að þeim þótti illur gestur kominn í námunda við sig.
Frændurnir, Englendingar og Bandaríkjamenn, gerðu því sam-
tök móti þjóöverjum. Malietoa, konungur eyjaskeggja, hafði
nýlega kæft niður langvinna uppreisn. Hann var nú æstur
móti þjóðverjum. Stórbú við höfnina Apia voru í höndum
þýzkra manna og urðu þeir nú fyrir ýmsum óskunda, og 22.
marz 1887 róðust eyjaskeggjar að þjóðverjum, sem voru að
halda fæðingardag Vilhjálms keisara gamla, börðu þá og ó-
virtu myud keisarans. Bismarck heimtaði bætur, en England
og Bandaríkin fengu komið til léiðar, að haldinn var fundur
um málið í Washington. Hór var allt dregið á langinn, svo
Bismarck hætti að semja um málið í ágúst 1887 og kvaðst
ekki lengur geta látið óhefnt þeirrar óvirðingar, er keisaran-
um hefði verið sýnd. þjóðverjar sögðu Malietoa ófrið á hend-
ur. Hann var tekinn og fluttur á þýzku herskipi til Wilhelms-
hafen, en fjandmaður hans Tamasese settur í konungs sess.
Bandaríkjamenn og Englendingar fóru nú að taka taum
eyjaskeggja móti Tamasese, þó þeir gengi ekki í berhögg við
þjóðverja. Ut af smáróstum í Apia lét hinn þýzki konsúll
þýzka hermenn setjast að á landi, þó að stjórnin í Berlín vildi
ekki gefa honum leyfi til þess. England og Bandaríkin vildu
ekki viðurkenna Tamasese sem konung. Loks var Matafa
nokkur tekinn til konungs af þeim hluta eyjaskeggja, sem
ekki vildi þýðast þjóðverja. það var 9. sept. 1888. Hann
kallaðist Matafa Malietoa annar, og fékk vopn og skotfæri
hjá Englendingum og Bandaríkjamönnum, en maður frá Kali-
forníu, Klein að nafni, gerðist foringi yfir liði hans. Hinn
12. sept. 1888 sigruðu þeir félagar í bardaga við Apia Tama-
sese og hinn þýzka liðsforingja hans. Tamasese varð nú að